Morgunblaðið - 25.10.1986, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1
2f7
300.000 Ungveijar flúðu sovéska herliðið:
Flóttamennirnir frá 1956
skreppa heim um helgar
RÚMLEGA 300.000 Ungverjar
flúðu yfir landamærin til Aust-
urríkis eftir að Sovétmenn höfðu
barið niður með hervaldi upp-
reisnina árið 1956. Margir þeirra
fengu austurrískan ríkisborg-
ararétt og hafa komið sér vel
fyrir í aðeins 200 kílómetra fjar-
lægð frá fyrri heimkynnum. Um
helgar keyra þeir yfir landamær-
in, heimsækja gamla vini og
kaupa varning, sem er niður-
greiddur af rikinu.
FYrir tíu til tuttugu árum hefði
þetta verið óhugsandi og Qölmargir
þeirra Ungveija sem dveljast í út-
legð erlendis trúa því tæpast að
mönnum sé óhætt að snúa aftur til
heimalandsins með þessum hætti.
Árum saman var þeim Ungverj-
um sem flúðu yfír til Austurríkis
meinað að heimsækja föðurlandið.
Hins vegar fóru viðskiptasambönd
ríkjanna tveggja stöðugt vaxandi.
Vínarborg var sú miðstöð banka-
starfsemi og kaupsýslu sem
Ungveijar þurftu á að halda eftir
að stjómvöld ákváðu að taka upp
fijálslegri stefnu í efnahags- og
atvinnumálum.
Á meðan ungmenni í öðrum
ríkjum Austurblokkarinnar greiddu
fúslega stórfé fyrir gallabuxur gátu
jafnaldrar þeirra í Ungveijalandi
fest kaup á þeim í næstu verslun
þar sem stjómvöld keyptu fram-
leiðsluleyfí og hófu útflutning á
slíkum fatnaði. Rúbic hannaði ten-
inginn fræga og Ungveijar tóku
að hasla sér völl á sviði töívuleikja.
Einkafyrirtæki fengu að taka til
starfa og markvisst var unnið að
því að fá erlent fjármagn inn í
íandið.
Þá, gagnstætt því sem gerðist
t.d. í Tékkóslóvakíu, varð stjóm-
völdum ljóst að líklega hefðu
Ungveijar sjálfír mestan hug á því
að stunda verslun og kaupsýslu í
Ungveijalandi. Því vom dymar til
vesturs opnaðar og Ungveijum og
Austur-ríkismönnum heimilað að
ferðast á milli landanna án þess að
hafa sérstaka vegabréfsáritun.
Ungverskir ríkisborgarar gátu
starfað erlendis og sest þar að án
þess að eiga á hættu að vera ákærð-
ir fyrir að hafa horfíð úr landi án
tilskilinna leyfa.
Nú er svo komið að fjölmargir
þeirra sem flúðu árið 1956 eiga
ýmis konar þjónustufyrirtæki í
Ungveijalandi sem fjölskyldur
þeirra reka. Austurríkismenn
skreppa yfír landamærín og festa
kaup á ódýmm matvælum og
bensíni. Einnig færist í vöxt að
ERLENT
Bretland:
Ríkisstjórnin andvíg
viðskiptum við Líbýu
- þrátt fyrir andstöðu við refsiaðgerðir
ÞRÁTT FYRIR þá yfirlýstu
stefnu bresku rikisstjórnarinn-
ar, að hún sé í grundvallaratrið-
um andsnúin refsiaðgerðum
gegn erlendum ríkjum, þá beitti
breska samgönguráðuneytið
nýverið, fyrirtæki eitt þar i
landi þrýstingi til þess að það
hætti við að hafa milligöngu
um ráðningu breskra flug-
manna til starfa fyrir libyska
rikisflugfélagið Libyan Arab
Airlines, (LAA) og sagði að
flugmennimir myndu missa
réttindi sín.
Fyrirtækið, Qualitair Engineer-
ing Ltd. sem hefur aðsetur í
Cambridge, í Bretlandi, setti aug-
lýsingu í blaðið Flight Intemational,
í síðasta mánuði, þar sem óskað var
eftir flugmönnum til að fljúga Air-
bus A300 og A310 flugvélum og
aðilum til að annast þjálfun fyrir
þá. En eftir að auglýsingin birtist
gerðu ráðamenn fyrirtækisins sér
grein fyrir því, að þama væri senni-
lega um að ræða tvær Airbus vélar
er flugfélagið, British Caledonian
airline, hafði selt libýska flugfélag-
inu í gegn um ýmsa milligöngu-
menn. Sú sala stríddi gegn
refsiaðgerðum Bandaríkjamanna
gegn Líbyu, þar sem hreyflar vél-
anna eru smíðaðir í Bandaríkjunum.
Yfírmenn Qualitair vildu hafa
sína hluti á hreinu og höfðu sam-
band við samgönguráðuneytið.
David Rowlands, aðstoðarráðherra,
réði þeim eindregið frá því að hafa
milligöngu um þessar mannaráðn-
ungverskir flóttamenn, sem komnir
eru á eftirlaun, flytji sig aftur yfír
landamærin þar sem þeir geta lifað
kóngalífí. Vitaskuld er sælan ekki
alfullkomin. Ungvetjaland er og
verður kommúnistaríki. Þeir sem
snúa aftur heim til föðurlandsins
mega ekki gagniýna stjómarfarið
á opinberum vettvangi. Mörgum
finnst þetta harla lítil fóm svo fram-
ariega sem þeir hafa austurískt
vegabréf í vasanum og landamærin
eru opin.
Byggt á The Observer
Rúmlega 300.000 Ungveijar flúðu til Austurríkis í lgölfar innrásar
Sovétmanna árið 1956. Margir þeirra skeppa nú heim um helgar.
Skýjakljúfur byggður um-
hverfis hús gamallar konu
^ New York, AP.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að reisa
skýjaklúf umhverfis gamalt
íbúðahúss, sem rifið hefur verið
að hluta, þar sem eini íbúi húss-
ins hefur hafnað tilboði um að
rýma húsið.
Forsaga málsins er sú að reisa
átti skýjakljúf á Manhattan-eyju
ofanverðri, en þegar reyndi á samn-
inga við íbúa húss, sem rífa þurfti,
neitaði einn þeirra, fullorðin kona,
þráfaldlega að fara. Hafnaði hún
m.a. 650.000 dollara tilboði gegn
því að flytja út. Samningar tókust
fljótt við aðra íbúa, nær 20 talsins,
og fluttu þeir út í apríl 1984. Var
síðan byijað að rífa húsið en hætta
varð því þegar samningar tókust
ekki við þá gömlu.
Talsmaður byggingafyrirtækis-
ins sagði ekki um annað að ræða
en hefja framkvæmdir og fyrst kon-
an héldi svo fast við sinn keip, sem
hún hefði allan rétt til, þá væri
ekki annarra úrkosta völ en breyta
örlítið hönnun kljúfsins og byggja
í kringum og yfír gamla húsið.
ingar og sagði að þeir bresku
flugmenn er flygju Airbusvélum
myndu missa réttindi til þess að
fljúga í Bretlandi.
Peter Bottomley, framkvæmda-
stjóri Qualitair segir að fyrirtækið
hafí farið eftir tilmælum ráðuneyt-
isins, m.a. vegna þess að það eigi
umfangsmikil viðskipti við Banda-
ríkin, sem það vildi ekki stefna í
hættu. Talsmenn samgönguráðu-
neytisins neita því nú, að hafa
nokkru sinni skipt sér af þessu
máli. Annað fyrirtæki, Intemational
Aeradio Ltd. dótturfyrirtæki
Breska símafélagsins, (British
Telecom), tók að sér þetta verk-
efni, en stuttu síðar hringdi forstjóri
þess til Qualitair og sagðist hafa
fengið samskonar aðvörun frá sam-
gönguráðuneytinu.
Bottomley segir, að fyrr á þessu
ári hafí Qualitair tekið að sér að
sjá um viðgerðir á Fokker Friends-
hip flugvélum líbýska flugfélagsins.
Þá hafí fyrirtækið haft samband
við breska utanríkisráðuneytið til
þess að athuga hvort slíkt væri í
lagi, þar sem bandarísk stjómvöld
hvöttu þá bresku ríkisstjórnina til
þess að taka upp refsiaðgerðir gegn
Líbýu. Starfsmaður ráðuneytisins
hefði sagt að það væri talið mjög
heppilegt, að bresk fyrirtæki hefðu
viðskipti við Líbýumenn, þar sem
það gerði stjóminni betur fært að
fylgjast með þvi sem væri að ger-
ast, á meðan stjómmálasamband
væri ekki á milli ríkjanna.
The Observer
Engin útborgun
TBO
ORION
SANYO
XENON
%,.Husgögn-
"M1
HITACHI
T
Heimilistæki. —
Engin útborgun
og eftirstöðvar á
1 — 11 mánuðum
til handhafa
E
Sjónvarps, video-
og ferðatæki.
IEURO
KREDIT
GAGGEKAU
bára
Club8
Rowenta IGNIS
0] Electrolux
Norsku ajungilak. sængurnar og koddarnir
Opið mánud.-fimmtud. 9.00-19.00.
Föstudaga 9.00-20.00.
Laugardaga 10.00-16.00.
I Eiöistorgi 11 - simi 622200