Morgunblaðið - 25.10.1986, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1986
Aðeins þriðjimgiu-
Breta vill kjarn-
orkuvopnin burt
London, frá Valdimar (Jnnari Valdimarssyni, fréttaritara Morgunblaðaina.
SAMKVÆMT skoðanakönnun sem breska dagfolaðið Today birti í
dag, er aðeins þriðjungur breskra kjósenda hlynntur þeirri stefnu
Verkamannaflokksins að gera Bretland kjam- orkuvopnalaust.
Stefna sú sem Verkamanna-
flokkurinn markaði í afvopnunar-
málum á nýafstöðnu landsþingi,
hefur sætt harðri gagnrýni úr ýms-
um áttum. Hafa íhaldsmenn til
dæmis óspart sakað flokkinn um
ábyrgðarleysi í utanríkismálum og
varað við afleiðingum þeirrar stefnu
að gera Bretland kjamorkuvopna-
laust. Sú stefna var samþykkt með
yfirgnæfandi meirihluta á lands-
þingi Verkamannaflokksins á
dögunum en nú virðist ýmislegt
benda til þess að flokkurinn hafi
veðjað á rangan hest.
I skoðanakönnun, sem gerð var
á vegum breska dagblaðsins Today
um og eftir síðustu helgi, var með-
al annars leitað álits fólks á því
hvort Bretum beri að losa sig við
öll kjamorkuvopn, burtséð frá því
hvað aðrar þjóðir kjósa að gera í
þessu efni. 59 af hundraði að-
spurðra voru andvígir slíkum
hugmyndum en 31 af hundraði
fylgjandi. Tíundi hver þátttakandi
í skoðanakönnuninni hafði ekki gert
upp hug sinn í þessu máli.
Niðurstöður skoðanakönnunar-
innar um afstöðu lqósenda til
afvopnunarmála hljóta að teljast
töluvert áfall fyrir Verkamanna-
flokkinn og leiðtoga hans, Niel
Kinnock, sem að undanfömu hefur
með oddi og egg varið þá stefnu
að losa Bretland við kjamorkuvopn,
og loka jafnframt bandariskum her-
stöðvum sem hafa að geyma slík
vopn. Kom til dæmis fram í skoð-
anakönnuninni að tæp 40 af
hundraði stuðningsmanna Verka-
mannaflokksins em ósáttir við
stefnu flokksins í þessu máli og
sagði um það bil þriðjungur þeirra
að þetta kunni að valda því að þeir
kjósi ekki flokkinn í næstu kosning-
um.
Fyrrgreind skoðanakönnun sýnir
að fylgi íhaldsflokksins hefur farið
vaxandi að undanfömu og nýtur
flokkurinn nú stuðnings 40 af
hundraði kjósenda samkvæmt
könnuninni. Hefur forskot Verka-
mannaflokksins því minnkað tölu-
vert en 41 af hundraði aðspurðra
kvaðst mundu kjósa flokkinn ef
gengið væri til kosninga nú. Kosn-
ingabandalag fijálslyndra og
jafnaðarmanna býður nú hins vegar
hvert afhroðið á fætur öðru í skoð-
anakönnunum og nýtur nú aðeins
stuðnings 17 af hundraði kjósenda.
Hefur jafnt og þétt dregið úr fylgi
bandalagsins að undanfömu og er
þetta síðasta áfall meðal annars
rakið til óljósrar stefnu og ágrein-
ings innan bandalagsins um ut-
anríkismál.
Ljóst er að íhaldsmenn munu nú
mjög reyna að ganga á lagið og
hamra á því að þeirra flokkur sé
einn fær um að tiyggja ömggar
vamir Bretlands og ábyrga utanrík-
isstefnu. Sjást þess raunar þegar
ýmis merki að málflutningur af því
tagi verði settur á oddinn í baráttu
íhaldsflokksins fyrir næstu þing-
kosningar. Verkamannaflokkurinn
á hins vegar ærinn starfa fyrir
höndum við að reyna að sannfæra
breska kjósendur um að hagsmun-
um Bretlands og framtíð sé best
borgið án kjamorkuvopna. Enn sem
komið er virðist meirihluti Breta á
öðm máli.
AP/Símamynd
Seglbrettasvif
Bandaríkjamaðurinn, Robby Naish, svífur hér hátt yfír öldutoppana,
á seglbretti sínu, í heimsmeistarakeppninni í seglbrettasvifí er fram fer
í Hollandi um þessar mundir og þykir hann Kklegur til sigurs.
Gott verÓ á kræsin
Hálft verd
á heilum
vönim
Útsölumarkaðurinn
í kjallara Nýjabæjar er enn
í fullum gangi og þarhafa verið
teknar upp fjölmargar nýjar vörur,
sem allar seljast á hálfvirði.
Þarfærðu m.a. gjafavörur,
búsáhöld, fatnað á alla fjölskyld
una, barnaskó, leikföng og sælgæti
- og allt á hálfvirði.
Útsalan er opin frá 10-4 í dag.
dag liggur leiðin í Nýjabæ þar sem boðið er upp á
fjölbreytt úrval matvöru og kræsingar á tilboðsverði.
í kjallaranum er útsölumarkaðurinn í fullum gangi og þar
er alltaf verið að taka upp nýjar vörur og selja á hálfvirði.
Uppi er alltfullt af góðum helgarmat. Úr kjötborðinu bjóðum
við Nautavöðva frá SS á sérstöku tilboðsverði og úr fisk-
borðinu bjóðum við m.a. Blandaða sjávarrétti á 394 kr. kílóið
og Ýsu í hollandaise sósu á 289 kr. kílóið. í dag verður einnig
sérstök kynning á Veislukjúklingum frá ísfugli og Roast beef
frá SS. Allir fá að smakka.
Líttu inn í Nýjabæ - opið frá 10-4 í dag.
tSíi
NYI
MiR
VÖRUHÚSIÐ EIÐ/STOfíG/