Morgunblaðið - 09.08.1986, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986
25
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjaid 450 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 40 kr. eintakiö.
Verð
*
Oljóst er, hvort tilraun Sam-
taka olíuútflutningsríkja
(OPEC) til að hækka verð á olíu
muni bera árangur. Svo sem
kunnugt er af fréttum hafa
OPEC-ríkin náð samkomulagi um
að draga úr olíuframleiðslu sinni
um þijár milljónir tunna á dag
frá og með 1. september til 31.
október nk. Þetta hefur þegar
leitt til nokkurrar verðhækkunar
á olíu, sem afhent verður í sept-
ember, en vafamál er, hvort sú
hækkun er stundarfyrirbæri eða
stöðug og eigi jafnvel eftir að
verða meiri. I því sambandi er á
það að líta, að írakar, sem eru
miklir olíuframleiðendur og eiga
aðild að OPEC, eru andvígir sam-
drættinum og skerast að líkind-
um úr leik. Bretar og Norðmenn
eru heldur ekki aðilar að sam-
komulagi OPEC-ríkjanna og
ólíklegt að þeir dragi úr fram-
leiðslu sinni á næstunni. Einnig
er ástæða til að gefa því gaum,
að OPEC-samkomulagið er að-
eins til tveggja mánaða og
sterkar líkur eru taldar á því, að
ekki verði samstaða um fram-
lengingu þess og olíuverð muni
því lækka á ný. Því hefur jafnvel
verið haldið fram, að OPEC-ríkin
muni ekki einu sinni treysta sér
til að virða samkomulagið á með-
an það er í gildi. Ur þessu getur
reynslan ein þó skorið.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um það, hversu mikla þýð-
ingu lækkun olíuverðs hefur fyrir
þjóðarbúskap íslendinga. Verð-
fallið í upphafí þessa árs ger-
breytti, sem kunngt er, öllum
forsendum kjarasamninga og
hinar viðamiklu efnahagsráðstaf-
anir ríkisstjórnarinnar í mars sl.
byggjast á því, að ekki verði
umtalsverð hækkun á olíuverði.
Bolli Þór Bollason, aðstoðarfor-
stjóri Þjóðhagsstofnunar, sagði í
samtali við Morgunblaðið í fyrra-
dag, að ekki væri ástæða til að
óttast að olíuverðhækkanimar í
september breyttu forsendum
þjóðhagsáætlunar, en í henni
væri miðað við, að hráolíuverð
færi ekki yfir 15 dollara á tunnu.
Til þess kemur væntanlega ekki,
þrátt fyrir framleiðslusamdrátt
OPEC-ríkjanna. Verði samdrátt-
urinn hins vegar meiri síðar í
vetur geta forsendur að sjálf-
sögðu breyst.
Sama dag og OPEC-ríkin tóku
ákvörðun um framleiðslusam-
drátt samþykkti Verðlagsráð, að
lækka útsöluverð á bensíni, gas-
olíu og svartolíu og tók nýja
verðið gildi sl. fímmtudag. Eftir
lækkunina hefur bensínlítrinn
lækkað um 28,6% á árinu, gas-
olíulítrinn um 42% og lítri af
svartolíu um 46%. Allir lands-
menn fínna með einum eða öðrum
hætti fyrir jákvæðum áhrifum
þessara lækkana og er óþarfí að
áolíu
taka mörg dæmi til skýringar.
Nefna má þó þá frétt, sem birtist
hér í blaðinu í gær, að eldsneytis-
kostnaður bíls, sem fer allan
hringveginn og eyðir 10 lítrum á
hundrað kflómetrum, er nú 3.542
krónur, en var um síðustu ára-
mót 4.959 krónur. Það munar
sannarlega um minna.
Önnur frétt hér í blaðinu í gær
um áhrif olíuverðslækkananna er
íhugunarverð. Þar kom fram, að
verð á biki hefur lækkað um 30%
á þessu ári. Vegna þessa hefur
tekist að leggja rúmlega 200 kfló-
metra af nýju slitlagi á þjóðvegi
landsins, þrátt fyrir niðurskurð á
fíárveitingum. Sú spuming vakn-
ar, hvort ekki sé ástæða til að
notfæra út í ystu æsar hagstætt
olíuverð, meðan það er fyrir
hendi, og leggja slitlag sem víðast
á þjóðvegina. Eða að minnsta
kosti að kaupa hráefni til þess,
á meðan verð á því er jafn hag-
stætt og raun ber vitni. Ef til
vill er hér tækifæri, sem mun
ganga okkur úr greipum, ef það
verður ekki nýtt meðan aðstæður
eru enn hagstæðar.
Greiðslu-
svigrúm
skattgreið-
enda
Innheimtumenn opinberra
gjalda standa nú að hefð-
bundinni auglýsingaherferð um
eindaga skatta til ríkis og sveitar-
félaga með tilheyrandi tilvitnun-
um í lögbundin viðurlög, ef út
af er brugið.
Innheimtuaðilar fara í þessu
efiii að starfsreglum, sem þeim
eru settar. Ljóst er hins vegar,
að fjölmargir skattgreiðendur
eiga nú úr vöndu að ráða vegna
misvísunar skattvísitölu og launa
og/eða verulegrar hækkunar á
mánaðarlegum skattgreiðslum
sínum á síðari hluta ársins. Þeir
þurfa nokkurt svigrúm til að
stokka upp eigin fíárhagsáætlan-
ir og heimila sinna til að geta
staðið í skilum með opinberar
álögur.
Ríki og sveitarfélög þurfa sitt,
þó að deilt sé bæði um hvert hlut-
fall opinberrar skattheimtu af
þjóðartekjum eigi að vera og
skattheimtuaðferðir. „Kerfíð" má
hins vegar ekki vera svo ósveigj-
anlegt, að skattgreiðendur, sem
lenda í erfíðri skattahækkunar-
sveiflu, geti ekki samið um
nokkurn veginn bærilegar
greiðslur miðað við aðstæður og
efnahag.
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 349. þáttur
Menn hafa verið ólatir að per-
sónugera náttúruöflin. Guðinn
Þór(r) var persónugervingur þrum-
unnar, hamarinn Mjölnir víst tákn
eldingarinnar. Þór var mikill átrún-
aðarguð vestumorrænnar alþýðu;
þegar fram í sótti meginvörður og
vemdari gegn illum öflum tilver-
unnar. Margt er til marks um ágæti
Þórs. Fimmti dagur vikunnar, sem
kenndur er við Júpíter „hinn besta
og mesta" meðal Rómveija, var
meðal norrænna manna nefndur
þórsdagur. íslendingum þótti við
hæfí, og þykir enn, að láta sumarið
sjálft hefjast á þórsdegi. Þá þótti
sjálfsagt að helga alþingi hið foma
þann dag. Ekki virðast menn hafa
haft til þess kurteisi á síðari tímum.
Menn voru líka fúsir til að helga
böm sín þessum guði með margvís-
legum nafngiftum, sem hófust á
nafni hans. Þór er algengasti forlið-
ur íslenskra skímamafiia. Sumir
kunna þó að fínna á því fleiri skýr-
ingar. Aftur á móti var Þór of
ginnheilagur til þess að menn bæm
nafn hans eitt saman. Líður svo og
bíður, og þegar okkar öld er upp-
mnnin, taka sumir að gefa bömum
sínum nöfn gamalla goða. Árið
1910 hétu 9 Islendingar Þór. En
svo tekur landið að rísa. Áratugina
1921-’50 vom 725 sveinar skirðir
Þórsnafni, og síðan heldur sóknin
áfram. Baeði árin 1976 og 1980-’82
er Þór algengasta nafngift svein-
bama á landi hér, og svo er komið
1982 að Þór er orðið 4. algengasta
karlmannsnafn á íslandi. Algengari
em þá Jón, Sigurður og Guð-
mundur. Skylt er að geta þess að
Þór er langoftast á seinustu áratug-
um síðara nafn af tveimur, það er
til dæmis langalgengasta aukanafn
sveina 1976.
Undarlegt er að tófan skuli heita
öðm nafni holtaþór, og það er
reyndar annað nafn á hvítleitum
kísilsteini.
★
Bragarháttur vikunnar heitir
gagaraljóð (ferskeytluætt VII):
Ó, hve margur yrði sæll
og elska mundi landið heitt,
mætti hann vera í mánuð þræll
og moka skít fyrir ekki neitt.
(Páll J. Árdal)
Stjömuhrap um himin fer.
Hnattaskaði orðinn þar.
Sakna ég þess sem einstætt er.
Engum líkur Havsteen var.
(Karl Kristjánsson)
★
Fyrir svo sem einu og hálfu ári
vom hér í þáttunum sýnd nokkur
dæmi mismunandi stfltegunda og
stflbragða. Þá varð svokallaður
orðaleikur útundan. Það hefur
kannski verið vegna þess, hve erfitt
er að skilgreina hann. I Orðabók
Menningarsjóðs er skilgreiningin
svo:
„Leikur með orð (t.d. með sam-
hljóða orðmyndir sem hafa óskylda
merkingu).“ í Hugtökum og heit-
um í bókmenntafræði er skilgrein-
ingin viðameiri, svo sem við er að
búast í sérfræðiriti. Þar segin
„Orðaleikur er að notfæra sér
hljóðlíkingu orða eða orðhluta (gr.
paronomasia) og tvíræði (marg-
ræði) orða og setninga til þess að
ná óvæntum áhrifum, koma flatt
upp á menn; oft notað í andstæðum.
Algengt í mæltu máli, ekki síst í
margs konar fyndni („bröndur-
um“).“
Síðar segir að hjá íslenskum
skáldum 20. aldar beri meira á orða-
leik af seinni gerðinni. Er svo tekið
sem dæmi frægt erindi úr Rímþjóð
Jóhannesar úr Kötlum: „í sléttu-
bönd vatnsfelld og stöguð/hún
þrautpíndan metnað sinn lagði./I
stuðla hún klauf sína þrá/við höfuð-
staf gekk hún til sauða." Þá er við
bætt dæini frá Þorsteini frá Hamri,
sem „spennir kvíðbogann".
Venjulegur orðaleiksbrandarí er
til dæmis: Lokaðu glugganum í
guðs bænum. En svo skulum við
aðeins hyggja að skáldum okkar
aldar, því að kalla má orðaleik eitt
af einkennum nútímaljóðlistar.
Hannes Sigfússon lætur nístandi
klær regnsins sundra hverri mót-
báru, Steinunn Sigurðardóttir veiðir
sól í sumamætur, Sveinbjöm I.
Baldvinsson lætur Ijósbláa blússu
draga ýsur upp úr pottinum, og
Þórarinn Eldjám kvað: Disney strik
ei draga kann/dráttar var ei hest-
ur“ og: „Hann græddi sár hins tyfta
töframanns/á tá og fíngri."
Ættu þessi dæmi að skýra hvað
við er átt, og er þá ótalinn stór-
meistari orðaleiksins Jónas E.
Svafár sem lét hraðfrystihúsin
standa við sjávarútveginn og auðn-
aðist að yrkja: „En hvítasunnumenn
töluðu biskupstungum."
★
Ég hef lengi beðið árangurslaust
eftir að forsvarsmenn bænda (eða
einhveijir aðrir) upphæfust til að
andmæla misnotkun orðsins fjalla-
lamb, sem þrástagast er á í
auglýsingum, í vitlausri merkingu.
Fjallalamb er lamb sem gengur
móðurlaust á fjalli, fráfærnalamb,
graslamb. Lömb, sem ganga undir
mæðmm sínum, heita hins vegar
diikar, og ég veit ekki betur en
svokallaðir „meistarar fjailalambs-
ins“ séu að reyna að gera dilkakjöt
útgengilegra. Líklega er nafngiftin
fjallalamb í þessum auglýsingum
blekkingartilraun, sem sé að læða
því inn að lömbin séu ekki húsdýr,
heldur villidýr, skotin á færi á fjöll-
um uppi. Best gæti ég trúað að
þetta ætti upptök sín í sams konar
blekkingartilraun frá 1972, úr veisl-
unni miklu eftir „skákeinvígi
aldarinnar", en þá var sagt að á
boðstólum væm „villt fjallalömb".
★
Hlymrekur handan stældi úr
ensku:
Lengi hafði ’ann Bjöm gamli á Hlaða
tvo hrúta inní stofu hjá Daða
í minningarskyni
um tvo mjög kæra vini,
en hann mundi bara alls ekki hvaða.
Morgunbladið/Kári
Unnið við endurbætur á hraðfrysti húsinu Skildi. Árni Guðmundsson
framkvæmdastjóri fremst á myndinni.
Sauðárkrókur:
Hraðfry stihúsið
Skjöldur endurbætt
Sauðárkróki.
NÚ STANDA yfir miklar endurbætur
á hraðfrystihúsinu Skildi á Sauðár-
króki. Verður verkið unnið í áföng-
um. Húsið er komið nokkuð til ára
sinna og því iagfæringa þörf.
Ámi Guðmundsson framkvæmdastjóri
Skjaldar sagði, að í þessum áfanga yrði
byggð ný kaffístofa og snyrting fyrir
starfsfólkið. Þótt húsnæði frystihússins
sé ekki af fullkomnustu gerð hefur fyrir-
tækinu tekist að skila góðri framleiðslu.
Eins og fram kom í Mbl. fyrir nokkm
hlaut Skjöldur viðurkenningu Coldwater,
fyrirtækis Sölumiðstöðvarinnar í Banda-
ríkjunum, fyrir úrvals framleiðslu. Við
það tækifæri sagði fulltrúi Coldwaters,
að ekki væri einhlítt að frystihúsin væm
flísalögð í hólf og gólf til að skila góðri
vöm, þar kæmu til vönduð vinnubrögð
starfsfólksins og góð verkstjóm. Verk-
stjóri hjá Skildi er Jón Þorsteinsson.
Þótt tveir af togumm Útgerðarfélags
Skagfirðinga hafí verið frá veiðum í sum-
ar vegna endurbóta og viðgerða, hefúr
tekist að halda uppi nokkuð samfelldri
vinnu í fyrstihúsunum Skildi og Fiskiðj-
unni. Björgvin frá Dalvík landaði hér
150 lestum og Óskar Halldórsson tvisv-
ar, 85 lestum hvort sinn. Minni bátar
sem héðan róa hafa aflað vel og borið
dijúgan að landi.
Kári
Jöfur KE 17.
Rækja fullunnin um borð
Ný tæki reynast mjög vel í Jöfri KE
MIKLAR endurbætur hafa verið
gerðar á fiskiskipinu Jöfri KE
17. Er skipið talið eitt fullkomn-
asta skip sinnar tegundar hér-
lendis eftir breytingarnar, sem
tóku fjóra mánuði og voru að
mestu unnar hjá Þorgeiri og EU-
ert hf. á Akranesi, en Kæling hf.
setti upp kælikerfi.
Síðastliðin tvö ár hefur Jöfri ver-
ið algjörlega umbylt. M.a. hefur
verið sett í skipið plötu-og laus-
frystikerfí, en rúm fyrir vinnslu
fékkst í spilhúsinu með því að færa
spilið allt upp á dekk. Nýjar grand-
aravindur og pokavinda vom einnig
settar í upp. Lest er einangmð með
samsettum einingum, sem fíar-
lægðar em áður en skipið fer á
loðnuveiðar.
Rækjuvinnslukerfí skipsins gerir
mögulegt að fullvinna rækjuna um
borð, svo að hún verður í neytenda-
umbúðum og tilbúin til útflutnings.
Fáein íslensk skip hafa slíkan út-
búnað.
Það er aðeins þriggja daga verk
að gera skipið klárt fyrir loðnuveið-
ar, þar sem nýi búnaðurinn verður
kyrr í skipinu, en slíkur undirbún-
ingur getur oft tekið mánuð í öðram
skipum.
Allt rafmagnskerfí var að þessu
sinni endumýjað og loks má geta
þess, að aðbúnaður skipveija var
stórbættur, en allar íbúðir em nú
aftur á
Eftir breytingamar, sem kostuðu
um 37 milljónir króna, er Jöfur 235
brúttólestir að stærð. 13 manna
áhöfn er á skipinu, sem stundar
úthafsrækjuveiðar í sumar, en fer
á loðnu í haust að sögn skipstjór-
ans, Snorra Gestssonar.
Jöfur er í eigu braeðranna Páls
og Birgis Axelssona. í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins sagði
Páll, að skipið stundaði nú rækju-
veiðar út af Húnaflóa og hefðu þær
gengið ágætlega, það sem af er.
Morgunblaðið/Páll Kotilsson
Snorrí Gestsson skipstjórí (t.v.) og Páll Axelsson lengst t.h.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ANDRÉS MAGNÚSSON
Hvert stefnir í Líbýu?
MOAMMAR Gaddafi hefur reynst æ erfiðara að halda í stjómar-
tauma Líbýu eftir sprengjuárásir Bandaríkjamanna á búðir
hryðjuverkamanna í Trípólí og Bengazi hinn 15. apríl sl. Efna-
hagsástand landsins er afleitt og er talið að þetta tvennt hafi
m.a. valdið þvi að Gaddafi hefur engan tima haft til þess að sinna
einu aðaláhugamáli sínu, hryðjuverkum.
Vandræði Gaddafis heima fyrir
hafa hvergi komið jafn vel í
Ijós og í samskiptum hans við
herinn. Samkvæmt vikublaðinu
al-Dostour, sem kemur út í Lund-
únum, er upplausn í Líbýuher og
togast á ólík öfl. „Byltingarráð"
Gaddafís gegn gamla herforingja-
skólanum, hugsjónamennimir
gegn þeim sem halda tengslum
við ættbálka sína og herforingjar
þjálfaðir austantjalds gegn þeim
sem hafa hlotið þjálfun á Vestur-
löndum.
Talið er að Gaddafi hafí gert
um 1-2.000 manns úr „byltingar-
ráðum" sínum að foringjum í
hemum, til þess að fylgjast betur
með hræringum innan hans. Þá
skýrði blaðið aJ-Taliá al-Arabia,
sem er gefíð út í París, frá því
að völd „byltingarráðanna" virt-
ust sífellt aukast og var nefnt sem
dæmi að þau hefðu tekið af lífí
nokkra foringja í flughemum, sem
sagt var að staðið hefðu að baki
valdaránstilrauninni í maí 1984.
„Byltingarráðin“ era einskonar
hverfafélög áhugafólks um bylt-
inguna og eru ákvarðanir þeirra
og gerðir því síður en svo sam-
hæfð, og minnir reyndar margt í
fari þeirra á djöfulgang „Rauðu
varðliðanna" í Kína, sem hvað
harðast gengu fram í „Menning-
arbyltingunni" svonefndu. Með
þessu hefur Gaddafi enn aukið á
klofning þann sem fyrir var í hem-
um milli sinna manna og atvinnu-
hermannanna.
Gaddafi getur ekki lengur
treyst hemum, eins og ljóst má
vera af þeim sex valdaránstilraun-
um, sem þegar hafa verið gerðar.
Hann verður að reiða sig á aust-
ur-þýska, kúbanska og sýrlenska
hermenn og hemaðarráðgjafa
gegn valdaránstilraunum. Sam-
kvæmt ýmsum fregnum, þ. á m.
frá AP-fréttastofunni, voru gerð-
ar a.m.k tvær uppreisnir innan
hersins eftir sprengjuárásir
Bandaríkjamanna, og vora það
einungis sýrlenskir málaliðar, sem
reyndust Gaddafí hollir.
Gaddafí getur ekki lengur reitt
sig á eigin leyniþjónustu og fékk
hann því Sovétmenn til þess að
aðstoða sig í þeim efnum. Sam-
kvæmt líbanska vikublaðinu
al-Wattan al-Arabi settu Sovét-
menn upp mjög fullkomna njósna-
og eftirlitsstöð í höfuðstöðvum
Gaddafís í Bab Azzaziya, og er
yfírmaður hennar sovéskur hers-
höfðingi, Mikhail Bakov að nafni.
Alls munu 85 sovéskir njósnasér-
fræðingar starfa við stöðina.
Gömul mynd af Gaddafi meðan
allt lék í lyndi. Hætt er við að
hann sé ekki eins brosmildur
nú.
Með fjölskylduna
á móti sér
Eitt Ijósasta dæmið um and-
stöðu við Gaddafi, eða að öðrum
kosti dæmi um ofsóknarbijálæði
hans, kom í ljós 25. nóvember í
fyrra, en þá lét Gaddafi myrða
Hassan Ishkal hershöfðingja, en
hann var þriðji æðsti yfirmaður
hersins, aðalstjómandi olfuiðnað-
ar landsins og frændi Gaddafís
að auki. Al-Wattan al-Arabi og
Times í London sögðu að Gaddafi
eða lífverðir hans hefðu skotið
Ishkal, fyrir að efast um að bylt-
ingin væri á réttri braut. Skýrt
var frá því að hann hefði framið
sjálfsmorð, og var jarðarförin lát-
in fara fram í kyrrþey.
Morðið á Ishkal er talið gefa
til kynna að Gaddafí sé ekki ör-
uggur um stuðning eigin fjöl-
skyldu og ættbálks. Það er einnig
talið bera vitni um þá þróun mála
í Líbýu að völdin séu að renna
úr greipum fjölskyldu og ættbálks
Gaddafís og í hendur hinna
óreyndu stuðningsmanna Gaddaf-
is, sem hafa fái kosti aðra en þá
að vilja fylgja Gaddafi að enda-
mörkum veraldar.
Vegna ofsóknarbijálæðis
Gaddafís, sem að nokkra er á
rökum reist, ferðast hann aðeins
í brynvörðum farartækjum. En
ferðalög Gaddafís era lítt meðal
fólksins. Ferðist hann nú, er það
aðeins til þess að skipta um dval-
arstað af öryggisástæðum. Áður
fyrr fór hann heim í hérað þegar
hann vildi njóta hvfldar og vin-
áttu. Hann átti ætíð vísa vini í
eigin ættbálki, Gaddafádamm, en
eftir að hann lét myrða Ishkal er
hann ekki lengur öruggur „í tjaldi
fjölskyldu sinnar“.
Ekki bætir úr skák að Gaddafí
virðist að einhveiju leyti miður sín
eftir árásir Bandaríkjamanna.
Hann hefur lítið sem ekkert kom-
ið fram opinberlega, og þá sjaldan
sem það hefur gerst hefur hann
þótt annars hugar, tafsa og setja
hugsanir sínar fram með óskýrari
hætti en áður.
Ónýtur efnahagxir
Efnahagur Líbýu er á heljar-
þröm og má vera að það muni
reynast Gaddafí þyngst í skauti,
þegar fram í sækir. Ástæðumar
eru margvíslegar, m.a. lækkandi
olíuverð, óarðbærar fjárfestingar
í vonlausum fyrirtækjum, enda-
lausar niðurgreiðslur á margskon-
ar þjónustu og síðast en ekki síst
gífurleg herútgjöld.
Á síðustu þremur árum hafa
olíutekjur minnkað um 50%. Á
árunum 1980 til 1985 minnkuðu
olfuútflutningstekjur úr 22 millj-
örðum dala í átta miljarða.
Gjaldeyrisforðinn nam 13 millj-
örðum dala árið 1980, en 1985
voru aðeins þrír milljarðar eftir.
Erlendar skuldir námu hinsvegar
um 7 milljörðum Bandaríkjadala.
(Tölur úr Business Week).
Allar efnahagsaðgerðir Gadd-
afís, sem eru fjölmargar, hafa
reynst til hins verra. Fyrir tæpum
tveimur áram var hafín mikil
spamaðarherferð, þar sem draga
átti úr allri „óþarfa eyðslu", með
skipulögðu (les: miðstýrðu) átaki.
Áætlunin náði hámarki í fyrra-
sumar, en þá var ekki einu sinni
hægt að kaupa brauð f hinum
ríkisreknu verslunum f Trípólí.
Gaddhafí hóf þjóðnýtingu nær
alls atvinnurekstrar fyrir rúmum
fjórum árum og hefur verslunin
ekki enn beðið þess bætur.
Vegna alls þessa er Líbýustjóm
einnig orðin með þeim skuldseig-
ustu, sem um getur. Má nefna sem
dæmi um það, að einn góðan veð-
urdag hætti hin opinbera Inn-
flutningsskrifstofa Líbýu að borga
reikningana sína. Ymis itölsk fyr-
irtæki eiga útistandandi um 700
milljónir Bandarikjadala, en alveg
er óvist hvort eða hvenær þeir
peningar fást greiddir.
Hvort olíuverðhækkanir eigi
eftir að lengja lífdaga Gaddafís
og stjómar hans, skal ósagt látið.
Vandi hans við að halda völdunum
er orðinn það mikill, að auðfeng-
inn ólíugróði megnar tæplega að
treysta hann aftur í sessi.
Gaddafi í hlutverki bedúínans og fjölskylduföðurins.