Morgunblaðið - 24.10.1986, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, í'ÖSTUDA'GÚR 24J OKTÓBER 1986
021
Scotland Yard:
Afhjúpar banda-
rískan glæpahring
London.AP.
BRESKA rannsóknarlögregl-
an, Scotland Yard, sagði i
yfirlýsingn sem birt var á mið-
vikudag, að lögreglumenn á
vegum hennar er voru að
rannsaka mesta rán er framið
hefur verið í Bretlandi, hafi
komið upp um mikinn hring
Bakverkur:
Rúmlega
stoðar lítt
Boston, AP.
FLESTIR þeir er þjást af
bakverk ættu að reyna að
komast aftur til vinnu
eins fjótt og mögulegt er,
jafnvel þótt þeir hafi ekki
náð sér. Hin venjulega
fyrirskipun lækna um
viku rúmlegu er ónauð-
synleg og jafnvel beinlinis
hættuleg, að þvi er ný-
justu rannsóknir herma.
I biaðinu New England
Joumal of Medicine, sem út
kom sl. fímmtudag eru kynnt-
ar niðurstöður rannsóknar er
203 baksjúklingar tóku þátt
í og voru þeir ýmist látnir
liggja í rúminu í 2 eða 7 daga.
Verkurinn hvarf að jafnaði
eftir um 11 daga hjá báðum
hópunum. Læknirinn sem
stjómaði rannsókninni, Rich-
ard A. Deyo, sagði að lengri
rúmlega virtist ekki vera til
bóta , hún gæti haft slæm
áhrif á blóðrásina og orðið til
þess að vöðvar rýmuðu. Hann
tók þó skýrt fram, að hér
hefði aðeins verið um að ræða
fólk sem hefði þjáðst af
minniháttar bakverk.
eiturlyfjasala í Bandaríkjun-
um.
Lögreglumennimir fylgdu eftir
Bandarílqamanni er álitinn var
viðriðinn rán á gulli að verðmæti
um 26 milljóna punda (rúml. 1.5
milljarður ísl. kr.), er verið hafði
í vörslu Brinks-Mat fyrirtækisins
á Heathrow flugvelli árið 1983.
Ekki kom fram í yfirlýsingu Scot-
land Yard, hver tengslin voru á
milli gullránsins og eiturlyfja-
hringsins, heldur sagði þar aðeins,
að aldrei fyrr hefði komist upp um
slíkan glæpahring, er starfaði í
báðum löndunum. Lögregluyfir-
völd í Bandaríkjunum hafa gefið
út 13 handtökuskipanir og fleiri
verið ákærðir vegna málsins, en
glæpahringurinn er m.a. talinn
hafa smygglað um 45.350 kg. af
marijúana til Florida.
liii
AP/Símamynd
Lík Machels flutt af slysstað
Minningarathöfn um Samora Machel, forseta Mósambík, sem fram átti að fara í gær, var frestað af ein-
hvetjum ástæðum en hann verður borinn til grafar á þriðjudag. Þangað til stendur lík hans á viðhafnarbörum
í ráðhúsi Maputoborgar. Hér er verið að flytja lík hans frá flaki sovésku flugvélarinnar en með henni
fórust samtals 34 menn.
Vínarfundur um öryggi og samvinnu í Evrópu:
Knýja verður fram raunhæfar
aðgerðir í mannréttindamálum
— segir Matthías A. Mathiesen utanríkisráðherra
KNYJA verður fram raunhæfar aðgerðir á sviði mannréttinda-
mála jafnhliða þvi sem haldið verður áfram á öryggismálasviðinu.
í Helsinki-samþykktinni er lögð mikil áhersla á jafna þróun allra
þátta hennar. Að því mun íslenska sendinefndin í Vin vinna, sagði
Matthias Á. Mathiesen, utanríkisráðherra, í samtali við Morgun-
blaðið í gær, þegar leitað var álits hans á utanríkisráðherrafundi
þeirra rikja, sem rituðu undir Helskini-samþykktina 1975, en
hann hefst i Vínarborg 4. nóvember næstkomandi.
Utanrikisráðherra situr þennan fund en auk hans verða Bened-
ikt Gröndal, sendiherra, Hreinn Loftsson, aðstoðarmaður utanrík-
isráðherra, Hjálmar W. Hannesson, sendifulltrúi, og dr. Corrielia
Shubrig, aðalræðismaður, í íslensku sendinefndinni.
Um aðdraganda þessa fundar og þau mál, sem þar verða rædd
sagði Matthías Á. Mathiesen:
Með undirritun svokallaðrar
lokasamþykktar Ráðstefnunnar
um öryggi og samvinnu í Evrópu
(RÖSE) í Helskini 1975 náðist
!aí£«0»=-L0T ■ I I |AEROFLOT1
w
Sovéskir sendimenn, sem gerðir hafa verið brottrækir, fara frá
Bandaríkjunum. Njósnarar, sem reknir eru frá einu vestrænu landi,
fá aldrei að koma til neins annars vestræns ríkis. Þeirra bíða í
mesta lagi störf í þriðja heimsríkjum.
en að sjálfsögðu bindur það ekki ar verið reknir frá Vestur-Evrópu.
enda á njósnimar,“ sagði einn emb-
ættismannanna. Spáðu þeir því, að
Sovétmenn myndu nú beina spjót-
um sínum meira en áður að stöðvum
Bandaríkjamanna erlendis, treysta
meira á njósnara annarra Varsjár-
bandalagsríkja og á njósnara, sem
ekki njóta friðhelgi sendiráðs-
manna.
„bíður kannski starf í
Suður-Jemen...“
Árið 1982 vísuðu Bretar 105
sovéskum njósnumm úr landi,
Frakkar 47 ári síðar og frá 1981
hafa samtals 170 sovéskir njósnar-
Þeir Sovétmenn, sem reknir em frá
einu vestrænu landi, fá ekki eftir
það að koma til nokkurs annars.
Samkvæmt lögum, sem Bandaríkja-
þing setti í fyrra, munu Sovétmenn
ekki fá að hafa þar fleiri sendiráðs-
menn en Bandaríkjamönnum er
leyft að hafa í Sovétrflqunum.
„Það er ákaflega kostnaðarsamt
að þjálfa njósnara til starfa á Vest-
urlöndum og brottreksturinn mun
koma illa við þessa menn. Þegar
þeir fara héðan bíður þeirra kannski
starf í Suður-Jemen eða á öðmm
slíkum stöðum," sagði einn banda-
rísku embættismannanna.
slökunartímabil það sem stóð yfir
fyrri hluta 8. áratugarins hámarki
sínu. Samþykktin er ekki
milliríkjasamningur, en með henni
skuldbundu þátttökuríkin 35 sig
til þess að virða landamæraskipan
þá, sem komst á við lok síðari
heimsstyijaldarinpar. Það var að-
alkeppikefli Sovétmanna og telja
þeir samþykktina koma í stað frið-
arsamninga að þessu leyti. En
samþykktin skuldbatt einnig ríkin
til þess að fara eftir ákveðnum
meginreglum í samskiptum sínum
og að efla samvinnu á ýmsum svið-
um. Síðast en ekki síst er þar
fjallað um mannréttindi. Þann
kafla og annað, sem Sovétmönnum
þótti lítt ákjósanlegt, sættu þeir
sig við til þess að fá landamærin
í Evrópu viðurkennd.
Á þeim ellefu árum, sem liðin
eru frá undirritun Helskini-sam-
þykktarinnar, hafa verið haldnir
tveir framhaldsfundir til að fy-
gljast með og bæta framkvæmd
hennar. Hin fyrri var haldin í
Belgrad 1977—1978, en hinn síðari
í Madrid 1980—1983. Þar að auki
hafa verið haldnir margir minni
fundir sérfræðinga um einstaka
þætti Helsinki-samþykktarinnar.
Segja má, að Belgrad-fundurinn
hafi verið árangurslaus og endur-
speglaði það kólnandi sambúð
austurs og vesturs. Þrátt fyrir
innrás Sovétmanna í Afganistan,
meðferðina á sovéskum andófs-
mönnum, þróun mála í Póllandi
o.fl. erfið atriði í samskiptum aust-
urs og vesturs tókst fulltrúum á
Madrid-fundi eftir mörg og löng
fundarhlé að ná samkomulagi um
ítarlegt lokaskjal. Þar var bætt við
ákvæði Helskini-samþykktar ýms-
um atriðum á sviði mannréttinda
og mannúðarmála, t.d. aukin rétt-
indi einstaklingsins að taka þátt í
verkalýðsfélögum, um endursam-
Matthías Á. Mathiesen
einingu fjölskyldna, iðkun trúar-
bragða, upplýsingamál, bætta
starfsaðstöðu fréttamanna o.fl.
Ennfremur var ákveðið að halda
ýmsa fundi sérfræðinga, þ.á m.
Stokkhólms-ráðstefnuna um enn
frekari aðgerðir til að efla traust
og öryggi í Evrópu.
Þegar þriðji framhaldsfundurinn
hefst nú í Vínarborg 4. nóvember
má segja, að mun byrlegar blási i
samskiptum austurs og vesturs en
við upphaf Madrid-fundar. Tveggja
vikna undirbúningsfundi lauk 6.
október sl. í Vín með jákvæðum
hætti. Þar var gengið frá dagskrá
og framkvæmdaatriðum Vínar-
fundarins. Var það gert án veru-
legs ágreinings og raunar rætt um
„Reykjavíkuranda" í því sambandi
þar sem ákvörðun um leiðtoga-
fundinn hafi sín áhrif. Vesturlönd
lögðu áherslu á að töluverður tími
færi í umræður um framkvæmd
Helsinki-samþykktar (og Madrid-
skjals). Var þeirri umræður
skammtaður lengri tími í Vín en
gert var fyrir Madrid-fund. Þá
lögðu Vesturlönd áherslu á fleiri
opna fundi á Vínarfundi en var í
Madrid og fékkst fram góð mála-
miðlun í því sambandi.
Fuiltrúum á Stokkhóls-ráðstefn-
unni tókst að ljúka störfum og þar
voru samþykktar mun ítarlegri
aðgerðir til að efla traúst og ör-
yggi í Evrópu en voru til staðar í
Helsinki-samþykktinni. Aðalatrið-
ið varðandi samþykktina frá
Stokkhólmi er e.t.v. það, að nú
tókst loks að ná samkomulagi á
hernaðarsviðinu eftir langt kulda-
skeið milli austurs og vesturs.
Hvort Vínarfundur ákveður næsta
stig Stokkhólms-ráðstefnunnar,
þ.e. afvopnunarviðræður, er óljóst
nú.
Leiðtogafundurinn í Reykjavík
er ennfremur mjög ákvæður að-
dragandi Vínarfundar.
Hinu er þó ekki að leyna að
Vesturlönd, og raunar flest hlut-
lausu ríkin einnig, eru mjög
vonsvikin yfir því að ekki náðist
samkomulag á sérfræðingafundum
um mannréttindamál og tengdum
málum, t.d. í Ottawa og í Búda-
pest 1985 og í Bern sl. vor.
Til sölu stórglæsilegur BMW 728i auto-
mat, árg. 1981. Ekinn 39.000 km.
Þessi glæsilegi farkostur er hlaðinn aukabúnaði svo sem sóllúgu,
raflæsingum, rafstýrðum speglum m/hita, rafdrifnum rúðum, lit-
uðu gleri, stereóbúnaði, höfuðpúðum við hvert sæti, sportfelgum,
spoiler o.fl.
Upplýsingar hjá BMW-umboðinu í síma 688633 eða í síma 26466.