Morgunblaðið - 17.08.1986, Page 45

Morgunblaðið - 17.08.1986, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986 B 45 Páll Líndal á skrif stofu siiini heima hjá sér. Saga borgarst jórnar Reyk javíkur rituð af Páli kemur út nú í tengslum við af mæli Reykjavíkurborgar, en borg- arst jórnin verður 150 ára síðar á árinu. Morgunblaðið/Einar Falur Rammger peningakistill um litla fjármuni Af fundargcrðum frá fyrstu tíð má sjá að efnahagur hefur verið ákaflega bágborinn. Fátækramálin taka dijúg- an tíma. í gerðarbók árið 1884 kemur fram ályktun um það, að leiksýningar skuli ekki leyfðar nema aðgangur sé ókeypis. Lítið sem ekkert er í sjóðum bæjarins, en þrátt fyrir það er peningakistill borgarsjóðs rammger. Samkvæmt reglugerð frá 1846 skyldu á honum vera þrjár skrár, hver með sínum lykli. Einn lykilinn hafði bæjarfógeti, annan bæjargjaldkeri og þann þriðja einn bæjarfulltrúa. Um fundarstaði er helst ætlað að fundað hafi verið á skrifstofu bæjai-fógetanna eða í Yfirréttarstofu í Austur- stræti 22 til og með 1872. Árið 1873 var flutt í hegning- arhúsið við Skólavörðustíg. Þá var flutt í tíuttó og fundað þar allt fram til 9. nóvember 1932, þegar Gúttóslagurinn varð, en síðan á efstu hæð í Eimskipafélagshúsinu. Hvort . tveggja var, 'að allt var brotið og bramlað í Gúttó en auk þess hafa menn talið þörf á öruggari stað. Arið 1958 var flutt í Skúlatúnið þar sem fundir eru haldnir enn þann dag í dag.“ Stysti fundurinn í sögu borgarstjórnar stóð í eina mínútu árið 1929, sá lengsti í 21 klukkustund 1951 Af einstökum, eftirminnilegum atburðum sagði Páll, að frægar kosningar hefðu verið árið 1908. Þá hefðu 18 listar verið í framboði og þar á meðal Kvennalisti, sem hlaut ijóra fulltrúa af 15 kjörnum. Fyrsta konan sem neytti kosningaréttar var Kristín Bjamadóttir frá Esju- bergi, en það var rétt eftir 1880. Hún var eiginkona Þorláks Ó. Johnson kaupmanns. Stysti bæjarstjómarfund- ur sem um getur stóð í eina mínútu árið 1929, sá lengsti frá kl. 14 til kl. 11 næsta dag en það var árið 1951. Páll sagði ennfremur: „Sitthvað má nefna af skemmti- efni, sem við mundum kalla svo, en um eitthvað slíkt mun verða getið í bókinni. Hér má nefna þetta til dæm- is: Ólafur Friðriksson bæjarfulltrúi mun eitt sitt hafa sótt um einnar krónu styrk til fyrirlestrarhalds, en það var fyrir árið 1930. Samkvæmt lögum mun hafa þurft að greiða skemmtanaskatt af fyrirlestrum sem öðrum „skemmtunum“ þess tíma, nema fyrirlestraitiir væru styrktir af hinu opinbera, þessa vegna mun Ólafur hafa sótt um krónustyrkinn. Umsókn hans var felld.“ Páli sagði aðspurður, að þeir málaflokkar sem hvað hæst bæru í fundargerðum borgarstjórnar frá upphafi væm fjármál, síðan framkvæmdir margvíslegar: vatns- veita, hafnargerð, rafmagnsveita og hitaveita; húsnæðis- mál og nú væru félagsmál oft og mikið á dagskrá. Hann var spurður í lokin, hvort hann teldi að Reykjavíkurborg ætti enn eftir að stækka. Hann kvað það ekkert lögmál að höfuðborgin ætti stöðugt að stækka og kvaðst ímynda sér, að takmarkað landrými til útfærslu byggðar gæti sjálfkrafa komið í veg fyrir mjög mikla útfærslu byggðar Reykjavíkur. Kvaðst hann til dæmis ekki búast við að Mosfellssveit yrði tilbúin til að gefa mikið eftir að sínu landi. „Ég býst einnig við,“ bætti hann við, „að flestir vilji búa miðsvæðis.“ Viðtal: Fríða Proppé. Ljósmyndir: Einar Falur og fleiri. Pantanir óskast staðfestar STRAX (^^naust kf SÍDUMULA 7—9 SÍMI 82722 Höfðar til .fólksíöllum starfsgreinum! Til hamingju ! 1786 REYKJAVÍK 1986 í tilefni af 200 ára afmæli borgarinnar hinn 18. ágúst gefum við starfsfólki okkar frí frá störfum frá kl. 13— til þess að fara í afmælið. ÖRTÖLVUTÆKNI hf. Ármúla 38 108 Reykjavík sími 687 220 P.S. Vid höldum samt uppi vakt í þjónustudeild. Þessi auglýsing var unnin á IBM PC/AT með ritvinnsluforritinu OrðSnilld og prentuð út á HP LaserJet prentara. Tölvunámskeið fullorðna Fjölbreytt, gagnlegt og skemmtilegt byrjendanám- skeið fyrir fólk á öllum aldri. Dagskrá: Þróun tölvutækninnar Grundvallaratriði við notkun tölva Notendahugbúnaður Ritvinnsla með tölvum Töflureiknir Gagnasafnskerfi Tölvur og tölvuval Tími: 25., 27. ágústog 1.og 3. septemberkl. 20.00-23.00. Unglinganámskeið Námskeið fyrir unglinga á aldrinum 13-15 ára. Kennt er forritunarmálið BASIC og hvernig nota má tölvuna í hefðbundnu skólanámi. Dagskrá: ★ .Grundvallaratriði við notkun tölva ★ Forritunarmál ★ Æfingar i BASIC ★ Tölvan notuð til að leysa algeng verkefni í skólanum ★ Notkun töflureikna Timi: 25., 26., 27. og 28. ágúst kl. 17.00-20.00. Innritun i símum 687590 og 686790. TÖLVUFRÆÐSLAN Ármúla36, fíeykjavik. Bgggggg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.