Morgunblaðið - 18.05.1986, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1986
51
Björgvin Ingi-
bergsson - Minning
Fæddur 1. apríl 1916
Dáinn 13. maí 1986
Skjótt hefur sól brugðið sumri,
þegar kær vinur og starfsfélagi er
skyndilega kvaddur burt úr þessum
heimi. En enginn má sköpum renna,
þótt slík helfregn komi manni oftast
í opna skjöldu og minni óþyrmilega
á fallvaltleika lífsins. Það eitt er
þó huggun harmi gegn, að eftir lifír
minning um sérlega góðan dreng
og einstakt ljúfmenni.
Björgvin fæddist í Reykjavík 1.
apríl 1916 og er því ekki nema
rúmur mánuður liðinn frá því að
hann hélt upp á sjötíu ára afmæli
sitt af miklum rausnarskap, þar
sem saman voru komnir vinir hans
og fjölskylda til að samgleðjast
honum á þeim tímamótum.
Foreldrar hans voru hjónin
Andrea Jónsdóttir og Ingibergur
Ólafsson, ættaður frá Lækjar-
brekku í Mýrdal. Böm þeirra voru
fjögur og var Björgvin þeirra elstur.
Hin voru Gísli, rafvirkjameistari,
sem andaðist 1974, Ólafur klæð-
skeri, búsettur í Svíþjóð, og Vera,
sem gift er Þorsteini Hraundal.
Konu sína missti Ingibergur eftir
aðeins átta ára sambúð. Með seinni
konu sinni, Sigríði Jónsdóttur eign-
aðist hann tvo syni, Andrés og
Kjartan.
Björgvin lærði blikksmíði í Breið-
fjörðsblikksmiðju á árunum 1934
til 1938 og vann þar síðan í nokkur
ár, en einnig starfaði hann við Nýju
Blikksmiðjuna uns hann fluttist til
Akureyrar, þar sem hann vann að
iðn sinni um þriggja ára skeið. A
Akureyri kynntist hann eftirlifandi
eiginkonu sinni, Aðalheiði Bjarg-
mundsdóttur. Foreldrar hennar
voru hjónin Kristensa Kristófers-
dóttir og Bjargmundur Guðmunds-
son, rafstöðvarstjóri, Hafnarfírði.
Aðalheiður og Björgvin gengu í
hjónaband 19. maí 1945 og voru
þau alla tíð mjög samhent um að
skapa fallegt heimili og umhverfí
auk þess sem gestrisni þeirra hefur
verið viðbrugðið. Þau eignuðust
fímm böm, en af þeim létust tvö á
unga aldri og hefur sá harmur
eflaust markað djúp spor í meðvit-
und þeirra hjóna. Hin em Bjarg-
mundur, blikksmíðameistari,
kvæntur Guðnýju Guðmundsdóttur,
Ásdís, gift Páli Á. Jónssyni, tækni-
fræðingi, og Aðalheiður Björg, gift
Yalþóri Valentínussyni, bílamálara.
Árið 1950 stofnaði ég undirritaður
og Björgvin Blikksmiðjuna Glófaxa
og höfum rekið hana síðan. Ég tel
það mikið lán að hafa haft samstarf
Minning:
-------- *
Gröa Arnadóttir
Fædd 15. janúar 1914
Dáin 6. maí 1986
í örfáum orðum langar mig að
minnast Gróu Ámadóttur. Þegar ég
lít til baka þá fínnst mér ekki svo
langt síðan við sátum saman og
áttum ánægjulega stund. Ekki
munu ættir Gróu verða raktar hér,
til þess vomm við ekki nógu kunn-
ugar. Það er lífsins saga að heilsast
og kveðjast og að sjálfsögðu verða
kynnin misjafnlega löng.
Ég bjó í sama húsi og Gróa í
nokkur ár og tókst þá með okkur
mjög góð vinátta sem haldist hefur
síðan. Gróa eignaðist eina dóttur,
Margréti. Hjá þeim ríkti mikil
samheldni í einu og öllu. Margrét
hefur reynst móður sinni mjög vel
alla tíð. Nú þegar Gróa er horfín
frá okkur svo fyrirvaralaust er
söknuðurinn mikill, einkum hjá
Margréti. En þegar við fínnum til
vanmáttar og sorgar þá er gott að
geta leitað styrks hjá Guði sem er
Guð allrar huggunar. Hann leiðir
okkur í gegnum alla erfiðleika og
sorgir og hann mun veita okkur
gleði að nýju.
Ég og íjölskylda mín vottum
Margréti og öðmm aðstandendum
okkar dýpstu samúð. Nú kveð ég
Gróu og þakka henni vináttu og
samfylgd liðinna ára. Guð blessi
minningu hennar.
Farþúífriði
friðurGuðsþigblessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Soffía Ragnarsdóttir
ýmislegt
Húseigendur
Höfum á skrá fólk sem leitar að leiguíbúðum
víðsvegar á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
LEIGUMIÐLUNIN
S. 36668, Síðumúla 4, R.
REYKJALUNDUR
Hestamenn
Hestar óskast
Viljum leigja góða hesta til notkunar við
heilsusport vistmanna frá júníbyrjun til ágúst-
loka. Upplýsingar veitir Guðrún Jóhanns-
dóttir í síma 666807
Reykjalundur,
endurhæfingarmiöstöö.
við Björgvin, því hann var sérlega
góður smiður og í öll þessi ár hefur
hann einnig reynst traustur og góð-
ur vinur. Því er söknuðurinn mikill
og skarð fyrir skiidi; ekki aðeins í
fyrirtæki okkar heldur einnig Qöl-
skyldu minni.
Fyrstu sex árin rákum við fyrir-
tæki okkar á Hraunteigi 14 hér í
borg, en á meðan unnum við að
uppbyggingu á framtíðarhúsnæði
að Ármúla 42 og fluttum starfsem-
ina þangað árið 1957. Óneitanlega
vom ýmsir örðugleikar á vegi fyrir-
tækisins á fyrstu ámnum og reyndi
þá ekki hvað síst á þolrifin, en öll
árin höfum við unnið hlið við hlið
að uppbyggingu Glófaxa og komið
fyrirtækinu á traustan gmnn, en
árið 1974 var lokið við viðbótar-
byggingu, sem skapar fyrirtækinu
aukið svigrúm til fjölþættari starf-
semi.
Oft ræddum við um það félagam-
ir, hvenær við gætum farið að
hægja á ferðinni og gefíð yngri
mönnum tækifæri til að taka við
rekstrinum og sáum við í hillingum
margvíslega möguleika að loknum
starfsdegi. Nú hefur þetta orðið
með öðmm hætti, en við reiknuðum
með og sannast hér hið forkveðna,
að enginn veit ævina fyrr en öll er.
Ein mesta ánægja og skemmtun
Björgvins var lax- og silungsveiði,
enda var hann mjög fískinn og hafði
óþijótandi þolinmæði og lagni til
að bera og var snillingur í flugu-
köstun og kenndi þá íþrótt um ára-
bil og hlaut viðurkenningu fyrir.
Með þetta í huga færðu starfs-
menn Glófaxa honum á sjötugsaf-
mælinu dags veiðileyfi í einni bestu
og fegurstu veiðiá landsins og vissi
ég að hann hlakkaði mikið til þess
dags og við félagar hans sáum hann
fyrir okkur í anda umvafínn fegurð
íslenskra náttúm, sem hann unni
svo mjög. Ég og fjölskylda mfn
kveðjum góðan vin og félaga og
þökkum honum samfylgdina, sem
aldrei bar skugga á. Nú sjáum við
hann fyrir okkur umvafinn fegurð
himisins.
Guð gefí þér Heiða mín, bömum
þínum og fjölskyldu styrk í sorg
ykkar.
Benedikt Ólafsson.
Á þriðjudag, 20. maí, verður til
moldar borinn vinur minn Björgvin
Ingibergsson. Hann fæddist í
Reykjavík 1. apríl 1916 og vom
foreldrar hans hjónin Andrea Jóns-
dóttir og Ingibergur Óiafsson sjó-
maður og síðan húsvörður í Ál-
þýðuhúsinu við Hverfísgötu.
Björgvin ólst upp í stómm systk-
inahópi á Hverfísgötu 99. Hann fór
snemma að vinna eins og títt vra
með unglinga á þessum ámm. Hann
hóf störf sem sendisveinn í Herðu-
breið við Fríkirkjuveg, þar sem nú
er Listasafn ríkisins. Þaðan fór
hann í iðnnám til Guðmundar Breið-
flörð við Laufásveg og útskrifaðist
þaðan sem blikksmiður. Hann vann
um skeið hjá Nýju blikksmiðjunni
og á þeirra vegum á Akureyri. þar
lágu hans gæfuspor, því þar kynnt-
ist hann konu sinni, Aðalheiði
Bjargmundsdóttur, ættaðri úr
Hafnarfirði, dóttur hjónanna Krist-
ensu Kristófersdóttur og Bjarg-
mundar Guðmundssonar rafveitu-
stjóra.
Heiða og Björgvin giftust í
Reykjavík 19. maí 1945. Fyrst
eignuðust þau íbúð á Snorrabraut
42 en síðan byggðu þau sér hús í
Langagerði 36, þar sem þau hafa
verið sfðan.
Þau eignuðust fímm böm en af
þeim em þijú á lífí, Bjargmundur,
blikksmiður, en kona hans er Guðný
Guðmundsdóttir, Ásdís, gift Páli
Jónssyni tæknifræðingi og Aðal-
heiður Björg, gift Valþóri Valentín-
ussyni bílamálara. Bamabömin em
þijú. Allt er þetta fyrirmyndarfólk
og bera með sér vott um að vera
alin upp á góðu heimili eins og
þeir vita sem til þekkja.
Árið 1950 stofnuðu Björgvin og
Benedikt Ólafsson Blikksmiðjuna
Glófaxa, sem þeir hafa byggt upp
af miklum myndarskap og dugnaði..
Þar starfaði Björgvin til síðasta
dags.
Kynni okkar Björgvins hófust
fyrir um fjömtíu ámm þar sem
konur okkar vom vinkonur úr
Hafnarfirði og milli fjölskyldna j
okkar hefur myndast órofa vinátta. j
Hjónaband Heiðu og Björgvins var
sannarlega til fyrirmyndar, svo
samtaka sem þau vom í einu og
öllu. Björgvin var dagfarsprúður og
sannur vinur vina sinna.
í haust þegar vinahópurinn
kemur saman, konumar í sauma-
klúbbinn og eiginmennimir að vitja
þeirra, þá munum við öll sannarlega
sakna vinar í stað, þessa dugmikla
heiðursmanns sem öllum vildi vel.
Það er bjart yfír minningu Björg-
vins Ingibergssonar.
Heiða mín, við hjónin flytjum þér
og bömum þínum innilegar samúð-
arkveðjur. Megi minningin um lát-
inn ástvin gefa ykkur styrk.
Sigmar Guðmundsson
Útför hans verður gerð frá Bú-
staðakirkju þriðjudaginn 20. maí
nk. kl. 13.30.
TIMA
Laugavegi 80, sími 17290