Morgunblaðið - 24.10.1986, Síða 20

Morgunblaðið - 24.10.1986, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖ8TUDAGUR 24. OKTÓBER 1986 Sprenging í Spandau: „Frelsissveit Rudolfs Hess“ kveðst ábyrg ^ Berlin, AP. ÖFLUG sprengja sprakk fyrir utan Spandau-fangelsi í Vestur- Berlín á þriðjudagsmorgun en þar hefur pýski stríðsglæpamaðurinn Rudolf Hess eytt síðustu 40 árum ævi sinnar. Lögreglan telur hægri-öfgamenn hafa komið sprengjunni fyrir. Óþekktur maður hringdi í fréttastofu í borginni og sagði „Frelsissveit Rudolfs Hess“ hafa staðið að baki Engin slys urðu á mönnum og Hess, sem nú er 92 ára að aldri, var ekki í neinni hættu. Sprengjan var það öflug að gat kom á fangels- ismúrinn auk þess sem rúður brotnuðu. Maður hringdi í fréttastofu í Vestur-Berlín og sagði „Frelsissveit udolfs Hess" hafa komið sprengj- unni fyrir. Maðurinn sagði samtökin ráðgera fleiri sprengingar sem beint yrði gegn „fjórveldunum" þ.e.a.s. Frakklandi, Bandaríkjunum, Bret- landi og Sovétríkjunum, sem ráðið hafa Vestur-Berlín frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Wemer Salomon, formaður hverfísstjómar Spandau-hverfís í Vestur-Berlín, kvaðst gruna hægri-öfgamenn um sprengjutil- ræðið. Talsmaður lögreglunnar tók í sama streng en vildi ekki nefna nein ákveðin samtök. Ný-nasistar efndu til mótmæla fyrir framan Spandau-fangelsi 26. apríl síðastliðinn, á afmælisdegi Rudolfs Hess, og kröfðust þess að honum yrði sleppt. Lenti þeim þá harkalega saman við vinstrimenn og handtók lögreglan fjóra óeirða- seggjanna. Forsætisráðherra Súdan: Eþíópía styður uppreisnaröflin El-Mahdi sagði í ræðu er hann hélt á læknaþingi í Khartoum, höf- uðborg Súdan, að hann hefði sannanir fyrir þessum ásökunum sínum og yrðu þær birtar almenn- ingi innan skamms. Uppreisnar- menn í Suður-Súdan hófu baráttu sína gegn stjóminni í Khartoum árið 1983 og nutu þá stuðnings stjómanna í Eþíópíu, Lybíu og Suð- ur-Yemen. Tvær síðartöldu stjóm- imar hættu stuðningi sínum við uppreisnarmenn er Gaafar Nimeiri, forseti, var hrakinn frá völdum í Súdan árið 1985. SADEK El-Mahdi, forsætsráð- herra Súdan, segir að Eþíópí- stjórn standi að baki tiiraunum til að koma á marxískum ríkjum innan tveggja nágrannaríkja sinna, í Suður-Súdan og Norður- Sómalíu. Flýðifrá Tékkó- slóvakíu Léttklæddar sumardömur AP. Tískufrömuðurinn franski, Yves Saint-Laurent, vill hafa dömum- ar léttklæddar næsta vor og sumar eins og þessi mynd frá forkynningu hans á tískunni vor og sumar 1987 ber með sér. Pilsið er úr svörtu pijónasilkiefni, skór og belti einnig í svörtu og blússan svart og hvít röndótt. Júgoslavía: Varasamt aö „rægja byltinguna“ Belgrad, AP. GREINT var frá því í júgo- slavneskum dagblöðum á þriðjudag að menntamaður hefði verið settur í fangelsi fyrir „pólitísk brot“ og annar ákærður fyrir svipaðar sak- ir. Miladin Nedic, serbi frá bosnísku iðnaðarborginni Tuzla, var dæmdur til tveggja mánaða fangelsisvistar fyrir að „rægja júgoslavnesku byltinguna" og hygla serbískri þjóðemiskennd, sagði í dagblaðinu Vecernje Nov- osti. Að sögn fann lögregla fjögur kg af byssupúðri og öðrum sprengitækjum í helgarbústað Nedics. Þetta leiddi til frekari rannsóknar á „fjandsamlegu at- ferli" hans. Yfirstjóm Kommúnistaflokks- ins í Tuzla lýsti einnig yfir því að Arsenije Baukovic nokkur hefði farið rætnisfullum orðum um „grundvallaratriði júgoslavn- esks þjóðfélags" á kaffihúsum og í einkahíbýlum. 25 manns hefðu borið vitni gegn honum. Hann hefði verið rekinn úr flokknum en gæti um fijálst höf- uð strokið þar til dómur félli í máli hans. Bokassa umsvifalaust hand- tekinn við heimkomuna Paris, AP. JEAN-BEDEL Bokassa, sem var eini keisarinn i Afríku, er honum var steypt af stóli 1979, tókst að sleppa burt úr útlegð i Frakkl- andi og komast aftur til Mið- Afríkulýðveldisins, heimalands síns. Með honum voru eiginkona hans og fimm börn. Bokassa var strax handtekinn við heimkom- una. Bokassa var dæmdur til dauða að honum fjarverandi á sínum tíma fyrir morð, líkamsárásir, mannát, fjárdrátt á fé ríkisins og enn fleiri sakir. Hann hefur búið í 18 her- bergja kastala fyrir vestan París frá árinu 1983 og með honum þar all- mörg af bömum hans, en þau munu vera 55 að tölu. Bokassa skildi eftir bréf í Frakk- landi, sem var stflað til Francois Mitterands forseta og Jacques Chiracs forsætisráðherra. Þar seg- ist hann hafa „farið frá Frakklandi af sjálfsdáðum." Aður hefur verið haft eftir Andre Kolinga, forseta Mið-Afríkulýð- veldisins, að réttarhöld yrðu að fara fram á ný yfír Bokassa, ef hann ætti eftir að snúa til heim- DUrnkrut, Austurríki, AP. TÉKKÓSLÓVAKÍSKUR hermað- ur, sem var við landamæragæzlu, flýði til Austurríkis í gær með því að vaða yfir á. Var frá þessu skýrt af hálfu austurríska innanríkis- ráðuneytisins. Maðurinn fór yfir Pandamærin hindrunar- laust í grennd við bæinn DUmkrut um 40 km norðaustur af Vinarborg. Haft var eftir austurrískum emb- ættismanni, að flótta maðurinn væri 29 ára gamail og hygðist fá að setj- ast að í Kanada. Maðurinn var í einkennisbúningi, er hann flýði, en ekki var frá því skýrt, hvort hann hefði verið vopnaður. Gengi gjaldmiðla GENGI Bandarikjadollars hækk- aði verulega gagnvart öllum helstu gjaldmiðlum Evrópu. Bjartari efnahagshorfur í Banda-ríkjunum og mikið kaup- æði japanskra kaupsýslumanna olli mestu þar um. Verð á gulli hélst óbreytt. í London kostaði stelingspundið 1,4215 dollara (1,4328) þegar gjaldeyrismörkuðum var lokað síðdegis í gær. Gengi dollarans var annars þann- ig að fyrir hann fengust: 1,9970 vestur-þýsk mörk (1,9750), 1,6412 svissneskir frankar (1,6298), 6,5375 franskir frankar (6,4975), 2,2530 hollensk gyllini (2,2445), 1.379,50 ítalskar líur (1.373,25), 1,38875 kanadískir dollarar (1,39115) og 156,35 jap- önsk jen (155,28) Bandaríska sendiráðið í Moskvu: Sendiherrafrúin í eldhúsinu og öryggisverðirnir í uppvaskinu Moskvu, AP. EIGINKONA sendiherrans er við eldhússtörfin, öryggisverðimir í uppvaskinu og sendiherrann er sinn eigin bílstjóri. Þannig er nú daglega lífið í bandaríska sendiráðinu í Moskvu eftir að Sovétstjóm- in bannaði sovéskum starfsmönnum sendiráðsins að mæta til vinnu sinnar. Stríðið milli stórveldanna, gagn- kvæmur brottrekstur sendiráðs- manna og annarra starfsmanna sendinefnda, hefur harðnað mjög að undanfömu. Bandaríkjamenn hafa vísað burt miklu fleiri enda em Sovétmenn vestra margfalt fleiri en Bandaríkjamenn í Sov- étríkjunum en síðasti mótleikur Kremlverja, að banna 260 Sovét- mönnum, sem vinna hjá bandaríska sendiráðinu í Moskvu og ræðis- mannsskrifstofunni í Leningrad, að mæta til vinnunnar, hefur að sjálf- sögðu bitnað mjög á venjulegri starfsemi sendiráðsins. Hljóðir dagar í sendi- ráðinu I sendiráðsgarðinum, þar sem áður var ys og þys, ríkir nú þögnin ein. Bflaflotinn, sem áður var i höndum 50 sovéskra bílstjóra, stendur ónotaður og í vegabréfa- deildinni, þar sem 12 Sovétmenn hafa séð um að fylla út umsóknir, vélritun og svara í síma, vom fáir á ferli. Bflstjóramir á rútunum, sem vanalega flytja böm sendiráðs- mannanna í ensk-ameríska skólann, létu heldur ekki sjá sig. Jaroslav Wemer, talsmaður bandaríska sendiráðsins, staðfesti, að enginn sovésku starfsmannanna hefði mætt til vinnu í gærmorgun og sagði hann augljóst, að þeir hefðu fengið fyrirskipunina nóttina áður. Eldhúsið, garðurinn og gróðurhúsið Donna Hartman, eiginkona Art- hurs Hartman, sendiherra Banda- ríkjanna í Moskvu, hafði í gær boð inni fyrir Elie Wiesel, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels, og sá sjálf um að elda ofan í hann mat, sem er rétttrúuðum gyðingum þóknan- legur. Á eftir sáu öryggisverðimir um uppvaskið og tiltektina og sendiherrann sjálfur ók Wiesel heim á hótel. Donna hefur einnig boðist til að sjá um gróðurhúsið og moka snjónum úr garðinum ef hún fái til þess viðeigandi mokstursvél. Kvað hún sig lengi hafa dreymt um að stjóma slíku tæki. Tímamót i njósnum Sovétmanna Bandaríkjamenn eiga ekki hægt með að svara Sovétmönnum í sömu mynt að þessu leyti því að sovéska sendiráðið í Washington og ræðis- mannsskrifstofa þeirra í Los Angeles hefur næstum enga Banda- ríkjamenn í sinni þjónustu. Banda- rískir embættismenn segja hins vegar, að Qöldabrottrekstur Sovét- manna frá Bandaríkjunum muni neyða KGB, sovésku leyniþjón- ustuna, til að reiða sig meira á óreynda njósnara. Telja þeir enn- fremur, að brottreksturinn muni valda ágreiningi milli sovéska ut- anríkisráðuneytisins og KGB um það hvemig stöðunum, sem eftir em, 251 talsins, skuli skipt á milli raunverulegra sendiráðsmanna og njósnara. „Nú hafa orðið kaflaskipti í njósnum Sovétmanna í Banda- ríkjunum,“ sagði einn embættis- mannanna þriggja, sem ræddu í gær við fréttamenn með því skil- yrði, að nafna þeirra yrði ekki getið. „Sovétmenn hafa verið hér með víðtækasta njósnanet í heimi en nú verða þeir að draga saman seglin. Hér eftir verður auðveldara að fylgjast með þeim.“ Helstu yfirmenn rejknir Allir þrír yfírmenn KGB í Was- hington, Los Angeles og New York hafa verið reknir burt og sömu sögu er að segja um yfírmenn X-deildar, PR-deildar og KR-deildar í sömu borgum. X-deildin sér um að afla vísindalegra og tæknilegra upplýs- inga, PR-deildin pólitískra og efnahagslegra upplýsinga og KR- deildin reynir að koma útsendurum sínum inn í CIA og FBI. Bandarísku embættismennimir sögðu, að áður hefðu Sovétmenn haft 300 njósnara á sínum snærum í Bandaríkjunum og að það yrði erfítt fyrir þá að fylla skörðin. „Þetta er alvarlegt áfall fyrir KGB

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.