Morgunblaðið - 25.10.1986, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1986
Lag Strax Moscow, Moscow fyrst til að vera efst á vin-
sældarlistum beggja útvarpsstövanna:
Plöturnar komu ekki í
verslanir fyrr en 1 gær
skemmtilegur og gefi marga mögu-
leika. „Þessi litur hefur verið
notaður í þúsundir ára og það er
álíka erfítt að fást við þessa liti og
vatnsliti."
„Þetta er litur og form, en fyrst
og fremst tilfinning" segir hann um
myndir sínar. Björgvin er kennari
í Myndlista og handíðaskóla ís-
lands. Hann hefur áður haldið
einkasýningar í Unuhúsi 1968 og
Norrœna húsinu 1975.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Björgvin Sigurgeir Haraldsson við eitt verka sinna á sýningunni.
Kjarvalsstaðir:
„Litur og form, en fyrst
og fremst tilfiiming“
Björgvin Sigurgeir Haraldsson opnar sýningu.
Björgvin Sigurgeir Haraldsson
opnar sýningu á verkum sinum
á Kjarvalsstöðum i dag kl. 14. Á
sýningunni er 64 pastelmálverk
„Flest þessara verka eru unnin á
þessu ári" segir Björgvin „en þau
ná þó yfír 10 ára tímabil og eru
árangur vinnu minnar við pastellit-
inn.“ Hann segir pastellitinn erfíðan
viðureignar, en það sé ekkert varið
í hlutina nema menn þurfi að hafa
eitthvað fyrir þeim. Liturinn sé
hinsvegar óvenjulega hreinn og
IbOÖ
PASTCIGnHSMA
yiTAITIG 15,
1.26020,26065.
Opið í dag kl. 1-3
LAUGARNESVEGUR. Góð ein-
staklíb. 35 fm. Laus. Verð 850
þús.
FRAMNESVEGUR. 2ja herb. íb.
40 fm í tvíbýlishúsi. Sérinng.
Verð 1,3 millj.
ENGJASEL. 2ja herb. 55 fm íb.
Þvottahús á hæðinni. Verð 1,7
millj.
KRIUHÓLAR. 2ja herb. góð ib.
65 fm. Suðvestursv. Verð 1800
þús.
BERGSTAÐASTRÆTI. 2ja
herb. íb. 60 fm á 1. hæð í nýl.
húsi hentar einnig fyrir skrif-
stofur.
HRAUNBÆR. 3ja herb. íb. 96
fm. Verð 2,4 millj.
HVERFISGATA. 3ja herb. góð
íb. 65 fm á 1. hæð. Góður garð-
ur. Verð 1600 þús.
KRUMMAHÓLAR. 4ra herb. íb.
á 2 hæðum. Frábært útsýni.
Falieg íb. Parket. Verð 2,8 millj.
HRAUNBÆR. 4ra-5 herb. íb.
120 fm á 1. hæð. S-svalir. Verð
3 millj.
JÖRFABAKKI. 4ra herb. íb. 110
fm auk herb. í kj. S-svalir.
VESTURBERG. 4ra herb. ib.
100 fm. Verð 2650 þús.
HOLTSBÚÐ. Raðh. á 2 hæöum.
170 fm m. innb. bílsk. Suður
garður. Verð 5350 þús. Skipti
mögul. á góðu einbhúsi í sama
hverfi.
Skoðum og verðmetum
samdægurs
Bergur Oliversson hdl.,
Gunnar Gunnarsson,
HEIMASÍMI: 77410.
LAG Stuðmanna eða Strax, eins
og þeir nefna sig erlendis,
„Moscow, Moscow“, er fyrsta
dægurlagið til þess að vera efst
á vinsældarlistum beggja útvarps-
stövanna, Bylgjunnar og Rásar
2. Lagið hefur náð þessum sessi
án þess að nokkur plata með lag-
inu væri seld í verslunum, því
hingað til lands kom platan fyrst
á fimmtudag og var ekki til sölu
í plötuverslunum fyrr en í gær.
Jakob Magnússon, höfundur lags-
ins, vildi aðspurður ekki gera mikið
úr þessum árangri og taldi skýringu
þessa vera einfaldlega þá, að stutt
væri síðan Bylgjan hefði hafíð út-
sendingar. Aðrir ættu eftir að
endurtaka þetta. „Við vorum að
vinna að sjónvarpsþætti fyrir þýska
sjónvarpsstöð þegar tilkynninginn
um leiðtogafundinn barst út og höfð-
um ætlað okkur að taka lag um
þýska ferðamenn hérlendis í þættin-
um,“ sagði Jakob um tildrög lagsins.
„Fjöldinn allur af fólki skoraði á
okkur að taka lagið „Mitt á milli
Moskva og Washington", sem sent
var í samkeppnina um lag fyrir
Eurovision. En við höfðum aldrei
hugsað það lag fyrir hljómsveitina
og undum okkur því í það að gera
lag um þá sérstöku tegund ferða-
manna, sem eru erlendir blaðamenn.
Lagið var til, það samdi ég fyrr á
árinu og ég, Valgeir Guðjónsson og
Ágúst Baldursson, sem sá um gerð
myndbandsins, sömdum textann og
handritið að myndbandinu á tveimur
klukkustundum," sagði hann enn-
fremur.
Jakob sagði að upptökur hefðu
hafíst strax daginn eftir og upptök-
um við Höfða hefði lokið aðeins
hálftima áður en svæðinu þar um
kring var lokað. Myndbandið með
laginu hefði síðan verið sýnt erlend-
um fréttamönnum í fyrsta skipti
sama dag og leiðtogafundurinn
hófst. Hann sagðist sem minnst vilja
tjá sig um um möguleika lagsins
erlendis, en sagði að það hefði verið
sýnt mjög víða fyrir tilstilli erlendu
sjónvarpsstöðvanna, sem hér voru
vegna leiðtogafundarins.
Vinsældalisti Rásar 2:
Strax enn
á toppnum
VINSÆLDARLISTI Rásar 2 fyrir
vikuna 23.-30. október er svohjjóð-
andi:
1. (1) Moscow, Moscow Strax
2. (8) In the army now Status Quo
3. (3) You can call me A1 Paul Simon
4. (6) Rain or shine Five Star
5. (4) True blue Madonna
6. (2) I just dyed in your arms Cutting
Crew
7. (9) Ive been loosing you A ha
8. (-) Suburbia Petshop boys
9. (5) True colours Cyndi Lauper
10. (7) Wild, wild life Talking heads
Tillögur um nafn
nýja hreppsins
Miðhúsum.
TIL fréttaritara hafa borist bæði
munnlegar og skriflegar tillögur
Leiðrétting
í Lesbók Morgunblaðsins 18.
október sl. fylgir grein Leifs
Sveinssonar mjL mynd af Sölu-
deild Kaupfélags Þingeyinga,
gamla húsinu.
Stendur undir myndinni, að þessi
hús megi muna sinn fífil fegurri.
Myndin er tekin 1982. Þegar grein-
arhöfundur var þama á ferð í
sumar, var unnið af miklum krafti
við endumýjun Söludeildarinnar og
það verk vel á veg komið. Em hlut-
aðeigendur beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
Reykjavík, 20. október.
Leifur Sveinsson.
um væntanlegt nafn á hinum nýja
hrepp i Austur-Barðastranda-
sýslu, þegar hrepparnir fimm
hafa veríð sameinaðir.
Nokkrir hafa bent á nafnið
Þorskaíjarðarhreppur eða Þorska-
fjarðarþing. Hins vegar hafa fleiri
látið þá skoðun í ljósi að hið nýja
hreppsfélag fái nafnið Reykhóla-
hreppur og koma tillögur þess efnis
ekki síst frá hinum hreppunum.
Einnig hefur borist tillaga um það
að gera „Hlíðin mín fríða“ formlega
að hreppssöng hins væntanlega
hrepps.
Væntanlega verður úr því skorið
fyrir áramót hvort af sameiningu
verður, en hreppsnefndir vinna nú
að sameiningarmálum og virðist það
verk ganga vel.
Sveinn
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
SIMAR 21150-21370
SOLUSTJ LARUS Þ VAIDIMARS
LOGM JOH ÞOROARSON HDL
Vorum aö fá í sölu m.a.:
4ra herb. íbúð — laus strax
Á 1. hæð við Kleppsvog rétt við Dalbraut. Af meðal staerð. Sólsvalir.
Ný teppi. Gott rishorb fylgir. Nánari uppl. á skrtfstofunnl.
Lyftuhús — laus strax
3ja-4ra horb. góð fb. af meðal ataarð á vinsælum stað I Vesturborg-
inni. Sólsvalir. Tveggja ára verksmiðjugler. Útsýni. Hentar þeim sem
eiga erfitt með stigagang.
Langholtsvegur — Kríuhólar
2ja herb. stórar og góðar fb. Skuldlausar. Vinsamlegast leitið nánari
uppl.
Nokkur glæsil. einbhús
Raðhús bæði ný og í smiöum i Grafarvogi — Selási og i Breiðholti.
Teikningar og myndir á skrifstofunni.
Á Seitjarnarnesi óskast
Fyrir landsþekktan athafnamann gott einbhús 140-180 fm. Mlkll og
góð útborgun.
Við Unufell — nágr.
Til kaups óskast gott einnar h. raðhús. Rótt eign verður borguð út.
Við Dúfna-, Blika-, Arahóla
Eða í nágr. óskast til kaups góð 4ra-5 herb. íb. Losun I s.l. 1. mars
nk. Rétt eign verður borguð út.
Fjöidl fjáreterkra kaupenda að ib. og öðrum fastelgnum.
Látið Almennu fastaignasöiunna finna fyrir ykkur rétta kaupandann.
Opið í dag laugardag
kl. 11.00-16.00.
Lokað á mánudag
kl. 12.00-16.00.
AIMENNA
FáSIEIGNASALAM
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
Vantar
bíla
skrá
S: 84060
Opið í dag
10-16
Suöurlandsbraut 12
84060 & 38600
svalar lestrarþörf dagsins
á sírtum Mopransl X
Þórhallur
Daníelsson SF:
72,18 krón-
ur fyrir
þorskinn
5 Islenzk fiskiskip seldu afla sinn
í Bretlandi og Þýzkalandi á
fimmtudag. Þau fengu öU gott
verð fyrir aflann, en bezt var
meðalverðið þjá togaranum Þór-
halli Danielssyni frá Höfn í
Homafirði. Hann fékk að meðal-
tali 72,18 krónur fyrir kfló af
þorski.
Þórhallur Danielsson SF seldi alls
88,7 Iestir, mest þorsk í Grimsby.
Heildarverð var 6.271.800 krónur,
meðalverð 70,74. Meðalverð fyrir
þorsk, sem var um 80 lestir, var
72,18. Engey RE seldi 113,6 lestir
i Hull. Heildarverð var 6.433.600
krónur, meðalverð 56,66. 55 lestir
af gráiúðu voru í aflanum og fór
hún að meðaltali á 50,10 kílóið.
Meðalverð fyrir þorsk var 65,83.
Ýmir HF seldi 142,6 lestir í Cux-
haven, mest karfa. Heildarverð var
7.463.000 krónur, meðalverð 52,33.
Hoffell SU seldi 123,2 lestir, mest
karfa í Bremerhaven. Heildarverð
var 6.200.300 krónur, meðalverð
50,32. Loks seldi Vestri BA 71,7
lestir, mest ufsa i Bremerhaven.
Heildarverð var 3.339.900 krónur,
meðalverð 46,55.