Morgunblaðið - 24.10.1986, Síða 7

Morgunblaðið - 24.10.1986, Síða 7
H ýwiítlýiv'i & Ljóð Hannesar Péturssonar í sænskri þýðingu NÝLEGA er komin út í Svíþjóð bókin „Hemvist vid havet“, ljóð eftir Hannes Pétursson í þýðingu Inge Knutssons. Útgefandi er Rabén & Sjögren í Stokkhólmi. Bókin er gefin út i kunnum bóka- flokki sem nefnist „Dikt i Norden“, en ritstjóri hans er Christer Eriksson. í „Hemvist vid havet" eru birtar í heild tvær síðustu ljóðabækur Hannesar Péturssonar: „Heimkynni við sjó“ (1980) og „36 ljóð“ (1983). í inngangi eftir þýðandann er fjall- að um skáldskap Hannesar Péturs- sonar og þess getið að skáldið hafi fremur kosið að láta birta fyrr- nefndar bækur í heild heldur en úrval úr verkum sínum. í ljóðaflokknum „Dikt i Norden" hafa verið gefnar út bækur eftir 21 norrænt samtímaskáld. íslensk skáld, önnur en Hannes Pétursson, sem eiga bækur í „Dikt i Norden" eru Jóhann Hjálmarsson, Jóhannes Morgunbladið/Jón Sig. Bjarnveig Jóhannesdóttir Bjarnveig Jóhannes- dóttir 100 ára Austur-Húnvetn- ingar verða manna elstir Blönduósi. BJARNVEIG Jóhannesdóttir frá Brattahlíð i Svartárdal í A-Húnavatnssýslu er 100 ára i dag, 24. október. Bjamveig er fædd í Torfgarði Seyluhrepp árið 1886, en fluttist ársgömul að Elivogum í Sæ- mundarhlíð. Bjamveig hefur lengst af átt heima í Brattahlíð eða frá árinu 1934. Árið 1978 fór Bjamveig á hérðashæli Austur-Húnvetninga á Blöndu- ósi og hefur dvalist þar síðan. Mann sinn Guðmund Jakobsson missti Bjamveig árið 1959, en þau hjónin áttu einn son, Valtý, sem nú býr fram í Svartárdal. Fréttaritari Morgunblaðsins hitti Bjamveigu á dögunum og lét hún sér fátt um finnast um þá athygli sem þessi tímamót vöktu, en tók því ljúfmannlega að myndir væm af henni tekn- ar. Bjamveig er sæmilega hress, en þó er elli kerling farin að setja mark sitt á hana. Bjam- veig heyrir orðið illa, en sjónin er sæmileg og getur hún flett blöðum og fylgst nokkuð með. Það er athyglisvert þegar ald- ur íslendinga er kannaður þá kemur það í ljós að Austur- Húnvetningar verða manna elstir og er skemmst að minnast Halldóru Bjamadóttur, sem náði 107 ára aldri og nýlega varð Guðmundur Ámason 103 ára, en hann er ættaður frá Hóla- nesi á Skagaströnd. Athuganir Bjama Guðleifssonar á aldri Norðlendinga, sem birst hafa í ársriti Ræktunarfélags Norður- lands, renna ennfremur stoðum undir þessa fullyrðingu. Jón Sig. Prestastefnan sett á sunnudag PRESTASTEFNAN verður sett í Hallgrímskirkju í Reylgavík sunnudaginn 26. október ld. 16.00, á vígsludegi kirkjunnar. Gert er ráð fyrir að flestir prestar landsins verði við vígsluathöfnina fyrr um morguninn. Hannes Pétursson. úr Kötlum, Matthías Johannessen og Snorri Hjartarson. Aðalefni stefnunnar í ár er „Boðun kirkjunnar í lok 20. ald- ar“ og em framsögumenn fjórir, sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, sr. Bemharður Guðmundsson, sr. Birgir Ásgeirsson og dr. Bjöm Bjömssom Biskup íslands, hr. Pétur Sigur- geirsson, setur Prestastefnuna í kirkjusal Hallgrímskirkju og flyt- ur þar skýrslu sína. Áður flytur Mótettukór kirkjunnar ásamt hljóðfæraleikumm kantötu nr. 69 eftir J.S. Bach — Lofa þú Drottinn sála mín — Hörður Áskelsson stjómar. Síðar um daginn munu borgar- stjórahjónin í Reykjavík, Ástríður Thorarensen og Davíð Oddsson, bjóða Synodusprestum og mökum þeirra til móttöku að Kjarvals- stöðum í tilefni af vígslu Hall- grímskirkju. Á mánudag halda fundir Prestastefnunnar áfram í fundar- sal Hallgrímskirkju, þar sem áður var messusalur. Þar munu fram- sögumenn flytja erindi sín, ijallað verður um aðalefni Synodus í pallborðsumræðum, starfshópum og í almennum umræðum. Síðdeg- is sama dag býður Sólveig Ásgeirs- dóttir, biskupsfrú, mökum presta og prestsekkjum til samveru í Biskupsgarði. Á mánudagskvöld verður minn- ingarguðsþjónusta um Hallgrím Pétursson en þann dag er ártíð hans. Er hún öllum opin. Á þriðjudag verður fjallað um önnur mál Prestastefnunnar og gengið frá samþykktum og álykt- unum. Henni verður slitið síðdegis þann dag í kirkjusal Hallgríms- kirlgu með guðsþjónustu. Um kvöldið sitja prestar boð biskups- hjóna, Sólveigar Ásgeirsdóttur og hr. Péturs Sigurgeirssonar í Bisk- upsgarði. Engin útborgun SANYO EURC KRIEDIT GAGGENAU Club8 Rowenta IGNIS 0] Electrolux Norsku ajungflak. sængumar og koddarnir (75 Opið mánud.-fimmtud. 9.00-19.00. Föstudaga 9.00-20.00. Laugardaga 10.00-16.00. Vörumarkaðurinn hf. Eiöistorgi 11-sími 622200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.