Morgunblaðið - 18.05.1986, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR18. MAÍ 1986
ÞINGBRÉF
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Grundvallarbreyting:
Ríkisendur-
skoðun færð til
Alþingis
tengist breytingum á sljórnkerfinu
í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar er
ákvæði, þess efnis, að ríkisendurskoðun, sem til þessa hefur heyrt
til framkvæmdavaldinu (fjármálaráðherra), skuli færð til iöggjafar-
og fjárveitingavaldsins, Álþingis. Forsætisráðherra sagði í framsögu
fyrir frumvarpi um þetta efni, sem nú er orðið að lögum, að það
„tengist meginhugmyndum um breytingar á stjórnkerfinu, m.a. um
að efla eftirlit löggjafarvalds með framkvæmdavaldi".
Fjárve iti ngavaldið
Stjómarskrá islenzka ríkisins
felur Alþingi í hendur vald til að
ákveða skattheimtu og flárveitingar
á flárlögum; vald til að ráða ferð í
ríkisfjármálum. Hún gerir jafn-
framt ráð fyrir endurskoðun á
vegum Alþingis. í 43. grein stjóm-
arskrárinnar er kveðið á um að
útgjöldum hvers fjárlagaárs skuli
safnað saman í einn reikning, er
lagður skuli fyrir Alþingi til sam-
þykktar. Með þessu ákvæði er ríkis-
stjóm skylduð til að standa löggjaf-
anum reikningsskil á framkvæmd
Qárlaga.
í framsögu forsætisráðherra er
vikið að nokkrum vörðum á vegi
ríkisendurskoðunan
*1) Sérstök endurskoðunardeild
hefur störf í fjármálaráðuneyti árið
1931.
*2) Ríkisendurskoðun verður sér-
stök stjómardeild í sama ráðuneyti
1970.
*3) Verkefni ríkisendurskoðunar
hafa vaxið ár frá ári. Hinu opinbera
hafa verið falin sífellt fleiri og
stærri verkefni, samhliða því sem
æ stærri hluta þjóðartekna er ráð-
stafað af flárveitingavaldinu (Al-
þingi). Eftirlit og endurskoðun lög-
gjafans hefur ekki vaxið að sama
skapi.
*4) Þrír menn, sem Alþingi hefur
kjörið sem yfirskoðunarmenn ríkis-
reiknings, gátu „illa komist yfir
allt það verk samtímis öðrum störf-
um og Alþingi hefur ekki verið búin
aðstaða til þess að gegna eftirlits-
og endurskoðunarhlutverki sínu á
þessu sviði“.
Starfsaðstaða Al-
þingis styrkt
Með því að flytja ríkisendurskoð-
un undir vald Alþingis er að því
stefnt að styrkja starfsaðstöðu
Alþingis við gerð fjárlaga. Gert er
ráð fyrir því að ríkisendurskoðun
leggi þingnefndum til sérhæfða
GLAÐBEITTIR A GÓÐRISTUNDU
Hér má líta þijá menn, sem mjög hafa komið við samtimasögu okkar. Geir Hallgrimsson, fyrrv. for-
mann Sjálfstæðisflokksins, Þorsteinn Pálsson, núv. formann flokksins, og Ólaf G. Einarsson, formann
þingflokks sjálfstæðismanna. Ekki er annað sjá en þeir gangi glaðbeittir á góðri stundu — mót framtíðinni.
starfskrafta sem geta starfað að
margs konar upplýsingaöflun og
umsögn varðandi fjárhagsmálefni
ríkisins.
Ríkisendurskoðun verður nú
óháð ráðuneytum og öðrum hand-
höfum framkvæmdavaldsins. For-
setar Alþingis ráða ríkisendurskoð-
anda til sex ára. Ríkisendurskoð-
andi og starfslið hans ber ábyrgð
gagnvart Alþingi. Hin nýju lög
tryggja ríkisendurskoðun sjálfstæði
í starfi. Forsetar þingsins geta
hinsvegar krafið hana skýrslna um
einstök mál, er varða ríkisbúskap-
inn.
Gert er ráð fyrir því að ríkisend-
urskoðun endurskoði reikninga
stofnana, sjóða og annarra aðila
þar sem kostnaður og reikningslegt
tap er greitt af ríkissjóði. Eftir sem
áður fer fram ákveðin innri endur-
skoðun hjá framkvæmdavaldinu,
enda telst töluverður hluti núver-
andi starfa ríkisendurskoðunar til
stjórnsýslustarfa. „Gert er ráð fyrir
því,“ sagði forsætisráðherra, „að
sambandið milli ríkisendurskoðunar
á vegum Alþingis og stofnana
stjómvalda sé áþekkt og menn
þekkja slíkt hjá stórum fyrirtækjum
og óháðum löggiltum endurskoð-
endum sem fyrir þau starfa".
Ríkisendurskoðun er og ætlað að
endurskoða reikninga fyrirtækja og
stofnana, sem rekin eru á ábyrgð
ríkissjóðs eða ríkissjóður á að hálfu
eða stærri hluta og eru þar með
taldir ríkisbankar og hlutafélög.
Ríkisendurskoðun hefur heimild
til að kanna hvemig framlög og
styrkir úr ríkissjóði hafa verið nýtt-
ir.
Gert er ráð fyrir „stjómsýsluend-
urskoðun", sem er í því fólgin, að
kannað sé hvort gætt hafi verið
hagræðingar og hagkvæmni í ríkis-
rekstri.
Soffía
Ólafsdóttir
Viggó
Benediktsson
Eiríkur
Hermannsson
Brynja
Pétursdóttir
Guðmundur
Einarsson
Efstu menn I-listans í Garði
Garði.
Sl. föstudag birtist í Morgun-
blaðinu klausa þar sem sagt var
frá því að tveir listar hefðu
komið fram í hreppsnefndar-
kosningunum í vor. Voru með
fréttinni birtar myndir af fimm
efstu mönnum H-listans sem er
listi sjálfstæðismanna og annarra
fijálslyndra en þessar myndir
höfðu forsvarsmenn H-listans
óskað eftir að birtust ef sagt
yrði frá lista flokksins í blaðinu.
Nú hefir fréttaritari náð sér í
myndir af 5 efstu mönnum I-listans
og birtast þær hér með. Þar í ofaná-
lag var 1. maður á lista I-listans
rangfeðraður í fréttinni en hún
heitir Soffía Ólafsdóttir en ekki
Guðmundsdóttir eins og misritaðist
í fréttinni.
I-listinn, listi óháðra borgara:
1. Soffía Ólafsdóttir. 2. Viggó
Benediktsson. 3. Eiríkur Her-
mannsson. 4. Brynja Pétursdóttir.
5. Guðmundur Einarsson. 6. Sig-
ríður Þorsteinsdóttir. 7. Ármann
Eydal. 8. Guðfínna Jónsdóttir. 9. -
Magnús Guðmundsson. 10. Sigur-
björg Ragnarsdóttir.
Til sýslunefndar:
Svavar Óskarsson.
Til vara Ragnheiður Guðmunds-
dóttir.
Arnór
Flóamark-
aður Mynd-
lista- og
handíða-
skóla Islands
ÞRIÐJA árs nemar MHÍ halda
flóamarkað í dag, sunnudag, til
þess að afla fjár til utanferðar.
Flóamarkaðurinn verður opinn
frá kl. 14 til 18 og verður haldinn
í húsi Myndlista- og handíðaskóla
íslands, Skipholti 1.
Á boðstólum er mikið af nýjum
fatnaði, svo sem buxum, peysum,
skyrtum og skóm auk ýmislegs
annars.
Verði er mjög stillt í hóf og kosta
hlutimir frá 20 krónum.
(Fréttatilkynning)
Einstilrzende Neubauten
Rokkhátíð í Roxzý:
Þýska bomban —
hrynjandi byggingar
19. maí, þ.e. annan í hvíta-
sunnu, heldur hljómplötuútgáfan
Gramm hf., þýsk-íslenska rokk-
hátíð í veitingahúsinu Roxzy við
Skúlagötu. Yfirskrift hátíðarinn-
ar er „þýska bomban — Hrynj-
andi byggingar".
Fulltrúi Þjóðvetja á hátíðinni er
þýska kuldarokksveitin Einstúrz-
ende Neubauten, virt og vel kunn
sveit víða á Vesturlöndum. Hún
hefur m.a. nokkrum sinnum verið
gestur í íslenska sjónvarpinu, nú
síðast í þættinum Poppkomi 12.
maí sl. E.N. hefur fengið stærstu
athyglina fyrir að spila jöfnum
höndum á hefðbundin hljóðfæri og
tæki á borð við slípirokka, vélsagir,
lofthamra, sleggjur, klósett, stálg-
orma, stórar jámplötur o.s. frv.
Fyrir íslands hönd er á hátíðinni
teflt fram eftirtöldum skemmti-
kröftum: Sveinbimi Beinteinssyni,
allsheijargoða; Svart-hvítum
draumi; Mikka Dean & De Vund-
erfoolz; og Algorithmunum.
Rokkhátíðin „Þýska bomban —
Hrynjandi byggingar" hefst kl.
21.00. Forsala aðgöngumiða er í
Roxzy og Gramminu, Laugavegi.
(Fréttatilkynning
BragiÁsgeirsson
Stemmn-
ingar
Myndlist
Það hefur verið hægur stígandi í
ferli Jóns Reykdal á myndlistarvett-
vangi eftir að hann lauk námsferli
sínum árið 1971. Honum nægði lengi
vel þátttaka á hinum ýmsu samsýn-
ingum heima og erlendis en hafði þó
haldið eina einkasýningu á ísafirði
svo snemma sem 1968. Það var svo
fyrst árið 1980 að hann tók sig til
og hélt einkasýningu I Norræna hús-
inu og nýtti þar raunar aðeins annan
kjallarasalinn. Hann var þá þegar
þekktur fyrir grafíkmyndir sínar og
þá aðallega dúkskurð og kom á óvart
með því að sýna einvörðungu mál-
verk.