Morgunblaðið - 04.11.1986, Síða 53

Morgunblaðið - 04.11.1986, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986 Þingfulltrúar á ársþinginu með nýtt félagsmerki. Ársþing íslenskra ungtemplara ÁRSÞING íslenskra ungtempl- ara var haldið í 28. sinn sunnu- daginn 28. september. Tvær ályktanir voru samþykktar; áfengisútsölum mótmælt og aug- lýsingum ríkisfjölmiðla á þeim, og hvatt til viðskiptabanns við Suður-Afríku. Auk venjulegra dagskrárstarfa þingsins var ákveðið að samþykkja nýtt félagsmerki fyrir íslenska ung- templara. Þingið hvatti til að tekið yrði fyrir öll viðskipti við Suður- Afríku vegna kúgunarstefnu minnihlutastjómar hvítra þar í landi og mótmælti útsölum á áfengi og auglýsingum ríkisfjölmiðla á þeim á sama tíma og rætt er um nauð- syn þess að draga úr áfengisneyslu. Haf narfj örður: Jóhann Hjartarson sigur- vegari á haustmóti í skák JÓHANN Hjartarson varð sigurvegari á haustmóti Sparisjóðs Hafn- arfjarðar og Skákfélags Hafnarfjarðar. Jóhann hlaut 9,5 vinninga af 11 mögulegum. Skákfélag Hafnarfjarðar hélt skákmót í samvinnu við Sparisjóð Hafnarfjarðar sunnudaginn 2. nóv- ember síðastliðinn. Flestir sterkustu skákmenn landsins tóku þátt í mót- inu, þar á meðal allir stórmeistar- amir að Friðrik Ólafssyni undanskildum og allir alþjóðlegu meistaramir. Tefldar voru 11 um- ferðir eftir Monrad-kerfi og sigur- vegari varð Jóhann Hjartarson með 9,5 vinninga. 2. til 3. sæti hluti þeir Helgi Olafsson og Jón L. Áma- son með 8,5 vinninga. 4. til 5. sæti hlutu Guðmundur Siguijónsson og Margeir Pétursson með 8 vinninga og 6. til 7. sæti hlutu Áskell Örn Kárason og Þröstur Þórhallsson með 7,5 vinninga. í öldungaflokki, 50 ára og eldri, varð Sigurður Herlufsen með 6 vinninga og í unglingaflokki sigraði Hannes Hlífar Stefánsson með 7 vinninga. Þess má geta að hin aldna skákkempa Benóný Benediktsson tók þátt í mótinu og kom hann á reiðhjóli til Hafnarfjarðar. Fimmtudaginn 30. október var haldið ijöltefli á vegum Sparisjóðs- ins og Skákfélagsins. Margeir daPétursson tefldi þar við 36 skák- menn. Einn þeirra náði að sigra Margeir og 7 náðu jafntefli. Skákfélag Hafnaifyarðar vill þakka Sparisjóði Hafnarfjarðar fyr- ir þátttökuna í þessu móti, án stuðnings Sparisjóðsins hefði ekki verið hægt að halda þetta mót. (Fréttatilkynning) Kvennalistinn býður fram í Reykjaneskjördæmi KVENNALISTINN í Reykjanes- kjördæmi hefur ákveðið að bjóða fram í næstu kosningnm til Al- þingis. Ákvörðun þess efnis var tekin á félagsfundi Kvennalist- ans í kjördæminu 1. nóvember síðastliðinn og þar var ennfrem- ur ákveðið að fram færi könnun meðal félagskvenna um val á frambjóðendum. í fréttatilkynningu frá Kvenna- listanum segir að starf listans hafi haft mikil áhrif á alla umræðu í þjóðfélaginu og vakið athygli á kjör- um kvenna og barna. Enn sé þó langt í land að konur, karlar og böm búi við jafnan rétt og jafna aðstöðu hér á landi. Því sé mikið starf óunnið og vilji Kvennalistinn leggja sitt af mörkum til að virkja hugvit og reynslu kvenna í þágu þjóðfélagsins. (Úr fréttatilkynningu.) Framkvæmdanefnd um launamál kvenna: Ráðstefna um konur í kjarasamningum FRAMKVÆMDANEFND um launamál kvenna efnir til ráð- stefnu um konur í komandi samningum laugardaginn 8. nóv- ember næstkomandi. Ráðstefnan verður haldin í Sóknarsalnum, Skipholti 50 og hefst klukkan 13.00. Ráðstefnan er einkum ætluð kon- um í stjórnum og samninganefnd- um verkalýðsfélaganna og félaga opinberra starfsmanna og banka- manna, en er þó öllum opin sem áhuga hafa. Þáttökutilkynningar þurfa að berast í síðasta lagi fímmtudaginn 6. nóvember næstkomandi. Þátt- tökugjald er 200 krónur og eru kaffiveitingar innifaldar. 53 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir LAURENCE MARKS W'J n HE1 [NBEPENBENT No 13 TUESDAY21OCTOBEK ÍSW Pubtahfd in Lnmlon S5|. Foreign Minister Botha invites international scrutiny of Machel crash inquiry PM puts Pretoria scorns cries of murder Summary GM turns its Schools back on face South Africa ,n?.w stnkes Hluti forsíðu blaðsins Independent. Góð byrjun hjá Independent Trú og von eru ómissandi kostir í blaðaútgáfu, en bróðurkær- leikann er nokkuð erfiðara að finna. Þegar hópur brezkra blaðamanna tók sig saman fyrr á þessu ári og safnaði framlögum upp á 18 milljónir sterlingspunda (um 104 milljónir króna) til að hefja útgáfu á nýju dagblaði, voru viðbrögðin á Fleet Street áberandi fjandsamleg. Það var ekkert ófyllt skarð í markaðnum fyrir dagblöð í Bretlandi, sem var mettaður fyrir, sögðu sérfræðingarnir. Bentu þeir á að gangstéttir Lundúna væru stráðar bliknuðum beinum mis- heppnaðra brautryðjenda í blaða- útgáfu. Sagt er að Main on Sunday, sunnudagsútgáfa Daily Mail, sem hóf göngu sína fyrir fimm árum, hafi tapað um 30 milljónum punda (um 174 milljónum króna) áður en útgefendum tókst að láta það bera sig í samkeppninni. En út- gáfufélagið, Associated News- papers, hafði næga fjármuni til að standa undir taprekstrinum. Vikuritinu Now var ætlað stórt hlutverk í byijun þessa áratugar, en ritið lagði upp laupana innan tveggja ára. Jafnvel dagblaðið Today, sem hóf göngu sína sl. vor og nýtti sér lækkun útgáfukostn- aðar sem fékkst með sigri blaða- kóngsins Ruperts Murdoch í deilu hans við stéttarfélög prentara í fyrravetur, hefur átt í fjárhagserf- iðleikum þótt salan hafi náð 300.000 eintökum á dag. Stofn- andi blaðsins, Eddy Shah, gafst upp á útgáfunni, og við tók fé- lagasamsteypan Lonrho, sem meðal annars á blöðin Observer og Glasgow Herald. Gagnrýnendur héldu því fram að enginn með réttu ráði færi að gefa út blað á borð við Independ- ent í beinni samkeppni við The Times, sem gífurlegt fjármagn Ruperts Murdoch í News Inter- national stendur á bak við. En Murdoch er þekktur fyrir annað en að sitja auðum höndum and- spænis aukinni samkeppni, eins og hann hefur sýnt í rekstri New York Post. En Independent hefur komið út frá októberbyijun. Salan er að jafnaði 450.000 eintök á dag (samanborið við 471.000 eintök hjá Times, 52.334.000 hjá Guar- dian og 1.156.000 hjá Daily Telegraph). Viðurkenna flestir sem tengdir eru blaðaútgáfu, þótt þeim sé það ekki ljúft, að blaðið sé all vandað. Er þetta í fyrsta skipti í 131 ár sem hafín er út- gáfa á nýju vönduðu og ábyrgu dagblaði í Bretlandi. Ritstjóri og aðal hvatamaðurinn að stofnun blaðsins er Andreas Whittam Smith. Hann er 49 ára, svipmildur og óframfærinn, og sem blaðamaður hefur hann sér- hæft sig í skrifum um efnahags- mál. Var hann þar til í desember í fyrra ritstjóri efnahagsmála hjá Daily Telegraph. Hugmynd hans með stofnun nýja dagblaðsins var ekki aðallega sú að fylla upp í eitthvað skarð, heldur hitt að mjög hafði dregið úr fjárhagslegri áhættu samfara útgáfu nýs dag- blaðs. Fyrir rúmum tíu mánuðum flutti Rupbert Murdoch útgáfu fjögurra blaða sinna — Times, Sunday Times, Sun og News of the World — í nýjar aðalstöðvar og prentsmiðju í Wapping, sem er fyrrum hafnarhverfi um fímm kílómetrum neðan við Thames- ána en hefðbundin miðstöð brezkrar blaðaútgáfu við Fleet Street. Flutningurinn gerði hon- um kleift að segja upp öllum þeim prenturum sem hjá honum störf- uðu (og voru einmitt í verkfalli) — en félög prentara höfðu lengi barizt gegn því að tekin yrði upp nýjasta vinnusparandi tækni í blaðaútgáfu — og ráða auðsveipn- ara starfslið. Þetta hafði þrenns konar afleið- ingar. Það lækkaði strax útgáfu- kostnað Murdochs mjög verulega. Það vakti mikinn ugg meðal keppinautanna í blaðaútgáfu, sem felstir eru nú að undirbúa flutning frá Fleet Street til að fá notið sömu íjárhagshlunninda. Og það minnkaði þá fjárhagsáhættu sem nýliðar í blaðaútgáfu þurftu að taka á sig. Eddy Shah, sem var blaðaút- gefandi í Norður-Englandi, var að heíja útgáfu Today með nýrri tækni, og aðrir útgefendur að íhuga útgáfu blaða undir nýjum nöfnum. Þá dreymdi marga blaða- menn um að stofna eigin blöð óháð öllum stjómmálaflokkum. Whittam Smith notfærði sér sam- bönd sín í fjármálaheiminum til að útvega nauðsynlegt stofnfé, réði til sín nokkra af beztu blaða- mönnum Bretlands og hóf útgáf- una. I augum erlendra lesenda svip- ar Independent mjög til annarra virtra blaða í Bretlandi, frásagnir þess eru hógværar og yfírvegað- ar, og umbrotið aðeins fijálslegra en hjá svipuðum blöðum í Banda- ríkjunum eða á meginlandi Evrópu. En sá sem hefur góða þekkingu á vinnubrögðum á Fleet Street sér fljótt að nýja blaðið sker sig úr á mörgum sviðum. Fréttafrásagnir eru færri en ítarlegri heldur en annars staðar. Stutt-fréttastíllinn er meinsemd í brezkri blaðamennsku. I öðrum brezkum blöðum er yfírleitt ekk- ert sem jafnast á við ítarleg fréttaskrif á borð við þau sem birtast í New York Times eða Le Monde. Sögulega á þetta rætur að rekja til ára síðari heimsstyij- aldarinnar, þegar skortur á blaðapappír takmarkaði frétta- rými dagblaðanna. Blaðamenn, sem eru yfírleitt íhaldssamir, hafa síðan verið tregir til að víkja frá stutt-fréttastílnum. Hjá Inde- penaent hefur ekki verið gengið jafn langt og hjá þessum tveimur virtu blöðum hvað varðar ítarlegar frásagnir, en fréttir blaðsins eru vel metnar, sérstaklega erlendar fréttir. Lesendur annarra brezkra blaða, sem ekki eru alltaf öllum hnútum kunnugir, eiga oft erfítt með að ráða úr samanþjöppuðum frásagnarstíl þeirra, hvað er að gerast. Kjánaskapur, sem á að heita fyndni, er önnur meinsemd brezkra dagblaða. Independent hefur fengið gagnrýni fyrir að vera ekki nógu líflegt. Og vissu- lega er tónninn í skrifum þess alvarlegri en hjá vinstra blaðinu Guardian, sem er mjög dáð blað, en með stöðuga tilhneigingu til alvöruleysis (sem jafnvel kemur fram í forustugreiinum þess) og birtingar fímm-aura brandara. Forustugreinar í Independent eru gjaman íhugular og ívið bragðlitl- ar fyrir Fleet Street. En allt efni blaðsins er vel skrifað og hressi- legt, og enginn hefur átalið blaðið fyrir að vera leiðinlegt — sem er óafsakanlegt í blaðamennsku. Hvað stjómmálin varðar er Independent fijálslynt miðjublað. Fjárhagslega á það að höfða til svonefndra uppa (yngri þéttbýlis- búa úr röðum miðstéttanna á uppleið í þjóðfélagsstiganum), og reiknað var með að blaðið yrði hliðhollt bandalagi fijálslyndra og jafnaðarmanna, sem hafa laðað til sín mörg þessara ungmenna. En þó hefur blaðið birt forustu- greinar, þar sem farið er lofsam- legum orðum um lejðsögn Margaretar Thatcher í íhalds- flokknum og stjómarandstaðan er gagnrýnd. Neytendadálkar blaðsins eru læsilegri og markvissari en hjá keppinautunum; vikulega birtir blaðið heilsíðu um rokk- og dæg- urlagatónlist, einnig þætti um heilsu og Qölmiðla. En fyrirheit um að fréttaþjónusta þess yrði „ábót en ekki endurtekning“ á fréttum sjónvarps og hljóðvarps hafa ekki staðizt fyllilega enn sem komið er. Æsifréttablöðin geta fyllt for- síður sínar með skemmtisögum um kvikmyndastjömur, auðkýf- inga og kóngafólk. Enginn rit- stjóra virðulegri blaðanna hefur enn treyst sér tii að hafa að engu helztu viðburði dagsins fyrir það eitt að ítarlega hefur verið um þá fjallað í sjónvarpi kvöldið áð- ur, og þeir séu því flestum lesend- um kunnir. Enn sem komið er hefur Independent ekki heldur skorið sig úr á þessu sviði. Blaðið er að sjálfsögðu enn í burðarliðnum. Búast má við að gagnsókn keppinautanna heQist innan tíðar með tilheyrandi hnútukasti. Einn umfjallandinn orðaði það svo fyrir skömmu: „Murdoch á eftir að kæfa barnið í vöggunni, jafnvel áður en það fær tækifæri til að vekja á sér athygli." Sjálfur lét Murdoch sér nægja að segja: „Við lítum sam keppnina að sjálfsögðu alvarleg- um augum, þetta verður ákaflega erfítt fyrir þá og þeir þurfa á mun meira fjármagni að halda en þeir hafa nú undir höndum." Við sjáum hvað setur. Höfundur er blaðamaður hjá brezka blaðinu Observer.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.