Morgunblaðið - 25.10.1986, Qupperneq 5
ófeGJ EaaoTxo fs sjuoAaaAauAJ ,<naALia»íuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1986
Gunnar Rúnar Matthfasson og Amfríður Guðmundsdóttir.
Vantar í störf,
sem prestar
sinna ekki
- segja þau hjón Gunnar Rúnar
Matthíasson o g Arnfríður Guð-
mundsdóttir, sem útskrifast
sem guðfræðingar í dag
HJÓNIN Gunnar Rúnar Matthíasson og Amfríður Guðmunds-
dótdr útskrifast bœði frá guðfræðideild Háskóla íslands í dag
ásamt fjórum öðrum guðfræðingum.
Blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi við þau stuttlega í gær af
tilefninu og voru þau þá á kafí í
að undirbúa litla veislu, sem þau
sögðust ætla að halda fyrir vini
og ættingja. Þau hjón eru bæði
Norðlendingar, Gunnar Rúnar er
frá Akureyri og Amfríður frá
Siglufirði. Þau sögðust bæði hafa
verið í æskulýðsstarfí á unglings-
árunum og kynnst í gegnum það.
Amfríður flutti suður fyrir níu
ámm síðan til að fara í mennta-
skóla og Gunnar Rúnar kom
fjórum árum síðar og innrituðust
þau þá bæði í guðfræðideildina
og hafa verið samferða í námi sl.
fimm ár.
Þau eru þessa dagana að leita
sér að atvinnu á höfuðborgar-
svæðinu og sögðu að ekki væri
um auðugan garð að gresja í
störfum viðvíkjandi kirkjunni hér
á landi. „Við förum væntanlega
út á hinn almenna vinnumarkað
um tíma og sjáum síðan til hvað
býðst.
„Starfsmannahald kirkjunnar á
eftir að þróast miklu frekar.
Möguleiki er á miklu fleiri störfum
innan kirkjunnar en hér er nú og
mikil þörf er á fólki í fleiri störf
en prestastörfin. Þjóðkirkjan býr
hinsvegar við svo þröngan fjárhag
að ekki hefur gefist kostur á því
að koma upp öðmm embættum
en þessum hefðbundnu prests-
embættum. Það vantar almenna
trúfræðslu bæði fyrir böm og full-
orðna. Auk þess vantar guðfræð-
inga í störf innan kirkjunnar til
að sinna því sem prestamir geta
oft á tíðum ekki sinnt sökum tfma-
skorts.
Það em svo margar leiðir, sem
hafa verið lokaðar þar sem hið
hefðbundna prestastarf er svo
tímafrekt. Menn vilja gjaman
gera meira, en þeir eiga þess ekki
kost eins og málum er nú háttað
þar sem sálgæsla og viðtalsþjón-
usta er orðin meiri hluti starfs
þeirra," sagði Gunnar Rúnar.
Hann sagði að auðvitað væri
það einstaklingsbundið hvað
prestar legðu sig mikið fram í
starfi. Þeir ættu að gefa sér tíma
til að kynnast sóknarbömum
sínum og fylgjast með þeim. „En,
þegar prestar em með 4.000 og
allt upp í 10.000 sóknsirböm, er
augljóst að enginn einn prestur
getur annað sínu starfí svo sómi
sé að. Prestamir verða t.d. að
geta rætt vel við hjónaefnin áður
en hann giftir þau til að undirbúa
hjónabandið, a.m.k. fær maður
alltaf leiðbeiningar og jafnvel
námskeið þegar maður kaupir
hrærivélar eða annað til heimilis
ins,“ sagði Gunnar Rúnar. Það
væri því mum auðveldara fyrir
þau að koma aftur til prestsins
síðar til að leita sér hjálpar ef
eitthvað bjátaði á. Raunin væri
hinsvegar sú að fólk kæmi alltaf
í síðustu lög til prestsins.
Sjálfstæðisflokkur í Reykjaneskjördæmi:
Póstkosning þar sem
hver velur sex nöfn
KJÖRGÖGNUM vegna skoðana-
könnunar Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi hefur verið
dreift og eiga þeir sem taka þátt
í könnuninni að vera búnir að
skila kjörbréfi sinu fyrir 1. nóv-
ember.
Fyrirkomulagið á könnuninni er
það að um póstkosningu er að ræða
og fær hver að skrifa upp sex nöfn.
Ekki er búist við að listinn í Reykja-
neskjördæmi liggi fyrir fyrr en líða
tekur á nóvembermánuð.
Fulltrúaráðsfundur getur
breytt lista kjörnefndar
KJÖRNEFND Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík mun á næstu
vikum ganga frá framboðslista
flokksins í Reykjavík. Er Iqör-
nefndin bundin af niðurstöðum
prófkjörsins í Reykjavík, hvað
varðar fyrstu ellefu sætin á list-
anum. Ekki er búist við að
kjömefnd tfúki störfum fyrr en
í lok næsta mánaðar og að full-
trúaráðsfundur verið kvaddur
saman upp úr þvi.
Sjómannsamband íslands
Öskar Vigfússon
formaður áfram
NÁNAST engar breytingar urðu
á stjóm Sjómannasambands ís-
lands, en stjómarkjör var á þingi
þess í gær. Óskar Vigfússon var
endurkjörinn formaður, Guð-
mundur Hallvarðsson varaform-
aður og Guðjón Jónsson ritari,
allir mótatkvæðalaust. Tveir nýj-
ir menn komu í stjómina.
Stjóm Sjómannasambandsins
verður þvi skipuð eftirtöldum mönn-
um næsta kjörtímabil: Óskar
Vigfússon, formaður, Guðmundur
Hallvarðsson, varaformaður, Guð-
jón Jónsson, ritari, Sigfinnur
Karlsson, Neskaupstað, Þórður Ól-
afsson, Þorlákshöfn, Ólafur Þór
Ragnarsson, Reykjavík, Bárður
Jensson, Ólafsvík, Elías Bjömsson,
Vestmannaeyjum, Hafþór Rós-
mundsson, Siglufirði, Sævar
Gunnarsson, Grindavík, Heiðar
Guðbrandsson, Súðavík, Tryggvi
Leósson, Reykjavík, Rúnar
Grímsson, ísafírði, Guðmundur M.
Jónsson, Akranesi og Sigurbjöm
Bjömsson, Keflavík. Þeir Hafþór
Morgunblaðið/Þorkelí
Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambands íslands
Rósmundsson og Tryggvi Leósson
em nýir í stjóm og koma þeir í
stað Tómasar B. Ólafssonar, sem
er látinn og Kristjáns Elíassonar,
sem skipt hefur um stéttarfélag.
Fulltrúaráðsfundur Sjálfstæðis-
félaganna í Reylq'avík, sem kemur
saman, þegar að kjömefnd hefur
skilað tillögum sínum um 36 manna
framboðslista, er hins vegar ekki
bundin af tillögum kjömefndar, eða
niðurstöðum prófkjörs. Gæti ftind-
urinn gert tillögu um breytingu á
listanum eða gert tillögu um nýjan
lista eða samþykkt tillögu kjör-
nefndar. Verði gerðar breytingartil-
lögur eða komi fram tillaga að
nýjum lista, þarf einfaldan meiri-
hluta fulltrúaráðsfundar, til þess
að slíkar breytingar nái fram að
ganga.
Heppinn
heimsreisu-
farþegi
„OKKUR finnst við heppin að
komast í svona stórkostlega
ferð, en þetta var nú óvæntur
happavinningur,“ sagði Lisa-
bet Davíðsdóttir, sem vann
1.000 dollara í spilakassa á
Hilton-hótelinu í Las Vegas í
vikunni. Þetta var fyrsta til-
raun hennar í fjárhættuspili
og kostaði hana aðeins 5 doll-
ara.
Flestir þátttakenda, eða um
100 talsins, nutu hins ógleyman-
lega útsýnis yfir Grand Cany-
on-gljúfrin, en þau þykja eitt
mesta náttúruundur í heimi.
Hópurinn hélt áfram ferð sinni
til Honolulu á Hawaii, þar sem
dvalist. verður í 10 daga.
(Fréttatilkyiming frá Útaýn.)
Hreinsið teppin
Utleiga á teppahreinsivélum
Margir hafa á undanförnum árum sann-
reynt hversu frábærar teppahreinsivél-
ar við leigjum út. Fyrir jólin er rétt að
panta vél tímanlega ef hreinsa þarf
teppið, sófasettið eða bílinn.
Við bjóðum einungis nýjar, öflugar
hreinsivélar með háþrýstikrafti og frá-
bæru hreinsiefni. ítarlegar leiðbeiningar
fylgja. En hreinsunin sjálf er reyndar
jafnauðveld og ryksugan og þetta er
ódýrara en þig grunar.
Teppa/and Dúka/and
Grensásvegi 13, símar 83577 og 83430
Ath.: Pantanir teknar í síma