Morgunblaðið - 04.11.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986
5
Gísli Ólafsson formaður kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesi:
Niðurstöður könnun-
arinnar ekki bindandi
GÍSLI ÓLAFSSON formaður
kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins
í Reykjaneskjördæmi sagði í
samtali við Morgnnblaðið í gær,
að kjörnefnd kæmi saman til
fundar á nýjan leik í kvöld, og
þá yrði tekin afstaða til óska
forystumanna Sjálfstæðisflokks-
ins í kjördæminu um að niður-
stöður skoðanakönnunarinnar
yrðu gerðar opinberar.
Gísli var spurður hvort það hefði
hvarflað að þeim í kjömefndinni að
hægt yrði að halda niðurstöðum
leyndum: „Það hvarflaði að okkur
og ástæður þess eru þær að við
vorum á kjördæmisráðsfundi, þar
sem samþykkt var að fella niður
prófkjörið. Á þeim fundi var jafn-
framt samþykkt að fela kjömefnd
að hafa skoðanakönnun meðal
þeirra aðila, sem gert var. Þar var
einnig kveðið skýrt á um að niður-
staða þeirrar könnunar væri ekki
bindandi, hvorki fyrir kjörnefnd né
kjördæmisráð og með hana ætti að
fara sem trúnaðarmál."
Gísli sagðist margsinnis hafa
ítrekað við fundarmenn, á meðan á
talningu stóð, að farið yrði með
niðurstöður sem trúnaðarmál. „Eg
treysti því að þeir 21 sem þama
vom, myndu virða þann trúnað sem
átti að ríkja, en varð því miður fyr-
ir vonbrigðum og ég er mjög sár
yfir þessum trúnaðarskorti," sagði
Gísli.
Gísli var spurður hveijar væm
ástæður kjömefndar, fyrir því að
setja Gunnar G. Schram í fímmta
sætið á listanum, þ.e. í sæti það sem
Víglundur Þorsteinsson fékk í skoð-
anankönnuninni: „Ég lít á 6. sætið
sem baráttusætið, og tel að það sé
miklu nær, að hafa í því sæti nýj-
an, ferskan mann, því þess er að
vænta að hann nái atkvæðum, sem
flokkurinn ætti ekki vís ella. Eg
taldi því að þessi röðun væri sterk-
ust fýrir flokkinn, og mín tillaga
var samþykkt," sagði Gísli.
Gísli sajgðist þess fullviss að til-
lögu kjömefndar um uppröðun
listans, yrði ekki breytt, og að list-
inn yrði eins og nefndin legði til í
næstu kosningum.
Niðurstööur
skoðanakönnunar
sj álf stæðismanna
í Reykjanesi
1. Matthías Á Mathiesen,
utanríkisráðherra 442
2. Ólafur G. Einarsson,
alþingismaður 425
3. Salome Þorkelsdóttir,
alþingismaður 420
4. Ellert Eiríksson,
sveitarstjóri 319
5. Víglundur Þorsteinsson,
formaðurFÍI 259
6. Gunnar G. Schram,
alþingismaður 256
Skoðanakönnun Sjálfstæðisflokks á Reykjanesi:
Gunnar G. Schram féll
úr öðru sæti í það sjötta
Kjörnefnd bauð honum 5. sætið og hann þáði boðið
TALSVERÐRAR ólgu gætir nú meðal sjálfstæðismanna í Reykanes-
kjördæmi, eftir skoðanakönnun meðal stjórna og trúnaðarmannaráða
sjálfstæðisfélaganna i Reykjaneskjördæmi. Samkvæmt skoðanakönn-
uninni, sem ekki var bindandi fyrir kjörnefnd, voru alþingismennirnir
Matthias Á. Mathiesen, Ólafur G. Einararsson og Salóme Þorkels-
dóttir i þremur efstu sætunum, og var mjög lítill munur á þeim,
hvað atkvæðamagn varðar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins varð Matthías í fyrsta sæti
með 442 atkvæði, Ólafur í öðru
sæti með 425 atkvæði og Salóme
í þriðja sæti með 420 atkvæði.í
fjórða sæti varð Ellert Eiríksson,
sveitarstjóri í Garðinum, með 319
atkvæði, í fimmta sæti Víglundur
Þorsteinsson formaður Félags
íslenskrar iðnrekenda, með 259 at-
kvæði og í sjötta sæti varð alþingis-
maðurinn Gunnar G. Sehram, með
256 atkvæði.
Kjömefnd hefur hins vegar boðið
Gunnari G. Schram 5. sætið á fram-
boðslista flokksins í komandi
kosningum og hefur hann þegið það
boð. Gerir kjörnefndin tillögu um
það til kjördæmisráðs að listinn
verði þannig skipaður. Víglundur
hefur ekki gert upp hug sinn, hvort
hann þekkist það að þiggja 6. sæti
á listanum, en kjörnefndin bauð
honum 6. sætið. Hann sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að
hann myndi ekki gera upp hug sinn
til þess hvort hann tæki sæti á list-
anum, fyrr en kjömefnd hefði
opinberað niðurstöðutölur skoðana-
könnunarinnar.
Gunnar G. Schram alþingismað-
ur sagði í gær, er hann var spurður
álits á niðurstöðum skoðanakönn-
unarinnar: „Það varð hér breyting
á listanum eins og oft á sér stað
og gerðist reyndar í prófkjöri hjá
okkur á Reykjanesi 1983. Ein aðal-
breytingin núna er að frá Suður-
nesjum kom nýr fuiltrúi inn í
skoðanakönnunina, sem menn þar
sameinuðust um og hlaut því góða
kosningu. Það svæði hefur ekki
lengi átt fulltrúa á þingi og því var
þetta ánægjuleg breyting, en breyt-
ing sem hafði jafnframt áhrif á
skipan mína á listanum."
Gunnar sagði að í öðm lagi
mætti benda á að fyrir þremur ámm
hefðu frambjóðendur verið valdir í
opnu prófkjöri, þar sem yfir 8000
sjálfstæðismenn hefðu tekið þátt.
Nú hefði hinsvegar ekki farið fram
prófkjör, heldur skoðanakönnun
innan 500 manna hóps. „Hér var
því beitt tveimur gjörólíkum að-
ferðum við valið og það er þess
vegna kannski ekkert skrítið að
niðurstaðan varð öðmvísi í þetta
sinn,“ sagði Gunnar, „en í því sam-
bandi vil ég undirstrika að þessi
skoðanakönnun var aðeins leið-
beinandi fyrir kjömefndina en á
engan hátt skuldbindandi, en slíks
misskilnings hefur orðið vart. Það
er meðal annars með hliðsjón af
henni sem kjömefndin ákvað ein-
róma listann af sinni hálfu, þar sem
ég skipa fímmta sætið."
Gunnar var spurður hvers konar
dómur honum þætti það, hjá þeim
sem tóku þátt í skoðanakönnun-
inni, að hann hrapaði niður um
fjögur sæti, úr 2. sæti frá því 1983,
í 6. sætið nú: „Ég hrapa náttúrlega
ekki nema um 2 sæti. Ég lendi ekki
í þriðja og ekki í fjórða sæti, heldur
í fímmta sæti, samkvæmt niður-
stöðu kjömefndarinnar," sagði
Gunnar.
- En samkvæmt skoðanakönn-
uninni, þá lentir þú í 6. sæti, ekki
satt?
„Ja, skoðanakönnunin er náttúr-
lega ekki nema leiðbeinandi, og það
fer alveg eftir því hvemig talið er
í henni, hvemig maður lítur á þær
tölur. Auðvitað varð ég fyrir von-
brigðum, að verða ekki ofar í
könnuninni, en eins og ég sagði hér
áðan, þá á það sér sínar skýringar,
að mínu mati.“
• Pólóskyrtur verö kr. 690.-
• Gallabuxur stærölr 6-16 verö kr. 825.-
« Sængurverasett meö myndum kr. 840.-
• Sængurveraléreft 140 sm á breidd kr. 155.-
• Peysur I miklu úrvali S-M-L verð frá 740.-
e Stuttermabolir m/mynd verö kr. 340.-
• Þykkir herra-mittlsjakkar kr. 2.400.- og 2.990.-
• Úlpur m/hettu stærölr 6-8-10-11-12-14 m|ög gott verö
• Jogging-gallar margir lltlr verö kr. 890,- tll 950,-
• Lakaléreft 240 cm á breldd kr. 222,- pr.m.
• Lakaléreft 140 cm á breldd kr. 140,- pr.m.
• Gallabuxur verö kr. 995.- til 2.300.-
• Gammósiur stærölr 0-16 verö frá 190,-
• Kvenbuxur stæröir 25-32 kr. 1.050.-
• Handklæði kr. 145.- til 238.-
• Viskastykkl kr. 67,-
Vilt þú versla ódýrt?
o B.VM-
ALLT Á 100.- KR.
OpiO frá 10.00 - 18.0Q
Föstudaga 10.00 - 19.00
Laugardaga 10.00
16.00
Vörtiloftíð
Sigtúni 3, Sími 83075