Morgunblaðið - 25.10.1986, Qupperneq 40
4<y
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1986
Fyrirspum til
fiármálaráðherra
eftirJón G. Bjarnason
Ég fylgdist af áhuga með um-
ræðum á Alþingi, þar sem sjón-
varpað var stefnuræðu forsætisráð:
herra og umræðum um hana. í
sambandi við skattamál, sögðuð
þér, hr. ijármálaráðherra, orðrétt,
að því er Morgunblaðið hermir, svo:
„Þannig má ætla að hjón 'með
tvö böm, sem hafa allt að 60—70
þúsund krónur á mánuði að jafnaði
á þessu ári, muni ekki greiða tekju-
skatt eða útsvar á næsta ári.“
Það sem ég hjó eftir í þessu sam-
bandi er að sagt er „hjón“. Á þetta
að gefa til kynna að ranglætinu
verði áfram haldið þannig að ef um
eina fyrirvinnu er að ræða að þá
verði skatturinn og útsvarið áfram
hærra heldur en ef um tekjuskipt-
ingu er að ræða milli hjóna. Og því
er aðeins miðað við hjón með 2
böm, því ekki skilgreint nánar, ef
um þrjú, já fjögur eða fimm er að
ræða?
Ég spyr vegna þess að ég veit
dæmi til þess að hjón með svipaðar ■
telq'ur greiði mjög mismunandi
skatta eftir því hvort annað eða
bæði hjónanna afla teknanna. Svo
gífurlegt er ranglætið í þessum efn-
um að hjón sem eiga þijú böm
greiða 30% lægri skatta þegar þau
afla bæði teknanna en önnur hjón,’
þar sem maðurinn aflar einn tekn- •
anna og þó eiga þessi hjón fimm
böm.
Teljið þér rétt, hr. fjármálaráð-
herra, að þannig beri að refsa
„Því er aðeins miðað
við hjón með 2 börn,
því ekki skilgreint nán-
ar, ef um þijú, já,
fjögur eða fimm er að
ræða?“
heímavinnandi húsmæðmm fyrir
að gæta bús og bama?
Þessi fimm bama hjón notfæra
sér ekki þá niðurgreiddu þjónustu
sem hið opinbera veitir með dag-
heimilum, vöggustofum og annarri
óteljandi samhjálp sem hið opinbera
veitir, og þessa samhjálp verða
fimm bama hjonin þó að leggja af
mörkum með greiðslu skatta sinna.
Er þetta það réttlæti sem ber að
keppa að í skattalögum?
Ég spyr þessarar spumingar
vegna þess að ég lenti fyrir alllöngu
í ritdeiium við Gáruhöfund Morgun-
blaðsins í sambandi við tvísköttun
hjóna, en kveikjan að þeim skrifum
var ef ég man rétt að mætur klerk-
ur í nágrenni Reykjavíkur benti í
Velvakandagrein á þetta ranglæti,
það er að ef um eina. fyrirvinnu
væri að ræða, þá skyldu skattamir
vera hærri, heldur en ef þeir skipt-
ust á millj hjónanna.
Ritdeilum okkar Gámhöfundar
og mín lauk með því að Gáruhöf-
undur beinlínis rangfærði orð mín
á þann hátt að' ég teldi ekkert vera
heimili nema ef um fimm böm
væri áð ræða, þ.e. sjö manna fjöl-
skyldu, en þær væru nú ekki nema
64 á stórhöfuðborgarsvæðinu.
IJvort þetta á að skiljast þannig að
ekki beri að taka tillit til fjölskyldu-
stærðar við skattaákvörðun, skal
ég ósagt látið, og jafnvel þó þaé
séu nú aðeins 64 fjölskyldur af þess-
ari stærð á stórhöfuðborgarsvæð-
inu, þá er nú víðar „Guð en í
Görðum", og því ekki útilokað að
fleiri fjölskyldur af þessari stærð
finnist á öllu landinu.
Deilum okkar Gámhöfundar lauk
með því að svargrein minni var
neitað í Velvakanda, og því borið
Við að greinin væri of löng, en þó
var mér sagt sitt á hvað til að byija
með þegar ég ræddi við Velvakanda
í síma að greinin yrði birt eða ekki
birt. Það vill nú gamt svo til að því
er ég tel að þá birtist einmitt í dag
grein eftir tvo ritstjóra HP sem er
lengri en grein sú er mér var neitað
um. Já, „skrifið eða hringið til Vel-
vakanda".
Ég er á móti breska málshættin-
um sem segir „Let the devil take
the hindmost", því auðvitað em
ekki allir, jafn snjallir og Sæmundur
fróði er hann hélt burt úr Svarta-
skóla og tét kölska aðeins eftir
skikkju sína en ekki sjálfan sig.
Þessi grein er ekki ætluð til birt-
ingar r Velvakanda (fæst sennilega
ekki birt þar), en ég vænti að rit-
stjóm Morgunblaðsins sjái sér fært
að birta hana.
Höfundur er skrifstofumaður í
Reykjavík.
Þjóðin og kirkjan
eftir Guðmund
Guðgeirsson
Það hefur löngum verið um--
ræða í þjóðfélaginu um kirkju-
byggingar. Á síðastliðnum
áratugum hafa farið fram miklar
skiptingar á stærri sóknum í
Reykjavík og nágrenni. Við það
hefur prestaköllum fjölgað í höf-
uðborginni, en þau em 13 talsins.
Þessi skipting hefur kallað á fleiri
kirkjur og nokkrar em í byggingu
og standa þær framkvæmdir
ævinlega lengi yfir. Þær nýju
kirkjur, sem hafa verið í byggingu
hin síðari ár, em með mjög breyti-
legum stfl og formi, miðað við
hinn ráðandi byggingarstfl kirkna
í gegnum tíðina. Hann verður
ævinlega sígildur og gefur til
kynna með ytri gerð hvaða hlut-
verki hann gegnir í þjónustu sem
ber þau aðalsmerki sem em tum,
kross og bogamyndaðir gluggar
með steindum helgimyndum, sem
minna á boðun kristnidómsins.
Um þessar mundir era fímm kirkj-
ur í byggingu í Reykjavík og ein
í Hafnarfirði. Þær munu ekki eiga
samleið í stil og formi, sem kemur
nánar í ljós með fullbyggðum
verðandi Guðshúsum.
Hallgrímskirkja á Skólavörðu-
hæð í Reykjavík verður höfuðprýði
kirkna þessa lands, en hún ber
hæstan áraijölda í framkvæmd
eða yfir 40 ár, en stefnt hefur
verið að því að vígja hana þann
26. október.
Það verður mikil áfanga- og
dýrðarstund hjá viðkomandi sókn'
og vorri þjóð vegna gmndvaUar
minningar. Vígslan er einkum
tengd minningu séra Hallgríms
Péturssonar, en hann var eitt af
mestu trúarskáldum þessarar
þjóðar, sem er þmngið andlegum
krafti og boðberi lífs og ljóss,
enda hafa hans þjóðkunnu Passíu-
sálmar veitt bíessun og birtu í
hjörtu landsmanna í gegpum.ald-
imar.
Ávallt mun hljóma lífsins mál'
frá helgidómi föður ljósanna, sem
gefur birtu, veitir styrk og frið í
dagsins önn. En kirkjan ér vor
kristin móðir í umboði Quðs, sem1
leiðir vora íslensku þjóð, ;en hún
fagnar vígslu á hinu stærsta
musteri þjóðkirkju þessa lands,
Hallgrímskirkju. Hún mun vera
eitt mesta listaverk í arkitektúr
þessarar aldar. Á sínum stað
kynnir hún sjálf sinn fagra stfl
og listform, þar er vítt til veggja
og hátt til lofts.
Efalaust á krossinn á tumi
Hallgrímskirkju eftir að véra veg-
vísir um haf og byggðir landsins.
Þá mun höfuðborgin verðá fyrir
sterkum áhrifum vegna tignar
kirkjunnar, og tónar lofsöngva
munu heyrast frá einum fegursta
helgidómi borgarinnar með dýrð-
arljóma.
Það er skoðun hinna virtustu
manna og höfundar þessarar um-
fjöllunar,. að sá sem teiknaði
kirkjuna, Guðjón Samúelsson
arkitekt, hafí verið einn af-mestu
og sérstæðustu listamönnum þjóð-
arinnar, enda átti hann mikilvæg-
an þátt í þróun byggingarlistar á
þessari öld. En áhrif kirkjunnar
munu ávallt halda reisn sinni,' hún
er hin tæra lind og græðandi
kraftur, sem leysir vandamál sé
rétt að því staðið. Það verður að
ætla að kirkjan njóti ávallt sam-
stöðu og skilnings hjá' hinni
hamingjusömu þjóð sem býr í
landi, sem er auðugt af lands-
gæðum og náttúmfegurð. Hjá
slíkri þjóð em einnig stjómvitrir
menn, sem vinna að bjartari
framtíð þar sem orðið er fijálst,
en það eykur virðingu þjóðar.
Það mun teljast stórvirki bygg-
Guðmundur Guðgeirsson
„Efalaust á krossinn á
tumi Hallgrímskirkju
eftir að verða vegvísir
um háf og byggðir
landsins.“
ing Hallgrímskirkju, miðað við
þjóðarstærð okkar íslendinga.
Hinn langþráði vígslu- og hátí-
ðardagur mun berast sem stór-
frétt til annarra landa, með heiil
og virðingu hinnar íslensku þjóðar
til langrar framtíðar.
Höfundur er hirskurðarmeistari
í Hafnarfirði.
Lokasvar
til Guðmundar Guðjónssonar
umsjónarmanns Veiðiþáttar
eftír Sigurð Kr.
Jónsson
„Sáuð þið hvemig ég tók hann?“
Þessi frægu orð Jóns sterka úr
Skugga-Sveini Matthíasar komu mér
f hug er ég las ritsmíð þína í Morgun-
blaðinu þ. 4. október sL, og þvílík
ritsmíð.
Greinin er raunar ekki svara verð
því hún einkennist af upphiúpunum
og gífuryrðum sem ekki segja neina
sögu, nema þá að vóndi karlinn fyrir
norðan hafí , verið að stríða litla
mömmudrengnum fyrir sunnan með
því að vera ekki sammála og það er
auðvitað að dómi mömmudrengsins,
„hróplegt óréttlæti, mykjuaustur,
skítkast", og ég man ekki hvað og
hvað.
Svona þvaður virkar hins vegar
ekkert á mig ef þú hefur vonast til
þess. En það var annað sem ég sá
út úr greininni og það er að með
henni viðurkennir þú flest af því sem
ég sagði í minni grein og með það
er ég ánægður. Kannski verður skrif-
að -af meiri sanngimi um Blöndu í
næsta skipti.
En það mátt þú vita, að meðan
rr.enn vilja borga jafn vel og gert er
í dag fyrir stangveiðirétt í Blöndu,
he.i ég ekki trú á að landeigendur
•muni skipta yfir í netveiði.
Þú birtir mynd af „Toby“ með
„tilheyrandi aukabúnaði, sem þér
hefur tekist að ná í eftir krókaleið-
um_“.
Ég má til með að senda þér hér
með úrklippu úr Napp och Nytt, sem
sýnir nákvæmlega sama búnað að
því er mér sýnist, aðeins í annarri
gerð af spæni. Til þess að spara þér
„krókaleiðimar" vil ég benda þér á
að verslunin Veiðimaðurinn við
Tryggvagötu er með umboð fyrir
ABU-vörur á fslandi.
Þú beinir til mín ákveðinni spum-
ingu um óýktar sögur.
Ég veit ekki hvort það þýðir nokk-
uð að skýra það fyrir þér en þó skal
reynt.
Þegar þú skrifar í blað eða bók,
þá skrifar þú aðeins frá fyrstu hendi
um það sem þú hefur sjálfur séð
vðxla mdian t ex spínnare och skeddrag, Dct kan
vara sft smá avvikelscr $om bara ett öga milat pi
betcr, elt stánk av bl&tt eller rött ellcr gult cllcr -
ja. nSstan vilken Jitcn skillnad som heht och turcn
vánder. Mcn för att inte ge upp en dag dá Uct
verkar svirfiskat 'it det vftrt atl lut mcd síg olika
betcn och vcrkligen prova sig fram. ^ ^ .... v
En flugfiskare har pteew Mfflma Íntressanta
problcm att ta iátd - att hitta den rfttu flugan.
Gör Uftrfgíítífi regel att förutotn Uc verkligu exsen
*om Uroppen. Rcílex, Toby och nu scnast F.llips.
de hftr eamlfl fína och bcorös'ade
íángstrikaste gftddbcte. Och fhkar du I valtcn raU oeh nu redan efte
med myckct nate och tftta vassruggar U fmns ju prkkat in sin fángstli)
Atom Giller. u>rsk, mcn ocksá frtr h
De t\i gumla ftrevördiga beiena Kalcva och Den hftr lilla bcskri'
Utö ftr ull-roundbcten kanskc frftmst vid vaiet »v en fingcrvisning om ht
storlck och fárg. Dc smá varianterna lampar sig sitt betessonimcm sá.
, báM för abborre pch áUcllisk under det att de fomi cllcr typ av fisl
större ftr fínfína för gádda. Del ■'nýV' gamfa Fa under fiskcsftsongcn -
voritc Vass (som alluft kommit tillbaka) ftr er. íntc skafl fisklös sft
utmárkt abborrfrcstare. Koster ftr gjort för torsk- I tabellen f"
spinn men gár utmftrkt t>ck»ft íör lax och öring i och priscr.
Giller
Favorit
og/eða tekið þátt í, sögumaðurinn
þinn hlýtur þá að vera í annarri per-
sónu og það sem „hann vissi aðra
gera“ eins og þú segir, er þá þriðja
persóna. En svona lagað þýðir auðvit-
að ekki að segja þér, því þegar þú
sérð enga leið út úr bullinu og enda-
leysunni þá er það afgreitt snarlega
með setningunni „hvað með það“.
Ég dró SVFR ekki inn í þessar
umræður, leitaðu sjálfur og vittu
hver gerði það.
Það var aldrei ætlun mín að standa
í neinum framhaldsskrifum um þessi
mál og mun ég því ekki svara fleiri
ritgerðum.
Lokaorð mín til þín læt ég verða
þessi.
í Morgunblaðinu þ. 5. október sl.
birtir þú athyglisverða grein um
homsflatjöm. Eg held að framvegis
ættir þú ekki að skrifa um stærri
fiska en homsfli, sér í lagi og sérstak-
lega ef þú gætir nú fengið efnið lánað
að einhveijum hluta.
Höfundur er húsasmíðameistari á
Blönduósi.
Mývatnssveit:
*
Kindur
finnast
inniá
öræfum
Björk, Mývatnssveit.
FÉLAGÁR úr björgunarsveitinni
Stefáni í Mývatnssveit fóru fyrir
nokkru suður að Kistufelli í
Vatnajökli til að gera við skála
sem þeir eiga þar. Fundu þeir
'þá fimm kindur við Svartá, sunn-
an við Upptippinga.
Þijár kindanna vom vestan úr
Húnavatnssýslu en tvær austan af
Jökuldal. Strax var bmgðið við og
kindumar sóttar af mönnum héðan
úr Mývatnssveit. Vitað er að þama
hefur fé orðið úti fyrr á ámm og
er fjöldi beina sem þama hefur
fundist til marks um það.
Kristján.
Mikil manna-
skipti hjá
Mývetningum
Björk, Mývatnssveit.
HER í Mývatnssveit hafa orðið
töluverð mannaskipti að undan-
förnu. Arnaldur Bjamason
sveitarstjóri sagði starfi sínu
lausu í sumar og tók við bæjar-
stjórastarfi í Vestmannaeyjum.
Við sveitarstjórastarfinu hefur
tekið Jón Pétur Lyngdal, ungur
og efnilegur maður ættaður úr
Húnavatnssýslu.
Sigríður Einarsdóttir, sem búin
er að vera skólastjóri Tónlistarskól-
ans hér í allmörg ár, sagði því
starfi lausu. í það hefiir nú verið
ráðinn Viðar Alfreðsson. Alls em
46 nemendur í Tónlistarskólanum
í vetur. Pétur Hjálmarsson, sem
búinn var að vera útibússtjóri Kaup-
félags Þingeyinga í Reykjahlíð í
nokkur ár, flutti suður á Selfoss í
haust. I hans stað hefur verið ráð-
inn Barði Guðmundsson frá
Vopnafirði. Umsjónarmaður hita-
og vatnsveitu, Kristinn Gunnars-
son, sagði starfí sínu lausu eftir
eins árs dvöl hér. Við því starfi
hefur nú tekið Úlfar Sæmundsson
frá Akureyri. Þá hefur séra Öm
Friðriksson á Skútustöðum tekið
við sem prófastur Þingeyinga.
Mývetningar senda þessum
ágætu mönnum sem flutt hafa
burtu bestu þakkir fyrir frábær
störf og bjóða hina sem við hafa
tekið velkomna til starfa.
Krístján.