Morgunblaðið - 25.10.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARÐAGUR 25. OKTÓBER 1986
21
Háskólínnin
Stærsta fyrir-
tæki landsins
eftírÞórð
Kristinsson
Áríð 1911 áttu rúmlega 60
manns starf s vettvang sinn i há-
skólanum; í dag te\ja þeir sem
að einhveiju leyti sinna þar
starfí, nemendur og kennarar,
u.þ.b. hálft sjötta þúsund. Ekkert
fyrirtaeki á ísiandi hefur slíkan
fjölda starfsmanna, né heldur
er starfsemi nokkurs fyrirtækis
svo fjölþætt sem þar.
En Háskóli íslands er ekki fyrir-
tæki í sama skilningi og t.a.m.
skipafélag eða verksmiðja, hann er
miídu fremur samfélag þar sem
saman er komið fólk hvaðanæva
af landinu til þess að afla sér þekk-
ingar og þroska; í þeim tilgangi
að búa sig undir lífíð og vera í stakk
búið að takast á við framtíðina.
Þar fer ekki fram nein framleiðsla
sem sldlar tilbúnum hlutum, enginn
arður er þar talinn í peningum.
Starfsemin sem þar fer fram hefur
sinn eigin tilgang; arðurinn er til-
gangur í sjálfum sér.
Með almennu orðalagi má segja
að viðfangsefíii háskóla sé þekking
í víðum skilningi, þekking á öllu
því sem varðar manninn og tilveru
hans, á öllu sem hægt er að hugsa
sér. Þar er þekkingar aflað, hún
varðveitt og henni miðlað. Og þekk-
ingin ein og sér hefur engan annan
tilgang né takmark en sjálfa sig.
En um leið er hún einmitt forsenda
þess að við getum tekist á við hvers-
dagslega lífsbaráttu og komist af
í heiminum. Og fyrst og fremst er
hún forsenda þess að við getum
tekist á við framtíðina. Hún kemur
þannig hvarvetna að notum og
skapar um leið þörf fyrir sig og
kallar sífellt á meiri þekkingu. Um
hana má því segja ð hún sé einn
af homsteinum samfélagsins: ann-
arsvegar vegna þess að ekki verður
komist af án hennar í heimi sem
sífellt krefet meiri þekkingar og
kunnáttu og hinsvegar vegna þess
að henni verður ekki grandað.
Það er m.a. af þessum sökum
sem háskólinn var stofnaður og það
er þess vegna sem hann er til og
hefur vaxið og dafnað í samfélagi
og veröld sem tekið hafa stakka-
skiptum á stuttri ævi skólans; og
einmitt þess vegna er hann nauð-
sjmlegur.
Nú vill svo til að þekkingin og
ástundun hennar eiga sér engin
takmörk. Viðfangsefnin sem feng-
ist er við í háskólanum eru því
fleiri en á nokkrum öðrum vinnu-
stað í landinu og reyndar svo möig
og flölþætt að vandkvæðum bundið
er að telja þau öll upp. Þar fer fram
nám og kennsla og margvísleg
vísindaiðkun og rannsóknarstörf
sem beint og óbeint snerta allt sam-
félagið og geta ráðið miklu um
famað þess.
Samkvæmt lögum er hlutverk
háskólans í senn það að vera
vísindaleg rannsóknastofíiun og
vísindaleg fræðslustofnun og er
fræðsluhlutverkinu aftur skipt í
tvennt: að mennta fólk til „að sinna
sjálfetætt vísindalegum verkefn-
um“ og til „að gegna ýmsum
embættum og störfum í þjóðfélag-
inu“. Vísindaleg rannsókn merkir
einfaldlega það að leita sannleikans
hvort sem fræðigreinin heitir sagn-
fræði eða örverufræði. Vísindaleg
fræðsla er leiðbeining í því að leita
sannleikans og er vísindaleg rann-
sókn hinn eiginlegi grunnur sem
slík fræðsla byggir á og getur ekki
án verið. Við háskóla verður þetta
tvennt þvi nauðsynlega að fara
saman.
Og ef við lítum til samfélagsins
þá þjónar háskólinn því með tvenn-
um hætti: með því að mennta fólk
til tiltekinna starfa og embætta í
samfélaginu og hins vegar með því
að mennta það til vísindaiðkana
sem skila sér beint eða óbeint til
samfélagsins. Orð Björns M. Olsen
fyrsta rektors Háskóla íslands, sem
hann viðhafði á stofnunarhátíð há-
skólans 17. júní 1911 í neðrideildar-
sal Alþingishússins, eiga jafnt við
nú eins og þau áttu þá: „Góðir
háskólar eru gróðrarstöðvar
menntalífs hjá hverri þjóð sem er,
sannkallaðar uppeldisstofnanir
þjóðarinnar í besta skilningi...
Yfír höfuð að tala verður það and-
lega gagn, sem góðir háskólar
vinna þjóð sinni, seint tölum talið
eða mælt í ílátum".
Höfundur er prófstjóri við Há-
skóla Islands.
400 manns starfa
með „Hana-nú“
Frístundahópurinn Hana-nú
starfar á vegum Tómstundaráðs
Kópavogs. Skráðir félagar eru
nú um fjögur hundruð manns.
Inntökuskilyrði eru þau ein að
vera orðin fimmtugur Kópavogs-
búi. Engin félagsgjöld eru og
engar kvaðir. Fólk tekur einung-
is þátt í starfseminni þegar það
getur og vill og velur sér þá eitt-
hvað af því sem í boði er hveiju
sinni. Bréf um starfsemina fá
félagar ársfjórðungslega.
Upphaflega var þessi hópur
bundinn við náttúruskoðun. Þegar
þátttaka óx svo mikið sem raun ber
vitni var farið inn á ýmsar aðrar
brautir. Nú er svo komið að fímm
klúbbar eru starfandi innan
Frístundahópsins: Náttúruskoðun-
arklúbbur, Bókmenntaklúbbur,
Hljómplötuklúbbur, Listaklúbbur
og Gönguklúbbur. Að auki eru hald-
in námskeið, farið í leikhús, dags-
ferðir til nágrannabyggða, styttri
ferðir síðdegis á laugardögum o.fl.
Næstu stóraðgerðir í Frístunda-
hópnum eru m.a. „Haustkaup-
stefna" í Félagsheimilinu Fannborg
2, Kópavogi, 2. hæð, sunnudaginn
26. október kl. 15.00 og „Kleinu-
kvöld" verða haldin síðasta
mánudag hvers mánaðar í allan
vetur.
Ferming í
Fríkirkjunni
í fermingarguðsþjónustu í
Fríkirkjunni í Reykjavík á morg-
un, sunnudag, verður fermdur
Kristinn Hilmarsson, Silunga-
kvísl 21 í Reykjavík.
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
________Reykjavík_______
! Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til við-
S tals í Valhöll Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá
S kl. 10—12. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrir-
| spurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum
g boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa.
^ Laugardaginn 25. október verða til viðtals Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson formaður skipulagsnefndar og Þór-
^ unn Gestsdóttir í stjórn umhverfismálaráðs og í
1 samstarfsnefnd um ferðamál.
FALLEGIR FATASKÁPAR Á
SÉRSTAKLEGA GÓÐU VERÐi
Viðja býður nú nýja gerð af fataskápum sem settir eru
saman úr einingum eftir óskum viðskiptavinanna sjálfra
Trésmiðjan Viðja hóf nýlega framleiðslu á
vönduðum og sterkum fataskápum sem eru
afrakstur áralangrar þróunar og reynslu
starfsmanna fyrirtækisins. Þeir byggjast á
einingakerfi sem gerir kaupendunum kleift að
ráða stærð, innréttingum og útliti, innan
ákveðinna marka.
Hægt er að fá skápana í beyki, eik eða hvítu,
með sléttum hurðum. Auk þess eru hvítu
skáparnir fáanlegir með fræstum hurðum
(sjá mynd). Einingaskáparnir frá Viðju eru
auðveldir í uppsetningu og hafa nánast óend-
anlega uppröðunar- og innréttingamöguleika.
Þeir einkennast af góðri nútímalegri hönnun
og sígildu útliti sem stenst tímans tönn.
Stærðir:
hæð: 197 cm eða 247 cm
breidd: 40 cm - 50 cm - 60 cm o.s.frv.
dýpt: 60 cm.
20% útborgun
12 mánaða
greiðslukjör.
Trésmiðjan
viðja
Smiðjuvegi 2 Kópavogi
sími 44444
þar sem
góðu kaupin
gerast.
augljós