Morgunblaðið - 18.05.1986, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR18. MAÍ1986
Vinabæjatengsl
Keflavíkur
og Brighton
Sverði brugðið á loft — Á ísiandskynningu í Old Ship
I Brighton. Frá vinstri: Jóhann Sigurðsson, forstöðumaður
Flugleiðaskrifstofunnar i London, Hilmar Jónsson
matreiðslumeistari, sem sá um framleiðslu á íslenzkum mat, Kid
Jensen, hinn þekkti plötusnúður þjá BBC, og Jóhann D. Jónsson,
starfsmaður skrifstofu Flugleiða í London.
The Royal Pavilion i Brighton þykir ein glæsilegasta höll Bretlands. Þar voru vinabæjatengsl
Brighton og Keflavíkur staðfest.
Sudurnesin tengjast
suðurströnd Bretlands
Vinabæjatengsl voru tekin upp í vor milli
Keflavíkur og Brighton á suðurströnd Englands.
Þau voru staðfest við hátiðlega athöfn í Brighton
22. marz sl. Á næstunni eru væntanlegir allmargir
sjóstangveiðimenn frá Brighton og nágrenni til
að taka þátt í sjóstangveiðimóti í Keflavik. Ástæða
þykir til að kynna Brighton nokkrum orðum, en
tengslin ætla að verða meira en orðin tóm milli
Keflavikur og Brighton eins og dæmin sanna.
Aðal hvatamaður þess að tengslumun var komið
á er Jóhann Sigurðsson forstöðumaður skrifstofu
Flugleiða í Englandi en hann er borinn og
barnfæddur Keflvíkingur eins og margir vita.
í 200 ár hefur enska
borgin Brighthon verið vei
þekktur ferðamannastaður
enda laðar borgin að millj-
ónir gesta á hveiju ári. Hún
stendur við suðurströnd
Englands og andar að sér
fersku sjávarloftinu.
Upprunaiega var Brigh-
ton lítill sjávarbær sem lét
ekki mikið yfír sér og var
reyndar ekki uppgötvaður
sem ferðamannaparadís
fyrr en jámbrautarteinar
voru lagðir þangað frá
heimsborginni London upp
úr 1840. Fólksflöldi Brigh-
ton telur sama íbúa§ölda
og allt ísland samanlagt -
240.000 manns.
Prinsinn af Wales,
George, heimsótti Brighton
fyrst árið 1783 og ein af
stórkostlegustu höllum
hans, Royal Pavilion, var
byggð þar árið 1787 af
arkitektinum Henry Hol-
land. Þegar George tók við
konungdómi sínum árið
1820 réðist nýr arkitekt
konungsins, John Mash, í
að breyta höllinni í stfl
hinnar frægu Mogul-hallar
í Indlandi en þó með kín-
versku yfírbragði. Innan-
stokksmunir eru allir upp-
runalegir auk þess sem þar
er að fínna muni frá Buck-
inghamhöll. Nú er verið að
endurbæta höliina, en
Brighton eignaðist hana
árið 1850 þegar Victoria
drottning seldi eignina.
Ferðamenn ættu ekki að
láta fram hjá sér fara stór-
hýsi eitt mikið með hvolf-
þaki - í daglegu tali kailað
„Dome“ - en það er 2.000
manna tónleika- og fundar-
höll, sem upprunalega var
byggð árið 1805 yfír 44
hesta konungsættarinnar.
Konunglega ieikhúsið var
síðan byggt á móti Pavi-
lion-höllinni árið 1807 og
eru þar reglulega haldnar
sýningar.
í gömlu Brighton liggja
örmjóar götur þar sem
hægt er að finna fjölda
antíkverslana, matsölu-
staða og kráa. Húsin eru
eins og hlutar af hveiju
öðru svo minnir á 17. aldar
Brighton Marína er stærsta
listisnekkjuhöfn Evrópu með
lægi fyrir 2.000 sneklg'ur og
báta.
fískimannabústaði. í þessu
söguiega og aðlaðandi
hverfi er hægt að gera
kjarakaup og ijölbreytnin í
vöruúrvali er frá öllum
heimshomum. í hjarta
þessa kjama er Brighton-
torg, lítið en aðlaðandi
verslunarhverfí þar sem
gestir geta jafnt slappað
af í rólegheitum í útikaffí-
húsum á torginu eða á
verönd sem lýtur yfír það.
Steinsnar frá Brighton-
torgi er Dukes Lane, gata
með nýlegum og fagmann-
Frá athöfninni þegar
vinabæjatengslin milli
Keflavíkur og Bríghton
voru staðfest við hátíðlega
athöfn, frá vinstri: Tómas
Tómasson, forseti
bæjarstjórnar Keflavíkur,
Robert Cristofoli,
borgarstjóri Brighton, og
Einar Benediktsson,
sendiherra í Bretlandi.
lega unnum 17. og 18.
aldar byggingarstíl - sam-
byggðum litlum verslunum
og rómantískum veitinga-
stöðum. Hvorki er gert ráð
fyrir bflaumferð á Dukes
Lane né á Brighton-torgi.
Frá Dukes Lane er hægt
að ganga að Church-
ill-torgi, þar sem flestar
opinberar stofnanir er að
fínna.
Brighton Centre stendur
við sjávarsíðuna en það
opnaði árið 1977. Þar er
stærsti ráðstefnusalur
Bretiands - tekur 5.000
manns f sæti f aðalsal og
800 manns í smærri sal.
Auk ráðstefnuhalda, fara
þar ýmsar aðrar uppákom-
ur fram svo sem tónleika-
og fþróttaviðburðir. Meðal
þeirra tónlistarmanna sem
komið hafa þar fram eru:
Rod Stewart, Shirley Bas-
sey, Barry Manilow, Duran
Duran, Tom Jones, Robert
Plant og James Last. Við
hliðina á Brigton Centre
við sjóinn er önnur
skemmtanasamstæða,
Kingwest, sem m.a. býður
upp á diskótek, þijú kvik-
myndahús og bari. Árið ’
1978 var síðan lokið við 1
smíði stærstu listisnekkju- '
hafnar Evrópu - Brighton '
Marina. Landfestar fyrir "
2.000 báta eru þar til stað- *
ar og meðal þess sem er á 1
skipulagsskrá næsta árs er 5
bygging hótels, verslana1
og skemmtistaða við höfn- *
ina. Þetta skemmtilega'
hafnarsvæði yrði þá eins-r
konar þorp út af fyrir sig.