Morgunblaðið - 24.10.1986, Side 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
241. tbl. 72. árg.
FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
írland:
Vopnahlé
AP/Símamynd
Bandaríkjastjórn hvatti Sovétmenn til vopnahlés
í rimmu stórveldanna um sendifulltrúa og meinta
njósnara. Hefndi stjórnin þar af leiðandi ekki
fyrir brottvikningu 5 bandarískra sendiráðs-
manna í Moskvu í fyrradag. Vandaræðaástand
skapaðist í sendiráði Bandaríkjanna í Moskvu í
gær eftir að Sovétmenn bönnuðu 260 sovézkum
borgurum, sem sinntu m.a. þjónustustörfum, að
starfa þar áfram. Urðu sendifulltrúar því að
ganga í störf þeirr og á myndinni má m.a. sjá
sendiherrafrúna, Donnu Hartman (t.v.), taka til
hendi.
Sjá ennfremur á bls. 20
Sljórnin stóð
af sér vantraust
Dyflínni, AP.
STJÓRN Garrets FitzGeralds, forsætisráðherra, stóð af sér van-
trauststillögu með tveggja atkvæða mun eftir heitar umræður í
þinginu í gær. Þar með var samkomulagi írsku og brezku ríkisstjórn-
anna um Norður-írland forðað frá hnekki.
Það var Fianna Fail, flokkur
Charles Haughey, fyrrum forsætis-
' ráðherra, sem lagði fram van-
trauststillöguna. Hún var felld með
83 atkvæðum gegn 81. Haughey
nýtur 20% meira fylgis en Fitz-
Gerald, samkvæmt skoðanakönnun-
um og er það talið hafa átt þátt í
að flokkur hans lagði vantrauststil-
iöguna fram.
Fianna Fail hafði það að yfirlýstu
markmiðið að reyna að koma sam-
steypustjóm FitzGeralds frá sem
fyrst eftir að þing byrjaði. Talið var
mjög líklegt að vantrauststillaga
yrði samþykkt og úrslitin voru óljós
allt þar til atkvæðagreiðsla fór fram,
en þá ákváðu tveir þingmenn, sem
fara sínar eigin leiðir og hótað höfðu
að styðja tillöguna, að greiða at-
kvæði gegn henni. Björguðu þeir lífi
stjómarinnar a.m.k. fram í janúar,
en þá verður hún að leggja fram
nýtt Qárlagafrumvarp. Búist er við
miklum sviptingum þá þvf stjóm
FitzGeralds hefur þótt standa sig
illa í endurreisn efnahags- og at-
vinnulífs. Hefur hún reynt að halda
verðbólgu niðri m.a. með háum
sköttum og miklu atvinnuieysi, sem
orðið er 18,3%. Útlendar skuldir
hafa hins vegar aukist og á stjómin
því ekki annarra kosta völ en gripa
til frekari niðurskurðar á ýmsum
sviðum, sem mun auk enn á óvin-
sældir stjómarinnar. Þingkosningar
eiga að fara fram í nóvember að
ári, en sérfræðingar spá því að
stjórnin lifi tæpast út janúar nk.
Launadeila sænskra ríkisstarfsmanna að leysast?:
Sænska stjómin vill
hækka launatilboð
Sá Messner
snjómann?
Katmandu, Nepal, AP.
REINHOLD Messner, ítalski
fjallagarpurinn, sem á dögunum
varð fyrstur til að klífa öll fjöll,
sem eru yfir 8.000 metra há, seg-
ist hafa séð snjómanninn ógur-
lega.
Messner hélt blaðamannafund í
gær nýkomin úr Himalajafjöllum,
þar sem hann kleif tvö 8.000 metra
fjöll á þremur vikum. Þar hélt hann
því fram að hann hefði séð Yeti,
eins og heimamenn kalla snjómann-
inn ógurlega. Snjómaðurinn er
stórvaxin, loðin vera, í líkingu við
apa eða' mann, sem talin er hafa
sést í háQöllum Himalaja.
„Ég lagði aidrei trúnað á sögur
af snjómanninum ógurlega, en ég
sá þessa veru. Þetta var eiginlega
bæði skepna og maður, einhvers
Stokkhólmi, AP.
SÆNSKA stjórnin tilkynnti í gær
að hún væri hlynnt hækkun laun-
atilboðs til opinberra starfs-
manna og hefur það vakið vonir
um að launadeila þeirra verði
senn til lykta leidd.
vinnubann. Launþegafélögin höfðu
jafnframt boðað fjölgun verkfalls-
manna um 8.000 nk. mánudag og
hefðu þá lestir og önnur samgöngu-
tæki stöðvast.
Samninganefnd ríkisfyrirtækj-
anna sagðist ekki mundu setjast
aftur að samningaborði fyrr en
verkföllum yrði hætt en talsmenn
launþega sögðust ekki myndu fall-
ast á það skilyrði.
Ákvörðun stjómar Jafnaðar-
mannaflokksins þykir benda til að
hún sé tilbúin að gefa eftir svo leysa
megi deilu, sem valdið hefur efna-
hagstjóni og svert ímynd flokksins,
sem viljað hefur láta telja sig laun-
þegaflokk.
konar sambland af manni og
skepnu. Ég ætla að rannsaka þetta
fyrirbæri frekar í framtíðinni en
held samt að ég búi yfir lausn ráð-
gátunnar um Yeti,“ sagði Messner.
Hann varðist annars nánari spum-
I inga um vemna dularfullu.
Bengt K.A. Johansson, kjara-
málaráðherra, sagði stjórnina
hlynnta því að launatitboð ríkis-
fyrirtækjanna yrði hækkað um 0,2
prósentustig, þ. e. úr 8,5% í 8,7%.
Samstök starfsmanna krefjast 9,0%
hækkunar fyrir samning til tveggja
ára.
Launþegasamtökin sögðu af-
stöðu stjómarinnar geta orðið til
að hleypa lífi í samningaviðræður
en nýja tilboðið myndi tæplega duga
til að leysa deiluna samstundis.
Samningamenn ríkisfyrirtækjanna
voru hins vegar bjartsýnir á að
þessi afstöðubreyting dygði til að
samningar tækjust.
Árangurslausar samningavið-
ræður hafa staðið yfir í 10 mánuði
og hófust skæruverkföll til að knýja
á um samninga fyrir þremur vikum.
Hlé var gert á þeim í nokkra daga
en þau hófust aftur sl. þriðjudag
þegar nýjar samningaumleitanir
fóru út um þúfur. Þá lögðu 30.000
starfsmenn, m.a. hjúkrunarkonur
og fóstmr niður vinnu og 200.000
opinberir starfsmenn fóm í yfir-
Goldfarb í viðtali við Morgnnblaðið:
Reykjavíkurfund-
urinn hafði áhrif
„Ég álít, að leiðtogafundurinn í Reykjavík hafi óbeint átt sinn þátt
í þvf, að faðir minn, David Goldfarb, fékk að fara frá Sovétríkjun-
um. Það tókst vissulega að vekja mikla athygli á málstað föður mfns
í Reykjavfk og það hlýtur að hafa haft sfn áhrif.“
Þetta kom m. a. fram hjá Alex-
ander Goldfarb í simaviðtali við
Morgunblaðið í gær. Hann dvaldist
hér á meðan leiðtogafundurinn stóð
yfir til þess að fylgja eftir máli
föður síns, sem um margra ára
skeið var einn virkasti þátttakand-
inn í svonefndum Helsinki-hópi, er
barizt hefur fyrir auknum mann-
réttindum í Sovétríkjunum.
„Faðir minn er enn á sjúkrahúsi
og verður þar næstu tvær vikur,
en honum heilsast nú mun betur
en áður,“ sagði Goldfarb ennfrem-
ur. „Hann hefur hins vegar miklar
áhyggjur af systur minni og fjöl-
skyldu hennar, sem eru að reyna
að fá leyfí til þess að fara frá Sov-
étríkjunum. Hvort það tekst, mun
koma í ljós á næstu vikum.“
Alexander Goldfarb kvaðst vilja
taka það fram, að íslendingar
hefðu reynzt sér einstaklega vel,
er hann kom til þess að vekja at-
hygli á málstað föður síns í tilefni
leiðtogafundarins. „Þeir höfðu
mikla samúð með okkur og voru
afar hjálpsamir. Ég og margir aðr-
ir stöndum í mikilli þakkarskuld
fyrir þessa hjálpsemi."
David Goldfarb tekur í hönd Armands Hammers. Aðrir á mynd-
inni eru (f.v.) Nina Shurkovich, systir Goldfarbs, Alexander
Goldfarb, þá Cecilia, eiginkona Goldfarbs, og Nicholas Daniloff.