Morgunblaðið - 25.10.1986, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ,
Í^-C
1986
Afsakaðu. Hélt það værí
táragas!
Með
morgunkaffinu
Eftir að hann var á lát-
1 bragðsnámskeiðinu
höfum við fengið miklu
fleiri aukaspyrnur.
HÖGNI HREKKVISI
„ EK 5AMVISKAN AE> ANGRA þlG r*
Apamir í Blómavali
Háttvirti Velvakandi
Ég er hér með tvö mál sem mig
langar að koma á framfæri. Annað
er þakklæti, en hitt skammir. Ég
held ég byiji á skömmunum.
Ég er rosalega hneyksluð á með-
ferðinni á apagreyjunum í Blómav-
ali. Eitt kvöldið var ég þar á ferð,
veðrið var bijálað, hellirigning og
rok. Þakið lak fyrir ofan apabúrið
og apagreyin kúrðu sig upp að hvor-
um öðrum. Ég veit að þeir eru
lokaðir þama í þessu búri fyrir
íslensk böm. En fólk kemst ekki
hjá því að sjá að öpunum líður ekki
vel í þessu búri.
Ég vil biðja starfsmenn Blómav-
als að íhuga þetta mál. Ég held að
besta lausnin sé að svæfa þá, það
er að minnsta kosti alveg sársauka-
laust.
Jæja, nú ætla ég að hætta að
skammast, og skrifa um eitthvað
jákvæðara eins og þetta: Pétur
Bréfritari þakkar Pétri Steini fyrir frábæran þátt á Bylgjunni.
Steinn ég vil þakka þér fyrir æðis-
legan þátt sem er frá klukkan 14.00
til 17.00 á Bylgjunni. Þessi þáttur
bjargar alveg deginum þegar ég er
að læra.
Bylgjuaðdáandi
Endurstofmð þunga-
rokksklúbbinn Skarr
Fyrir skömmu var ég að dytta
að innviðum íbúðar minnar. Þetta
var rétt eftir átta á laugardags-
kvöldið og á slíkum ágætis tíma er
maður yfírleitt í góðu skapi. í út-
varpinu, nánar til tekið á Rás 2,
var þungarokksþátturinn „FM“ og
þar sem ég hef löngum verið þunga-
rokkari _af lífí og sál var ég að
hlusta. í heimsókn hjá Finnboga
var að þessu sinni trommuleikari
hljómsveitarinnar Gypsy sem þótti
ansi efhileg síðast þegar til hennar
heyrðist. Var því illt að heyra hvílík
vandræði hljómsveitin á við að
Víkverji
Heimköllun sovéska sendiherr-
ans frá íslandi hefur vakið
vangaveltur um það, hvort hann,
Evgeny Kosarev, hafí lent í ónáð
hjá Kremlarherrum. í hinu lokaða
stjómkerfí þeirra fæst lfklega aldrei
staðfesting á því, hvort Kosarev er
kallaður heim í ónáð. Á það hefur
verið bent, að sendiherrann fráfar-
andi kunni að bera ábyrgð á því,
að Mikhail Gorbachev kom hingað
til lands á sama tíma og verið var
að setja Alþingi. Þótti þetta einstak-
lega klaufalegt og olli ýmsum
vandræðum. Víkverji leyfír sér að
draga í efa, að Kosarev hafí borið
ábyrgð á þessu. Það var ljóst, að
engir Sovétmenn hér á landi vissu,
hvenær dags Gorbachev myndi
koma, fyrr en flugvél hans var lögð
af stað frá Moskvu. Raunar var
sagt frá því í Morgunblaðinu, að
íslenskir embættismenn hefðu end-
anlega fengið staðfestan tíma á
komu Gorbachevs með því að
hringja til Moskvu eldsnemma sama
morgun og vél hans hélt þaðan.
Það var ekki fyrr en kvöldið áður
en Gorbachev kom til landsins, að
háttsettir talsmenn Sovétstjómar-
innar sögðu það afdráttarlaust, að
Raisa Gorbacheva myndi koma með
manni sínum hingað til lands. Sov-
éska stjómkerfíð er þannig upp
byggt, að leiðtogi þess er svo langt
yfír aðra hafínn, að þeir sitja og
standa eins og honum þóknast,
þegar honum þóknast. Háir sem
stríða en þá vantar bæði æfingahús-
næði og söngvara. Þeir ætla samt
að reyna að halda uppi merkinu og
er það vel, því íslenskt þungarokk
hefíir algerlega horfíð sjónum síðan
Skarr þungarokksklúbburinn
víðfrægi Ieystist upp.
Nú, áfram hélt þátturinn en bráð-
lega sá ég að kvöldið var ónýtt.
Fréttin um að „FM“ hefði verið
sparkað kom eins og reiðarslag og
núna, nokkrum dögum síðar gekk
ég að plötuspilaranum, fleygði Moz-
artskífunni út í hom og setti „In
Rock“ með Deep Purple á. Eftir
skrifar
lágir verða að laga sig að duttlung-
um hinna æðstu manna og bíða
þess fullir undirgefni, hvað þeim
þóknast og hvenær. Fyrir Gorbach-
ev skiptir engu máli, hvort verið
er að setja Alþingi íslendinga eða
ekki, hann kemur þegar honum
sýnist og býr þar sem honum sýn-
ist, en allt fram á síðustu stundu
létu Sovétmenn þannig opinberlega,
að Gorbachev gæti valið um gisti-
stað í Hótel Sögu, sovéska sendi-
herrabústaðnum eða skipi í
höfninni.
XXX
eir, sem fylgdu Raisu Gorbach-
evu á ferðum hennar um
Reykjavík og nágrenni, veittu því
athygli, að sovéska sendiherrafrúin,
sem er fyrrverandi ópersöngkona,
fékk ekki að vera í fylgdarliði leið-
togafrúarinnar. Að sjálfsögðu töldu
þeir, sem skipulögðu ferðir sovésku
gestanna hér á landi, að sendiherra-
frúin yrði við hlið frú Gorbachevu.
Þegar á rejmdi sýndu sovéskir
fylgdarmenn hennar engan áhuga
á því. Víkveija er kunnugt um það,
að íslensku gestgjafamir hafí með
festu fengið því framgengt, að
sendiherrafrúin kom í hádegisverð,
sem íslenska ríkið efndi til. Töldu
ýmsir, að þetta eitt benti eindregið
til þess, að sendiherrahjónin væra
ekki í náðinni f Kreml.
Þá vakti það athygli, að Mikhail
Streltsov, sem var forveri Kosarevs
nokkrar mínútur var ég kommn í
„skriftarstuð". Því segi ég við ykk-
ur gömlu Metalhausar: Hvemig
væri að dagast fram úr kommóðun-
um og reyna að endurstofna Skarr?
Ef það eru einhveijir af gömlu for-
ystusauðunum sem lesa þetta og
líst vel á, af hveiju hittist þið ekki
yfír whiskyglasi og rabbið um
þetta? Að endingu vil ég biðja blá-
eygðu tataradrengina í Gypsy um
að missa ekki móðinn, þið getið
verið vissir um að ég og bamaböm-
in mætum á fyrsta konsertinn.
FÞ
í sendiherraembættinu hér á landi
var túlkur og leiðsögumaður frú
Gorbacchevu í íslandsferðinni. Má
segja að varla hafí verið unnt að
segja starfandi sendiherrahjónum
það með skýrari hætti en þessum,
að þau væru ekki starfí sínu vaxin
að mati yfirboðara þeirra.
X ' X X
Unnið hefur verið að breyting-
um á sovésku utanríkisþjón-
ustunni eftir að Gorbachev tók við
völdum flokksritara. Einhver breyt-
ing hefur orðið á yfírstjóminni að
því er Norðurlöndin varðar og eru
þau ekki jafn einangrað frá öðram
löndum og áður. Kosarev, fráfar-
andi sendiherra, er 67 ára gamall
og því af gamla skólanum miðað
við nánustu samstarfsmenn
Gorbachevs. Áður en hann kom
hingað fyrir tveimur áram hafði
hann verið sendiherra í Luxembúrg
um nokkurra ára skeið. Þótti ýms-
um undarlegt, að maður þaðan
skyldi sendur hingað.
Dagana fyrir leiðtogafundinn
hafði Kosarev sig töluvert í frammi
í íslenskum fjölmiðlum. Mátti ætla,
að hann hefði veralega mikilvægu
hlutverki að gegna við skipulagn-
ingu fundarins hér á landi. Þegar
á reyndi kom í ljós, að svo var ekki,
kannski hefur einhveijum yfír-
manna hans þótt þetta ósæmilegur
slettirekuskapur og fundist best að
kalla hann heim.