Morgunblaðið - 04.11.1986, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 04.11.1986, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986 61 Stj órnar skrárfrum varp: Ráðherrar hafi ekki atkvæðisrétt - en málfrelsi og tillögurétt Krístín Kvaran (S.-Rvk.) mælti í gær fyrir frumvarpi til stjóm- skipunarlaga, svohljóðandi: „Ráðherrar eiga samkvæmt emb- ættisstöðu sinni sæti á Alþingi en eiga þar ekki atkvæðisrétt“. Krístín S. Kvaran sagði m.a., efnislega, að ráðherrar geti á engan hátt gegnt þingmennsku svo full- nægjandi sé, enda væri ráðherra- dómur fullt starf. Vitnaði hún til Noregs. Þar er lögbundið að ráð- herrar láti af þingmennsku meðan þeir gegni slíkum embættum. Hins vegar er æskilegt, sagði þingmað- urinn, að ráðherrar eigi, sem æðstu menn framkvæmdavaldsins, sæti á Alþingi, hafi þar málfrelsi og til- lögurétt, og öðlist af eign reynslu innsýn í tilurð laga. Þetta er að hluta til viðurkennt hér, þar eð ráðherrar hafa ekki skyldu til starfa í þingnefnum, sem eru veigamikill hluti af þingstörf- um. Hún sagði tilgang frumvarps- ins að taka af tvímæli, hvert væri hlutverk Alþingis, stuðla að virkari starfsháttum þess, auka á sjálf- stæði þess gagnvart framkvæmda- valdinu og virðingu þess út á við. Gunnar G. Schram (S.-Rn.) sagði tvennt í stjómskipan Noregs frábrugðið okkar háttum. í fyrsta lagi væri þar enginn þingrofsréttur. Þar væri ekki hægt að ijúfa þing og efna til kosninga. í annan stað taka varmenn sæti ráðherra, meðan þeir gegna ráðherraembætti. Ráð- herrar sitja þó þingfundi þegar þeir teldja ástæðu til, án atkvæðisréttar. Frumvarp þetta er allrar athygli vert, sagði Gunnar, en starfandi er stjómarskrámefnd Alþingis, sem m.a. hefur fjallað um þetta efni, sem fmmvarpið geymir. Eðlilegt er að taka málið þar upp. Guðrún Helgadóttir (AbL- Rvk.) kvaðst hafa vissar efasemdir, varðandi fmmvarpið. Það gæfí hinsvegar tilefni til að ræða um, hvort þingmenn ættu yfírhöfuð að gegna öðmm störfum, utan þings. Það vekti og spumingar um laun þingmanna. Hátekjumenn, sem hverfa að þingstörfum, missa vem- lega í launum, sagði hún. Krístín S. Kvaran þakkaði góð- ar undirtektir við fmmvarpið. Hún saknaði þess hinsvegar að hvorki núverandi né fyrrverandi ráðherrar hafi látið í sér heyra við umræðuna. VILT ÞÚ SIGLA NÆSTA SUMAR? DELTA 25 er lipur, léttur og öruggur bátur. Undanfarin 3 ár hefur DELTU verið siglt hér við land og vakið athygli sem alhliða bátur til skemmti- sem kappsiglinga. Árangur DELTU 25 er góður. ((slandsmóti 1985 voru DELTUR í 1. og 3. sæti og í ár í 1. og 4. sæti. Keppnir eru fáar og mest not fyrir góðan seglbát er með fjölskyldu og vinum. Gistirými í DELTU 25 er gott og víða eru góð siglingasvæði umhverfis landið. 3 bátar munu bætast í flotann næsta sumar. Eigendur þeirra fá þá ófullgerða og spara þannig talsvert fé. Framleiðandi afgreiðir DELTU 25 tilbúna til innréttinga, allan búnað er hægt að kaupa eftir því sem smíðinni miðar áfram og á þann máta er hægt að bætast í hóp siglingamanna þegar næsta vor. Verð á DELTU 25 til smíða er kr. 375.000.oo (án söluskatts), en þá er að fullu gengið frá allri plastvinnu. ktiém KRISTJAN OLI HJALTASON IÐNBUÐ2. 210 GARÐABÆ SIMI 46488 Alþingi í gær: Stuttur fundur í efri deild Fjögnr mál í neðri deild Stuttur fundur var í efri deild, tæpar tuttugu mínútur. Mælt var fyrir tveimur stjórn- arfumvörpum. Matthías Bjamason, samgönguráðherra, mælti fyrir frumvarpi til stað- festingar á bráðabirgðalögum til að stöðva verkfall Skip- stjórafélags íslands í mai sl. Halldór Asgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, mælti fyrir stjórnarfumvarpi um Stofnfj- ársjóð fiskiskipa. Onnur dagskrármál vóru tekin út af dagskrá. Skógrækt og skóg- vernd Framhaldsumræða fór fram í neðri deild um stjómarfrumvarp um skógrækt og skógvemd. Nokkur gagnrýni kom fram á frumvarpið. Birgir ísleifur Gunnarsson (S.- Rvk.) taldi frumvarpið ekki taka nægilega vel á skógrækt í þétt- býli og hlut sveitarfélaga í þessu efni. Hann taldi og óeðlilegt að lögbinda það að skógræktarstjóri skuli ráðinn úr hópi starfsmanna Skógræktar ríkisins. Samsvarandi ákvæði væm ekki í lögum um aðrar ríkisstofnanir. Páll Pétursson (F.-Nv.) taldi frumvarpið leggja kvaðir á sauð- fjárbændur, sem skoða þyrfti betur, auk þess sem farið væri „fijálslega með eignarrétt" bænda á landi. Fleiri þingmenn tóku til máls í umræðunni. Bygging og rekstur dagvistarheimila Kristín S. Kvaran mælti fyrir fmmvarpi tii breytinga á lögum um byggingu og rekstur dag- heimila. Fmmvarpið miðar að því að færa lög um þetta efni til sam- ræmis við markmið í fyrirliggjandi uppeldisáætlun. I fyrstu grein fmmvarpsins segir „að starfsemi dagvistar- heimla skuli miða að því að veita bömum markvisst uppeldi í sam- ræmi við þroska þeirra og þarfír. Þau skulu vera fjölskyldum og foreldmm til stuðnings sem sjálf- sögð viðbót við uppeldi bama. Dagvistarheimili skulu stuðla að og örva alhliða þroska bama. Ákveðin og skýr markmið skulu tryggja að uppeldisstarfið sé fjöl- breytt og traust". Fmmvarpið kveður og á um menntunarkröfur forstöðumanna dagvistarheimila. ÁSKRIFENDUR AÐEINS EITT SÍMTAL 691140 691141 Með einu símtali er hægt að breyta innheimtuað- ferðinni. Eftir það verða áskriftargjöldin skuldfærð á viðkomandi greiðslukortareikning mánaðarlega. 23 (2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.