Morgunblaðið - 25.10.1986, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1986
Fyrirlestur um
N óbels ver ðlaun
og verðlaunahafa
KNUT Ahnlund, prófessor frá
Svíþjóð, heldur fyrirlestur i
Norræna húsinu sunnudaginn 26.
október kl. 17:00.
Knut Ahnlund fjallar í fyrirlestri
sínum um Nóbelsverðlaunin í bók-
menntum og hvemig sænska
akademían velur Nóbelsverðlauna-
hafa hverju sinni. Hann ætti að
vera öllum hnútum kunnugur í
þessum efnum, hann hefur átt sæti
í akademíunni frá 1983 og hefur
auk þess starfað við Nóbelstofnun
hennar sem sérfræðmgur í bók-
menntum frá 1970. í erindi sínu
ræðir Knut Ahnlund einnig um nýj-
asta Nóbelsverðlaunhafann í
bókmenntum, Wole Soyinka, og ber
þar vel í veiði, þar eð hann mun
svo til óþekktur hér á landi.
Knut Ahnlund er þekktur fyrir
störf sín á ýmsum sviðum bók-
mennta. Hann varði doktorsritgerð
sína um Henrik Pontoppidan við
Stokkhólmsháskóla 1957, kenndi
um skeið notrænar bókmenntir við
háskólann í Árósum og hefur verið
bókmenntagagnrýnandi við
Svenska Dagbladet árum saman.
Þess utan hefur hann skrifað um
rithöfundarferil ýmissa stórskálda,
bæði norrænna og annarra, ma.a.
Nóbelsverðlaunahafans I. Bashevis
Singers.
Fyrirlesturinn hefst sem fyrr seg-
ir kl. 17:00 á sunnudaginn og eru
allir velkomnir í Norræna húsið.
Pétur Jónasson
EUy Ameling
Tvennir tónleikar hjá
Tónlistarfélaginu
FYRSTU tónleikar Tónlistarfé-
lagsins á þessum vetri verða
haldnir í Austurbæjarbiói í dag,
laugardaginn 25. október, og
hefjast þeir kl. 14.30. Pétur Jón-
asson, gitarleikari, mun leika
verk eftir spænsku tónskáldin
Tarrega og Moreno-Torroba,
mexikanska tónskáldið Manuel
M. Ponce og auk þess frumflytja
nýtt verk eftir Kjartan Ólafsson,
Tilbrigði við jómfrú.
Pétur er einn af okkar ungu tón-
listarmönnum sem hefur vakið
athygli í tónlistarheiminum. í sumar
var hann einn af 11 gítarleikurum
valinn úr stórum hópi til þess að
taka þátt í námskeiði hjá André
Segovia í Bandaríkjunum. Fram-
undan hiá Pétri eru tónleikar í
Evrópu, Israel og Bandaríkjunum.
Miðvikudaginn 29. október halda
Elly Ameling, sópransöngkona, og
Rudolf Jansen, píanóleikari, tón-
leika á vegum félagsins. Þesir
tónleikar áttu að vera fímmtudag-
inn 2. október en var frestað vegna
veikinda. Á efnisskránni eru aríur
og sönglög eftir Gluck, Vivaldi,
Debussy, Poulenc og Hugo Wolf.
Elly Ameling hefur fyrir löngu
sungið sig inn í hjörtu tónlistar-
unnenda hér á landi og er hún
ávallt aufúsugestur.
Miðar á báða þessa tónleika fást
í Bókabúð Lárusar Blöndal, í ítóni
Nafn dómarans
NAFN dómara féll niður í frétt
í Morgunblaðinu s.l. fimmtudag.
Það var Friðgeir Bjömsson, borg-
ardómari, sem kvað upp dóminn í
máli Steinunnar Bjamadóttur gegn
Samtökum um kvennaathvarf, þar
sem samtökunum var gert að greiða
Steinunni bætur vegna ólögmætrar,
fyrirvaralausrar uppsagnar hennar.
og við innganginn. Félagið viil taka
fram að miðar þeir, sem seldir voru
á tónleika Elly Ameling 2. október,
gilda á þessa tónleika.
(Fréttatilkynning.)
o
INNLENT
Erla B. Axelsdóttir
„Viðfangsefni myndanna
er lífið í kringum mig“
- segir Erla B. Axelsdóttir, sem opnar myndlistarsýningu á Kjarvalsstöðum í dag
ERLA B. Axelsdóttir opnar
myndlistarsýningu i forsal
Kjarvalsstaða í dag, laugardag.
Á sýningunni eru 52 myndir
málaðar með pastel- og kolum
á undanfömum tveimur til
þremur árum. „Viðfangsefni
myndanna er lífið í kringum
mig. Ég þarf ekki að leita langt
eftir viðfangsef num,“ sagði
Erla þegar blaðamaður Morg-
unblaðsins hitti hana að máli á
Kjarvalsstöðum f vikunni þar
sem hún vann að uppsetningu
sýningarinnar.
Erla sýndi fyrst í Ásmundarsal
árið 1983 og í Norræna húsinu
tveimur árum síðar. Auk þess tók
hún þátt í sýningunni Reykjavík
í myndlist á Kjarvalsstöðum í
sumar og var einnig með einka-
sýningu á ísafirði. Hún segir að
sér sé eðiislægt að mála létt og
lipurt, en þegar verkefnin verði
of auðveld, reyni hún að setja sér
verkefni sem kosti meira átak.
Slík verkefni verði oft kveikjan
að mörgum myndum um sama
temað, þar sem hún reyni að ná
fram ólíkum Iitum og skynjun á
viðfangsefninu. „Ég fór til náms
í Saratoga í New York ríki í
Bandaríkjunum 1984. í náminu
þar var lögð mikil áhersla á að
fara út að teikna. Þetta voru dálí-
tið mikil umskipti frá náminu hér
á landi og eftir að ég kom heim
hef ég gert mikið af því að mála
hversdagsleikann í borginni," seg-
ir hún. Hún bendir á myndröð frá
tjaldstæðinu í Laugardal og segir
að sér hafi þótt andstæðan mikil
milli þeirra og fínu húsana í ná-
grenninu og útlendinganna að
» I( |
elda mat innan um ysinn og þys-
inn í borginni.
„Ég fékk upphaflega áhuga á
myndlist í gegnum föður minn,
Axel Helgason, sem var myndlist-
armaður. Ég fór síðan í Myndlist-
arskólann fyrir tíu árum síðan og
var þar í sex ár og lærði að mála
í olíu undir handleiðslu Hrings
Jóhannessonar. Ég hætti árið
1982 og fór að vinna á eigin
vinnustofu," segir Erla.
Hún er húsmóðir, en segist
nota allar frístundir til þess að
mála. „Fólki finnst að ég afkasti
miklu, en það á sér sínar skýring-
ar. Ég skipulegg tíma minn mjög
vel og mála alltaf 4-5 tíma á dag.
Maður er þó aldrei að fullu laus
við myndlistina, því maður er
sífellt að sjá ný viðfangsefni og
safna hugmjmdum, sem maður
vinnur svo úr þegar tækifæri
gefst. Fjölskyldan ber mikla virð-
ingu fyrir þessari vinnu minni og
ef svo vill til að maður er ekki á
vinnustofunni þá spyija þau: „Af-
hveiju varstu ekki að mála“. Það
er margt sem maður fer á mis
við, þegar maður á sér svona
kröfuhart áhugamál. Þetta geng-
ur ekki öðru vísi og mér finnst
sem ég hafi svikið sjálfa mig, ef
ég hef ekki unnið eitthvað á hveij-
um degi,“ segir Erla.
Hún segir aðspurð um það hvað
það sé sem reki hana áfram, að
myndlistin sé nauðsynlegur hluti
af lífinu. „Ég þakka fyrir hvem
dag, sem ég get gefið mig að
myndlistinni af alhug. Það er dýr-
legt að geta unnið við það sem
maður hefur ánægju af,“ segir
hún.
Sýning Erlu stendur til 9. nóv-
ember og er opin alla daga frá
klukkan 14-22.
Vatnsleysuvík álitleg
fyrir stórt iðjuver
- segir í niðurstöðu staðarvalsnefndar um iðnrekstur
KefUvflc.
STAÐARVALSNEFND um iðn-
rekstur hefur lokið við og gefið
út skýrslu um náttúrufar, minjar
og landnýtingxi á Suðurnesjum.
Úttektin er gerð á norðanverðum
Reykjanesskaga, frá Hvaleyrar-
holti til Hafna.
Nefndin var skipuð árið 1980 og
var henni falið að fjalla um hvar
helst komi til álita að reisa iðjuver
í tengslum við nýtingu á orku og
hráefnaauðlindum landsins. Áður
hafa komið út náttúrufarsrann-
sóknir á vesturströnd Eyjaijarðar,
Húsavík, í Reyðarfirði og Innesium
(höfuðborgarsvæðinu).
„Störf nefndarinnar hófust með
forvali, stuttu heildaryfírliti um þá
staðhætti á íslandi er helst vörðuðu
staðarval orkufreks iðnaðar. Sér-
stök áhersla var lögð á vinumarkað,
hafnarskilyrði, landrými í tengslum
við hafnarstæði og orkuöflun,"
sagði Sigurður Guðmundsson,
formaður Staðarvalsnefndar.
„Seinni áfangi voru staðháttarann-
sóknir og í þeim upplýsingaramma
voru meðal annars athuganir á
vinnumarkaði, lóð, hafnaraðstöðu,
aðstöðu til orkuöflunar, staðbundn-
um auðlindum, félagslegum þátt-
um, umhverfismálum, rekstrarskil-
yrðum og aðstöðu til mannvirkja-
gerðar".
Sigurður sagði að þrír staðir
væru álitlegastir fyrir stórt orku-
ver, eins og Álverið: Vatnsleysuvík,
við Vogastapa og Helguvík. Vatns-
leysuvík væri álitlegust vegna
góðra hafnarskilyrða frá náttúr-
unnar hendi. Þar væru aðstæður
betó en við Straumsvík.
í skýrslunni er fjallað um jarð-
fræði, gróðurfar og dýralíf. „Hvergi
á íslandi er hægt að finna eins fjöl-
breytt fuglalíf og á Suðumesjum,"
sagði Kristbjöm Egilsson, frá Nátt-
úmfræðistofnun Islands, ritstjóri
skýrslunnar. „Fjömmar em ákaf-
lega þýðingarmiklar fyrir farfugla
sem hingað koma ( þúsundatali á
leið til og frá varpstöðvum við
Grænland og á heimsskautaeyjum
við Kanada. Því er brýnt að menga
þær ekki. Ástand gróðurs á svæðinu
er lélegt og þarf að friða það fyrir
beit“.
Kristbjöm sagði að skýrsla þessi
hefði mikið almennt gildi fyrir þá
sem áhuga hefðu á að kynna sér
náttúmfar á Suðumesjum. Skýrsl-
an væri ákaflega aðgengileg með
flölmörgum kortum og skýringar-
myndum.
Skýrslan er prentuð í allstóm
upplagi og er til sölu í bókabúð
Keflavíkur og bókabúð Lárusar
Blöndal í Reykjavík og kostar 400
krónur.