Morgunblaðið - 17.08.1986, Síða 26
26 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986
Útivistarreitir Reykiavíkur
Fossvogur og
Nauthólsvík
Fossvogur og Nauthólsvík eru inn úr Skerjafirði. í Fossvogi eru stórmerki-
leg setlög, 100.000 ára gömul, frá síðasta hlýskeiði ísaldar. Hafa þar
fundist margar tegundir af steingerðum skeljum og kuðungum og þama
má segja að jarðfræðin liggi eins og opin bók. Nauthólsvíkin er þarna
utarlega í vognum að norðanverðu vinsæít útivistarsvæði með siglingarað-
stöðu og umtöluðum heitum læk. Hefur lækurinn ekki síst orðið vinsæll
þar sem það þótti varla hægt að baða sig í sjónum lengur sökum mengun-
ar. Á góðviðrisdögum flatmagar fólk því í heitu vatninu og hefur það
virkilega gott...
Elliðaárhólminn
Elliðaárhólminn er milli kvíslanna í Elliðaánum, þar sem þær falla milli Breiðholtshverfis og rafveituhverf-
isins niður af Árbæjarsafni. Þarna er vinsælt útivistarsvæði, talsvert skógi vaxið. Vor, haust og vetur er
einnig von til þess að sjá hinn fagra Kermóafoss, en á sumrin er hann vatnslaus að mestu. Þama eru lautir
og skvompur inn á milli trjánna, fallegir skógarlundir, en talsverð brögð hafa þó verið að því að illa hafi
verið gengið um, tré skemmd o.s.frv. Göngubrýr em út í hólmann frá báðum hliðum
Laugardalsgarðurinn
Laugardalsgarðurinn er stærsti almenningsgarður Reykjavíkur og er orðinn til utan um gróðrastöð Eiríks Hjartarsonar rafvirkjameistara sem hann stofnaði
áámnum eftir 1930. Upp úr 1960 keypti Reykjavíkurborggarðinn ogbreytti honum í þá almenningsvin sem hann nú er. Þama er fádæmagróskumikill skógur
og hæstu trén em í hópi þeirra hæstu í Reykjavík allri. Grasagarðurinn gerirþetta útivistarsvæði sérstaklega forvitnilegt, en þargetur að líta sýnishom áf
hundmðum jurta- og grasategunda sem bæði em íslensk og erlend.
Laugardalsgarðurinn, eða grasagarðurinn í Laugardal, eins og hann er oftlega kallaður, liggur milli Laugaráshverfis, Álfheima, Engjavegar og íþróttamann-
virkjanna í Laugardal.