Morgunblaðið - 04.11.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986
43
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
eftir Bergstein
Sigurðarson
Með þessum línum langar mig
að bæta nokkrum orðum við þær
umræður sem í gangi hafa verið
um málefni eldra fólks.
Það er ekki vonum fyrr að þessi
fjölmenni hópur láti til sín heyra
því hér er á ferðinni hópur sem
nemur 20% allra landsmanna og
hefur á löngum starfsdegi unnið
að þvi að skapa þá almennu velmeg-
un sem við búum við í dag og yngra
fólk ætti að meta.
Ekki vil ég vanmeta það sem
gert er af hálfu þess opinbera fyrir
eldra fólk, en betur má ef duga
skal, því þessi aldurshópur verður
stöðugt fjölmennari og sumir eru
afskiptir.
Það er alkunna að margir sem
sagt er upp starfi fyrir aldurs sakir
kunna því illa að tapa vinnu sinni
og starfsfélögum og finnst að þeir
séu útilokaðir úr þeim heimi sem
þeir hrærðust í, einsemd sækir á
Bergstein Sigurðarson
„Ég tel nauðsynlegt
að þau félög sem starfa
að málefnum aldraðra
sameinist um öll þau
málefni sem varða aldr-
aða og knýi þannig á
með úrbætur þeim til
handa, því þeirra er
full þörf
þá og ýmiskonar vanlíðan, sem
gerir þeim lífíð leitt, dregur úr
sjálfsbjargarviðleitni og flýtir fyrir
heilsuleysi og jafnvel dauða.
Sú hugmynd sem lá að baki
stofnunar Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni var að ná
til sem flestra er náð hafa eða nálg-
ast eftirlaunaaldur og virkja þá til
sjálfsbjargar og meðvitundar um
að aldur er ekki algildur mæli-
kvarði á getu manna, andlega og
líkamlega, auk þess hefur okkar
fámenna þjóðfélag ekki efni á að
sóa þeirri þekkingu og reynslu, sem
eldra fólk hefur aflað sér á löngum
starfsdegi.
í lögum félagsins er starfssvið
þess að nokkru tilgreint og byggist
í höfuðatriðum á að eldra fólk fái
möguleika til að sinna áhugamálum
sínum og vinnugleði, blandi geði
við fólk og njóti efri áranna sem
best. Takist vel til þá vinnst tvennt,
annarsvegar vellíðan fólksins og
hinsvegar þarf það seinna en ella
að leita á náðir stofnana og sjúkra-
húsa.
Ég tel nauðsynlegt að þau félög
sem starfa að málefnum aldraðra
sameinist um öll þau málefni sem
varða aldraða og knýi þannig á með
úrbætur þeim til handa, því þeirra
er full þörf.
Á Norðurlöndum, öllum nema
ístandi, hafa slík landssambönd
aldraðra verið starfandi lengi og
áorkað miklu, bæði hvað varðar
innbyrðis starfsemi og réttlátar
kröfur þeirra til stjómvalda um
ýmsar úrbætur.
Ég átti þess kost að kynnast
þessu lítillega í sumar á fræðslu-
námskeiði um málefni aldraðra á
Norðurlöndum. Þar báru frammá-
menn i félögum aldraðra saman
bækur sínar og leituðu leiða og
samvinnu um lausn á hinum ýmsu
nauðsynjamálum. Mig langar því
að birta kafla um þetta námskeið
enda þótt hann hafí áður komið í
félagsblaði okkar.
Dagana 18. til 23. ágúst gekkst
„Pensionáremas Riksorganisation"
í Svíþjóð fyrir námskeiði um mál-
efni aldraðra með þátttöku fulltrúa
frá Norðurlöndum og var það í
fyrsta sinn sem fulltrúum frá ís-
landi var boðin þátttaka. Félag eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni
sendi tvo fulltrúa, frá Noregi komu
8, frá Danmörku 2, Finnlandi 10
og frá Svíþjóð 14. Námskeiðið var
haldið í Gysinge Herrgárd sem er
í eigu P.R.O. og notaður til allskon-
ar fræðslu og félagsstarfsemi, auk
þess rekið sem lýðháskóli á vetmm
af P.R.O.
Form námskeiðsins var fyrir-
lestrar um málefni aldraðra, hóp-
vinna og fyrirspumatímar þar sem
fulltrúar og fyrirlesarar spurðu og
leituðu svara við hinum mörgu
vandamálum, sem upp koma varð-
andi öldmn, og hvað talið væri
æskilegt að gera til að lengja og
bæta líf aldraðra.
Vandamál aldraðra em flest þau
sömu á Norðurlöndum, en aðstaða
nokkuð breytileg, svo og réttindi
þeirra og hagsmunir. Meginmark-
mið námskeiðsins var að efla
kynningu innbyrðis milli þeirra sem
vinna að málefnum aldraðra á
Norðurlöndum og sameina krafta
þeirra til að ná markmiðum sínum
í baráttunni fyrir velferð aldraðra.
Þáttakendur og þeir sem
fræðsluerindi fluttu vom sammála
um að landssamband þeirra félaga
sem vinna að málum aldraðra væri
sterkasta vopnið í þeirri baráttu,
og em þessi sambönd nú þegar
mjög öflug, nema á íslandi, telur
P.R.O. yfir 200 slík félög, með um
400.000 meðlimi, og Norska land-
sambandið semur nú beint við
Norsk stjómvöld um ýmis hags-
munamál aldraðra.
Höfuðáherlsa var lögð á eftirfar-
andi atriði varðandi velferð aldr-
aðra:
1. Eldra fólki sé gert kleift að
búa áfram í eigin húsnæði og ann-
ast sig sjálft, ef það getur, en að
öðmm kosti fái það heimilisaðstoð,
en sé ekki flutt hálfnauðugt á stofn-
anir.
2. Unnið sé að því að fólk, sem
hættir störfum fyrir aldurs sakir,
fái útrás fyrir athafnaþrá sína,
hvort heldur sem er í starfí, tóm-
stundavinnu, fræðslunámskeiðum,
ferðalögum og öðm sem hugur
þeirra stendur til.
3. Eftirlaun séu miðuð við það
að viðkomandi geti lifað eðlilegu
lífi á þeim og sé ekki íþyngt með
opinbemm gjöldum.
4. Eldra fólk njóti reglubundinn-
ar heilsugæslu, því að kostnaðar-
lausu, eða á lægra gjaldi en almennt
gerist og jafnframt sé það frætt
um hvemig það geti best varðveitt
heilsu sína, sem er forsenda þess
að efri árin geti orðið því léttbær.
5. Félög eldra fólks beiti sér fyr-
ir því að hafa samband við fólk
áður en það hættir störfúm, kynni
því starfsemi sína og markmið,
haldi uppi öflugri starfsemi og þjón-
ustu við það, svo því fínnist eftir-
sóknarvert að gerast þátttakendur.
í þessu sambandi er nauðsynlegt
að öll félög eldra fólk sameinist um
réttlátar kröfur eldra fólks til þess
samfélags sem það hefur lagt
krafta sína í að byggja upp á löng-
um starfsdegi.
Höfundur er ritarí Félags eldrí
borgara í Reykjavík.
persónulega stíl