Morgunblaðið - 17.08.1986, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986
B 43
„Svolítið hrædd
við borgina"
Þær frænkur Björk Jónasdóttir
og Jóhanna María Jónasdóttir voru
á leiðinni niður að Tjörn þegar
blaðamaður rakst á þær. í för með
þeim voru Erla Jónasdóttir, systir
Jóhönnu, og Þórarinn Ingi Jónsson.
Þær systur, Jóhanna María og
Erla, eru nýfluttar í borgina. Jó-
hanna sagðist kannski vera svolítið
hrædd við borgina innst inni en það
myndi ábyggilega ekki vera lengi
„því það er svo gaman hér“.
Frænka systranna, hún Björk,
er hins vegar fædd og uppalinn í
Reykjavík. Hún sagðist hafa verið
af og til í sveit á sumrin en það
væri þó alltaf best að vera í
Reykjavík. „Stundum finnst mér
borgin þó svolítið óþrifaleg." Það
er einkum hirðuleysi fólks með gler
sem Björk setur fyrir sig en hún
segist alltof oft rekast á glerbrot á
götum Reykjavíkurborgar.
Á meðan á þessum samræðum
stendur grípur Þórarinn Ingi tæki-
færið og dottar, hann ætlar greini-
lega ekki að gefa blaðamanni neitt
tækifæri til að spyija sig spjörunum
úr. En Erla er glaðvakandi, hún
heldur fast um brauðpokann og er
svolítið feimin, enda bara tveggja
ára.
„Eg ætla að gefa öndunum
brauðið," segir hún, „og ég hlakka
mikið til að eiga heima í Reykjavík.“
Morgunblaðið/Þorkell
Morgunblaðið/Þorkell
„Ég hef áhuga
á tölvum"
Hann var að raka saman sorpi í Öskjuhlíð-
inni, sagðist vera á sextánda ári og heita Bjöm
G.S. Bjömsson. „Ég bý rétt við Austurbæjar-
bíó en ég fer nú ekki mikið í bíó. En þetta er
góður staður, miðsvæðis, og stutt að fara í flest-
ar þjónustumiðstöðvar. Mér líkar vel við
Reykjavík."
Björn sagðist hafa mikinn áhuga á tölvum
og leik sem hann kallaði „fantasy-leikinn", en
kannski mætti útleggja það heiti á íslensku sem
hugdettuleikurinn. Blaðamaður hafði aldrei
heyrt þessa leiks getið svo nú hófust langar
útlistingar.
Það var greinilegt á öllu að þetta er enginn
venjulegur leikur, hann gengur út á það að
menn stjórna persónum, sem þeir hafa sjálfir
búið til, í gegnum ævintýri sem þeir semja sjálf-
ir að hluta. „Þessum leik fylgja miklar reglur
og mikið pappírsmagn," sagði Björn, „allt er
það á ensku og raunar er ekki hægt að fá
þetta keypt nema erlendis."
Morgunblaðið/Einar Falur
„Æðislegt
að eiga
heima í
Reykjavik"-
Þær vinna í skrúðgarðinum í
Laugardal þessar lífsglöðu stúlkur.
Lengst til vinstri veifar Karen Elías-
dóttir okkur. Fyrir ofan hana gutlar
Unnur Sandhoít í tjörninni en gegnt
henni, með sólbirtugleraugu hang-
andi í bandi um hálsinn, situr
Margrét Jóhannesdóttir. Sigríður
Guðmundsdóttir horfir með stóískri
ró á einn umsjónarmann garðsins,
sem því miður sést ekki á myndinni.
Þegar blaðamaður og ljósmynd-
ari renndu í hlað voru stúíkumar
önnum kafnar við vinnu sína en þær
létu tilleiðast, eftir svolítið þóf, að
ganga yfír í grasagarðinn þar sem
myndin vartekin.
Og þær stöllur voru ekkert að
skafa utan af hlutunum. „Okkur
líkar æðislega vel að eiga heima í
Reykjavík. Bæjarlífið er skemmti-
legt og bíó og skemmtistaðir eru á
hverju strái.“ „ „