Morgunblaðið - 18.05.1986, Qupperneq 21
-
leikhúsinu og ég held að það hafi
verið innstilling mömmu, framkoma
hennar og reisn, sem vakti áhuga
minn á leiklist.
Ég vandist því líka frá blautu
barnsbeini, að hlusta á mömmu
fara með ljóð, og ennþá frnnst mér
mamma einn besti ljóðaflytjandi,
sem ég hef hlustað á. Þetta hefur
Iíka komið sér vel, ekki síst núna
í því verki, sem við erum að flytja,
en þar er allur texti í bundnu máli.“
Skúli starir fram fyrir sig, þegar
hann talar. Það er satt, sem systir
hans segir, hann er íhugull ungur
maður.
„Ég tók eftir því áður en ég fór
í leiklistamámið, að stundum var
eins og ég hoppaði út úr sjálfum
mér og horfði á, þegar ég var til
dæmis að rífast við aðra manneskju.
Ég ákvað að reyna við inntöku-
prófið og ég hef ekki séð eftir því.
Ég held að þetta hafi verið góður
skóli."
— Þú ætlar að gera listina að
ævistarfi?
„Já, ég vil starfa við leikhús
fremur en nokkuð annað, en það
er erfitt að framfleyta sér af þessu
starfí. Þó maður sé fastráðinn við
leikhús eru launin svo lág, að ekki
er hægt að lifa af þeim.“
— Þú hefur leikið ólík hlutverk
í skólaleikritunum ykkar. í leikrit-
inu „Hvenær kemurðu aftur, rauð-
hærði riddari?" leikur þú hálfgert
gauð, það er mann, sem lætur nið-
; urlægja sig og tekur aldrei á móti.
En í Tartuffe ferðu hins vegar með
hlutverk útsmogins hræsnara, sem
reynir að nýta hlutina sér í hag.
Leitar þú að eðlisþáttum persón-
anna í sjálfum þér eða býrð þá til?
„í persónusköpun sníður maður
ekki hlutverkin utan um sig heldur
sækir efniviðinn í sjálfan sig — hið
innra. Segja má að maður reyni að
þroska ákveðna eðlisþætti en aðrir
rými á meðan."
— Finnst þér hlutverkið ná yfir-
tökunum, þannig að það verði raun-
verulegra en veruleikinn sjálfur?
„Ég hef ekki mikla reynslu enn-
þá, en hingað til hefur mér þótt
erfitt að losna við hlutverk. En ég
hef líka getað nýtt mér eiginleika
persónanna í vemleikanum.
Það gerðist um daginn, að ég var
að labba ofan í bæ að næturlagi,
það var eftir útskriftina. Þá mætti
ég tveim strákum, sem höfðu verið
að bijótast inn. Þeir ætluðu að ráð-
ast á mig. En þá beitti ég aðferðum
Tartuffes og áður en þeir vissu af
vom þeir famir að slást en ég gekk
burtu!"
— Finnst þér þú þurfa að beita
þig hörðu þegar þú ert að vinna
hlutverk eða kemur þetta allt leik-
andi létt?
„Ef þetta kæmi syngjandi út
væri ekki um neitt lífsspursmál að
ræða lengur."
Þarft þú að vera í lífsháska til
að ná fram því besta í sjálfum þér?
„Já, sú þörf er sterk. Það þýðir
þó ekki að leikið sé með einhveiju
offorsi. Það verður að tempra til-
finningamar til að finna jafnvægi.
Líkt og í málaralist þá er ekki
hægt að nota alla málninguna í
einu, úr þvi verður óskapnaður."
— Skúli, finnst þér þú skilja það
sem Nína er að gera?
„Já, að svo miklu leyti sem þarf
i/ að skilja það til hlítar. Mér fínnst
, ekki þurfa að útskýra allt, það
verður að vera einhver leyndardóm-
i ureftir."
— En hvernig er það í leiklist-
inni, þarfnast hún útskýringa?
„Þar er allt samantvinnaðra,
söguþráður, persónur og tilfínning-
ar,“ segir Skúli.
„Ég hef ég séð mjög áhrifamikla
leiksýningu, þar sem vom engar
persónur, enginn söguþráður. Þetta
var samt æðisleg sýning, þar sem
maður sveiflaðist frá hlátri til
gráts,“ segir Nína.
„í myndlistinni er til nokkuð, sem
heitir gjörningur, hann byggir ekki
á ósvipuðu," bætir hún við.
— Þið eigið kannski eftir að
vinna saman?
„Það getur vel verið."
Viðtal: Hildur Einarsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ; SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1986
21
2. Hagsýn húsmóðirín er í
sjöunda himni yfirþví að öll
þægindln skuli ekki kosta
meirí fjárútlát.
1. Af ótal kostum þessarar
frönsku lúxuskerru er
fjölskyldufaðirinn hrífnastur
af frábærum aksturseigin-
leikum BX-ins.
3. Pjakkurinn las í blaði að
meðalaldur Citroen í
Svíþjóð er 13 og hálft ár.
Hann ætlar að segja öllum
vinum sínum frá þvi.
4. Systir hans er ánægð
með allt rýmlð og mjög
montin aföllum öryggisbelt-
unum.
5. Amma hefurýmsu góðu
kynnst um dagana, en í
þægilegri bílsætum hefur
hún aldrei setið og vökva-
fjöðrunln er I hennar huga
ekkert ómerkari uppfinning
en rafmagnið.
IL NYA PAS QUE CES CINQ
RAISONS QUI FONTDE LA
OTROÉN BX UNE
DES MEILLEURES VOITURES
FAMILIALES DISPONIBLES /C/*
'ÞAÐ ERU FLEIRIÁSTAÐUR EN ÞESSAR FIMM SEM
GERA OTROÉN BXAÐ EINUM
BESTA FJÖLSKYLDUBÍINUM SEM HÉR F/EST.
470.000,-Kr
kostar Citroén BX 14 E (sbr.
mynd) og er það auðvitað veiga-
mesta ástæðan. Citroén BX
Leader er enn ódýrari; aðeins
443.000,- kr. BX 16 TRS kostar
kr. 568.000,-ogglæsivagninn BX
16 RS Break (station) kostar nú
aðeins 615.000,- krónur.
Ekki síðri ástæða ergreiðslukjör-
in; allt niður í 30% út og afgangur-
inn á allt að tveimur árum.
Innifalið í þessu verði er ryðvörn,
skráning, skattur, stútfullur
bensíntankur og hlífðarpanna
undir vél.
Einnig má nefna framhjóladrifið,
en Citroén hefur verið framhjóla-
drifinn lengst allra bíla - eða
síðan 1934, og hæðarstillinguna
sem skipar Citroén í sérfiokk við
1
akstur í snjó og ófærð. BX-inn er
líka alhaf í sömu hæð frá jörðu,
óháð hleðslu.
Falleg Innrétting og listræn
hönnun á öllum hlutum vega líka
þungt þegar Citroén er borinn
saman við aðra bíla.
Líttu inn í Lágmúlanum eða sláðu
á þráðinn. Sölumenn okkar vilja
segja þér margt fleira um þessa
frábæru bíla.
G/öbUS/
GOTT FÖLK / SÍA
CITROEN *