Morgunblaðið - 17.08.1986, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.08.1986, Blaðsíða 32
32 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986 „Pá tapaði Jóhannes á Borg konungsglímunni" - Rabbað við Guðgeir Jónsson um lífið í Reykjavík á öndverðri öldinni ispr Guðgeir Jónsson og stoppuðu þá allir umsvifalaust. Síðan varð sá, sem boltanum átti að ná, að hitta einhvem þeirra sem frá höfðu hlaupið. Sá sem varð fyrir boltanum átti næst að reyna að grípa hann úr veggnum og þannig gekk þetta koll af kolli. Ef boltinn geigaði þá varð sá sami að reyna aftur. Feluleik stunduðu líka bæði stelpur og strákar. „Einn byrgði sig og hinir dreifðu sér milli húsa og síðan var vandinn sá að koma auga á þá sem í felum lágu svo þeir kæmust ekki óséðir í borg. Ef einhverjir komust þangað þá voru þeir öruggir með að mega fela sig aftur í næsta leik. En svo kyndugt sem það nú er þá minnir mig að sá sem síðast fyndist ætti að vera hann næst.“ Jóhannes minni maður Vorið 1907 byrjaði Guðgeir í byggingarvinnu. Stjúpi hans var ökumaður og sá um aðdrætti að nýbyggingum. Hjá honum fékk Guðgeir þann starfa að aka á hestvagni byggingarefni, möl, sandi, steinum og timbri, þangað sem verið var að byggja. „Þetta sama sumar kom Friðrik VIII. og þá var ég við að bera sand ofan í göturnar, jafna þær fyrir komu konungsins. Jú ég sá hann og komst meira að segja austur á Þingvöll og sá Jóhannes á Borg tapa konungs- glímunni. Hann hafði verið með einhveijar heitstrenginar upp á gamla vísu fyrir glímuna, þóttist ætla að vinna hana eða heita minni maður eftir. Síðan var hann í kerskni kallaður Jóhannes minni maður.“ „Þessi glímukeppni varð mér miklu minnisstæðari en sjálfur konungurinn en honum var ekið til Þingvalla í fjórhjóluðum lystivágni. Þingmennirnir íslensku og annað fyrirfólk kom á staðinn í einhestiskerrum. Fram í þeim sat kúskurinn en það var pláss fyrir tvo aftur í.“ Frá konungskomunni 1907. Að baki Hefðarf ólkinu og f orvitnum áhorf end- um er Dómkirkjan, lengst til vinstri. Konungurinn og f ylgdarlið hans er í þann veginn að leggja út á Skólabrúna en hún var byggð yf ir lækinn, gegnt Menntaskólanum í Reykjavík, á seinni hluta 19. aldar. Myndina tók Magnús Ólafsson, en eins og sjá má er hún svolítið skemmd. Guðgeir Jónsson er fæddur í apríl árið 1893 að Digranesi í Seltjarnarneshreppi, sem nú er í Kópa- vogi. Arið 1902 fluttist Guðgeir í nágrenni Reykja- víkur og settist að með afa sínum og ömmu í Eskihlið, rétt þar hjá sem nú er Miklatorg. Þar bjuggu þau með kýr og kindur. Tveir hestar voru á bænum, annar til reiðar en hinn var vagnhestur. „Ég sótti nú ekki ýkja mikið til Reykjavíkur en svona 11 - 12 ára byijaði ég að fara með mjólkina þangað. Ég gekk þá í hús og seldi þeim mjólk sem pantað höfðu, þá kostaði potturinn 18 aura. Mjólkina hafði ég í stórum brúsa á hjólatík, en það var lágur vagn á fjórum hjólum, sem ég dró á eftir mér. Þá lá vegurinn niður í bæinn um Skólavörðuna sálugu en lengst fór ég niður í Aðalstræti 6, þar sem Morgun- blaðshúsið stendur núna. Þeir sem bjuggu vestar í bænum fengu sína mjólk frá bændum á Seltjamamesinu, ef þeir ekki áttu sínar eigin kýr.“ Þá var leikið á götunum Vorið 1908 flutti Guðgeir úr Eskihlíð í Skólavörðustíg 42. „Ég var nú ekki kominn djúpt í bæinn þá því við settumst að í efsta húsinu þeim megin við veginn. En viðvorum komin niður fyrir Skólavörðuna í fyrsta sinnið." í Skólavörðustígnum var dálítið af strákum „og þá vom nú ekki bílamir". Um götumar fóru aðallega hest- vagnar og handvagnar sem fólkið dró á eftir sér. Það var því hægara um vik þá en nú að leika sér á götunum enda voru þær vinsæll leikvöllur. En hveijir skyldu hafa verið helstu leikir krakka á þessum árum? Guðgeir svar- ar því. Slábolti var til dæmis vinsæll. Þá var kosið í tvö lið og búin til svokölluð inni- og útimörk. Það lið sem byij- aði að slá boltann tók sér stöðu í innimarkinu og úr því var boltinn sleginn „auðvitað sem allra lengst". A meðan annar hópurinn kepptist við að ná boltanum átti sá sem sló að hlaupa í útimarkið. Kæmist hann þangað, án þess að fá í sig boltann, átti hann möguleika á því að komast til baka í innimarkið og slá aftur. Auðvitað mátti hlaupa rakleiðis fram og til baka ef þess var nokkur kostur og oft. vom fleiri en einn í fömm hveiju sinni milli marka Þannig hélt leikurinn áfram þangað til annaðhvort ein- hver í útiliðinu greip boltann eða þeim tókst að hitta einhvem á hlaupum milli marka. Þá skiptu liðin um stöðu og leikurinn hélt áfram. „Þeir sem vom úti lögðu innilið- inu til mann að gefa upp boltann." Annar leikur sem var sérstaklega vinsæll meðal stráka hét „klink". Byija varð á því að fara með fímmeyring í smiðju til að fá slegið í hann miðjan svo hann yrði kúpt- ur. Velja varð heppilegan leikstað, tölur vom lagðar undir og þeim öllum komið fyrir á einum stað. Síðan var galdur- inn í því fólginn að henda fimmeyringnum í vegg þannig að hann skoppaði til baka og lenti sem allra næst tölun- um. Sá hirti tölumar sem gat spannað frá fímmeyringnum sínum yfir í tölumar. „Yfirleitt stóðu nú handstórir piltar- betur að vígi í þessum leik en hinir sem vom fíngerðir og með smáar hendur." „Strik og sto“ var stundaður af bæði piltum og stúlk- um. Þá var bolta kastað upp á húsþak eða í vegg og átti einn, sem til þess var valinn fyrirfram, að ná boltan- um, „helst auðvitað að grípa hann“, en aðrir hlupu frá. Þegar viðkomandi hafði náð boltanum kalláði hann sto
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.