Morgunblaðið - 25.10.1986, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.10.1986, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1986 -------------•----------------I--I------- Fyrsta „stóra“ tölvan tekin í notkun hérlendis Þorsteinn S. Þorsteinnson, framkvæmdastjóri tækni- sviðs IBM, og Þórður B. Sigurðsson, forstöðumaður Reiknistofu bankanna, við hina nýju tölvu. sem hægt er og gera aðvart um bilanir, ef þörf þykir. Ef eitthvað bregður út af getur IBM 3090 töl- van hringt sjálfvirkt í verksmiðjuna og gefið skýrslu um ástand sitt. Viðgerðamenn IBM hér fá þá strax upplýsingar um hvað gera þarf ef eitthvað er að fara úrskeiðis. Þann- ig er rekstraröryggi hennar tiyggt. KOMIN er til landsins stærsta og öflugasta tölva sem hingað hefur komið. en það er IBM 3090. Kostar tölvan komin hingað til lands rúmar 70 milljónir. Þessi tölva er með öflugustu og full- komnustu tölvum sem nú eru framleiddar i heiminum. Tölvu- kerfið vegur níu lestir og verður byrjað að setja það upp nú í vik- unni í Reiknistofu bankanna, þar sem það leysir af hólmi eldri töivubúnað. Með tilkomu IBM 3090 er brotið blað í tölvusögu hér á landi, segir í frétt frá IBM á íslandi. í fréttinni segir ennfremur; IBM 3090 sem hingað hefur verið keypt af Reiknistofu bankanna er fram- leidd í verksmiðjum IBM í Evrópu, en búnaðurinn var endanlega sam- settur hjá IBM í Frakklandi. Minni tölvunnar er 32 milljónir stafa. Bæta má við kerfið viðbótarbúnaði eftir þörfum og kröfum bankakerf- isins. Innri bygging IBM 3090 er sú nýjasta og fullkomnasta sem völ er á og hefur hún vakið mikla at- hygli fyrir m.a. ýmsar háþróaðar tækninýjungar. Þessi stóra móðurtölva á eftir að anna meginhluta allrar tölvuvinnslu banka- og sparisjóðakerfis lands- manna. Gera má ráð fyrir að flestir bankastarfsmenn, sem eru rúmlega þijú þúsund, tengist nýju tölvunni í daglegum störfum sínum í fram- tíðinni. Mikið vinnslu- og af- greiðsluöryggi fæst með tilkomu IBM 3090. Svartími IBM 3090 er helmingi styttri en í eldra kerfinu, eða fer t.d. úr tveimur sekúndum í eina. Tölvuafgreiðslukerfíð, sem nú er notað f sparisjóðum og bönkum f iandinu, verður samt sem áður nán- ast jafn lengi að vinna úr upplýsing- Kælikerf i tölvunnar er engin smásmíði. unum, því það þarf áfram að þýða sitt eigið tölvumál yfir á IBM-tölvu- málið. Reiknistofa bankanna vinnur nú að upptöku nýs stýrikerfis sem hæfi IBM 3090 og mun það jafna svartímann og auka enn rekstrarör- yggið. Þetta nýja fullkomna tölvukerfi IBM verður sett upp af starfsmönn- um IBM á íslandi. Starfsfólk sem þarf að vinna við IBM 3090 fær séretaka þjálfun hjá IBM á íslandi á yfirgripsmiklu og sérhæfðu nám- skeiði. Með tilkomu IBM 3090 fara íslendingar í fyreta sinn út í notkun á stórum tölvum, en hingað til hafa aðeins verið notaðar hér litlar og miðlungstölvur. IBM 3090, sem er nánast ný á markaðinum, nýtir alla nýjustu tækni á sviði tölvubúnaðar. Meðal nýjunga nota þessar tölvur nýjar eins megabita kísilflögur, Morgunblaöið/Þorkell hannaðar af vísindamönnum IBM. Þá má t.d. geta þess, að IBM 3090 er frábrugðin öðrum tölvum að því leyti að í henni eru sérstakar sér- hæfðar tölvur sem fylgjast stöðugt með hverri aðgerð sem framkvæmt er og sannreyna að allt sé í lagi. Þessar eftirlitstölvur henda reiður á því sem fram fer, lagfæra það Hringir sjálfvirkt í IBM-verk- smiðjuna ef eitthvað fer úrskeiðis Kona framseld frá Bandaríkjunum: Ekki fallist á kröfu um bætur DÓMUR hefur fallið í Bæjarþingi Reykjavíkur i máli Salome Báru Ambjömsdóttur Mendler gegn fjármálaráðherra fyrir hönd rikissjóðs o.fl. Salome Bára höfðaði málið til bóta vegna þess að hún taldi að krafa um framsal hennar frá Bandaríkjunum og aðgerðir þær er á eftir fylgdu hefðu verið löglausar, eða a.m.k. farið fram úr þvi sem tilefni var til. Dómurinn féllst ekki á kröf- ur hennar um skaðabætur og hefur hún ákveðið að áfrýja málinu til Hæstarettar. Upphaf máls þessa var það að árið 1979 hófst víðtæk rannsókn f Keflavík á meintu fíkniefnamis- ferli margra aðila þar í bæ. Var Salome Bára m.a. yfirheyrð sem grunuð í því máli. Við rannsókn málsins kom í ljós að það var mjög umfangsmikið og báru sak- bomingar að Salome Bára hefði staðið að innflutningi mikils magns fíkniefna. Hún var þá flutt af landi brott til Bandaríkjanna og 18. júní 1979 var kveðinn upp handtökuúrekurður á hendur henni f Sakadómi f ávana- og fíkniefiium. Var í forsendum úr- skurðarins vikið að framburðum tveggja sakbominga í málinu og sagt að rannsóknarinnar vegna sé brýnt að ná til Salome Bám svo rannsóknin tefiist ekki eða torveldist frekar. Var óskað eftir því við dómsmálaráðuneytið að það hlutaðist til um að hand- tökuskipunnni yrði komið á framfæri við bandarísk yfirvöld og gerð yrði krafa til þess að Salome Bára yrði framseld til ís- lands. Síðan hlutaðist utanrfkis- ráðuneytið til um að Interpol skrifstofan f Washington lýsti eft- ir henni. Urðu nokkur bréfaskipti milli landanna, bæði varðandi form- og efnishlið þess. Var af- staða Bandarfkjamanna m.a. sú að sá sem talinn væri á flótta hefði verið kærður fyrir afbrot, en yfirvöldum í Bandaríkjunum þótti sem aðeins væri óskað eftir Salome Báru til yfírheyrslu f sam- bandi við rannsókn. Gefin var út kæra á hendur Salome Báru fyrir stófelldan inn- fíutning og sölu kannabisefna og hassolíu og sölu á amfetamíni. Segir svo um foreendur kæru að hún sé byggð á framburðum nokkurra aðila, sem ýmist keyptu fíkniefnin af Salome og/eða að- stoðuðu hana við sölu efnanna. í nóvember 1981 var Salome Bára handtekin á heimili sínu í Banda- ríkjunum og leidd fyrir dómara. Hún mótmælti framsalinu og stóð í málaferlum, allt þar til hún var framseld í apríl 1984, um lög- mæti þess að hún yrði framseld frá Bandaríkjunum til íslands. Mál hennar kom fyrir öll dómstig nema Hæstarétt Bandaríkjanna og varð niðuretaðan alltaf sú að heimilt væri að lögum að fram- selja hana til íslands. Þegar Salome Bára kom til landsins í apríl 1984 var rannsókn málsins tekin upp að nýju hvað hana varðaði. Héldu þeir aðilar sem borið höfðu um innfíutning hennar og dreifingu á fíkniefnum við fyrri framburð sinn, utan einn, sem taldi að framburður sinn væri á misskilningi byggður. Salome Bára neitaði öllum sakar- giftum. Um miðjan maí 1984 var málið sent ríkissaksóknara til fyr- irsagnar. í lok þess mánaðar tilkynnti ríkissaksóknari að hann teldi eigi lagarök til að gefa út ákæru á hendur Salome Báru. Sagði hann að menn þeir sem báru hana sökum árið 1979 geti ekki talist óaðfínnanleg vitni, að þeir hafi dregið að meira eða minna leyti úr fyrri framburðum sfnum, að ekki séu dæmi þess að opinbert mál sé höfðað á hendur manni ef liðin eru meira en 5 ár frá verknaði til dómsyfirheyrelu, að sakir væru fymdar þó sannað- ar væru og að rannsóknargögn f málinu þættu eigi líkleg til sak- fellis Salome Báru gegn staðfastri neitun hennar. Salome Bára hefur ekki fengið vegabréfsáritun til Bandaríkjanna að nýju eftir að máli þessu lauk með bréfi ríkissaksóknara, en hún er gift Bandaríkjamanni, þar sem ákvæði bandarískra innflytjenda- laga kveða á um að óheimilt sé að fá vegabréfsáritun manni sem viðkomandi embættismaður veit, eða hefur ástæðu til að ætla, að sé eða hafí verið dreifandi fíkni- efna. Salome Bára gerði þá kröfu að henni yrðu greiddar 41 milljón króna í bætur fyrir þá röskun og þau óþægindi sem aðgerðir íslenkra og bandarískra stjóm- valda hafi haft fyrir hana. Sé eðlilegt að líta til þeirra andlegu þjáninga sem Salome hafi liðið f gæsluvarðhaldi og til þess að hún missti fóstur skömmu síðar. Lög- maður hennar, dr. Gunnlaugur Þórðareon, benti á að rannsókn málsins hafi leitt til þeirrar niður- stöðu að rfkissaksóknari hafí ekki séð sér stætt á þvf að ákæra f málinu, enda hafi komið fram að ávirðingar þær sem á Salome voru bomar. hafi hvorki staðist frá vættissjónarmiði né tæknilegu. Gunnlaugur hélt þvf fram að hörmulega hafi verið staðið að málinu frá upphafi þess. Hann benti á að bandarísk yfirvöld telji ekki nægjanlegt til framsals að óskað sé yfirheyrelu. Það þurfi að ákæra f málinu. Úr þessum göllum hafi dómsmálaráðuneytið ætlað að bæta með sendingu kæru, löngu eftir uppkvaðningu handtökuúrekurðarins. Þá hafi millirfkjasamningur sá frá 1902 er framsalið byggði á verið á milli Danmerkur og Bandarfkjanna, hafí ekki verið birtur á íslandi og sagt upp af Dönum árið 1968. Handtökuúrekurðinum hafi verið haldið lejmdum fyrir Salome Báru, sem hefði kosið að koma hávaða- laust heim til íslands ef hún hefði vitað af honum. Af hálfu stefndu f málinu, dómsmálaráðherra, fjármálaráð- herra fyrir hönd ríkissjóðs og rfkissaksóknara var þvf haldið fram að aðgerðir íslenskra yfir- valda vegna framsalsmálsins hafi í hvívetna verið lögmætar og Salome Bára eigi að lögum engan bótarétt á hendur þeim vegna aðgerða erlendra yfirvalda er af þeim leiddu. Var miskabótakröfu Salome Báru mótmælt sem allt of hárri og án nokkurra tengsla við dómaframkvæmd. Dómurinn komst að þeirri nið- urstöðu að sýkna bæri stefiidu af öllum kröfum Salome Báru f máli þessu. Hrafn Bragason borgar- dómari kvað upp dóminn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.