Morgunblaðið - 04.11.1986, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 04.11.1986, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986 63 „Staðfestir hvaðkarla- ^ Morgunblaðið/Þorkell Fóstrur héldu blaðamannafund í eær þar sem þær kynntu ástæður fyrir uppsögnum sinum. Frá vinstri eru Elín Mjöll Jónasdóttir, Ásdís Olafsdóttir, Arna Jónsdóttir, Margrét Pála Olafsdóttir, Elísabet Auðuns- dóttir og Fjóla Björgvinsdóttir. Hópuppsagnir hjá fóstrum í Reykjavík: „Leggjum af stað í langa baráttu“ - segir formaður kjaranefndar Fóstrufélagsins UM 80% fóstra sem vinna hjá ríki og Reykjavíkurborg hafa sagt upp störfum sínum frá og með 1. nóvember til að leggja áherslu á launakjör sín og segj- ast þær ekki snúa aftur til starfa nema grunnlaun þeirra stór- hækki og viðverutími þeirra verði leiðréttur. Fóstrufélag ís- lands er innan BSRB og sjá starfsmannafélög ríkisins og Reykjavíkurborgar um samninga fyrir fóstrur sem starfa hjá þess- um aðilum Alls starfa 328 fóstrur við dag- vistarheimili sem ríki og Reykjavík- urborg reka fyrir um 4300 böm og hafa 260 fóstrur sagt upp störfum, þar af um 73% af forstöðumönnum heimilanna. Stærstur hluti þeirra vinnur hjá borginni. Á blaðamanna- fundi sem kjaranefnd Fóstrufélags- ins hélt til að kynna uppsagnimar kom fram að til þessara aðgerða var aðallega gripið vegna óánægju með laun, en byijunarlaun fóstra hjá ríki og borg em nú 27.637 krón- ur á mánuði. í sveitarfélögum úti á landi hafa fóstmr hinsvegar náð leiðréttingum á laun sín gegnum starfsmat og sérkjarasamninga. Þannig má nefna að byijunarlaun deildarfóstra em 32.525 krónur á mánuði á Akureyri og 35.009 krón- ur á mánuði í Vestmannaeyjum. „Það er mikill þungi í þessum aðgerðum og við leggjum af stað í löng átök „ sagði Margrét Pála Olafsdóttir formaður kjaranefndar Fóstmfélagsins „Við leggjum áherslu á að gmnnlaun verði stór- hækkuð, undirbúningstími okkar verði aukinn og viðvera leiðrétt. Það hefur verið farið fram á að gert yrði starfsmat á störfum fóstra, sem hlýtur að vera eðlileg leið , en því hefur ekki verið sinnt. Einnig bundum við vonir við samþykkt borgarstjómar um mat á störfum kvenna en sú samþykkt er ekki komin til framkvæmda enn“ borgar verða uppsagnir fóstranna lagðar fyrir borgarráð innan skamms sem síðan hefur mánuð til að ákveða hvort uppsagnarfrestur- inn verði framlengdur. Indriði Þorláksson formaður samninga- nefndar ríkisins sagði í samtali við Morgunblaðið að um fóstmr gildi samningar sem gerðir vom fyrr á þessu ári og gilda til ársloka og ekki yrði fjallað um launamál þess- arar stéttar nema í tengslum við samningana. veldið er sterkt“ - segir Dóra Gunnarsdóttir „MÉR líka úrslitin ágætlega, enda bjóst ég ekki við því að komast svona nálægt körlunum" sagði Dóra Gunnarsdóttir sem verður í fimmta sæti á lista Sjálf- stæðisflokksins í Austurlands- kjördæmi. „Niðurstaðan staðfestir hinsvegar hversu karlaveldið er sterkt. Hvort sem það er á Austfjörðum, eða annar- staðar, þurfum við konur að hafa þrisvar sinnum meira fyrir hlut- unum en karlar.“ Dóra sagðist vera mótfallin pró- kjöri, og vonaði að þetta yrði það síðasta sem flokkurinn héldi í kjör- dæminu. „Við ættum að geta komið okkur saman um hvemig listinn eigi að vera. Það sést greinilega á þáttöku fólksins að það nennir eng- inn að standa í þessu." Hún sagðist vera stuðningsmönnum sínum inni- lega þakklát. „Ég vona bara að fleiri konur gefí kost á sér næst,“ sagði Dóra. „Prófkjör í þessu formi eru ekki skynsamleg“ - segir Sverrir Hermansson „ÞETTA eru góð úrslit, skinandi úrslit," sagði Sverrir Hermans- son sem verður í fyrsta sæti á framboðslista Sjálfstæðismanna í Austurlandskjördæmi. „Ég hef jafnan fengið góðan stuðning í prófkjörum, og þarf ekki að kvarta. Hinu er ekki að leyna að mér er ekki að skapi að þátttak- an skuli bundin við flokksmenn. Mér finnst engin ástæða til þess að heimta af trúum og dyggum stuðningsmönnum okkar í fjöl- mörg ár að þeir gerist flokks- bundnir til að taka þátt. Prófkjör í þessu formi eru ekki skynsam- leg.“ Sverrir sagði að Austfirðingar mættu hrósa happi, því úrslit úr prófkjörum hefðu aldrei skapað vandamál. „Við erum undantekn- ingin sem sannar regluna, því á sumum stöðum eru próflqorin til stórbölvunar. Það er langt síðan ég lagði til að prófkjör yrðu sett í lög og haldin undir lögregluvemd. Allir flokkar yrðu skyldugir til að halda prófkjör og þau yrðu öll á einum kjördegi. Niðurstaðan yrði síðan bindandi að vissu marki. Þetta er hefur verið mín hugmynd." „Málefnaleg staða listans mjög góð“ - segir Kristinn Pétursson „ÉG vil fyrst og fremst koma á framfæri þakklæti til minna stuðningsmanna. Úrslitin urðu mjög ánægjuleg,“ sagði Kristinn Pétursson sem verður í 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Aust- urlandskjördæmi. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Austurlandi: Framboðslistinn sam- þykktur einróma Að sögn Jóns starfsmannastjóra Kristjánssonar Reykjavíkur- PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins í Austurlandskjördæmi var hald- ið um helgina, og lauk talningu á sunnudagskvöld. Kjörnefnd gerði tillögu um röðun á fram- boðslista til kjördæmisráðs, í „Breytingunum fylgir ferskleiki“ segir Egill Jónsson „UM þennan lista er ekkert ann- að en gott að segja“ sagði Egill Jónsson sem verður í 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokks- ins á Austurlandi. „Listinn er sigurstranglegur - ákveðnar breytingar urðu á honum og mjög gott fólk er í áhrifasætum neðar á listanum. Því fylgir ferskleiki.“ Egill tók undir orð annarra fram- bjóðenda um að prófkjörin væru lent á villigötum. „Ég held að það sé ekki til eftirbreytni að krefjast þess af fólki að það undirriti stuðn- ingsyfirlýsingu eða gangi í flokkinn. Það heldur örugglega aftur af stór- um hópi stuðningsmanna, en hindrar þó ekki að aðrir gangi til verka," sagði Egill. „Auðvitað eru þessi viðhorf metin hveiju sinni þegar fjallað er um framboðsmál. Hvað kann að henta eftir fjögur ár verður að sjálfsögðu tekið til athugunar þá.“ samræmi við úrslit í prófkjörinu. Listinn var samþykktur einróma. Efsta sætið á framboðslistanum skipar Sverrir Hermannson, menntamálaráðherra. Hann fékk 447 atkvæði í fyrsta sæti, en 678 atkvæði í 1.-5. sæti. Egill Jónsson, alþingismaður, er í öðru sæti, með 239 atkvæði í 2. sæti og 348 at- kvæði í 1.-2. sæti. Kristinn Pétui son, Bakkafirði, er í þriðja sæti, með 342 atkvæði í 1.-3. sæti og 528 atkvæði í 1.-5. sæti. Hrafnkell A. Jonsson, Eskifirði, er í ijórða sæti, með 397 atkvæði í 1.-4. sæti, en 488 atkvæði í 1.-5. sæti. Dóra Gunnarsdóttir, Fáskrúðsfirði, hafn- aði í 5. sæti með 400 atkvæði. Atkvæði greiddu 844, en 33 kjörseðlar voru ógildir. Samkvæmt ákvörðun kjördæmisráðs verður röð næstu manna þessi: Theodór Blönd- al, Seyðisfirði, 6. sæti, Laufey Egilsdóttir, Fellabæ, 7. sæti, Pétur Stefánsson, Garðabæ, 8. sæti, Stella Steinþórsdóttir, Neskaups- stað, 9. sæti, og Baldur Pálsson, Breiðdalsvík, 10. sæti.' Kristinn sagði að málefnaleg staða listans yrði án efa mjög góð í næstu kosningum. „Ég er ákaflega sáttur við röðun manna á listann," sagði Kristinn. „í fyrsta sæti er Sverrir Hermansson, ótvíræður leiðtogi Sjálfstæðismanna á Aust- urlandi. Næstur honum kemur Egill Jónsson sem hefur um langa hríð verið með fremstu mönnum á sviði landbúnaðarmála, ég er í þriðja sæti sem fulltrúi sjávarútvegsins og í fjórða sæti er Hrafnkell A. Jónsson sem auk þess að vera for- maður verkalýðsfélagsins á Eski- firði er formaður bæjarstjómar þar. Þetta er því sterkur og málefnaleg- ur listi.“ Tveir kjördæma- kjörnir þingmenn í næstu kosningnm - segir Hrafnkell Jónsson „HVAÐ varðar sjálfan mig get ég ekki verið annað en mjög án- ægður með þessi úrslit og ég vil koma á framfæri þakklæti til stuðningsmanna minna“, sagði Hrafnkell Jónsson, sem skipar fjórða sæti á lista Sjálfstæðis- flokksins í Austurlandskjördæmi. Hrafnkell kvaðst telja listann sig- urstranglegan og ekki draga í efa að Sjálfstæðismenn á Austurlandi fengju tvo kjördæmakjöma þing- menn í næstu kosningum. FAE kúlu- og rúllulegur pEl<' KlNG REVI pJÓN SUÐURLANDSBRAUT SÍMI 84670
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.