Morgunblaðið - 25.10.1986, Qupperneq 2
MORGUNBIAÐIÐ,; LA.UGARDAGUR 25J OKTÓBER! 1886
Brennisteinsfýla
úr Múlakvísl
MIKILLAR brennisteinsfýlu hefur orðið vart úr Múlakvísl á Mýr-
dalssandi undanfarnar vikur og áin verið vatnsmikil.
„Fyrir nokkrum dögum var æði
mikil brennisteinslykt austur á
sandinum og ólík þeirri lykt sem
er vanalega er úr Múlakvísl. Líktist
einna helst hveralykt," sagði Reyn-
ir Ragnarsson lögreglumaður í Vík
í Mýrdal. Hann sagði að fýlan hefði
verið óvenju mikil í allt sumar en
nú virtist sem áin væri farin að
jafna sig. Ennþá er sumarvatn í
ánni og taldi Rejmir það ekki óeðli-
Ók á vin-
stúlku sína
EKIÐ VAR á unga stúlku á
Tryggvagötu á fimmtudag.
Slasaðist hún nokkuð á hægra
fæti.
Slysið varð með þeim hætti
að ungur piltur ók eftir
Tryggvagötu í vesturátt. Hann
stöðvaði til að hleypa umferð á
móti framhjá, en beygði síðan
inn á bflastæði fyrir framan leik-
tækjasal við Tryggvagötu 32.
Þar beið vinstúlka hans eftir
honum við húsvegginn. Svo
óheppilega vildi til, að þegar
pilturinn ætlaði að stöðva bif-
reiðina reyndist mikil hálka vera
á bflastæðinu og rann bifreiðin
áfram. Hún lenti á stúlkunni,
sem meiddist þegar hægri fótur
hennar varð milli stuðarans og
hússins.
legt, áin væri oft lengi að minnka
á haustin.
Haft var samband við Helga
Björnsson jarðeðlisfræðing, sem
sagði að upptök Múlakvíslar væru
á jarðhitasvæði í Mýrdalsjökli,
skammt frá þeim stað sem síðasta
Kötlugos braust upp úr jöklinum
árið 1918. Hann sagði að í sumar
hefði orðið vart við aukinn jarðhita
undir jöklinum og sigdældir mynd-
ast á yfírborði hans þegar jökulísinn
bráðnaði. „Ekkert bendir til að
Kötlugos sé að hefjast, hins vegar
er stöðugt fylgst með þessu svæði,"
sagði Helgi.
Fylgst er náið með jarðskjálftum
á svæðinu, hvort nýir sigkatlar
myndast á jöklinum og tekin sýni
úr ám sem falla úr Mýrdalsjökli.
Sýnin geta gefið til kynna hvort
aukinnjarðhiti bendirtil eldvirkni.
Rófur og broddur úr Flóanum
UPPSKERA úr rófnaakri Samkórs Selfoss var fal-
boðin vegfarendum Austurstræti í gær. Kórfélagar
buðu einnig uppá brodd, kökur, sultur, og heimabak-
að brauð. Þessa mynd tók Ragnar Axelsson ljós-
myndari þegar viðskiptin voru í fullum gangi.
Hallmar
ráðinn leik-
hússtjóri
STJÓRN Leikfélags Reykjavíkur
hefur ákveðið að ráða Hallmar
Sigurðsson sem leikhússtjóra frá
og með 1. september 1987 þegar
Stefán Baldursson lætur af störf-
um.
Að sögn Guðmundar Pálssonar
leikara sem sæti á í stjóm félagsins
þarf samþykki aðalfundar félagsins
fyrir ráðningunni. Verði af henni
er gert ráð fyrir að Hallmar komi
til starfa hjá félaginu upp úr næstu
áramótum.
Fulltrúar matvælainnkaupastofnunar Sovétríkjanna:
Vonast eftir heimild til að
kaupa allt að 200.000 tunnur
Sfldarútvegsnefnd hefur ekki bor-
izt staðfesting á þessu magni
SAMKVÆMT heimildum Morgunblaðsins hafa fulltrúar matvælainn-
kaupastofnunar Sovétríkjanna, Prodintog, látið að þvi liggja í
viðræðum við íslenzka ráðamenn, að þeir séu tilbúnir til að hefja á
ný viðræður við síldarútvegsnefnd og geri sér vonir um heimild til
kaupa á 100.000 til 200.000 tunnum af saltsíld, verkaðri á þessari
vertíð.
Sfldarútvegsnefnd hefur ekki borizt
formleg staðfesting á þessu frá
Prodintorg. Það er því samdóma
álit nefhdarinnar, saltenda, sjó-
manna og útgerðarmanna, að halda
ekki til viðræðna í Moskvu fyrr en
fullnægjandi svör hafan borizt.
Ekki hefur verið skrifað undir
samning um olíukaup, en rætt um
magn og verð. Enginn fyrirsjáan-
legur vandi er talinn við þá samn-
ingsgerð eða undirskrift, annar en
sá að hann tengist úrslitum sfldar-
viðræðna.
„Við höfum ekki fengið stað-
festingu á að Prodintorg hafí til
þessa fengið leyfi fyrir kaupum á
meiru en þeim 40.000 tunnum, sem
legið hefur fyrir í margar vikur,"
sagði Gunnar Flóvenz, fram-
kvæmdastjóri Sfldarútvegsnefndar,
í samtali við Morgunblaðið. „Þetta
staðfestu verzlunarfulltrúamir á
fundi hjá okkur á fimmtudag. Það
er búið að segja okkur vikum sam-
an að Prodintorgmenn gerir sér
vonir um að leyfí verði veitt fyrir
100.000 til 200.000 tunnum, en
viðkomandi aðilar í Sovétríkjunum
segjast ennþá vera að bíða eftir
ákvörðun yfirvalda þar að lútandi
og að þeir vonist til að ákvörðun
um það liggi fyrir fljótlega og senni-
lega í síðasta lagi um 10. nóvember.
Við erum þó að gera okkur vonir
um að Ieyfí fáist eitthvað fyrr, en
slíkt liggur ekki fyrir í dag. Verzl-
unarfulltrúamir lofuðu okkur því á
fimmtudagskvöld að þeir myndu
reyna að fá svör um þetta á föstu-
dag eða mánudag og við eram að
bíða eftir þeim svöram. Eins og
fram kemur í fréttatilkynningu
Sfldarútvegsnefndar á miðvikudag,
era allir hagsmunaaðilar hér ein-
róma þeirrar skoðunar að niður-
staða um magnið verði að liggja
fyrir áður en samninganefnd fer til
Moskvu. Þegar hún liggur fyrir,
eram við að sjálfsögðu reiðubúnir
til viðræðna. Það hefur ekki komið
til neins ágreinings milli Sfldarút-
vegsnefndar og ráðherra í íslenzku
ríkisstjóminni um þetta mál eins
og fram hefur komið í einu dag-
blaðanna," sagði Gunnar Flóvenz.
Líf eyrissj óðimir:
Stefna að því að
hætta beinum lánum
ÞESS er vænst að strax á næsta
ári verði stigin stór skref í þá
átt að hætta beinum lánum
lífeyrissjóðanna til sjóðsfélaga,
samkvæmt því sem segir í frétta-
bréfi Vinnubveitendasambands
íslands.
Sala á tóbaki minnkar enn
Stúlkur reykja meira en piltar - Þriðjungur fullorðinna reykir
EINN af hverjum tiu íslenskum
reykingamönnum segist hafa
snúið baki við ávananum á
þessu ári. Sextíu og fjögur pró-
sent íslendinga á aldrinum
18-69 ára reykja ekki. í könn-
un borgarlæknis á reykingum
barna og unglinga kemur fram
að reykingar eru nú 36% al-
gengari hjá stúlkum en piltum
á gagnfræðaskólaaldri. Reykja
fjórðungi fleiri stúlkur en pilt-
ar, í þessum hópi. Þessar
niðurstöður nýlegra skoðana-
kannana voru kynntar á blaða-
mannafundi Tóbaksvamar-
nefndar, Krabbameinsfélags-
ins, landlæknis og
borgarlæknis í gær.
Að sögn Áma Johnsen hefur
starf Tóbaksvamaraefndar, sem
stofiiuð var með lögum árið 1975,
borið umtalsverðan árangur.
Þetta kemur skýrt fram þegar
reykingar skólabama árið 1974
og 1986 era bomar saman. Fyrir
12 áram sögðust 32% aðspurðra
Nýju áróðurspjaldi gegn tóbaksreykingum verður dreift innan
skamms. Þar segjast þáttakendur i keppninni um titilinn „Fegurð-
ardrottning íslands 1985“ vera í reyklausa liðinu. Tóbaksvamar-
nefnd hefur einnig látið gera myndband þar sem hljómsveitin
Rikshaw flytur baráttusöng gegn reykingum. Hólmfríður Karls-
dóttir, ungfú heimur, og Sif Sigfúsdóttir, ungfrú Skandinavía,
fara með tvö aðalhlutverkanna.
reykja, þar af 22,8% daglega. Við
könnun í apríl sl. sögðust einung-
is 12,6% bama á aldrinum 12-16
ára reykja, þar af 9,2% daglega.
„Tímamót f baráttunni við
reykingamar urðu árið 1984, með
lagasetningu Alþingis" sagði
Ami. „Síðan þá hefur tóbakssalan
minnkað snarlega, um 5,5% árið
1985 og 3% á fyrstu 9 mánuðum
þessa árs.“ Hann sagði að Tób-
aksvamamefnd hefði eflst til
muna þegar henni var markaður
fastur telgustofn sem er nú 2/ioooaf
vergri tóbakssölu. Að sögn Þor-
varðs Ömólfssonar fékk nefndin
á síðasta Q'árlagaári 3,6 milljónir
króna til ráðstöfunar, sem þýðir
að tóbakssalan nam 1,8 milljarði
króna.
Starf Tóbaksvamamefndar
fellst m.a. í útbreiðslu upplýsinga
um skaðsemi reykinga, kynninga
í skólum landsins, og áróðurs í
fjölmiðlum og á vinnustöðum.
„Við vinnum markvisst að kynn-
ingu á skaðsemi tóbaks, og notum
til þess nútíma áróðurstækni"
sagði Ámi. „ Nefndin reynir að
vinna þetta skynsamlega, án for-
dóma. Starf okkar hefur byr, og
þróunin undanfarin ár bendir til
þess að reykingar fari minnkandi.
Á komandi vetri verður hrundið
af stað námskeiðum í heilsu-
gæslustöðum landsins fyrir þá
sem vilja hætta að reykja og um
áramótin byrja námskeið í Ríkis-
sjónvarpinu."
Þar kemur fram að á sambands-
stjómarfundi Sambands almennra
lífeyrissjóða nú á mánudag verði
þessi mál til umræðu.
Ástæður þessa era þær að innan
lífeyrissjóðanna hafa komið upp
hugmyndir þess efnis að eðlilegt sé
að lífeyrissjóðimir dragi úr eða
hætti beinum lánum til sjóðfélaga,
þar sem svo sé litið á að með fjár-
mögnun nýja húsnæðislánakerfisins
sé félagslegu þörfinni fyrir
langtímalán að mestu fullnægt og
að skammtímalán eigi fremur
heima í hinu almenna bankakerfi.
Er sú skoðun ríkjandi innan
lífeyrissjóðanna að hagsmunum
þeirra sé betur borgið með ávöxtun
á almennum peningamarkaði og
þannig skapist nauðsynlegt svigr-
úm til þess að draga úr rekstrar-
kostnaði þeirra.
Er áætlað að ráðstöfunarfé
lífeyrissjóðanna á næsta ári verði
um 6,2 milljarðar króna og af því
renni um 3,4 milljarðar króna til
húsnæðislánakerfísins.
Jón Gauti gef-
ur kost á sér
JÓN Gauti Jónsson bæjarstjóri í
Garðabæ hefur ákveðið að gefa
kost á sér í skoðanakönnun Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi vegna alþingiskosninganna
í vor.
„Þessi tilmæli komu mér á óvart.
Það komu til mín Sjálfstæðismenn
í Kópavogi og spurðu hvort þeir
mættu vinna að því að ég yrði
nefndur í skoðanakönnun flokksins
og ég samþykkti það,“ sagði Jón.