Morgunblaðið - 17.08.1986, Page 10

Morgunblaðið - 17.08.1986, Page 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986 Aðalstræti - vagga Reykjavíkur Allt frá upphafi landnáms í Reykjavík mun ef að líkum lætur hafa legið gata eða öllu heldur stígur, þar sem nú er Aðalstræti. Stígur þessi mun hafa legið frá hin- um foma bæ, sem rannsókn- ir benda til að staðið hafí syðst í Aðalstræti, og niður að sjó við Grófína. Frá því á 11. öld og langt fram á þá fímmtándu er Reykjavíkur lítt getið í heim- ildum, en frá síðari hluta 15. aldar má rekja nöfn ábúenda jarðarinnar með nokkurri festu. Með stofnun Innrétt- inganna 1751 verða straum- hvörf í sögu Reykjavíkur, er skipulögð þéttbýlismyndun á sér stað, og sveitamenningin hopar hér hægt og bítandi fyrir bæjarmenningu. Með byggingafram- kvæmdum á vegum Innrétt- inganna 1752—1759 breytist þannig fyrrnefndur stígur í fyrstu eiginlegu götu lands- ins og nefndist fljótlega Hovedgaden. Síðan var hún nefnd Adelgaden og Klub- gaden, en Aðalstrætisnafnið bar hún ekki formlega fyrr en 1848. Áður en Reykjavík fékk kaupstaðarréttindi 1786, hafði verið um það rætt að gera hana að höfuðstað iandins, en þrátt fyrir það var staðnum ekki ætlað stórt landsvæði í upphafí. Kaup- staðarlóðin var í raun aðeins spilda sú sem við nefnum Kvosina í dag, auk Örfiris- eyjar og Amarhóls. Fyrstu kaupstaðarárin var Reykjavík því ekki mikil- fengleg hvorki hvað varðar stærð né fegurð og það sama má raunar einnig segja um auðlegðina. í raun var bær- inn ekki annað en samansafn þarna á hominu hefur nú verið verslað samfellt í rúm 200 ár. Eftir Sunchenberg hafa Fischersverslun, Duus- verslun og Ingólfsapótek haft þama aðsetur, og nú er þama verslunin Geysir. Fyrir sunnan verslunina reisti konungsverslunin hús yfír verslunarstjóra sinn um 1780, en fátt er vitað um hvað var því að fjörtjóni og hvenær. Hús það sem þarna stendur í dag (Aðalstræti 4), var byggt um 1940. Þar sem Morgunblaðshöll- in er í dag, stóð fyrir 200 ámm lítil og ómerkileg mó- geymsla, sem reist hafði verið í tengslum við Innrétt- ingamar. Árið 1825 var svo reist þarna hús það sem jafn- an var kennt við Þórð Jónassen og kallað Jónas- senshús. Eftir hans daga bjuggu þar ýmsir merkis- menn fram til aldamóta, en eftir það var það notað að mestu til verslunarreksturs allt þar til það var rifið um 1950. Við hlið Jónassenshúss stóð Hákonsenshús, kennt við Einar Hákonsen hattara. Áður en Einar byggði þarna hús sitt, hafði á lóðinni stað- ið eitt af geymsluhúsum Innréttinganna sem síðar hafði verið breytt í verslunar- hús. Um lengri eða skemmri tíma bjuggu í Hákonsenshúsi nokkrir nafntogaðir menn, eins og skáldin Jónas Hallgrímsson og Benedikt Gröndal, ennfremur andaðist Sigurður Breiðfjörð þar 1846. Þegar Valgarð kaup- maður Breiðfjörð eignaðist húsið um miðja 19. öld, þá lét hann oftsinnis breyta húsinu og stækka um leið. í bakhúsinu lét hann innrétta leikhús, hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Auk leiksýninga fóm þar fram skemmtanir af ýmsum toga og árið 1906 hóf þar starfsmi sína, Reykjavík Biograft- heater. Þegar Fjalaköttur- inn, eins og húsið var jafnan nefnt, var rifinn 1985, þá hvarf af sjónarsviðinu einn elsti varðveitti bíósalur í heiminum. Eins og fram hefur komið að undaförnu þá hefur húsið slokkni aldrei á tveimur stöð- um, annarsvegar í helvíti og hinsvegar á sínu heimili. Á eftir Geir bjó þarna margt merkra manna, eins og Smith konsúll, Jens bróðir Jóns forseta, Jón Hjaltalín landlæknir og Matthías Jo- hannessen kaupmaður. Lengst af á þeirri öld er við lifum nú, muna menn eflaust eftir verslun þeirra Silla og Valda í þessu húsi, og nú er þar rekið veitingahús. Séð suður Aðalstræti um 1960. Ljósm. óþckktur/Kópía Ljósmyndasafnið. nokkurra húsa beggja vegna einnar götu — Aðalstrætis. Og það er einmitt utan um þessa litlu götu sem 200 árum síðar hefur vaxið borg með um 90.000 íbúa. Við skulum nú stikla á stóru í sögu og þróun þessarar höf- uðgötu borgarinnar. Arið 1798 stóð þar nyrst hús konungsverslunarinnar, 'en verslunarstjóri hennar, Sunchenberg keypti hana 1788, og telst þar með fyrsti kaupmaður kaupstaðarins. Hus það sem nú stendur þama (Aðalstræti 2) var byggt um miðja 19. öld, en Aðalstræti 2 árið 1907. Húsið skreytt vegna komu konungs. Ljósm. Magnús Ólafsson/Kópía Ljósmyndasafnið. Aðalstræti 10 verið ranglega talið elsta varðveitta hús í Reykjavík. Nú þykir nefni- lega sannað að dúkvefnaðar- stofa Innréttinganna sem þama var byggð 1752, hafí brunnið 1764, ogerlíklegt að það hús sem þama stend- ur nú hafi verið þyggt skömmu eftir það. Þar bjó um aldamótin Petræus kaup- maður en á eftir honum Geir Vídalín biskup í mikilli fá- tækt. Geir varð gjaldþrota fyrstur íslenskra biskupa og skulum við vona að það hendi ekki fleiri. I gamni er það haft eftir Geir að eldur Séð suður Aðalstræti 1901. Ljósm. óþckktur/Kópía Ljósmyndasafnið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.