Morgunblaðið - 25.10.1986, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1986
Ólympíuleikarnir 1992
Björn Borg vinnur að því
að Svíþjóð hreppi hnossið
Björn Borg er nú ásamt Silvíu
Svíadrottningu og Ingemar
Stenmark í Lausanne í Sviss, en
þar kemur nú Alþjóðaólympíu-
nefndin saman til þess að ákveða
hvað land skuli halda leikana árið
1992. Svíar róa því nú öllum árum
að bæði vetrar- og sumarleikamir
verði haldnir í Svíþjóð.
í samtali við Aftonbladet sænska
sag-ði Borg m.a.: „Ég hef aldrei
verið viðstaddur Ólympíuleika, en
mig hefur alltaf langað til þess.
Hér á eftir að verða hörð barátta
milli þeirra þrettán þjóða, sem sækj-
ast eftir að fá að halda þá“.
Til þess að vinna nefndarmenn á
sitt band hefur Borg t.d. lýst því
yfír að hann muni leika tennis við
hvem þann, sem einhver áhrif hafí
á niðurstöður nefndarinnar. Til
þessa hefur einn þekkst það boð,
fulltrúi Danmerkur.
í Lausanne er jafnan fjöld ríkra
og frægra iðjuleysingja og hitti
Gina Lollobrigida t.a.m. Borg um
daginn. Hún sagðist alltaf hafa
dreymt um að hitta hann og hældi
tennisleik hans á hvert reipi. Borg
tók þessu af stakri þolinmæði og
sagðist einnig vera aðdáandi henn-
ar. Að vísu hefði hann séð hana
leika tennis, en hann sagði að hún
léki þess betur í kvikmyndum. Að
því loknu tók Gina nokkrar ljós-
myndir af Borg, en hún er mikill
áhugaljósmyndaril.
Af öðmm tennisfélögum Bjamar
Borg má nefna bandaríska leikar-
ann Mark Harmon, sem stúlkur um
víða veröld veikjast í hnjáliðum
vegna. Bjöm hafði sömu orð um
hann: „Góður leikari, en ömurlegur
tennisleikari".
Lee
Lewis
Gina tekur myndir af Borg.
Rokkkóngurinn
Jerry Lee Lewis
er væntanlegur hing-
að til lands á næst-
unni og mun skemmta
gestum veitingahúss-
ins Broadway 6. til
9. nóvember. Eins og
íslenskum rokkaðdá-
endum er vafalaust í
fersku minni kom
Fats Domino hingað
með hljómsveit sinni í
vor og em hljómleikar
Jerry Lee framhald á
þeirri stefnu Broad-
way að fá hingað
gamlar _ kempur
rokksins. í því sam-
rokksins. í því
bandi má nefna að hafnar em
samningaviðræður við þá Chuck
Berry og Little Richard um að koma
hingað til lands.
Jerry eins og hann lítur út í dag
Jerry meðan hann var upp á sitt besta
fclk i
fréttum
Elsta
Hercules-gúmmí-
hárgreiðan
Fyrir skömmu auglýsti heild-
verslunin ISON eftir gamalli
Hercules gúmmígreiðu og hét eig-
anda elstu greiðunnar þyngd
hennar í gulli fyrir.
Greiðan komst í leitimar og var
Sigríður Þorvarðardóttir eigandi
hennar. Sigríður eignaðist greið-
una árið 1940, en hún var smíðuð
árið 1920 og er því 66 ára göm-
ul. Þrátt fyrir að greiðan sé orðin
gömul hefur hún ávallt verið í
notkun og setti Sigríður síðast
permanett í hár með henni fýrir
rúmri viku. i/ercu/es-verksmiðj-
umar hófu fyrst greiðuframleiðslu
árið 1872 og er ekki ólíklegt að
Eigendur ISON, Inga Þyri
Kjartansdóttir og Ingólfur
Steinþórsson, afhenda Sigríði
andvirði gullgreiðunnar.
greiða Sigríðar hafí verið sú fyrsta
af slíkri tegund, er hingað barst.
Þegar ISON auglýsti eftir
greiðunum var látið vita um marg-
ar greiður, en þær reyndust vera
frá 1956 og þaðan af yngri, svo
greiða Sigríðar var langelst. •
Greiða hennar vóg tæp 10 g og
fékk Sigríður greitt andvirði 10
gramma gulls, auk þess sem hún
fékk tvær nýjar greiður sömu teg-
undar, svo hún stæði ekki uppi
verkfæralaus.
Sigríður er hárgreiðslumeistari
og hefur stundað hárgreiðslustörf
frá 1930, en eigin stofu, Hár-
greiðslustofu Siggu og Dídi, setti
hún á fót fyrir 50 árum, árið
1936. Hún stóð við Aðalstræti 6,
þar sem Morgunblaðshúsið stend-
ur nú.