Morgunblaðið - 18.05.1986, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MAÍ1986
31
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
Heimasœta og
förumaöur
Naut (20. apríl-20.
maí).og Bogmaöur
(22. nóv.- 21. des).
í dag ætla ég að fjalla um
samband þessara merkja. Við
verðum alltaf að hafa í huga
þegar við lesum lýsingu á því
dæmigerða fyrir hvert merki
að hver maður er samsettur úr
nokkrum stjömumerkjum.
Ólík merki
Naut og Bogmaður eru gjörólík
merki og eiga fátt eða ekkert
sameiginlegt. Ef við segjum
að Nautið sé bóndi sem yrkir
jörðina, er fast á sínum bletti
árum saman, er Bogmaðurinn
ferðalangur sem skoðar heim-
inn, fer í leit að þekkingu úr
einum stað á annan.
FörumaÖurinn
Eðli ástarsambands milli þess-
ara merkja er augljóst. „Er
förumaðurinn hafði gengið yfir
flöll, dali, ár og merkur, gist
borgir, bæði stórar og smáar,
kom hann einn vordag að grón-
um dal. Hann tyliti sér á þúfu
efst í dalnum, kastaði mæðinni
og leit yfir sveitina. Þetta er
falleg og grösug sveit, hugsaði
hann. Það væri kannski ekki
svo vitlaust að dvelja hér
sumarlangt. Ég hef farið víða
að undanfomu og mér veitti
ekki af smáhvíld."
Heimascetan
Niðri í dalnum er reisulegur
bær. Það búa karl og kerling,
ásamt syni sínum og gjafvaxta
dóttur. Fjölskylda þeira hefur
búið þar frá örófi alda. Það er
sólskin. „Heimasætan situr í
hlaðvarpanum. Henni er litið
upp er Snati gamli tekur að
gelta út á vegi. Hvað skyldi
vera að gerast, hugsar hún.
Er ókunnan gest að bera að
garði? Það getur ekki verið
hann Jón af næsta bæ. Hún
roðnar lftillega við tilhugsun-
ina. Þegar gesturinn nálgast
sér hún að hér er ókunnur
maður á ferð. Hann er hávax-
inn, fríður sýnum, og óvenju-
legur í klæðaburði."
Sumarást
Og hvað gerist svo? Jú, föm-
maðurinn laðast að heimasæt-
unni sem aftur hrífst af heims-
manninum. Hann færir henni
blóm, hvíslar undarlegum orð-
um í eyru hennar og segir
sögur af flarlægum löndum.
Hann kennir henni söngva og
ljóð. Einlægni hennar, nátt-
úmfegurð og heilbrigði heilla
hann. Auk þess er hún ung og
til staðar. Auðvitað veldur
þetta uppistandi í sveitinni.
Foreldrar hennar skelfast. Jón
á næsta bæ verður afbrýðisam-
ur. Elskendur fara þó sínu
fram, eins og gengur.
Hún giftist Jóni
Og hvemig endar sagan? Jú,
þegar tekur að hausta verður
Bogmaðurinn órólegur. Hann
þarf nauðsynlega að komast
til borgarinnar. Þau kveðjast.
Kannski í friðsemd og með
söknuði, eiga síðasta heita
ástarfundinn. Hann lofar að
koma aftur næsta vor, en bæði
vita að hann kemur aldrei aft-
ur. Kannski fer sagan þannig
að stúlkan biður hann að gift-
ast sér, hann neitar og eftir
rifrildi og ásakanir fer hann.
Það yrði helst ef hann væri
farinn að nálgast fertugt að
gifting kæmi til greina, eða þá
að hún flytti með honum til
borgarinar. Það gæti hún hins
vegar aldrei hugsað sér. Það
kemur ekki til greina að yfir-
gefa sveitina. Sagan endar
því þannig að Bogmaðurinn
heldur á vit nýrra ævintýra og
Nautið giftist Jóni.
X-9
£0 MÁ £KK/ ólfy'/td
/>Z> píSS/ MAPOR
Vi/////&/># -
M011í>M6Ju//(//
DYRAGLENS
þ/U^NJA EKTV> PÁ! Éú tí?
40 LEiTA A€>
þÉf2 AlLS OTA&AR!
m X
LJOSKA
DRATTHAGI BLYANTURINN
450.
DRATTHAGI BLYANTURINN
SMAFOLK
I JU5T HEARP THAT VOUR
E55AV ON WHAT VOU
PIP PURING CHRISTMAS
VACATION WON THE'ALL-
CITY 5CH00L ES5AY C0NTE5T1'
rin
VOU UJROTE ABOUT
LOOKlNé AT THE CLOUPS,
REMEMBER? ANVLUAV,
YOU UJON ..CONGRATULATION5!
PONT UJIPE VOUR
TEAR5 AUJAV LUITH
VOUK FRENCH FKIES, SIR
Hr
Þú vannst, herra.
hvað?
Vann
Ég var að frétta að rit-
gerðin þín um jólaleyfið
hefði sigrað í ritgerða-
samkeppni borgarinnar.
Þú skrifaðir um að horfa
á skýin, manstu? Jæja,
þú vannst. Til hamingju!
Þúrrkaðu ekki tárin með
frönsku kartöflunum,
herra.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Keisarabragðið" er það kaft*.
að þegar menn sýna slíkt veldi
í vöminni að henda af sér ás í
lit sem sagnhafi er að rembast
við að fría. Mætti líkja því við
drottningarfóm í skák. Hér er
fallegt dæmi:
Austurgefur; N/S á hættu.
Norður
♦ Á105"
¥ 52
♦ DG92
♦ K976
Vestur
♦ D9862
VGIO
♦ Á73
♦ G54
Suður
♦ K73
¥ÁD4
♦ 965
♦ Á1082
Austur
♦ G4 *.
¥ K98763
♦ K104
♦ D3
Vestur Nordur Austur Suður
— — Pass 1 lauf
Pass 1 tfgull 2 hjörtu Pass
Pass 3 lauf Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Tvö hjörtu austurs var hindr-
un, en sálfræðileg áhrif hindr-
unarsagna em oft þau að and-
stæðingamir segja meira en þeir
hefðu ella gert. Svo var í þessf»i-
tilfelli, því þriggja granda sögn
suðurs við þremur laufum er
vægast sagt frek. En eigi að
síður virðist hún vera vel heppn-
uð, því erfitt er að sjá hvemij;
hægt er að hnekkja þremu.'
gröndum eftir hjartagtosa út.
Sagnhafi gefur hjartagosann
og fær næsta slag á drottning-
una. Snýr sér svo að því að fría
tígulinn, spilar litlu á drottning-
una í blindum. Austur fær á
kónginn og brýtur út síðustu
hjartafyrirstöðu sagnhafa, en "
það kemur að litlu haldi því hann
kemst ekki oftar inn i spilið.
Vestur á tígulásinn og þriðja
laufið, svo sagnhafi getur dund-
að sér við að fría litina í róleg-
heitum.
Þegar spilið kom upp I rúb-
ertubrids í Bandarikjunum ný-
lega sat kunnur þarlendur spil-
ari, Joe Silver, með spil vesturs.
Hann var ekki á þvi að láta suður
hlaupa heim með ódýrt geim,
svo hann kastaði tígulásnum í
slaginn þegar austur spilaði
þriðja hjartanu!! Með því gaf
hann sagnhafa að visu einn slag
á tígul, en skóp i leiðinni inn-
komu á hendi makkers síns á
tigultiuna. *►»
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlega skákmóti í Dort-
mund í apríl kom þessi staða upp
í viðureign tveggja upprennandi
skákmanna. Enski stórmeistarinn
Niegel Short hafði hvítt og átti
leik gegn Piu Cramling.
27. Hxe6+! - fxe6, 28. Dxe6+
- Kf8, 30. Rh6 - dfl+, 31.
Kb2 og Pia gafst upp því hún fær
ekki varist máti á f7 eða c8. Hún
átti samt sitt bezta mót í töluverð-
an tíma,hlaut 5'A vinning af 11
gegn öflugum keppinautum.