Morgunblaðið - 17.08.1986, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 17.08.1986, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986 B 55 v V W V Karate-strák- urinn I Japan Myndin um karate-strákinn var sú mynd sem kom einna mest á óvart sumarið 1984, en það kom engum á óvart að sama iiðið kæmi aftur saman til að búa til framhald. Fyrri myndin sem Hohn Avildsen gerði með táningum Ralph Macchio og öldungnum Noriyuki Moriata fékk ágæta gagnrýni víðast hvar en enn betri dóm almennings sem flykktist í bíó. Avildsen, sem er frægur fyrir að vilja ekki gera framhaldsmyndir (hann neitaði að gera Rocky II), sló þó til að gera Karate Kid II, „því mér sýndist hún geta orðið jafnvel betri", eins og hann sagði í viðtali. Karate-strákurinn heitir Daníel. Síðast þegar við sáum hann var hann að keppa í karate í Los Angeles, en nýja myndin gerist að mestu leyti hinum megin við hafiö, i heimabæ öldungsins, Okinawa í Japan. Ekki eru margar mínútur liðnar þar til það kemur upp úr dúrnum að gamli maðurinn var ástfanginn á yngri árum, og elskan hans bíður enn. Hún heitir Yukie. En dvöl félaganna í Okinawa er ekki eintóm sæla. Daníel kynnist að vísu ungri svísu japanskri, Kumikó, en innfæddir strákar eru lítt hrifnir af þessum bandaríska strák og reyna að kála honum, og ekki má gleyma að vinur hans, gamli maðurinn, á sér einnig fjandvin. Þeir rifja upp fjörutiu ára gamla óvináttu. Aliir sem unnu að fyrri myndinni taka þátt í gerð þessarar: leik- stjórinn John Avildsen, framleiðandinn Jerry Weintraub (það tók hann reyndar eitt og hálft ár að safna öllum saman), handrits- höfundurinn Robert Mark Kamen (sem er með svarta beltiö í karate), og leikararnir Ralp Macchio og Noriyuki Moriata. í nýju myndinni bætast við að minnsta kosti þrjár mikilvægar persónur: kærasta stráksins, æskuást gamla mannsins og óvinurinn. Hún heitir Tamlyn Tomita, sú sem leikur kærustuna og er að- eins nítján ára. Hún ólst upp í Bandarfkjunum, á japanska móður og bandarískan föður. Tamlyn hefur sigrað í nokkrum fegurðar- keppnum þar vestra og er nýlega sest á háskólabekk. Sýningar á Karate Kid II hefjast í Stjörnubíói næsta fimmtudag. Ralpn Macchlo og Noriyukl Moriata hafa Iftiö breyst fré því viö séum þé síðast. Karate-strékur- inn veröur bél- skotlnn í japönsku stúlk- unnl Kumikó, sem hin nítjén éra A Tamlyn Tomita I lelkur. Stjörnubíó: Mikhail Nozhkin leikur rússn- eskan Rambó. Rússneskur Rambó Rússar reiddust þegar þeir sáu Sylvester Stallone skjóta allt í tætlur í „Rambó", en samt var myndin vinsæl á svarta myndbanda- markaðinum þar eystra. Og nú hafa Rússar fengið sinn Rambó í mynd- inni Einherjinn (Odinochnoye Plavaniye á rússnesku) með ein- hverjum Mikhail Nozkin í aðalhlut- verki. Nozhkin leikur sovéskan her- mann sem kemur í veg fyrir kjarn- orkustríð og berst einn síns liðs gegn svikulum kaupsýslumönnum bandariskum, leyniþjónustumönn- um og vopnuðum hermönnum sem einhverra hluta vegna eru staddir I Rússlandi. Nozhkin kann að hand- leika vopn en hann er öllu róman- tískari en Rambó, honum líður best þegar hann fær frið til að horfa á sólina setjast og þylja upp ástarjátn- ingar til föðurlandsins. Rússneskir leikarar leika bandarísku þrjótana, og eftir myndinni að dæma er orða- forði þeirra takmarkaður. Myndin er geysivinsæl í Rúss- landi þótt rússneskir bíógestir séu ekki vanir að sjá svona mikinn has- ar i bíómynd. Fréttaritari vikuritsins Time sá myndina í Moskvu og seg- ir að myndin sé tæknilega illa gerð og jafn vitlaus og Rambó. En mest kemur þó á óvart að aðalhetjan klár- ar ekki ætlunarverk sitt, er skotin af bandariskum hermönnum. Það ætti þó ekki að koma í veg fyrir að einhvers konar framhald verði gert í náinni framtíð. Vuji Okumofi ætlar ekki aö léta bandarískan stréktakaslg i kennslustund Þorskanet Eigum fyrirliggjandi eftirtaldar gerðir af Japönsk- um Triple Lock Þorskanetum. No. 9. 6“., 40MD. Girni No. 10. 6“., 40MD. Girni No. 12. 6“., 40MD. Girni No. 12. 6“., 44MD. Girni No. 9. 7“., 36MD. Girni No. 10. 7“., 36MD. Girni No. 10. 7“., 32MD. Girni No. 12. 732MD. Kraftav. No. 15. 7'/4\, 32MD. Kraftav. MARCOhf. Sími 687970 & 687971 Langholtsvegi 111 Pósthólf 4330 104 Reykjavík * r Nordisk Ministeriád Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar óskar eftir að ráða ráðunaut á sviði útgáfumála Norræna ráðherranefndin er samvinnustofnun ríkisstjórna Norðurlanda. Samvinnan snertir flest svið samfélagsins. Skrifstofan annast undirbúningsvinnu og sér um framkvæmd þeirra ákvarðana sem teknar eru af ráðherranefndinni og öðrum stofnunum sem henni tengjast. Um áramótin mun starfshópur, sem annast mun útgáfumál, taka til starfa og því er nú auglýst eft- ir starfsmanni til að hafa umsjón með útgáfunni. Hópur þessi mun annast útgáfu bóka og annars prentaðs máls og því er krafist starfsreynslu á sviði útgáfumála. Þekking á grafíkvinnu og hönnun kemur sér einnig vel. Yfirmaður hópsins mun einn- ig hafa fjármálastjórn útgáfunnar með höndum og þarf því að vera vanur að semja við prentsmiðj- ur. Yfirmaður útgáfuhópsins verður ráðinn sem ráðu- nautur við upplýsingadeild skrifstofunnar og mun hann fá tvo ritara sér til aðstoðar. Um áramótin verða starfsmenn upplýsingadeildarinnar verða 11 að tölu. Óskað er eftir að viðkomandi geti tekið til starfa sem fyrst. Vegna útgáfunnar óskum við einnig eftir: tveimur riturum Þeir munu aðstoða yfirmann útgáfumála. Umsækj- endur verða að hafa starfað við ritvinnslu og prófarkalestur og reynsla á sviði bókaútgáfu eða prentunar kemur sér vel. Riturunum verða einnig falin önnur verkefni og munu starfa við upplýsinga- deild skrifstofunnar. Ráðning: 1. desember 1986 eða því sem næst. Um allar stöðurnar gildir að krafist er mjög góðr- ar sænsku-, norsku- eða dönskukunnáttu. Skrifstofan hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um stöður þessar. Samnirigstíminn er fjögur ár og kemur framlenging hans til greina að afloknum þeim tíma. Góð laun og þægileg starfsaðstaða eru í boði og mun skrif- stofan m.a. aðstoða við að útvega húsnæði. Umsóknarfrestur er til 10. september. Nánari upplýsingar veita: Birginna Sandstedt, yfirmaður upplýsingadeildar, eða Staffan Björck og Birgit Laudal ráðunautar. Upplýsingar eru veittar í síma: (Kaupmannahöfn) 01-11 47 11. Skriflegar umsóknir skal senda: Nordisk Ministerrád Generalsekretæren Store Strandstræde 18 DK-1255 Köbenhavn K. J

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.