Morgunblaðið - 18.05.1986, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR18. MAÍ1986
Hundrað þúsund ferðamenn
komu til íslands 1985, aukning
milli ára 14,4%, stóð í blaði einu
í vikunni. Þótti hreint frábært.
Aldrei er þó að vita hvaða stefnu
hugurinn getur tekið við svo mikil
tíðindi og háar tölur. Til dæmis
má gleðjast yfir því að svo margir
kaupi þjónustu í landinu og borði
t.d. landbúnaðarafurðir okkar. En
líka er hægt að sjá fyrir sér fjölda
manns í spreng. Og varla nokkurt
tré til að bregða sér á bak við.
Sú illa hugsun kviknar við að sjá
fyrir tilviljun bréf frá einum
reyndasta leiðsögumanni okkar,
Bimu Bjamleifsdóttur, þar sem
hún var að gera grein fyrir ýmsum
vandamálum í sambandi við mót-
töku ferðamanna. Næstum bæn-
arskjal til ferðamálamanna nú
þegar sumarið er að ganga í garð
með tilheyrandi flóði túrhesta.
Leyfi mér að hirða úr þessu bréfi
hluta af kaflanum sem fjallar um
hreinlætisaðstöðu:
„Ef til vill finnst þér óviðeigandi
að ég minnist á salemisaðstöðuna
eða réttara sagt aðstöðuleysið á
ferðamannaleiðum. Sumum virð-
ist það feimnismál að tala um
salemi, en sllkur tepmskapur
hrekkur skammt hjá leiðsögu-
mönnum og bílstjómm, að ekki
sé talað um hjá ferðamönnunum
sjálfum, þegar neyðin sverfur að.
Við getum hugsað okkur að leið-
sögumaður sé að segja farþegum
sínum frá fombókmenntum okkar
eða sjálfstæðisbaráttu, þegar einn
farþeginn kemur frammí til hans
og segir honum vandræði sín, að
hann eða hún verði bókstaflega
að komast á salemi strax. Margt
roskið fólk á í vandræðum hvað
þetta snertir.
Leiðsögumaðurinn getur
gleymt fomsögunum, því að fom-
öldin blasir við í annarri mynd.
Það fer eftir landslagi og stað-
háttum hveiju sinni, en ekki
óhugsandi að næsta hálftímann
eða jafnvel klukkutímann tvístígi
farþeginn í örvæntingu sinni við
sæti leiðsögumannsins og í sam-
einingu skimi þeir út um gluggann
í leit að nógu stórum steini, nógu
háu moldarbarði eða nógu djúpum
skurði, sem samt er nógu langt
frá veginum að ekki sjáist út um
gluggann á bílnum það sem fram
fer. A endanum em allir far-
þegamir famir að hjálpa til við
leitina, því að það fer ekkert á
milli mála hvað um er að vera.
Enn em svæði á landinu þar
sem nokkurra klukkustunda akst-
ur er á milli almenningssalema,
auk þess er hæpið að kalla salemi
á bensínstöðvum og í söluskálum
almenningssalemi, þar ber engin
skylda til að hafa salemi fyrir þá
sem ekki em viðskiptavinir.
Freistandi er þó fyrir leiðsögu-
mann að stansa við fyrsta sölu-
skálann sem komið er að eftir
langa bið hjá farþegum, enda
myndu þeir seint fyrirgefa ef
bmnað væri framhjá eða skilja,
ef þeim væri gert að skyldu að
kaupa sér kaffi í leiðinni. En þú
getur ímyndað þér ástandið, þegar
2—4 hópferðabílar stansa sam-
tímis þar sem em aðeins 2 salemi.
Fyrir kemur að 10 hópferðabflar
hafa viðdvöl samtímis á sama stað
með 250-300 manns innanborðs.
Sennilega fara flestir útlend-
ingar, sem hingað koma, í Gull-
fossferð. Sú ferð tekur 8—10 klst.
og er að jafnaði höfð viðdvöl á 8
stöðum í ferðinni. A sumrin em
salemi á þremur staðanna, en á
vorin og haustin vom til skamms
tíma opin salemi á aðeins einum
stað, þ.e. í Hveragerði, 45 mín.
akstur frá Reykjavík. En nú hefur
verið komið upp salemum við
Geysi, sem hægt er að fá afnot
af, þótt söluskálinn sé lokaður.
Það er því völ á 2 salemum í allri
ferðinni á vorin og haustin. A
leiðinni frá Egilsstöðum að Mý-
vatni, sem er 175 km leið, geta
ferðamenn hvergi treyst á að
komast að salemi. A Möðmdal
hefur Fjallakaffi að vísu verið
opið jrfir hásumarið, 100 km frá
Egilsstöððum og 75 km frá Mý-
vatni. Þar var þó stopult opið sl.
sumar, opnað var mjög seint, og
allt er í óvissu um framtíð staðar-
ins. Heimilisfólkið í Möðmdal,
sem stendur ekki að Fjallakaffi,
hikar við að láta böm sín út til
leikja eftir að hópferðir em famar
að fara þar um snemma á sumrin
af ótta við að bömin atist út í
mannasaur, sem það segir að
finna megi út um alla móa þegar
Fjallakaffi er ekki opið.“
Þama em tvö dæmi og þetta
er á hringveginum eina og sanna
og leið sem mest er auglýst í út-
löndum til að draga að ferðamenn.
Hvað þá um aðra staði? En annars
staðar í bréfinu segir Bima: „Á
þeim áratug sem Ferðamálaráð
hefur starfað hefur verið fundið
húsnæði fyrir landkynningarskrif-
stofu í New York, Hamborg,
Frankfurt, en enn hefur ekki
fundist framtíðarlausn á hreinlæt-
ismálum, ekki einu sinni á einu
afmörkuðu svæði eins og leiðinni
Egilsstaðir/Mývatn."
Hver skyldi nú eiga að sjá um
að svo fmmstæðum skilyrðum sé
fullnægt svo að taka megi við
erlendu ferðafólki. Ferðamálaráð
Islands var stofnað með lögum
1964 og hlutverk þess skyldi vera
alhliða uppbygging ferðaþjónustu
innanlands og landkynningar-
starfsemi á erlendri gmnd. I fyrr-
nefndu bréfí Bimu, sem ijallar
um fleira svo sem vemd náttúr-
unnar á mikið sóttum ferða-
mannastöðum og öryggismál, því
„það skiptir nefnilega ekki síður
máli að ferðamennimir geti kom-
ist óbrotnir og óbrenndir úr
gönguferð á útsýnisstað, sem
hefur verið auglýstur og „seldur"
í ferðaáætlun ferðaskrifstofanna
en það hvort dúkamir í veitinga-
salnum séu hreinir, að glugga-
tjöldin í gistiherberginu séu jafn-
síð báðum megin, að salemin hafi
verið þvegin, að rúmin séu þægi-
leg, að maturinn bragðist vel eða
að afgreiðslufólkið sé lipurt og
ljúfmannlegt í framkomu", þar
kemur fram að Ferðamálaráð ver
engu til umhverfismála á þessu
ári, en undir það fellur lagning
göngustíga svo menn komist til
að sjá það sem auglýst hefur
verið, til uppsetningar og eftirlits
með hreinlætisaðstöðu, til upp-
setningar á viðvörunarskiltum til
að vara ferðafólk við hættum.
Ferðamálaráð hefur ekki mikið fé
milli handa, er bara eins og títt
er hjá Alþingi ætlað með lögum
að sinna ýmsum skyldum en ekki
fé til að framkvæma þær. Á fjár-
hagsáætlun 1985 áttu 54% að
fara í landkynningu og 20% í
umhverfísmái. í ár hefur ráðið
gripið til þess að láta ekkert fara
í slíkt, nema til að greiða skuld-
bindingu frá í fyrra, en allt sitt
fé í að auglýsa og ná ferðafólki
til landsins.
Já, hver á að sjá um þetta á
stöðum sem ekki gefa beint af sér
tekjur? Löggjafinn hefur ekki
ætlað það neinum öðrum en
Ferðamálaráði. Náttúruvemdar-
ráði er ekki ætlað þetta hlutverk
nema í þjóðgörðunum. Og einhver
tvískinnungur virðist í löggjafan-
um um það meira að segja, að
Ferðamálaráð skuli annast þenn-
an þátt. Því samhliða því er nú
bundið í Iögum að af 18 manna
Ferðamáiaráði fulltrúa ýmissa
aðila skuli skipa í framkvæmda-
stjómina fulltrúa Flugfélagsins,
Félags ísl. ferðaskrifstofa og
Sambands veitinga- og gistihúsa-
eigenda auk formanns Ferða-
málaráðs og fimmti maður er nú
fulltrúi „annarra flugfélaga".
Semsagt eingöngu fulltrúar þeirra
hagsmunaðiia sem flytja fólk og
selja því viðurgeming. Ef þetta
ráð getur ekki eða hefur gefist
upp við að taka hinn þáttinn að
sér, þann sem snýr að því að geta
tekið við þessum skara, verður
þá löggjafínn ekki að bregðast
einhvem veginn öðm vísi við? Eða
eigum við að halda áfram að láta
fólk klöngrast í for og gijóti á
auglýsta staði, gera stykki sín við
vegakantinn og ana án aðvarana
niður um hverahrúður á vinsæl-
ustu ferðastöðunum í byggð?
Gætum við ekki verið að búa
okkur til búmerang með þessu?
Og við sem ætlum að græða svo
mikið á ferðafólkinu, nú þegar
fiskur og kindakjöt duga ekki
lengur til framfærslu þjóðarinnar.
Sannleikurinn hljómar sjaldan
skemmtilega, sagði sá spaki Lao-
Tse. En eins og Piet Hein orðar
það (þýð. Helgi Hálfdánarson):
Að stjóma voru landi er lítið gaman
og löngum verða þakkarorðin fá,
því axarsköft og skyssur leggjast saman
en skynsamlegar gerðir dragast frá.
- EPá.
Byrjendanámskeið
í Karate
Karatefélag Reykjavíkur,
Ármúla 36,108 Reykjavík.
Sími91-35025.
Námskeiö fyrir byrjendur í
Goju Ryu Karate Do eru að
hefjast.
Karate er skemmtileg íþrótt, afbragðs líkamsþjálf-
un og ein fullkomnasta sjálfsvörn sem völ er á jafnt
fyrir konur sem karla á öllum aldri. Sérstakir
barnaflokkar fyrir 9—12 ára.
Innritun og upplýsingar að Ármúla 36, 3. hæð
(gengið inn Selmúlamegin), og í síma 35025 vikuna
20.—23. maí milli kl. 19 og 21 fyrir byrjendur.
Hrukkur!
D
2)
3)
4)
Ert þú með hrukkur eða er fariö að bera á hnum í
andlitinu?
Við í Heilsumarkaðnum getum hjálpaö.
Hrukkur eru Irffræðileg þnóun sem snúa má við í
mörgum tilfellum.
Við höfum næringarefnaformúlu sem gefist hefur vel
og er fljótvirk. Árangur á mánaðartíma.
Litið við í Heilsumarkaðinum og fáið allar upplýsingar.
HEILSUMARKAÐURINN,
Hafnarstræti 11, sími 622323.
Norsku hvíldar-
stólarnir komnir
Hagstætt verð
VALHÚSGÖGN
Ármúla 4. aimar 82275 og 685375.