Morgunblaðið - 04.11.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986
Úthlutun listamannalauna:
„Sýnir stefnu fjár-
veitinga valdsins til
lista og listamanna“
- segir Birgir Sigurðsson, forseti
Bandalags íslenskra listamanna
stjómvalda virðist neikvæð. í raun
og veru sparast lítið með þessu
því listir og listamenn afla ríkis-
sjóði stórkostlegra tekna með
starfí sínu, t.d. er söluskattur af
bókum 150 milljónir á ári. Ef fjár-
veitingavaldið ætlar sér að hafa
þessa stefnu, þá er það að egna
alla listamenn og listvini á móti
sér og opinberar í leiðinni sitt eig-
ið menningarleysi," sagði Birgir
Sigurðsson.
Grímsnes:
„ÞETTA er kannski skyn-
samleg ráðstöfun ef jafn-
framt verður gert eitthvað
róttækt í málefnum lista-
manna hvað laun varðar,“
sagði Sigurður Pálsson
formaður Rithöfundasam-
bands íslands, en úthlutun-
arnefnd listamannalauna
hefur einróma samþykkt að
mæla með þvi við Alþingi
að felldur verði niður neðri
flokkur listamannalauna. í
fyrra fengu 15 listamenn
úthlutun samkvæmt neðri
flokk, 20 þúsund krónur
hver.
„Þessi laun hafa smátt og smátt
verið að færast í það horf að vera
nánast brandari, að vera að dreyfa
20 þúsund köllum út um allar
grundir," sagði Sigurður. „Þannig
að það er eins gott að sleppa því p. a í* á p , • í -t -t / i
enhafaþennanefriflokkogieggja stefiit ao framleiðslu 1 V2 millioii seiða 2i 2lti i tyrsta atanffa
neðn flokkmn mður. Jafnframt " " 0
Morgunblaiið/SigupSur Jónsson
Gísli Hendriksson bendir á staðinn þar sem nýja laxeldisstöðin á að risa í landi Hallkelshóla.
Fjallalax hf. reisir stóra
seiðastöð að Hallkelshólum
verður að gera átak í málefnum
launasjóðs rithöfunda og starfs-
launum þeirra yfírleitt og þá líst
mér bara vel á þetta."
Birgir Sigurðsson, forseti
Bandalags íslenskra listamanna,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að niðurskurðurinn væri háskaleg-
ur fyrir almenna menningu í
landinu. „Það sér hver maður að
ekki er hægt að standa að listum
ef engir peningar fást til þess.
T.d. er niðurskurður á fjármagni
til Þjóðleikhússins kominn út í
fáránleika vegna þess að ekki er
hægt að búast við því að stofnun
eins og Þjóðleikhúsið geti starfað
einungis af eigin fjármagni. Svona
aðfarir gagnvart Þjóðleikhúsi
þekkjast hvergi í víðri veröld."
Birgir sagði að svona dæmi
sýndu stefnu fjárveitingavaldsins
gagnvart listum og listamönnum.
„Til eru einstaka ráðamenn í
landinu sem eru enn jákvæðir í
garð lista, en hin almenna stefna
Selfossi.
FJALLALAX hf. í Grímsnesi vinnur að því að setja upp stóra og
fullkomna laxeldisstöð að Hallkelshóium í Grímsnesi. Um er að ræða
115 milljóna króna fjárfestingu og ráðgert að framleiða eina og
hálfa milljón seiða í fyrsta áfanga stöðvarínnar.
Aðaleigendur Fjallalax hf. eru
Gísli Hendriksson, Hörður Falsson
ofl. sem eiga 51% í fyrirtækinu og
Seafood development a/s í Noregi
sem á 49%. Framkvæmdir við stöð-
ina eru fjármagnaðar af hálfu af
íslenskum sjóðum og norskum en
íjárfesting í stöðinni nemur 115
milljónum króna.
Aðalbyggingar laxeldisstöðvar-
innar munu rísa á túni ofan við
bæinn Hallkelshóla og stöðin mun
fá til afnota 13,5 ha lands. í landi
Hallkelshóla er bæði heitt og kalt
vatn og er kalda vatnið sjálfrenn-
andi í stöðina, sem er mikið
öryggisatriði.
í fyrsta áfanga stöðvarinnar er
unnt að framleiða eina og hálfa
milljón 45 gramma seiða á ári. I
áætlunum er gert ráð fyrir því að
stsekka stöðina um helming með
2. áfanga. Aðalbygging stöðvarinn-
ar er 2100 fermetra eldishús og tvö
1000 fermetra ketjahús. Auk þess
verður reist skrifstofubygging með
mötuneyti og aðstöðu fyrir starfs-
fólk.
Framkvæmdir við stöðina verða
boðnar út á næstu dögum en þegar
eru hafnar framkvæmdir við 120
fermetra klakhús sem verður í
byggingum sem fyrir eru á staðn-
um. Búið er að leggja uppbyggðan
veg heim að Hallkelshólum þannig
að framkvæmdir geta hafist strax
að loknu útboði.
Gísli Hendriksson, annar íslensku
aðaleigenda Fjallalax hf. og bóndi
á Hallkelshólum verður fram-
kvæmdastjóri stöðvarinnar. Hann
sagði að 12 -14 manns mundu vinna
við rekstur stöðvarinnar. Hún yrði
mjög sjálfvirk þar sem tölvur stjóm-
uðu hitaferli, fóðurgjöf ofl. Einnig
yrði tölvuvakt í stöðinni sem gæfi
merki ef eitthvað færi úrskeiðis sem
sjálfvirknin réði ekki við.
Fullkomið hreinsikerfi verður við
stöðina þannig að vatn sem hún
notar fer ekki frá henni aftur fyrr
en það er orðið hreint. Einnig verð-
ur við stöðina mikið öryggiskerfi
til að forðast að mengun berist að
stöðinni. Hún verður afgirt þannig
að óviðkomandi komist ekki að
henni.
Hjá Gísla í Hallkelshólum er um
búháttabreytingu að ræða því hann
hefur hætt sauðíjárbúskap, var með
um 300 fjár, og snýr sér nú alfarið
að laxeldinu. Sig. Jóns.
Kjötmiðstöðin kaup-
ir Yeitingamanninn
EIGANDI Veitingamannsins hf.,
fór fram á gjaldþrotaskipti í
síðustu viku. Nú hefur verið
gengið frá því að Kjötmiðstöðin,
sem er í eigu Hrafns Bachmans,
kaupi og yfirtaki rekstur Veit-
ingamannsins. „Sem stærsti
kröfuhafi í þrotabúið taldi ég
vænlegast að kaupa fyrirtækið,
og styrkja þar með rekstur Kjöt-
Uni því illa að vera björg-
unarbátur fyrir Eggert
- segir Árni Johnsen, alþingismaður
„ÉG er ánægður með að hafa fengið næstflest atkvæði í þessari
könnun þótt ég hafi ýmislegt við gang málsins að athuga“, sagði
Árni Johnsen, alþingismaður, sem lenti í þríðja sæti í skoðanakönn-
un trúnaðarmanna Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi.
„Á kjördæmisráðsfundi Sjálf-
stæðisfélaganna á Suðurlandi í
októberbyijun, þar sem sú leið var
valin, að efna til skoðanakönnunn-
ar meðal þröngs hóps trúnaðar-
manna um skipan lista til næstu
alþingiskosninga, kom það fram
hjá öllum ræðumönnum að engin
ástæða væri til að breyta röð
þriggja efstu manna á listanum
og hafa menn þá ugglaust haft í
huga niðurstöður úr all íjölmennu,
opnu prófkjöri fyrir þremur árum,
þegar skipan efstu manna varð
mjög afgerandi miðað við það að
við Þorsteinn Pálsson, sem kom-
um þá inn í kosningu sem fulltrúar
Amessýslu og Vestmannaeyja,
áttum í harðri samkeppni við tvo
aðra menn á þeim svæðum, en
Eggert Haukdal, sem hafði nærri
frítt spil í Rangárvallasýslu lenti
samt í þriðja sæti. Nú átti svæða-
skiptingin hins vegar að vera úr
sögunni.
Fyrir skoðanakönnunina nú
barðist Eggert Haukdal hins veg-
ar hatrammlega fyrir því meðal
trúnaðarmanna, að hann fengi
annað sætið, sem ég sit í, en ég
þriðja sætið, því það myndi tapast
ef hann væri áfram í því. Bar
hann því við, ásamt ýmsum öðrum
að ég væri líklegri til að halda
sætinu. Meirihluti trúnaðarmanna
virðist hafa verið sammála Eggert
um þetta atriði, en þrátt fyrir svo
góð meðmæli, taldi ég þennan
áróður út í hött, þótt ég fengi
ekki rönd við reist, enda hafði ég
lítinn tíma til að vinna að fram-
boði mínu, svo bundinn sem ég
var við störf í ljárveitinganefnd.
Að auki lék þröngur hópur manna
í Vestmannaeyjum mjög gráan
leik til að losna við mig úr öðru
sæti án þess að hafa nokkur rök
eða ástæður til þess, sem eru skilj-
anlegar venjulegu fólki.
Ég uni því hins vegar vel að
fá næstflest atkvæði í skoðana-
könnuninni á eftir Þorsteini
Pálssyni, 235 atkvæði, mun fleiri
en Eggert Haukdal. í skipan sæta
er ég að sjálfsögðu ekki sáttur
við að vera metinn eins og gúmmí-
björgunarbátur fyrir Eggert
Haukdal, en kjördæmisráð á eftir
að ákveða endanlega skipan fram-
boðslistans og þar mun ég segja
mína skoðun í málinu. Ég fagna
traustri kosningu Þorsteins Páls-
sonar og ágætri kosningu Amdís-
ar Jónsdóttur í fjórða sætið.
Eftir niðurstöður skoðanakönn-
unarinnar hef ég fengið mikla
hvatningu og baráttukveðjur frá
fjölda fólks, bæði uppi á fasta-
landinu og úti í Eyjum. Ég er
þakklátur fyrir þann stuðning,
það er gott og hlýlegt að fínna
hljómgrunn hjá fólki úr ótrúleg-
ustu áttum", sagði Ámi Johnsen.
Sjá viðbrögð annarra fram-
bjóðenda á bls. 4.
miðstöðvarinnar. Ég tel að
Veitingamaðurinn bjóði upp á
mjög arðvænlegan rekstur,"
sagði Hrafn.
Hrafn sagði að Veitingamaður-
inn hefði jafnframt verið stærsti
viðskiptavinur Kjötmiðstöðvarinn-
ar, og hefðu fyrirtækin átt mikla
samvinnu um kjötvinnslu. „Yfir
1000 aðilar versla á hveijum degi
við Veitingamanninn. Sem áður
verður það okkar takmark að bjóða
rétti frá 100-150 krónur skammtinn
upp í 5 stjömu veislumat,“ sagði
Hrafn. „ Auðvitað munu vissir erfíð-
leikar há okkur fyrst í stað en ég
vona að lánardrottnar mínir sýni
biðlund. Ekki getur maður treyst á
bankakerfið, því það virðist ekki
tilbúið að styrkja einstaklinginn í
þessu landi." Hrafn sagðist í fram-
tíðinni hyggja á endursölu Veitinga-
mannsins, og sæi fram á mikla
möguleika að skapa verðmæti í fyr-
irtækinu.
BÍ mótmælir
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi samþykkt er gerð
var á framlialdsaðalfundi Blaða-
mannafélags íslands 18. október:
„Framhaldsaðalfundur Blaða-
mannafélags íslands, haldinn 18.
október 1986, mótmælir harðlega
ákvörðun stjómar Hjálparstofnunar
kirkjunnar um að neita að veita
Helgarpóstinum, einum fjölmiðla,
aðgang að upplýsingum um starf-
semi og málefni stofnunarinnar.
Fundurinn telur að þessi vinnu-
brögð geti á engan hátt samrýmst
hlutverki stofnunarinnar og hvetur
stjómina til að endurskoða þessa
afstöðu tafarlaust."