Morgunblaðið - 17.08.1986, Page 23

Morgunblaðið - 17.08.1986, Page 23
MÐRGUNÉLaÐÍÐ; áUNNÍjtiÁGUR Í7! ÁGÚST1986 « SS Sex fyrstu borgarstjórafrúr í Reykjavík Þessi einstæda mynd er í vörslu Árbæ jarsaf ns, en hún mun tekin árið 1953 eða 1954. Á myndinni eru eiginkonur sex fyrstu borgarstjóra í Reykjavík. f neðri röð, talið frá vinstri: Anna Zimsen (Knud Zimsen), Vala Thoroddsen (Gunnar Thoroddsen), Sigríður Björnsdóttir (Bjarni Benediktsson). í efri röð, talið f rá vinstri: Óiöf Björnsdóttir (Pétur Halldórsson), Ingibjörg Claessen Þorláksson (Jón Þorláksson) og Sigríður Siemsen Einarsson (Páll Einarsson). Höfuðá ttirnar og mannanöfn FJÓRAR götur í Reykjavík draga nafn af höfuðáttum: Austurstræti, Suðurgata, Vesturgata og Norð- urstígur. Austurstræti mun upp- haflega hafa verið nefnt Tværgaden og síðar Langefortoug. Suðurgata hét upphaflega Kirkjugarðsstígur. Vesturgata var fyrst kölluð Hlíðar- húsastígur og síðar Læknisgata, vegna þess að Jón Thorstensson landlæknir reisti hús í Hlíðarhúsat- úni (Doktorshúsið). Núverandi nöfn þessara gatna eru dregin af stefnu þeirra frá Aðalstræti. Austurstræti gengur austur úr því. Um tilefni nafnsins á Norðurstíg er mér ókunnugt, en sennilega hefir það fyrst myndast í munni almennings og síðan verið látið halda sér. Nokkrar götur eru kenndar við menn, sem nafnfrægir eru í sögu bæjarins, svo sem Skúlagata (heitin í höfuðið á Skúla Magnússyni land- fógeta), Geirsgata (í höfuðið á Geir Zoéga útgerðarmanni), Tryggva- gata (í höfuðið á Tryggva Gunnars- syni bankastjóra). Tvær stuttar götur eru samhliða vestast í kvosinni, önnur frá Geirs- götu að Vesturgötu, hin frá Geirs- götu að Hafnarstræti. Þær eiga einkennileg nöfn, því að þær heita Grófin og Naustin. Hafa þau nöfn annan svip en flest önnur gatna- nöfn og minna á löngu liðna tíma. Þá var sandströnd meðfram öllu Hafnarstræti, austan frá Zimsen og vestur af Geir. Vestast var þar ofurlítill kriki og var hann nefndur Grófin. Þar var útræði og báta- naust Víkurmanna, Gijótamanna og Hlíðarhúsamanna. Grófín og Naustin minna á þennan stað, þar sem var aðalbækistöð útgerðarinn- ar í Reykjavík í upphafi. Úr Skuggsjá Reykjavíkur eftir Árna Óla. Vonarpening- - urinn Vonar- stræti ÞEGAR Geir T. Zoéga rektor byggði húsið, sem nú stendur á horninu á Tjamargötu og Vonar- stræti (1895), var það syðsta húsið í Tjarnargötu. Þar fyrir austan var vík norður úr tjörninni, og náði það upphaflega alveg að Alþingishús- inu, en templarar höfðu gert uppfyllingu þar fyrir sunnan og byggt þar samkomuhús sitt. Þar heitir nú Templarasund. Um leið og Geir T. Zoéga var leyft að byggja þetta hús, var ákveðið að gera þar götu, þegar efni leyfðu, milli Tjarnargötu og Lækjargötu. Að vísu þótti það ekki árennilegt að gera veg yfir Tjöm- ina, og þess vegna fékk gatan nafnið Vonarstræti löngu áður en hún var gerð og mun það vera myndað líkt og vonarpeningur, því að menn sáu, að það bar til beggja vona hvort gatan mundi nokkurn tíma koma. Úr Skuggsjá Rekjavíkur eftir Árna Óla. VlDEOTÆKI VX-510TC Slimline (aðeins 9,6 cm á hæö). • Framhlaðið m/fjarstýringu. • Skyndiupptaka m/stillanlegum tíma, allt að 4 klst. • 14 daga minní og 2 „prógrömm". • 12 rásir. • Hrein kyrrmynd og færsla á millí myndramma. • Stafrænn teljari. • Sjálfvirk bakspólun. • Hraðspólun m/mynd í báðar áttir. Afmælistilboð: Kr. 32.900stgr Laugavegi 63 - Síml 62 20 25

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.