Morgunblaðið - 02.07.1986, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1986
35
Málfreyjur þinga
í Stykkishólmi
Stykkishólmi.
MÁLFREYJUR á íslandi háðu
landsþing sitt hér og voru saman
komnar um 138 málfreyjur frá
ýmsum stöðum á landinu til að
bera saman bækur sínar og ráða
ráðum sinum um áframhaldandi
störf í íslensku þjóðlifi.
Alls munu nú vera 22 deildir
starfandi hér á landi. Að þessu sinni
voru íslenskan og enskan efst á
baugi. Þingið hófst á föstudags-
kvöldi með borðhaldi og voru sveit-
arstjórahjónin, Hallgerður Gunn-
arsdóttir og Sturla Böðvarsson,
heiðursgestir. Sturla ávarpaði mál-
freyjur, bauð þær velkomnar í
Hólminn til að funda, sagði þeim
frá ýmsum þáttum í lífi Hólmara
og greindi frá framkvæmdum og
fleiru. Voru málfreyjur mjög hrifnar
af erindi sveitarstjóra og sögðu mér
að það hefði verið gott upphaf góðr-
ar ráðstefnu. Fráfarandi forseti,
Björg Stefánsdóttir, opnaði land-
ráðstefnuna og gat um árangur og
spáði í framtíðina. Seinna um kvöld-
ið var svo kvöldvaka og þá komu
í heimsókn Bjami og Njáll, tví-
söngvaramir okkar ásamt undir-
leikara sínum, Jóhönnu, og
skemmtu fulltrúum við góðar undir-
tektir. Störf hófust síðan snemma
á laugardag undir dagskránni: Fé-
lagsmálafundur og var þar margt
á dagskrá. Kjömefnd sat þar að
störfum og mikiil alvörublær yfir
öllum fundarstörfum eins og vera
á þar sem alvara lífsins er á ferð-
inni. En á milli voru gleðiglampar
og bros á vörum þessa myndarlega
hóps. Ég heimsótti þennan fund til
að ná mynd fyrir Morgunblaðið og
hafði ánægju af að fylgjast með.
Bygging þessa félagsskapar fannst
mér ákaflega formföst og var
gaman að fylgjast með ávörpum
og stjóm fiindarstjóra og eins
ávörpum framan úr sal og gætu
margir fundir tekið sér þetta til
fyrirmyndar. Það er stundum verið
að tala um of mikil form og ser-
emoníur eins og þar stendur, en ég
hefi alltaf verið mjög ánægður með
sem sterkust formin í félagsskap.
T.d. er það þannig í reglunni að
fundarformið eitt er oft nóg efni í
góðan fund. Meðan ég var þama
var verið að ræða um næstu árgjöld
félaga og svo flutti Muriel Bryant
erindi um störf málfreyja víða um
lönd og skýrði árangur af starfinu.
Var henni vel fagnað. Eftir það
hófust kosningar næstu lands-
stjómar.
Sunnudagurinn var tekinn
snemma og félagsmálafundur hófst
um 9 leytið. Tillögur, skýrslur og
tilkynningar vom þar á dagskrá og
að seinustu fór fram innsetning
nýrrar stjómar og síðan var lands-
þinginu slitið. Bátsferðir um eyja-
sund vom notaðar þegar tími gafst
og var margt til að auka á
ánægjuna. Ég heyrði það á þeim
Frambjóðendur í stjóm félagsins voru þær Halldóra Amórsdóttir, Elsa Lilja Eyjólfsdóttir, Hulda Sigurð -
ardóttir, Ásdis Helga Eyjólfsdóttir, Kristjana Milla Thorsteinsson og Ingveldur Ingólfsdóttir sem hlaut
kosningu sem forseti félagsins.
utanbæjarkonum sem ég ræddi við
að þær höfðu mikla ánægju af þvi
að vera í Stykkishólmi um helgina.
Allt hefði hjálpast að því að gera
þeim dagana sem ánægjuríkasta
og hótelið fékk sinn skerf af þakk-
lætinu og er ég alveg viss um að
þetta verður upphaf þess að margar
eiga eftir að koma hingað á ný og
gista á okkar glæsilega hóteli. Alls
vom gestir fundarins um 30. Næstu
stjóm skipa: Ingveldur Ingólfsdóttir
forseti, Kristjana Milla Thorsteins-
son, varaforseti nr. 1, Ásdís Helga
Eyjólfedóttir varaforseti nr. 2, Elsa
Lilja Eyjólfsdóttir ritari, Halldóra
Amórsdóttir gj aldkeri.
Arni
Fráfarandi forseti Málfreyja, Erla Guðmundsdóttir, er í ræðustól
en henni á vinstri hönd sitja Patricia Hand og Muríel Bryant, sem
var sérstakur gestur landsþingsins í Stykkishólmi.
Taka þátt í alþjóð-
legum sumarbúðum
íslenskir þjóðdansar æfðir af kappi fyrir sumarbúðimar.
Egilsstaðir:
Morgunblaiið/Ólafur
Effilsstdðum.
FJORIR krakkar frá Egilsstöð-
um, tvær stúlkur og tveir
drengir, munu taka þátt í al-
þjóðlegum sumarbúðum að
Laugalandi í Holtum núna í
sumar ásamt einni stúlku úr
Kópavogi - en auk þeirra munu
krakkar frá Brasiliu, Dan-
mörku, Þýskalandi, Noregi,
Finnlandi, Bretlandi, Spáni,
Kanada, Kóreu og Póllandi
taka þátt í sumarbúðum þess-
um.
Það er íslandsdeild alþjóðlegu
samtakanna CISV eða Childrens
Intemational Summer Villages
sem gengst nú í annað sinn fyrir
slíkum alþjóðlegum sumarbúðum
hérlendis — en í fyrra skiptið vom
slíkar búðir haddnar hérlendis
sumarið 1984 í Hlfðardalsskóla f
Ölfusi og f þeim búðum tóku einn-
igþátt krakkar frá Egilsstöðum.
Krakkarnir sem ætla að taka þ&tt í alþjóðlegu sumarbúðunum í
Laugalandsskóla í sumar ásamt fararstjóra: Rannveig, Björgvin,
Eygló Huld, Kolbrún fararstjórí, Rafn Valur og Ánna Ragnhildur
úr Kópavogi.
Búðimar i Laugalandsskóla f
Holtum í Rangárvallasýslu munu
standa yfir dagana 28. júní-25.
júlí og þangað munu koma fjórir
11 ára krakkar frá hveiju þátt-
tökulandi, tveir drengir og tvær
stúlkur auk fararstjóra. Þama
verður glatt á hjalla og ýmislegt
sér til gamans gert auk þess sem
krökkunum gefet færi á að kynn-
ast erlendum jafnöldum sínum,
kynnast siðum þeirra og venjum
og víkka þannig sjóndeildarhring
sinn og víðsýni með vináttu og
gagnkvæman skilning þjóða á
milli að leiðarljósi.
„Við hlökkum ofsalega til,“
sögðu krakkamir frá Egilsstöð-
um, þau Rafn Valur Alfreðsson,
Björgvin Bjamason, Eygló Huld
Jónsdóttir og Rannveig Þórhalls-
dóttir, þar sem þau voru í önnum
við að æfa íslenska þjóðdansa með
jafnöldru sinni úr Kópavogi, Önnu
Ragnhildi Halldórsdóttur.
„Já, við ætlum að sýna útlensku
krökkunum íslenska þjóðdansa og
reyna að kenna þeim a.m.k. einn
dans - og auðvitað verðum við
öll í íslenskum þjóðbúningi,"
sögðu þeir Rafn Valur og Björg-
vin. „Við munum kynna Island á
annan hátt lfka, m.a. íslenskan
mat. Kannski gefum við þeim
flatbrauð að smakka og e.t.v. ís-
lenskt nammi," sögðu þeir félagar
og svo voru þeir þotnir í dansinn
hjá Þráni Skarphéðinssyni sem lét
ekki deigan síga við æfingamar.
Það var bandaríski sálfræðing-
urinn Doris T. Allen sem stofnaði
til alþjóðlegu samtakanna CISV
árið 1946 í því augnamiði að auka
skilning og vináttu milli þjóða
heims svo að friður mætti ríkja.
ísland tók þó ekki þátt í þessu
sumarbúðastarfi fyrr en árið 1971
- en þá fóru fjórir 11 ára krakkar
úr Kópavogi ásamt fararstjóra í
sumarbúðir f Noregi. íslandsdeild-
in var þó ekki formlega stofnuð
fyrr en árið 1982. Fyrsti formaður
íslandsdeildarinnar var Vilbergur
Júlfusson í Garðabæ, en núverandi
formaður er Birgir Guðmannsson.
Fararstjóri íslensku krakkanna
í sumarbúðunum á Laugalandi í
Holtum verður Kolbrún Marels-
dóttir, tómstundafulltrúi Egils-
staðahrepps.
— Ólafur
Stefán Erlingur
Einarsson Krístjánsson
Akureyri:
Tveir með
rétta lausn
í KA-get-
rauninni
Akureyri.
TVEIR voru með rétta lausn \
getrauninni sem Knattspyrnufé-
lag Akureyrar var með vegna
heimsmeistarakeppninnar t
knattspyrnu. Það voru þeir Eri-
ingur Kristjánsson og Stefán
Einarsson.
Þeir kumpánar mættu í beina
útsendingu svæðisútvarpsins í
fyrradag til dráttar í getrauninni
en áður en til þess kom að draga
sættust þeir á að skipta vinningnum
— nýrri Colt-bifreið — á milli sín.
Ekki sögðust þeir þó ætla að skipt-
ast á að aka bifreiðinni, heldur
skipta andvirðinu er hún yrði seld.
Erlingur er fyrirliði 2. deildarliðs
KA i knattspymu og hafði hamv-
ásamt félögum sinum í liðinu, keypt
42 miða í getrauninni, og sá sem
gaf vinning var skráður á Erling.
Stefán keypti hins vegar aðeins einn
miða. Hann starfar sem lögreglu-
þjónn og var á vakt þegar úrslita-
leikurinn fór fram á sunnudaginn.
„Ég er ekki vanur að sofna á vakt-
inni,“ sagði hann í fyrradag — „en
þegar leikurinn var að byija sótti
að mér mikinn svefn." Hann svaf
síðan allt þar til skammt var til
leiksloka og staðan var 2:2. „Guð-
mundur Svanlaugsson, félagi minn.
vakti mig þá og sagði að ég skyldi
nú fara að athuga með seðilinn
minn. Og ég var ekki nema rétt
vaknaður þegar Argentínumenn
skoruðu — 3:21“ Stefán sagðieinnig
að félagar haus á 4ögreglusþoðinni
(„og^ ég reyndar sjálfur“) héfðu
haldið hann ruglaðan þegar haihrí
spáði þessum úrsíitum!