Morgunblaðið - 17.08.1986, Page 37

Morgunblaðið - 17.08.1986, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. AGUST 1986 rrB »87 Morgunblaðið/FP Þórir Kjartansson Þórir Kjartansson, Vík í Mýrdal: Reykvíkingar rosalega stress- aðir undirstýri „ÉG ER ekki mikið gefinn fyrir að fara í bæinn, fer þangað aldrei að gamni mínu. Mér fínnst þó ánægju- legt að eiga svo fallega og hreina höfuðborg og þá miða ég við höfuð- borgir í þeim löndum sem ég hef ferðast til. Ég held að Reykavíking- ar séu ósköp svipaðir okkur lands- byggðarbúum. Það er helst munur á okkur, þegar þeir eru sestir undir stýri. Þá verða þeir rosalega stress- aðir," sagði Þórir Kjartansson framkvæmdastjóri Víkurpijón í Vík í Mýrdal, þegar hann var sóttur heim til þess að forvitnast um skoð- anir hans á höfuðborginni. Þórir sagði, að ekki væri hægt að horfa fram hjá því, að sækja þyrfti velflest til Reykjavíkur varð- andi þjónustu og stjómkerfið. Hann sagði síðan: „Ég tel, að það sé eng- in lausn að færa stofnanir út á landið. Það yrði ekkert betra fyrir okkur að fara norður, vestur eða austur eftir þessari þjónustu. Ég held að lausnin sé einvörðHngu fólg- in í því að leggja niður ýmsa miðstýringu. Hvað á það til dæmis að þýða, að ekki megi reisa hinn minnsta kindakofa úti á landi, án þess að það þurfi samþykki Skipu- lags ríkisins og Náttúruvemdar- ráðs? Þetta geta menn séð um heima í hémðum að mínu mati. Þá er ljóst að allir peningamir em á Suðvesturhominu. Þegar ég hef farið í bæinn til að sækja pen- ingafyrirgreiðslu, þá bregst það yfirleitt ekki, að peningamir em komnir til Reykjavíkur strax daginn eftir að ég kem með þá heim. Ég skal ekki segja, hvort nokkurt ráð er til við þessu. Þetta horfír kannski líka öðm vísi við hér hjá okkur en á útgerðarstöðum, er kannski enn leiðinlegra fyrir okkur.“ Þórir tók fram, vegna yfirlýsing- ar hans um stressaða ökumenn í Reykjavík, að hann hefði haft at- vinnu af keyrslu í bænum um tíma og því talaði hann sem vanur bílstjóri og að fenginni reynslu. Hann var spurður í lokin, hvort hann ætti afmælisósk til handa Reykjavíkurborg á tveggja alda af- mælinu. Hann svaraði: „Helst þá, að Davíð Oddsson verði borgar- stjóri sem lengst - það yrði borginni til góðs. Það er verið að finna að því að hann sé einráður, að hann sé sem einræðisherra. Stjómmála- menn eins og Davíð hafa verið farsælastir, því vona ég, borgarinn- ar vegna, að hann verði sem lengst við stjórn.“ Morgunblaðið/Cuðl.Sig. Ásta Traustadóttir Ásta Traustadóttir, Vestmannaeyjum: Reykjavík alveg æðisleg „MÉR fínnst Reykjavík alveg æöis- leg, það er alltaf jafn gaman að koma þangað," sagði Ásta Trausta- dóttir, húsmóðir í Vestmannaeyjum sem starfar á skrifstofu Frystihúss FIVE. í Reykjavík er skemmtilegt mannlíf fyrir minn smekk, höfuð- borgin hefur upp á svo margt að bjóða fyrir okkur landsbyggðarfólk- ið. Ég á marga ættingja í Reykjavík og því verða heimsóknimar þangað ánægjulegri. Satt að segja gæti ég hugsað mér að búa í Reykjavík og ég neita því ekki að það hefur kom- ið upp í hugann að flytja þangað. Reykvíkingar hafa vissulega sér- stöðu umfram fólkið úti á landi, þeir hafa greiðari aðgang að ýmissi nauðsynlegri þjónustu og afþrey- ingu. Það er ekki margt sem ég hefi út á höfuðborgina að setja, helst er það hi'aðinn og þetta óskap- lega stress í umferðinni sem fer í taugamar á mér.“ — hkj. Morgunblaðið/Jóhanna Pétur Olgeirsson Pétur Olgeirsson, ' Vopnafirði: Reykjavík býð- ur upp á minni vinnuíyrir meiri laun „Mér finnst Reykjavík falleg borg og hún sómir sér vel sem höfuðborg okkar og alltaf er gott að koma þangað,“ sagði Pétur Olgeirsson, framkvæmdastjóri Tanga hf. á Vopnafirði. „Hinsvegar er borgin allt of dýr í rekstri fyrir svona fámenna þjóð eins og okkar. Það er allt of mikill stórborgarbragur á Reykjavík, bruðl og óráðsía. Bæði þarf að færa til fjármagn og opinberar stofnanir frá borginni og út á landsbyggðina enda ofur eðilegt að þeir sem afla gjaldeyrisins fái að njóta hans í meira mæli en raunin er. Þá em launin orðin miklu hærri í Reykjavík en gengur og gerist í dreifbýlinu sem þýðir einfaldlega að farið er að borga hærri laun í þjónustu- greinunum en í hefðbundnum atvinnugreinum okkar, t.d. sjávar- útvegi. Unga fólkið er í stómm stíl farið að flýja þessa smástaði úti á landi fyrir borgarlífíð enda ekki undarlegt að það vilji komast í minni vinnu fyrir meiri laun,“ sagði Pétur. Morgunblaðið/FP Elín Anna Valdimarsdótt- ElínAnna Valdimars- dóttir, Kirkjubæjar- klaustri: Ekkert betra að sækja þjón- ustuna til Selfoss „MÉR finnst gaman að koma til Reykjavíkur, en mig myndi ekki langa til að búa þar, er meira fyrir fámennið," sagði Elín Anna Vald- imardóttir póst- og símstöðvarstjóri á Kirkjubæjarklaustri, en Elín hefur búið á Klaustri allt frá fæðingu. Elín kvaðst helst sækjast eftir leikhús- og kvikmyndahúsaferðum í höfuðborginni, ennfremur ýmis konar skemmtunum og einfaldlega því að sjá annað fólk. „Það er gam- an að fara til Reykjavíkur og sjá ýmislegt sem við höfum ekki, en ég er alltaf fegin að koma heim aftur, þegar ég hef verið þar,“ sagði hún. Varðandi það að Reykjavíkur- borg sogi allt til sín, þjónustu, atvinnu og fleira sagði Elín: „Það er áreiðanlega erfitt að koma því öðru vísi fyrir. Það yrði til dæmis erfitt vegna fámennis að hafa ýmis- legt hér, sem nú er fyrir sunnan. Ég er ekkert óánægð með þetta eins og það er. Va'rðandi stjómsýsl- una er það rétt að velflest verður að sækja til Reykjavíkur, en ég skil ekki í að það væri neitt betra að sækja það til dæmis til Selfoss. Aðalgallinn við þetta fyrirkomu- lag fyrir okkur eru vegimir. Það mætti vel leggja meira af þjóðar- tekjunum til vegamála. Það myndi jafna aðstöðu okkar á landsbyggð- inni til muna.“ Elín var í lokin spurð, hvort hún ætti afmælisósk til handa Reykjavík. Hún svaraði: „Ég vona bara að fólki líði vel, að það hafí næga atvinnu og njóti góðs um- hverfís.*' Margrét Isleifsdóttir, Kirkjubæjarklaustri: Er og hlýtur að verða borgin okkar allra „MÉR er hlýtt til Reykjavíkur- borgar, þangað er gott að koma. Sem höfuðborg hlýtur Reykjavík einnig að hafa upp á margt að bjóða sem landsbyggðin hefur ekki, svo sem menntun ýmiss konar, góð veitingahús og fleira," sagði Mar- grét ísleifsdóttir hótelstjóri á Kirkjubæjarklaustri. Margrét sagðist fara til Rcykjavíkur þegar tækifæri gæfist. Aðspurð um hvort hún gæti hugsað sér að búa þar sagði hún: „Já, það gæti ég alveg.“ Varðandi höfuðborgarhlutverk Reykjavíkur sagði hún: „Ég lít á Reykjavík sem mína borg, sem höf- uðborg okkar allra. Þar af leiðir að hún hlýtur að vera miðstöð allra hluta. Það er mikið rætt um að dreifa eigi meira þjónustu þeirri sem veitt er í Reykjavík. Ég held að það sé mikil spurning hvort og þá hvern- ig eigi að breyta því. Fyrir okkur hér væri til dæmis mun óþægilegra að þurfa að fara til Akureyrar eftir ýmsu því sem við sækjum til Reykjavíkur, að ég tali ekki- um að þurfa að fara á marga staði.“ Margrét ísleifsdóttir sagði að lokum: „Reykjavík er falleg borg og mér fínnst þar allt horfa í fram- faraátt í sambandi við umhverfis- mál. Reykjavík er og hlýtur að verða borgin okkar allra þar sem hún þjónar öllum landsmönnum." Morgunblaðið/FP Margrét ísleifsdóttir jánsson störfum bæjarfó- geta; og fylgdi hann því yfírleitt, meðan hann var settur bæjarfógeti. Stefán Gunnlaugsson fór 1845 að mestu leyti að færa fundar- gerðir á íslenzku. Fundargerðir borgara- funda voru yfirleitt á dönsku á þessu tímabili. Púðrið í líkhúsinu Á fundi 1855 kom fram, að kaupmönnum og öðrum, sem höfðu undir höndum púður að andvirði 10 ríkis- dalir eða meira var skylt að geyma púðrið á líkhúsloftinu. Mun þá vera átt við iíkhúsið í kirkjugarðinum við Suður- götu. Nú hefur komið á daginn, að púðurbirgðimar hafa ver- ið farnar að ofbjóða burðar- þoli loftsins. Samþykkti því bæjarstjórnin á fundi sínum 7. apríl 1855 að láta leggja borð nokkur ofan á bitana í nefndu húsi, þar sem loftið væri of veikt. Skyldu þessi borð greidd úr bæjarsjóði. Drungi og deyfð Fundargerðir bæjarstjórn- ar á þessu tímabili bera því glöggt vitni, að drungi og deyfð hefur hvílt yfir bæj- arlífinu . . . Taka menn helzt eftir ályktunum um lagningu eða viðhald á vegarspotta hér og þar; minnzt er á vatnsból, og er það sérstaklega í sam- bandi við ráðstafanir til að sjá herskipunum fyrir vatni Bæjarstjómin tekur ákvörðun um leigu og leigu- kjör á túnum; rætt er um mótekju, ráðningu manns til að annast gæzlu á hrossum og eftirlit með skýlinu við Þvottalaugarnar ... Nýr kattúnsfrakki á næturvörðinn Um klæðnað næturvarð- arins er ekki bókað annað á þessu tímabili en það, að honum er ætluð yfirhöfn ár- lega samkvæmt fjárhags- áætlun. Árið 1857 var samþykkt að kaupa nýjan kattúnsfrakka (kattún: baðmullarefni með áþrykktu mynstri) á næturvörðinn, en þar sem verðið fór yfir áætl- aða fjárveitingu ársins varð að færa það, sem umfram var á óviss útgjöld og greiða af fjárveitingu næsta árs. (Páll Líndal.) Eldsvoðastillir ráð- inn Árið 1872 var stofnaður Sparisjóður Reykjavíkur, sá er síðar rann inn í Lands- bankann, og 14. desember það ár kaus bæjarstjórn end- urskoðanda sjóðsins. Ekki voru margir starfs- menn í þjónustu bæjarins. Bæjarstjórnin réð næturvörð og aðstoðamæturvörð eftir að það starf kom til. Hún réð mann í fast starf við að hreinsa skorsteina og þá var sérstakur umsjónarmaður brunavama ráðinn; hann var nefndur eldsvoðastillir. íslenzkan vinnur á íslenzkan var mjög að vinna á, þegar hér var komið sögu. Stefán Gunnlaugsson bæj- arfógeti hafði beitt sér með eftirminnilegum hætti fyrir því í febrúar 1848, að menn sýndu íslenzkunni meiri sóma en þá tíðkaðist. Ekki vildu allir sætta sig við, hvernig að því væri staðið Nokkrum dögum eftir að- gerðir bæjarfógeta kom til ágreinings á fundi bygging- arnefndar. Fulltrúi bæjar- fógeta ætlaði að bóka á íslenzku, en danskur kaup- maður, sem sat í nefndinni, mótmælti því. Hann naut stuðnings tveggja nefndar- manna íslenzkra og því var bókað á dönsku. Ekki var bæjarstjórnin al- veg syndlaus, því að fundar- gerð UO. maí 1854 er á dönsku, þótt íslendingar ein- ir hafi verið viðstaddir ... Á fundi bæjarfulltrúanna 15. marz 1856 var rætt um fyrirhugaðan barnaskóla. ; Jón Þórðarson í Hákoti, full- trúi tómthúsmanna, lagði fram bréf, þar sem hann „kvaðst eigi geta tekið neinn þátt í þessu máli, þar sem öll bréfín séu á dönsku". Bæjarfulltrúamir bmgðust svo við, að samþykkt var að biðja bæjarfógeta að sjá til þess, að sem flest bréf til bæjarfulltrúanna væm á íslenzku. Það hefur vafalaust haft töluverð áhrif, að eitt fyrsta verk J.D. Trampes greifa, eftir að hann tók við stift- amtmannsembætti (1850), var að láta rita embættisbréf til embættismanna og ann- arra manna hérlendis á íslenzku. (Rit Páls Líndals.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.