Morgunblaðið - 02.07.1986, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 02.07.1986, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLl 1986 l Slýdrsetti. Áfangastaður: Veiðivötn yfir Tungnaá þar sem Tröllið eða Nátttröllið stendur, en það er mikill steindrangur. Skaftfellingar munu hafa nefnt Tröllið „Böll“ og má það til sanns vegar færa eftir lögun þess! Vaðið nefndu þeir því „Ballar- vað“. Landmenn fóru áður árlega, jafn- vel tvisvar á sumri, í Veiðivötn til veiða. Venjulega var farið upp úr Jónsmessu eða síðari hluta sláttar með 2—3 hesta í taumi. Ferðimar tóku yfirleitt 8—10 daga eftir því hversu veiðin var ör. Þótti mikil búbót í aflanum, sem var saltaður á staðnum. Frá Galtalæk var um 16—18 stunda lestagangur í Veiðivötn. Valt það á því hvaða leið var valin. Þeir sem vildu hraða för sinni fóru skemmstu leið að Valafelli og þaðan að Bjallavaði og inn í Veiðivötn. Tungnaá var forðum mikill farar- tálmi Vatnamanna, þeirra sem Veiðivötn sóttu. Oft þurftu þeir að snúa frá Bjallavaði þegar mikið var í ánni og ekki þótti heiglum hent ferðin yfir vaðið. Skammt fyrir ofan vaðið voru á fyrri hluta aldarinnar settir tveir bátar sem foru ferða- mönnum til ókeypis afnota. Veiðimenn dvöldu í Tjarnarkoti, sæluhúsinu við Tjaldvatn, en það var hlaðið úr torfi og gijóti og stóð utan í hraunhól fyrir framan smá hellisskúta. Þar inni gátu allt að 10 menn gist sammtímis. Veiði- mennimir voru með net og drógu þau um vötnin og aflanum skipt á milli manna og hann saltaður. í Veiðivötnum var mikið um álftavarp og sóttu menn mikið í Tröllið, Nátttröllið eða „Böllur" eins og Skaftfellingar nefndu dranginn. Við Litla Fossavatn að vetrarlagi. Skálinn í Veiðivötnum að vetrarlagi. eftirSigurð Sigurðarson Þangað liggur góður vegur. Þær torfærur sem áður fyrr voru til að telja för ferðamannsins eru nú beislaðar og valda engri ógn þeim sem rétt kunna að ferðast. Ekki er lengur nauðsynlegt að þræða vöðin á Tungnaá, hvorki við Ballarvað eða Hófsvað, leiðin er örugg í Veiðivötn. Þar horfa dimmblá vötnin til himins rétt eins og augu, umkringd græn- leitum gróðurkrögum hið næsta. Fjær er eyðimörk og ríkir þar eink- um hinn svarti litur sandsins. Nú leita bændur úr Landsveitinni ekki lengur í Veiðivötn eftir silungi og álftum sér til bjargræðis. Tím- amir hafa breyst. Nú er gildi Veiði- vatna fyrst og fremst til ánægju og yndisauka. Þangað sækja ferða- menn til að njóta þess, sem Veiði- vötn bjóða upp á, silungsveiði, nátt- úruskoðun og aðra útiveru. Samt em það ekki margir sem koma á hveiju sumri í Veiðivötn. Staðurinn er lítt þekktur og hugsanlega telja flestir, að ekkert sé þangað að sækja fyrir aðra en veiðimenn. Það er þó langt í frá eins og ráða má af þessari grein og meðfylgjandi myndum. Er Stórisjór týndur? Veiðivötn nefnist einu nafni svæðið milli Vatnaalda í vestri og Snjóöldufjallgarðs við Tungnaá í austri. Raunar má segja að Veiði- vötn séu í krika Tungnaár, því áin rennur fyrst í stað því sem næst í suður og beygir síðan í vestur. Jarðfræðingar telja að mikið öskugos hafi orðið við Veiðivötn á 9. öld og má rekja þetta öskulag í jarðlögum víða um land. Það er auðþekkt og notað til aldursgrein- ingar jarðlaga og nefnist fyrir vikið landnámslag. í þessu gríðarlega gosi mynduðust Vatnaöldumar. Nokkmm öldum síðar er talið að á svæðinu hafi orðið mikið eldgos á mörgum stöðum og þá hafi Veiði- vatnasvæðið í megindráttum fengið á sig þá mynd sem það hefur núna. Veiðivötnin eru ótal mörg, líklega allt að 50, jafnvel fleiri ef Litlisjór og Hraunvötn, sem era fyrir norðan Veiðivötn, em talin með. Litlisjór er tvímælalaust stærsta vatnið fyrir vestan Tungnaá, austan Þórisvatn. Gamlar heimildir greina óljóst frá Stórasjó, sem átti að hafa verið gríðarstórt. Nú sjást engin merki um Stórasjó og hefur það valdið jarðfræðingum, sagnfræð- ingum og grúskumm nokkmm heilabrotum. Sveinn Pálsson, náttúmfræðing- ur, fór í rannsóknarför til Veiði- vatna, en gat ekki fundið Stórasjó. Bjöm Gunnlaugsson gerði um miðja síðustu öld uppdrátt af Islandi og staðsetur Stórasjó upp undir Vatna- jökul. Þorvaldur Thoroddsen fór um svæðið fyrir norðan og vestan Tungnaá um 1889. Hann finnur ekki Stórasjó, en kemst að þeirri niðurstöðu, að um nafnamgling sé að ræða. Stórisjór hafi orðið að Litlasjó en sá raunvemlegi Litlisjór hafi týnt nafninu. Þetta er nokkuð sannfærandi kenning, ef ekki kem- ur til nýrri hugmynd um málið. Glöggir menn segja að hluti far- vegs Tungnaár austan Snjóöldu sé hinn fomi Stórisjór. Frá Tungnaár- botnum og suður að Snjóöldu, syðst í Snjóöldufjallgarði, em 40—50 km. Halli landsins á þessari leið er mjög lítill. Athuganir sem gerðar hafa verið á hugsanlegu stíflustæði hafa stutt þessa kenningu. Bomð var rannsóknarhola í farveg árinnar og komu í ljós öskulög og sýni af kísil- þömngum, er gáfu vísbendingu um að þama hefði verið stöðuvatn. Því halda menn að stöðuvatnið hafi fyllst af vikri í eldgosum, t.d. í Skaftáreldunum 1783. Skammt norðan við Nátttröllið er lítið byrgi í hellisskúta. Það hefur verið nefnt hreysið, líklega vegna þess að það er af mörgum talið hafa verið ívemstaður útilegu- manna. Hreysið fannst í september 1936 og vom þar á ferð gangna- menn úr Landsveit. Hreysið stendur hátt í fjallshlíð og er mjög bratt þangað upp. Greinilegar hleðslur vitna um að þama hafa menn hafst við. Við rannsókn hefur fundist mikið af fiskibeinum og kolamylsnu, auk þess hrossaleggir með holu á endan- um sem bendir til þess að þeir hafi verið notaðir sem netakubbar. Hreysið hefur valdið mönnum miklum heilabrotum, líkt og Stóri- sjór. Spurt er: Var hreysið ívera- staður útilegumanna eða veiði- manna? Menn hafa með rökum fullyrt að útilegumenn hafi ekki verið til, að minnsta kosti ekki á þann hátt sem þjóðsögur greina. Vart mun þægileg vist í Snjóöldu- íjallgarði að vetrarlagi, sannast það einna helst á sögunni um Ampa, sem hér fer á eftir. Hafi þetta ekki verið útilegu- menn, hafa hellisbúar án efa verið veiðimenn, menn sem hafi stundað veiðar í Veiðivötnum á sama hátt og Skaftfellingar og Landmenn. Hins vegar skilja menn ekki alveg hvers vegna byrgið var haft svo ofarlega í hlíðinni og svo langt frá vötnunum, nema að hreysið hafi verið við hinn foma Stórasjó, sem hafi verið þar sem Tungnaáraurar em nú. Þetta má vel vera, enda ljóst að Tungnaá var bergvatnsá allt til loka 16. aldar er jöklar tóku að stækka sökum kólnandi veðráttu. Féll þá hluti af leysingavatni Vatna- jökuls í Tungnaá. Sennilega hefur þá verið silungur í ánni. + Nytjar Veiðivötn vom áður fyrr nefnd Fiskivötn, einkum af Skaftfelling- um, en Amesingar og Rangæingar kölluðu þau því nafni sem við þekkj- um best í dag. Skaftfellingar fóm iðulega í Fiskivötnin og vom ferðir í þau lögð að jöfnu við vertíð í Vestmannaeyjum, þannig að mikil hefur búbótin verið. Sagt hefur verið að Skaftfellingar háfi farið álftina. Hún var veidd meðan fugl- inn var í sáram. Af mannlíf i í Veiðivötnum Um miðja síðustu öld urðu hjón nokkur að Króktúni í Landsveit fyrir nokkmm áföllum í búskap sín- um og gengu efni þeirra mjög til þurrðar. Bóndinn hét Arinbjöm Guðmundsson, kallaður Ampi, og kona hans hét Guðlaug Stefáns- dóttir. Ampi þekkti mjög vel til Veiðivatna og hafði haldið þar til mörg sumur við silungsveiði, hvannarótartekju og álftaveiðar. Um 1880 ákveða þau hjón að flytja búferlum inn í Veiðivötn og setjast þar að. Þau byggðu sér skýli við Tjaldvatn við strýtulagaðan hraunhól, sem er rétt við þar sem nú stendur skáli Ferðafélagsins. Um sumarið heyjaði Ampi í Breiðaveri og kvíslum og bar heyið í heygarða. Um leið stundaði hann silungsveiði. Það barst út að Ampi hygðist hafa vetursetu í Veiðivötn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.