Morgunblaðið - 02.07.1986, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JtJLÍ 1986
Fjölþjóða samvinna hefur á sl.
áratug sett æ meiri svip á flug-
sýning-ar og er henni mikið
flaggað, ekki síst þegar stjórn-
málamenn mæta á eýningarsvæð-
ið. Svo var einnig nú í Hannover
þvi Þjóðveijar og Kínverjar
undirrituðu samstarfssamning
um smíði nýrrar farþegaflugvél-
ar að viðstöddum Franz Josef
Strauss forsætisráðherra Bæj-
aralands og Martin Griiner við-
skiptaráðherra. Flugvélin nýja
hefur hlotið heitið MPC 75 og á
að rúma 75 farþega. Á myndinni
má sjá áðurnefnda stjóramála-
menn virða fyrir sér líkan af
hinni nýju flugvél og eru þeir á
milli Hans Aradt Vogels for-
stjóra MBB/Messerschmitt-
Bölkow-BIohm og Tang Xiao
Peng yfirmanns kínverska flug-
iðnaðarins.
Hannover-flugsýningin í máli og myndum
Flug
Gunnar Þorsteinsson
Á DÖGUNUM birtist hér í
blaðinu grein um DLA ’86 —
alþjóðaflugsýninguna sem
fram fór dagana 5.—15. júni
sl. í Hannover í Þýskalandi.
Hér birtist síðari hluti frá-
sagnarinnar af sýningunni
og er eins og sjá má mynd-
rænni en sú fyrri.
Fimmtíu ára gömul Junkers Ju
52/3 m eða „Ju frænka" var
aðaldjásnið á sýningunni. Sú vél
sem þar var er ein af örfáum í
heiminum sem enn eru flug-
hæfar jafnvel þó að 4.835 hefðu
verið smiðaðar af 30 gerðum.
Þessar flugvélar voru næst út-
breiddasta farþegaflugvél milli-
striðsáranna næst á eftir Dou-
glas DC 3 og í seinni heimsstyij-
öldinni voru þær frægustu her-
flutninga- og fallhlífaflugvélar
Þjóðverja. Sýningarvélin er f
eigu þýska Lufthansa flugfélags-
ins sem keypti frá Bandaríkjun-
um. Með henni vill félagið halda
á lofti merki flugmanna sinna
sem ruddu brautina fyrir margar
af helstu alþjóðaflugleiðum nú-
timans á Ju 52 vélum. T.d. var
hún fyrsta flugvélin sem flaug
yfir Anders- og Himalaja fjall-
garðana, fyrsta vélin sem flaug
kringum Afríku og sú fyrsta sem
flug yfir þvera Asíu til Japans
og Kfna. Eins og fyrr segir
keypti Lufthansa sfna vél f
Bandarikjunum og mun flugið
yfir N-Atlantshafið tíl Hamborg-
ar hafa verið viðburðarfkt. í
fyrra lauk endurbyggingu vélar-
innar og er hún nú sem ný.
Lufthansa er 60 ára á þessu ári
og má vel vera að „Ju frænka“
sé öðrum þræði hugsuð sem
einskonar afmælisgjöf.
Fjórar heimsfrægar flugsveitir
sýndu listir sfnar. Það vora
Rauðu örvarnar frá Bretlandi,
Acrotriga frá Ungveijalandi,
Italian Patrouille Martini og
Patrouille de France.
at-A.
Gamlar sjaldgæfar flugvélar vöktu mflda athygli almennings. Hér má
sjá Walter Eichhorn flugstjóra hjá Lufthans heilsa áhorfendum f návegi.
Flugvélin, sem er f hans eigu, er af gerðinni North American AT 60.
Þær flugu fyrst árið 1940 og voru smfðaðar rúmlega 15 þúsund stk.
Voru þær fyrst og fremst notaðar til þjálfunar á flugmönnum. AT 60
vélin er búin 600 hestafla hreyfli, og nær 335 km hraða á klst. og er
alræmd fyrir hávaða.
Á Hannover-flugsýningunni hélt Félag þýskra flugmálafréttaritara
upp á 50 ára afmæli þrýstiloftshreyfilsins með veglegri sýningu sem
rakti sögu hans og þróun. Fjölmargir þotuhreyflar, gamlir og nýir,
voru þarna til sýnis og fékkst þannig glöggt yfirlit yfir tækniþróun-
ina sem orðið hefur þessa hálfu öld. Það er erfítt að hugsa sér
aðra uppfinningu en þotuhreyfílinn sem hefur haft jafn mikil áhrif
á sögu flugsins.
Þessi myndarlega starfsstúlka
Geimvísindastofnunar Evrópu
stendur hér við líkön af tveimur
geimfarartækjum sem stofnunin
bindur miklar vonir við i framtfð-
inni. Vinstra megin er Ariane 5
burðarflaug með Hermes geim-
skutlu á tijónunni og verður f haust
tekin endanleg ákvörðun um hvort
ráðist verður í þessa smfði. Hægra
megin er Ariane 4 burðarflaug sem
verður skotið á loft f fyrsta sinn f
haust. Þrátt fyrir að geimskot
Ariane 2 flaugar hefði mistekist
aðeins viku áður en Hannover-
sýningin hófst var engan bilbug
að finna á aðstandendum Evrópsku
geimferðaáætlunarinnar. í ræðu
við opnunarathöfn sýningarinnar
lagði Helmut Khol kanslari Þýska-
lands áherslu á aukna samvinnu
ríkja Evrópu á sviði flugmálafram-
leiðslu og geimtækni og sagði jafn-
framt að Þjóðveijar myndu ekki
láta sitt eftir liggja. Kanslarinn gaf
þá yfirlýsingu að samkeppnisað-
staða þýskra fyrirtælqa á þessu
sviði yrði styrkt svo Þýskaland
íiðjafnfætis------------
gæti staðið jafnfætis Frökkum.
Einkaflugvélar, forstjóravélar og síðast en ekki síst smærri farþegaflugvélar draga jafnan marga gesti
til Hannover, því sýningin hefur orð á sér fyrir að sinna þessum flokkum flugvéla sérlega vel. Þýska-
land er jú næst stærsti markaður í heimi fyrir einkaflugvélar. Það er því ekki nema von að framleiðend-
ur smærri flugvéla hugsi sér gott til glóðarinnar á þessu stóra markaðssvæði. Fremst á myndinni eru
franskar smáflugvélar frá Aerospatiale af gerðunum TB 10 Tobago, Robin R 3000 og hin nýja TB 21
Trinidad.
Auðvitað sýndu Þjóðveijar gamla strfðsfáka eins og þessa Messer-
schmidt BF 108 Taifun vél (hvirfilvindinn). Vélar þessar voru fyrst
smíðaðar árið 1934 og voru taldar bestu og nýtískulegustu fjögurra
sæta flugvélar í heimi fyrir seinni heimsstyijöldina. Árið 1944 höfðu
885 verið smíðaðar og eftir stríð voru 359 til viðbótar framleiddar
i Frakklandi. Me 108 er með 240 hestafla hreyfil og getur náð 315
km hámarkshraða á klst.