Morgunblaðið - 25.10.1986, Page 1
56 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
242. tbl. 72. árg._______________________________LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1986________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Noregnr:
Birgðir af
geislavirku
kindakjöti
Frá ian Erik Laure, fréttaritara Morgun-
blaðaina f Osló.
UM ÞAÐ BIL 2.500 tonn af jjeisla-
virku kindakjöti liggja nú í frysti
í Noregi. Kjötið hefur verið dæmt
óhæft til sölu og velta yfirvöld
nú vöngum yfir þvf hvað gera
skuli við það.
Enginn vafi leikur á að geisla-
virknin í kjötinu er bein afieiðing
kjamorkuslyssins í Chemobyl. Kjöt
sem reynist innihalda meiri geisla-
virkni en 600 bequerel í hveiju kílói
er talið óhæft til sölu. Kjötinu er
komið fyrir í frysti og hefur verið
ýjað að því að yfírvöld hyggist
geyma það í þeirri von að viðmiðun-
armörkin verði hækkuð. Þessum
ásökunum hafa stjómvöld vísað
heim til foðurhúsanna.
Vera kann að kjötið verði nýtt í
loðdýrafóður. Enn er ekki vitað hvort
lqötið geti verið skaðlegt loðdýrum
og er unnið að tilraunum til að ganga
úr skugga um það. Ef ekki reynist
unnt að nýta það á þennan hátt
verða um 120.000 hreindýra- og
kindaskrokkar að öllum líkindum
brenndir.
Pólland:
Nýtt skyndi-
réttarfar
Varejá, AP.
PÓLSKA þingið samþykkti í gær
Bretar slíta stj ómmálasambandi við Sýrlendinga:
Oyggjandi sannanir um
aðild að hryðiuverkum
IiOndon. AP.
London, AP.
BREZKA stjómin sleit í gær
stjómmálasambandi við Sýrland
vegna „óyggjandi sannanna um
aðild Sýrlendinga að áformum
hryðjuverkamanna um að koma
sprengju fyrir f fsrelskri far-
þegaflugvél." Tilkynnti Sir
Geoffrey Howe utanríkisráð-
herra þetta í neðri deild brezka
þingsins.
Þetta gerðist eftir að dómstóll í
London hafði dæmt jórdanskan
LögreglubíU ekur burt með Nezar Hindawi f London í gær, eftir að hann hafði verið dæmdur í 45 ára
fangelsi. Hlaut hann þennan dóm fyrir að undirbúa hinn 17. april sl. sprengingu f E1 Al-farþegavél með
því að koma fyrir timasprengju í handtösku vanfærrar unnustu sinnar, sem hugðist fara með vélinni.
Innfellda myndin er af Nezar Hindawi.
mann, Nezar Hindawi, í 45 ára fang-
elsi fyrir að reyna þann 17. apríl sl.
að sprengja í loft upp farþegavél frá
E1 Al, en hún var með 375 farþega
um borð. Howe sagði, að brezka
stjómin hefði óræka sönnun fyrir
því, að sýrlenzki sendiherrann í Lon-
don hefði persónulega átt aðild að
þessari ógnvelqandi hryðjuverkatil-
raun með því að koma Hindawi undir
vemdarvæng sýrlenzku leyniþjón-
ustunnar.
Hindawi hefði ferðazt á sýrlenzku
vegabréfi frá opinbemm yfirvöldum
þar í landi en undir fölsku nafni.
Þá hefðu tvær umsóknir hans um
vegabrefsáritanir verið studdar með-
mælum frá sýrlenzka utanríkisráðu-
neytinu.
Donald Anderson, talsmaður
Verkamannaflokksins, lýsti yfir
stuðningi við ákvörðun stjómarinnar
og sagði: „Eg tel, að þingdeildin eigi
að sameinást í að sýna, að hryðju-
verkum úr hvaða átt sem er verði
mætt með skjótum og afdráttarlaus-
um aðgerðum."
Bandaríkin og Kanada kölluðu í
gær heim sendiherra sína í Sýr-
landi. Var þetta gert til stuðnings
aðgerðum brezku stjómarinnar.
Sýrlenzka stjómin neitaði í gær
allri aðild að málinu og fordæmdi
aðgerðir brezku stjómarinnar sem
„óréttmætar". Fyrirskipaði hún, að
lofthelgi og landhelgi Sýrlands
skyldi lokað fyrir brezkum flugvélum
og skipum.
breytingar í refsilöggjöf landsins,
sem gera munu ríkisstjóminni
hægar um vik um að láta rétthöld
yfir andófsmönnum fara fram
fyrir stjóravaldsdómstólum án
fullkominna réttarhalda, sem
vakið geta athygli á alþjóðavett-
vangi.
Þessi ráðstöfun gefur til kynna,
að taka eigi upp á ný aðferðir piólsku
stjómarinnar frá því á síðasta ára-
tug, er skyndiréttarhöld fóm fram
yfir andófsmönnum. Vom þeir þá
hvað eftir annað dæmdir í stutta
fangelsisvist, sem hélt þeim í reynd
bak við lás og slá ámm saman.
Reagan svarar síðustu ræðu Gorbachevs:
Uppörvandi að tillögurnar frá
Reykjavíkurfundinum standa enn
Oklahoma, AP.
REAGAN Bandaríkjaforseti
sagði í gær, að síðustu um-
mæli Gorbachevs Sovétleið-
toga varðandi afvopnun væru
„uppörvandi". „Samninga-
menn okkar bíða reiðubúnir
Verður ísland Hong
Kong norðursins?
London. Frá Valdim&r Unnari Valdimarssyni, fréttaritara Morgunbiadsins.
1 BRESKUM sjónvarpsþætti var í gærkvöldi fjallað um hugmynd-
ir sem settar hafa verið fram um að gera Reykjavík að miðstöð
skipasamgangna milli Evrópu og Austurlanda fjær.
Hér í Bretlandi er vikulega á
dagskrá breska sjónvarpsins,
BBC, þáttur er neftiist To-
morrow’s World, eins koriar
Nýjasta tækni og vísindi þeirra
Breta. í sumar sóttu umsjónar-
menn þáttarins ísland heim og
kynntu sér nýstárlegar hugmynd-
ir dr. Þórs Jakobssonar, sem telur
að nýjasta tækni og örar fram-
farir í skipasamgöngum muni
innan skamms gera flutningaskip-
um kieift að sigla um norður-
heimssvæðið á leið sinni milli
Asíu og Evrópu.
v { sjónvarpsþættinum var bent
á að slíkar siglingar mundu til
dæmis stytta um helming þá
vegalengd sem fiutningaskip
þurfa að fara milli Japans og
Evrópu. Þegar haft er í huga
hversu vöruflutningar eru miklir
þar á milli er ljóst að skipaferðir
um hafið umhverfis ísland mundu
margfaldast ef viðkomandi aðilar
sæju sér hag í að beina flutningum
um norðurheimsskautsvæðið.
Einnig er ljóst að Reykjavík yrði
kjörinn viðkomustaður og miðstöð
slíkra samgangna. í breska sjón-
varpsþættinum var bent á hversu
mikill búhnykkur þetta gæti orðið
íslendingum og jafnframt fullyrt
að íslenski forsætisráðherrann
hefði tekið vel í hugmyndir af
þessu tagi. Var hugsanlegum af-
rakstri Islendinga af skipasam-
göngum um norðurheimsskauts-
svæðið líkt við þann ágóða sem
Hong Kong hefur haft sem mið-
stöð verslunar og viðskipta í Asíu.
Er nú bara að bíða og sjá hvort
Reykjavík verður Hong Kong
norðursins.
í Genf,“ sagði Reagan. „Við
megum ekki láta þau mál
staðna, þar sem við erum
sammála, vegna þeirra mála
sem við erum ósammála um.“
„Það er mjög uppörvandi að
heyra, að sovézki leiðtoginn er
mér sammála um, að þær tillögur
standa enn, sem lagðar voru ffam
á íslandi. En Sovétmenn verða
að ganga framar á sviði meðal-
drægra lqamorkueldflauga og
tilrauna með kjamorkuvopr og
við erum reiðubúnir til að gera
það einnig," sagði Reagan enn-
fremur.
í ræðu, sem Gorbachev flutti í
sovézka sjónvarpinu á miðviku-
dagskvöld, sagði hann, að í
viðræðum hans og Reagans í
Reykjavík, þá hefðu þeir leið-
togamir tveir „náð lengra en þeir
hefðu áður gert ekki bara í því
að brjóta til mergjar ástandið
heldur einnig í því að skilgreina
markmiðin varðandi hugsanlegt
samkomulag í afvopnun á sviði
kjamorkuvopna."
Gorbachev hélt því fram, að
Reagan hefði fallizt á eyðilegg-
ingu allra landrægra kjamorku-
Reagan
Gorbachev
vopna. Bandaríkjastjóm heldur
því hins vegar fram, að Reagan
hafi lagt til, að kjamorkuvopnum
yrði fækkað um 50% á fímm árum,
en síðan yrði langdrægum kjam-
orkuflaugum útrýmt á næstu
fímm ámm en ekki nauðsynlega
öllum kjamorkuvopnum, enda
þótt það hlyti að vera lokatak-
markið.
Sovézka fréttastofan TASS hélt
því fram í gaer, að bandariska
sendiráðinu í Moskvu hefði verið
greitt „þungt högg“ með því að
sovézkum starfsmönnum þess var
bannað að halda áfram störfum
sínum þar. Jafnframt var þó lýst
yfír þeirri von, að viðureign risa-
veldanna varðandi brottvísanir
sendistarfsmanna yrði senn lokið.