Morgunblaðið - 02.07.1986, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 2. JÚLÍ 1986
37
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
Krabbi (21. júní—22. júlí) og
Meyja (23. ág.—23. sept.)
I dag ætla ég að fja.Ua um
samband Krabba og Meyjar.
Einungis er rætt um það
dæmigerða og lesendur minntir
á að hver maður á sér nokkur
stjömumerki. Aðrir þættir hafa
því áhrif hja' hverjum og einum.
TveirþriÖju
Þessi merki teljast nokkuð lík.
Bæði eru neikvæð, eða hlé-
dræg, íhaldssöm og varkár.
Krabbinn er vatn og Meyjan
er jörð. Frumþættirnir vatn og
jörð eiga ágætlega saman.
Hins vegar eru Tunglið stjóm-
andi Krabba og Merkúr stjórn-
andi Meyju heldur ólíkar plán-
etur. Segja má því að samband
þessara merkja sé að tveim
þriðju hlutum gott en að einum
þriðja varasamt.
Viðkvœmni
Það varasama er að Krabbinn
er viðkvæmur tilfínningamaður
en Meyja á til að vera gagn-
rýnin og beinskeitt. Það getur
því auðveldiega gerst að Meyj-
an særi Krabbann, að „nöldrið"
í henni fari í viðkvæmar taugar
hans.
Gagnrýni
Ef Krabbinn móðgast t.d.
vegna gagnrýni Meyjarinnr á
eitthvert smáatriði í fari hans,
á hann til að draga sig í hlé
og leggjast í hálfgert þung-
lyndi. Meyjan sem er jarð-
bundið merki skilur síðan ekki
viðkvæmni Krabbans og skap-
sveiflur.
Safnar reiði
Krabbinn skynjar heiminn í
gegnum tilfínningar en á erfítt
með að tjá líðan sína og tala
um innri mann sinn. Hann
getur því safnað upp inni-
byrgðri reiði sem síðan getur
sprungið útá ólíklegasta tíma,
kannski vegna einhvers smáat-
riðis sem Meyjan segir. Hún
skilur síðan ekki sterk andsvör
Krabbans, gerir sér ekki grein
fýrir því að hann er að bijótast
út með uppsafnaða reiði.
Skilningur
Meyjan getur síðan átt erfítt
með að þola tilfínningasemi
Krabbans og það sem hún
getur talið vera tilfínninga-
vellu. Það eru því tvö atriði sem
þarf að hafa í huga til að þetta
samband gangi vel. Meyjan
þarf að varast gagnrýni vegna
smáatriði og að nöldra í Krabb-
anum sem þarf að hemja við-
kvæmni sína og varast að taka
gagnrýni Meyjarinnar per-
sónulega til sín. Þau þurfa að
skilja að annar er gagnrýninn,
hinn er tilfínninganæmur og
viðkvæmur.
Öryggi
Að öðru leyti en framantöldu
eiga þau ágætlega saman.
Bæði eru varkár og íhaldssöm.
Þau vilja öryggi og varanleika
í líf sitt. Meyjan vill hafa dag-
legt líf sitt og umhverfi í röð
og reglu, Krabbinn vill eiga
gott heimili og fjölskyldu. Þau
ættu því að geta náð saman.
í öllu falli hafa þau ekki ólík
viðhorf til lífsins. Að sjálfsögðu
skipta aðrar plánetur einnig
máli í þessu sambandi, t.d.
staða Tunglsins í kortum
þeirra.
Lesendabréfin
Það hefur viljað brenna við að
fólk gleymi að nefna hvar það
er fætt og í einstaka tilvikum
gleymist árið eða tíminn. Ef
allar upplýsingar koma ekki
fram er ekki hægt að gera
fullkomið kort. Nefnið því dag,
mánuð, ár, klukku og fæðing-
arstað í bréfum ykkar.
DYRAGLENS
TOMMI OG JENNI
1 EG GÆTI L£IK1Ð\
■ í þESSARl KATfAj
3, F/CÐO AUóLýG- /
IKQU
\AU£A/lTAE> )
GÆTIKpJ I
PAÐ-'y
AUT SEM PU P/IKFT ,
AÐ 6EKA EK. AP,HOfZFA\
iVWyNDATÖKUtÆLIMA/
VEIFA 06 BRjOSA 03 /
NUPPA A*A<3ANN/
PBTTA varcf)
AlllOP fryKK? /
HEii-A&ölP/
LJOSKA
!!?????!T?TT!l?!lil!!!li!!i!il*ll‘i!il‘ii{!!!!?!!!}i{!i‘HHil!i?!?T;'?TT!???!!!!?Ti!;??Ti!H!S!i!ti!!n!T!n!!!i!!i!ii!H!!!!!ii!?ilT!!l!i!!!i!!!l!i!'!l
FERDINAND
PIÐ copenhagen
SMÁFÓLK
(Næstu 2 mílur.)
Umsjón: Guöm. Páll
Arnarson
fsland tapaði naumlega fyrir""
Noregi í síðustu umferð Norður-
landamótsins, eða 14-16. Pyrir
bragðið hafnaði sveitin í Qórða
sæti, en hefði aðeins þurft að
vinna 17-13 til að lenda í öðru
sæti. Svo mjótt var á mununum.
Spilið hér á eftir er úr þessum
leik:
Norðurgefur, enginn á hættu.
Norður
♦ 765
♦ K84
♦ ÁK863 t
♦ G6
Suður
♦ 3
VÁDG10762
♦ 72
♦ ÁD5
Slemma í hjarta er dágóð á
þessi spil og tókst báðum pörun-
um í N/S, Jóni Baldurssyni og
Sigurði Sverrissyni og Helness
og Aaby, að ná henni eftir ná-
kvæmlega sömu sagnin
Vestur Norður Austur Suður
— 1 tígull 2 spaðar 3 hjörtu y
3 spaðar 4 hjörtu Pass 4 grönd
Pass 5 hjörtu Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Allar sagnir eru eðlilegar,
nema hvað fjögur grönd eru {'■
ása Blackwood. Trompkóngur-
inn telst þá sem ás. Á þessu
móti voru sömu spilin spiluð f
öllum leikjum, en aðeins f þess-
umleik var slemma sögð á spilin.
Á báðum borðum byijaði
vömin á því að spila tvisvar
spaða. Jón Baldursson trompa^
seinni spaðann, tók einu sinm
tromp og fór svo í tfgulinn, tók
ás á kóng og trompaði tígul
hátt. Þegar tfgullinn kom niður
3-3 var óhætt að leggja upp,
því nú var hægt að henda tveim-
ur laufum heima niður í frftígul.
Á hinu borðinu tók Aaby þann
kostinn að taka tvisvar tromp
og svína svo fyrir laufkónginn.
Hann var hræddur um að tfgull-
inn lægi 5-1 og ákvað að treysta
algerlega á laufsvfninguna. Og
hún gekk, svo spilið féll.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Búdapest í
vor kom þessi staða upp f skák
alþjóðlegu meistaranna Ralf
Lau, V-Þýzkalandi, sem hafði
hvítt og átti leik, og Klaus
Berg, Danmörku.
Svörtu riddaramir eru illa stað-
settir og Daninn saup seyðið af
þvf:
22. Rxg5! (22. h4 var einnig
öflugt, en það er skilyrði að fóma
liði til að komast í þennan dálk)
— hxg5, 23. Hxg5+ — Rg7, 24.
Hd4 - f6, 25. Dxe6+ - Hf7-
26. Dxf6 og svartur gafst upp.
Lau sigraði glæsilega á mótinu,
hlaut 10 v. af 13 mögulegum.
Hann hlaut áfanga að stórmeist-
aratitli. í 2.-4. sæti urðu þeir
Berg, Danner (Austurríki) og
Kindermann (V-Þýskalandi) með
8 v. Honfí varð efstur heima-
manna, hlaut 7‘/s v.