Morgunblaðið - 19.04.1986, Page 55
NBA-körfuknattleikur:
Síðasti Mjólkur-
bikarleikurinn
QPR og Oxford leika á Wembley á morgun
Velgengni Péturs
heldur áfram
— Lakers burstaði Spurs í fyrsta leiknum
URSLITAKEPPNIN í bandaríka
körfuknattleiknum hófst á
fimmtudagskvöldið og lék Los
Angels Lakers, lið Péturs Guð-
mundssonar, við San Antonio
Spurs og sigraði með miklum
yfirburðum. Lakers gerði 135 stig
en Spurs 88. Pétur stóð sig vel
og skoraði meðal annars tíu stig.
Pétur kom inná strax í fyrsta
hluta leiksins og þótti standa sig
mjög vel. Hann var fyrsti varamaö-
ur og lék alls í 17 mínútur í leiknum.
Jabbar og Pétur lentu báðir í
villuvandræðum og Pétur fékk sex
villur og varð að yfirgefa völlinn.
Lið Lakers lék mjög vel í leikn-
um. Þeir tóku alls 47 fráköst en
leikmenn Spurs aðeins 18. Hittnin
hjá liðinu var einnig frábær meðal-
talið var 66,3% sem er met í úr-
slitakeppni þar vestra. Artis Gil-
more, miðherji Spurs, mátti sín lít-
ils gegn Lakers að þessu sinni.
Hann var tekinn úr umferð og
skoraði aðeins 12 stig sem þykir
lítið þegar hann á í hlut.
Lakers og Spurs leika aftur í dag
og má búast við að leikmenn SPurs
hyggi á hefndir en það lið sem
fyrr vinnur þrjá leiki kemst áfram
í keppninni.
Stigahæstur leikmanna Lakers
í leiknum var Byron Scott en hann
gerði 24 stig. Magic Johnson skor-
aði 18 stig í leiknum en stigahæst-
ur Spurs var Mike Mitchell með
24 stig.
Boston Celtics sigraði Chicago
Bulls í fyrsta leik liðanna með 123
stigum gegn 104 og þar skoraði
Dennis Johnson 26 stig fyrir
Celtics en stigahæstur hjá Cicago
Bulls var Michael Jordan sem gerði
hvorki fleiri né færri en 49 stig og
mun það vera met hjá liðinu í úr-
slitakeppni.
Pétur hefur gert góða hluti hjá
Lakers í þeim átta leikjum sem
hann lék með liðinu í undankeppn-
inni. í tölulegum upplýsingum frá
undnakeppninni kemur fram að
hann hefur að meðaltali skorað 7,3
stig í ieik en alls lék Pétur 128
mínútur.
Frá Bob Hennessay, fróttaritars MorgunblaAsins f Englandl.
A morgun klukkan 14 aó ís-
lenskum tfma verður flautað til
leiks QPR og Oxford á Wembley
leikvanginum f Lundúnum. Leikur
þessi er sfðasti úrslitaleikurinn í
Mjólkurbikarkeppninni þvf næsta
ár mun keppnin heita Littlewo-
ods-cup, en Littlewood er fyrir-
tæki það sem rekur getraunirnar
í Englandi. Leiknum verður sjón-
varpað beint hór á landi og auð-
vitað f Englandi og búið er að
selja 90.000 miða á leikinn þrátt
fyrir að liðið sem leika séu ekki
meðal þeirra efstu í deildinni.
í dag munu leikmenn Oxford
fara á White Hart Lane leikvöll
Tottenham og sjá leik þeirra við
Manchester United en svo gæti
farið að QPR og Oxford þyrftu að
leika þar á miðvikudaginn. Ef jafn-
tefli verður á morgun að venjuleg-
um leiktíma loknum veröur fram-
Uppgjör
Bremen
og Bayern
HANN verður örugglega spenn-
andi lokaleikurinn í toppbarát-
tunni f þýsku bundersligunni f
knattspyrnu þegar Werder Brem-
en og Bayern Munchen leika á
heimavelli þeirra fyrrnefndu.
Bremen náði aðeins öðru stiginu
á fimmtudagskvöldið þegar liðið
lékvið Gladbach.
Þrátt fyrir mikla yfirburði Brem-
en tókst liðinu ekki að skora nema
eitt mark í leiknum, það gerði
Frank Neubarth á 64. mínútu.
Christian Hochstaetter jafnaði síð-
an metin fyrir Gladbach skömmu
síðarog liðin skildu þvíjöfn.
Bayern er nú þremur stigum á
eftir Bremen en á einn leik til góða,
Gladbach er í þriðja sæti með
tveimur stigum minna en Bayern
en einum leik meira.
Hanover og Frankfurt gerðu
markalaust jafntefli og þar með
er Hanover fallið í aðra deild.
lengt í 2x15 minútur og ef enn
verður jafnt munu liðin reyna með
sér aftur á velli Tottenham.
Leikmenn Oxford fá sérstaka
greiðslu, 1200 pund, ef þeir vinna
leikinn á morgun en ekki er vitað
hvað leikmenn QPR fá þó svo full-
vist megi telja að þeir fái sinn bón-
us ef þeirvinna.
Oxford bað í gær um að fá að
æfa á Wembley því liðið er mjög
ungt og því töldu forráðamenn
þess tilvalið að æfa á keppnisvell-
inum, eins og reyndar er venja fyrir
úrslitaleikinn í bikarkeppninni, en
var neitað. Vallaryfirvöld töldu
óþarft að liðin í Mjólkurbikarnum
fengju að æfa á vellinum fyrir leik.
Mikill áhugi er á leiknum í Oxford
og munu um 30.000 áhorfendur
þaðan koma á leikinn. „Það koma
bókstaflega allir, meira segja
sjúkrahúsunum er lokað," sagði
einn leikmanna Oxford við mig í
gær.
Þjálfari Oxford, Ray Graydon
hefur leikið til úrslita í Mjólkur-
bikarnum. Það var árið 1975 sem
hann lék með Aston Villa gegn
Norwich og unnu Villa menn með
einu marki gegn engu og það var
Graydon sem gerði markið.
Robert Maxwell verður á vellin-
um á morgun en hann er einn
þekktasti fjölmiðlamaðurinn í Eng-
landi. Hann á Mirrow blöðin bresku
og fleiri blöð og hefur verið mikið
í sviðsljósinu að undanförnu. Hann
varð nefndarformaður Oxford fyrir
þremur árum þegar liðið var í þriðju
deild. Hann hefur lagt allt sitt í liðið
og árangurinn hefur ekki látið á
sér standa.
QPR mun fá 250.000 pund ef
þeir vinna leikinn. Það er bjórfyrir-
tækið Guinnes sem mun greiöa
þessa upphæð til félagsins en sem
kunnugt er auglýsa þeir á búning-
um QPR. Árlega greiða þeir
750.000 pund en nú ætla þeir að
hækka töluna í milljón ef þeir
vinna.
Einn leikmanna Oxford, John
Aldrige, hefur fimm sinnum áður
komið á Wembley - sem áhorfandi
á leikjum heimaliðs síns, Liverpool.
• Pétur Guðmundsson og Magic Johnson stóðu sig báðir mjög vel
f fyrsta leik Los Angels Lakers f úrslitakeppninni f NBA-deildinni
bandarísku.
Leikurinn á morgun verður fyrsti
leikur hans, eins og flestra Oxford
leikmannana, á Wembley. í gær-
kvöldi hafði hvorugt félagið tilkynnt
byrjunarlið sín þannig að ekki er
hægt að skýra frá því.
Borðtennis:
Norðmenn góðir
NORÐMENN sigruðu Portúgali í
Evrópukeppninni f körfuknattleik
f gærkvöldi með 89 stigum gegn
78 eftir mjög jafnan og spennandi
leik. Portúgalir höfðu yfir, 47:43,
í leikhléi og jafnræði var mikið
með liðunum alveg þar til þrjár
mfnútur voru til leiksloka, þá tóku
Norðmenn sig til og náðu öruggri
forystu sem dugði þeim.
Haakon Austerfjörd var að venju
stigahæsti leikmaður Norðmanna.
f leiknum í gær gerði hann alls 26
stig en næstur var Georg Posti
en hann skoraði 24 stig.
Hjá Portúgölum var Joao Seica
atkvæðamestur, gerði 20 stig og
hirti níu fráköst. Næstur honum
kom Jorge Barbosa með 11 stig
og sex fráköst. Hjá Norðmönnum
var Austerfjörd mjög atkvæðamik-
ill auk þess að skora mest. Hann
tók 13 fráköst og Posti 11. Auster-
fjörd lék allan tímann, hvíldi ekkert
og virtist þessum skemmtilega
körfuknattleiksmanni ekkert muna
um það.
í seinni leiknum í gær sigruðu
Skotar lið fra með 92 stigum gegn *
78 eftir að hafa haft yfir, 41:38, í
leikhléi.
Svertingin í liði Skota, Ralton
Way, var lang atkvæðamesti leik-
maður vallarins. Hann gerði 28
stig en lanin McLain og Graeme
Hill skoruðu 10 stig hvor um sig.
Á morgun leika írar og Portúgal-
ir klukkan 13.45 en úrslitaleikurinn
milli íslands og Noregs hefst klukk-
an 15.30.
Staðan fyrir síðustu leikina er
nú þannig að Norðmenn og Skotar
hafa sex stig hvor þjóð, íslendingar
hafa fimm stig, Portúgalir fjögur
og írar þrjú. Rétt er að geta þess
að tvö stig eru gefin fyrir unnan
leik en eitt fyrir tapaðan.
Haakon Austerfjörd er nú stiga-
hæsti leikmaður mótsins. Hann
hefur skorað 95 stig en Ralton
Way hjá Skotum er annar með 86
stig. Pálmar Sigurðsson er í þriðja
sæti með 70 stig og á góða mögu-
leika aö komast upp fyrir Skotann
þar sem þeir hafa lokið leikjum
sínum. Karl Butler er í fjórða sæti
með 59 stig.
A-stigs
námskeið
Borðtennissamband íslands
heldur námskeið fyrir leiðbein-
endur (A-stigsnámskeið skv. ÍSÍ-
þjálfarakerfi) um helgina. Leið-
beinandi verður Steen Kyst Hans-
en, landsliðsþjálfari.
Einnig er áætlað að koma á fót
dómarakerfi og verður í því tilefni
haldið dómaranámskeið. Leiðbein-
andi veröur Albrecht Ehmann.
• Haakon Austerfjörd, einn besti körfuknattlelksmaðurinn f Evr-
ópukeppninni sem hér fer fram, hefur hér handsamað knöttinn í leikn-
um í gær gegn Portúgal.