Morgunblaðið - 25.10.1986, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1986
15
Vitni óskast:
Hver ók á hvern
o g hvers vegna?
LÖGREGLAN í Reykjavík óskar
eftir aðstoð almennings við að
upplýsa tvo árekstra.
Fyrra óhappið varð á gatnamót-
um Hringbrautar og Njarðargötu
um kl. 14 á fimmtudag í síðustu
viku. Stór fiutningabíll frá Sanitas
var kyrrstæður á Ijósunum, en
bakkaði síðan lítillega og ók á bláan
Golf, sem var næstur fyrir aftan
hann. Ökumaður flutningabflsins
varð þess ekki var að hann æki á,
svo nú eru hugsanleg vitni beðin
um að gefa sig fram.
Síðara óhappið varð á mánudag-
inn síðasta, en þá rákust saman
bifreiðar af gerðunum Plymouth og
Subaru á ljósunum nýju við mót
Reykjanesbrautar og Breiðholts-
brautar. Óhappið varð um kl. 22:30
og líklegt þykir að einhveijir hafí
séð hvemig það bar að, eða hvem-
ig staða umferðarljósanna var.
Slysarannsóknardeild lögregl-
unnar í Reykjavík þiggur upplýsing-
ar um ofangreinda atburði með
þökkum.
Bæ, Höfðaströnd:
Haustlegt um að litast
SlcagafirðL
SUMARIÐ, sem hefur verið með
ágætum gott er liðið og nú er
orðið nokkuð haustlegt, jörðin
hélugrá allt niður að sjó en ekki
þó meira en svo að geldneytum
er beitt ennþá, þvi að tún eru
loðin eftir gott sumar.
Sláturtíð er að ljúka og er fall-
þungi talinn svipaður og síðast liðið
ár. Kartöfluuppskera er sæmileg
en kartöflurækt er víða stunduð til
heimilisnota en óvíða í stómm stfl.
Heybirgðir em alls staðar nægar.
Smábátaútgerð er nú ekki stunduð
enda veður verið óstillt, sérstaklega
á miðum utan §arðar. Skelfískveiði
liggur niðri og frekar tregt hefur
verið hjá togumm en tveir togarar
Skagfírðinga em nýlega komnir úr
mikilii viðgerð. Undanfama daga
hefur verið gott veður innfjarðar
en IKlega hvassviðri út því mikil
hvika hefur verið við landið.
Björn í Bæ.
Norðdekkrall ’86:
Minnisvarðinn og umhverfi hans.
Minnisvarði um Jóhannes úr Kötlum
Búðardal.
NÚ ER unnið að þvi í Búðardal
að reisa Jóhannesi úr Kötlum,
einu ástsælasta og fjölhæfasta
skáldi þjóðarinnar, minnis-
varða. Gerð hefur verið bijóst-
mynd af skáldinu og mun henni
verða komið fyrir miðsvæðis í
Búðardal á náttúrugijóti ætt-
uðu úr nágrenni Ljárskógasels,
en þar ólst skáldið upp. Guð-
mundur Elíasson, myndhöggv-
ari, hefur gert myndina.
Það var ungmennafélagið Ólaf-
ur Pái sem upphaflega beitti sér
fyrir gerð þessa minnisvarða í til-
efni 75 ára afmælis síns. Margir
hafa sýnt þessu verkefni áhuga,
Jóhannes úr Kötlum
en kostnaðaráætlun skiptir hundr-
uðum þúsunda. í Búnaðarbankan-
um í Búðardal hefur verið opnaður
ávísanareikningur nr. 9240 og em
allir velunnarar skáldsins sem og
burtfluttir Dalamenn hvattir til
að leggja lóð sitt á vogarskálina
til að sjá megi fyrir endann á
þessu stórverkefni, sem kemur til
með prýða hjarta Búðardals um
ókomin ár. ÖUum er ljóst að sá
minnisvarði um Jóhannes úr Kötl-
um sem óbrotgjamastur verður
em ljóð hans, en með þessum
hætti vilja Dalamenn heiðra minn-
ingu skáldsins á heimaslóð.
- Kristjana.
Kynningarsýn-
ing læknadeild-
ar opin á
sunnudag
VEGNA mikillar aðsóknar verð-
ur kynningarsýning læknadeild-
ar, sem opin var síðastUðinn
sunnudag, aftur opinn almenn-
ingi á sunnudaginn kemur, 26.
október, frá klukkan 13-18. Sýn-
ingin er í nýbyggingu við
Vatnsmýrarverg í grennd við
Umferðamiðstöðina.
Á sýningunni em 28 kennslu-
greinar innan læknadeildar kynntar
f máli og myndum og ýmis tæki
em til sýnis. Ennfremur er kynning
á námi í læknisfræði, lyQafræði
lyfsala, sjúkraþjálfun og sýndar em
svipmyndir úr sögu læknakennslu.
Þá er kynning á nýbyggingu lækna-
og tannlæknadeilda.
Nemendum í framhaldssakólum
og efstu bekkjum gmnnskóla er
sérstaklega boðið til þess að koma
og sjá sýninguna.
Þrír í lokaslagnum um
Islandsmeistaratitíl
O
INNLENT
ÞRÍR kappar verða í slagnum
um íslandsmeistaratitiUnn í rall-
akstri i Norðdekkrallinu tun
helgina. Er keppnin sú síðasta á
þessu keppnistímabiU og ræður
úrslitum um hveijir hljóta ís-
landsmeistaratitU ökumanna og
aðstoðarökumanna. Þrir eiga
möguleika á titli ökumanna, tveir
á titli aðstoðarmanna.
Feðgamir Jón Ragnarsson og
Rúnar Jónsson á Ford Escort RS
hafa nauma foiystu í keppninni
með 55 stig hvor, en keppni öku-
manna og aðstoðarmanna er
aðskilin. Annar í keppni ökumanna
er Þórhallur Kristjánsson á Peugeot
Talbot með 53 stig, en hann sigraði
í Ljómarallinu fyrir skömmu ásamt
Gunnlaugi Rögnvaldssyni, sem var
þriðji aðstoðarökumaður hans á
árinu. Sá fyrsti var Sigurður Jens-
son, sem er í öðru sæti í keppni
aðstoðarökumanna. Hann ekur nú
með Hjörleifi Hilmarssyni á Toyota
Corolla, sem er þriðji í keppni öku-
manna með 45 stig. Staðan er því
dálftið flókin, en stigagjöfin í ein-
stökum keppnum er þannig að fyrir
sigur fást 20 stig, annað sæti 15,
Feðgarnir Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson hafa nauma forystu i
íslandsmeistarakeppninni, hafa unnið f tveimur mótum á árinu á
Ford Escort RS.
þriðja 12, fjórða 10 og önnur minna.
Raunverulega veða allir ökumenn-
imir að stefna á sigur, en Jón og
Þórhallur eiga skiljanlega mesta
möguleika og þarf að ganga illa ef
Hjörleifur á að slá þeim við.
Úrslitaáhrif á gang mála gæti
ástand veganna haft. Snjór er á
flestum leiðum, nokkuð sem kepp-
endur hræðast. Þar gæti Porsche
911 Jóns S. Halldórssonar m.a.
reynst skæður í sinni fyrstu keppni,
með vélina afturí yfír drifhjólum.
Jón er staðráðinn í að sigra og víst
er að toppökumennimir hræðast
hann. Tuttugu og einn bfll er skráð-
Ted Arnason endurkjör-
inn bæjarstjóri I Gimli
100 ára afmæli Gimlis á næsta ári
TED Árnason var endurkjörinn
bæjarstjóri í GimU i bæjar- og
sveitarstjórnarkosningum, sem
fram fóru í Manitoba fylki á
miðvikudaginn var. Þeir sem
voru kjörnir bæjarstjórar eða
oddvitar í Nýja-íslandi í þessum
kosningum eru allir af íslenskum
ættum. Þetta er í fjóðra skipti
sem Ted er kjörinn bæjarstjóri í
Gimli og hefur hann nú verið
bæjarstjóri þar i níu ár.
I samtali við Morgunblaðið
kvaðst Ted hæstánægður með
kosninguna. Kosið var á milli hans
og eins annars frambjóðanda og
hlaut Ted 60% atkvæða. „Ætli
maður láti þetta ekki duga og hætti
Ted Árnason.
eftir þetta kjörtímabil. Ég er tólfti
bæjarstjórinn í Gimli frá upphafi
og ætli það sé ekki við hæfi að ég
verði bæjarstjóri í 12 ár. Það er
mátulega langur tími,“ sagði Ted.
Hann sagði að bæjarstjóm hefði
heilmargt á pijónunum. Á næsta
ári yrði haldið upp á 100 ára af-
mæli Gimli— sveitar og væri mikið
verk að undirbúa það. íbúamir í
Gimli vonuðust til þess að forseti
íslands, Vigdís Finnbogadóttir, sæi
sér fært að heimsækja sveitina á
afmælinu.
Með Ted í bæjarstjóm voru kjöm-
ir William Barlow, Gil Strachan,
Harvey Benson og Jack Þorkelsson.
ur í keppnina, sem hefst á laugar-
dagsmorgun við Gúmmívinnustof-
una við Réttarháls og lýkur þar
klukkan 16.00 á sunnudag.
Rásröð keppenda í Norðdekkrallinu:
Víða óánægja
með veiðar
í hringnót
VAXANDI óánægju gætir nú
viða meðal sjómanna vegna veiða
stærri báta i hringnót. Oánægjan
stafar fyrst og fremst af þvi, að
hringnótabátarnir eru ekki
bundnir við 3 mílna mörk frá
landi eins og til dæmis trollbát-
ar. Sjávarútvegsrðauneytinu
hafa borizt nokkur mótmæli frá
sjómönnum vegna þessa, meðal
annars frá suðvestur horni lands-
ins.
Veiðar í hringnót hafa farið vax-
andi að undanfömu og er sjávarút-
vegsráðuneytið þeim fylgjandi,
meðal annars vegna tiltölulega lítils
rekstrarkostnaðar og góðs hráefnis,
en um 97% afla í hringnót fara að
jafnaði í fyrsta gæðaflokk. Vegna
þess mun ekki fyrirhugað í ráðu-
neytinu að breyta gildandi reglum
um þessar veiðar.
Hringnótaveiðar era stundaðar
víða um land, kolaveiðar í Faxaflóa
era bundnar sérstökum leyfum,
veiðar á öðram fiskitegundum í
hringnót era meðal annars stundað-
ar fyrir Suðurlandi, á Breiðafirði
og fyrir Norður- og Austurlandi.
Sjómönnum á trollbátum era þessar
veiðar nokkur þymir í auga, sérs-
taklega vegna þess, að þeir mega
í flestum tilfellum ekki fara nær
landi en þijár mílur, en hringnóta-
bátamir era ekki bundir af því
marki. Mál þetta hefur verið rætt
í sumum fiskideilda Fiskifélagsins
og miklar líkur eru á því að það
verði til umíjöllunar á komandi
fiskiþingi um miðjan næsta mánuð.