Morgunblaðið - 02.07.1986, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 02.07.1986, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1986 5 Lokun Hraðfrystistöðvarinnar í Reykjavík Halldór Ásgrímsson: „ S kuldbreytingar leysa engan vanda“ „STAÐA frystingar í landinu er vissulega slæm,“ sagði Halldór Ásgrimsson sjávarútvegsráð- herra í samtali við Morgunblaðið i tilefni af fyrirhugaðri lokun Hraðf rystistöðvarinnar i Reykja- vik, „en eilífar skuldbreytingar leysa hins vegar lítinn vanda“. Halldór kvað frystinguna hafa verið í tölverðum taprekstri að undafomu, lausaskuldir væru mikl- ar og veik staða dollarans gerði frystingunni erfitt fyrir. „Þetta er ekki vandi, sem leystur verður á svipstundu. Staða frystingarinnar varðar kjör okkar í heild og sam- Þettaer áhyggjuefni — segir Davíð Oddsson komulag um skiptingu tekna í sjáv- arútvegi." Halldór gat þess, að stjómvöld jmnu nú, í samvinnu við „STAÐAN hjá flestum frystihús- um er orðin svo slæm, að menn þora ekki orðið að stoppa af ótta við að komast ekki af stað að nýju. Stór hluti þessa vanda er taprekstur undanfarinna . ára, sem kemur til viðbótar rekstrar- taps nú,“ sagði Knútur Karlsson, framkvæmdastjóri Frystihússins bankana, að endurskipulagningu rekstrar þeirra frystihúsa, sem verst stæðu. Kaldbaks á Grenivík og einn stjórnarmanna í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, í samtali við Morgunblaðið. „Frystihúsin þurfa þvf lengingu lána og lækkun vaxta eins og bændur og útgerðarmenn hafa fengið. Jafnvel þyrfti að fella vaxta- greiðslur niður fyrstu árin. Þar að auki þarf svo að bæta rekstrarstöð- una. Margir hafa farið mjög illa út úr veiðitakmörkunum, þar sem minnkuð velta hefur dregið úr möguleikum manna til að standa við fjárhagslegar skuldbindingar. Menn gætu hugsanlega sloppið við að safna skuldum, fengju þeir nægilega mikið af fiski, en þá er uppsafnaði vandinn eftir og tæki- færi verður að fást til að leysa hann,“ sagði Knútur Karlsson. Váleg tíðindi sem koma ekki á óvart — segir Jón Ingvarsson stjórnarformaður SH „ÞETTA eru váleg tiðindi, en koma mér ekki á óvart vegna hinna miklu rekstrarörðugleika, sem frystingin hefur búið við undanfarin ár. Það er sorglegt til þess að vita að stjórnvöld skuli ekki fást til að viðurkenna hve slæm staðan er og gera eitthvað i málinu,“ sagði Jón Ingvarsson, formaður stjómar SH. Jón sagði, að samkvæmt at- hUgun, sem gerð hefði verið á uppgjöri 11 ftystihúsa innan SH fyrir síðasta ár, sem framleiddu um þriðjung frystra afurða innan SH miðað við verðmæti, hefði tapið á rekstrinum verið 9,6% af tekjum árið 1985. Á sama tíma hefði Þjóð- hagsstofnun metið rekstrartapið af tekjum 1%. Á umræddu tímabili hefði veltufjárstaða þessara húsa versnað um 350 milljónir króna. Því skyldi engan undra að svo illa væri komið í frystingunni eins og staða Hraðfrystistöðvarinnar sýndi. Á þessu ári byggi frystingin við fast gengi, en yrði að taka á sig ýmsar kostnaðarhækkanir umfram hækkanir á afurðaverði. Staðan væri því hreint ekki glæsileg. Þora ekki að stoppa af ótta við að geta ekki byrjað aftur — segir Knútur Karlsson framkvæmda- stjóri á Grenivík um stöðu frystihúsanna borgarstjóri „ÞETTA er auðvitað áhyggju- efni,“ sagði Davíð Oddson borg. arstjóri í samtali við Morgun- blaðið, „við höfðum ekki haft pata af því frá aðstandendum fyrirtækisins að ástandið væri svona slæmt." „Það ber þó líka að hafa í huga að það var þetta sem þeir, er mót- mæltu sameiningu Bæjarútgerðar- innar og Isbjamarins í Granda hf., vildu kalla yfir okkur. Sameiningin kom í veg fyrir að svona færi. „Við getum þó huggað okkur við að atvinnuástand í Reykjavík er gott að öðru leyti, t.d. hafa allir þeir sem var sagt upp hjá Granda sl. haust fengið vinnu aftur eftir því sem ég best veit,“ sagði Davið Oddsson að lokum. Lýsa þungri ábyrgð á hendur stjórnvöldum og atvinnurekendum - segir í yfirlýsingn frá Framsókn og Dagsbrún MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Verka- kvennafélaginu Framsókn og Verkamannafélaginu Dagsbrún vegna lokunar Hraðfrystistöðvarinnar í dagsettþann l.júlí: „í gær voru fulltrúar ofan- greindra verkalýðsfélaga boðaðir til sameiginlegs fundar með forstjóra og verkafólki Hraðfrystistöðvarinn- ar hf. Tilefni fundarins var að til- kynna lokun frystihússins. Þetta er í annað sinn á nokkrum mánuðum sem verulegar uppsagnir eiga sér stað í fiskvinnslu í Reykja- Reykjavík í haust. Yfirlýsingin er vík. Ef svo fer fram sem horfír mun atvinnufyrirtækjum í fiskvinnslu enn fækka í höfuðstaðnum. Verkalýðsfélögin lýsa þungri ábyrgð á hendur stjómvöldum og atvinnurekendum sem horft hafa aðgerðarlaus á fiskvinnsluna í landinu veslast upp. Ytri skilyrði þessarar greinar hafa breyst vem- lega en það gerði innri breytingar, s.s. sérhæfíngu og í vinnslu og stærri rekstrareiningar, nauðsyn- legar. Með betri nýtingu og mark- vissri framleiðslu verður að lækka tilkostnað og gera þessi hús rekstr- arhæfari og þar með fær um að greiða hærri laun og dýrara hráefni. Þessi innri skipulagsmál hafa verið algjörlega vanrækt og engin mark- viss stefnumótun átt sér stað í málefnum undirstöðuatvinnuvegar landsmanna. Félögin kreQast þess að ríkis- stjómin hafi forgöngu um gagngera úttekt á framtíðarhorfum fisk- vinnslunnar í landinu svo að bregð- ast megi skipulega við slíkum ótíð- indum sem þessum frarrivegis. At- vinnurekendum verður að skiljast að ábyrgð þeirra er fólgin í meim en því að hirða gróðann þegar vel árar og loka þegar að þrengir. Verkalýðsfélögin mótmæla harð- lega þessu algera sinnuleysi í garð svo mikilvægrar atvinnugreinar og slíku ábyrgðarleysi í garð verka- fólks sem nú er rænt lífsbjörg sinni." Afmælisgestir skrifuðu nöfn sín í gestabók eins og vani er í stór- afmælum. Veitingar voru á borð bomar á öllum afgreiðslustöðum Lands- bankans í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.