Morgunblaðið - 04.11.1986, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986 7
Morgunblaðið/Bjarni
Frá Munch-sýningunni í Norræna húsinu. Myndin er tekin i lok
september, er sýningin var sett upp og á henni eru standandi:
Knud Ödegaard forstjóri Norræna hússins og Ólafur Kvaran list-
fræðingur, en sitjandi er Arne Eggum, forstöðumaður Munch-
safnsins í Osló.
Munch-sýningin
opin th 9. nóvember
VEGNA mjög mikillar aðsókn-
ar á sýningu á verkum Edwards
Munchs í Norræna húsinu hef-
ur verið ákveðið að sýningin
verði opin til 9. nóvember. Að
sögn talsmanns hússins hafa
nú séð sýninguna á milli 7 og
8 þúsund manns og hafa fáar
listsýningar hlotið slika aðsókn
í Norræna húsinu frá upphafi
sýninga þar. Mikill fjöldi fólks
skoðaði sýninguna um helgina,
enda hafði verið auglýst að um
siðustu sýningardaga væri að
ræða.
Tvö fiskiskíp seldu erlendis
Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar:
12,2 milljónir króna til
rekstrar fiskmarkaðar
TVÖ islenzk fiskiskip seldu afla
sinn í Þýzkalandi á mánudag.
Fremur lágt verð fékkst fyrir
aflann, einkum karfa.
Þorsteinn GK seldi alls 89,5 lest-
ir, mest ufsa í Bremerhaven.
Heildarverð var 4.288.300 krónur,
meðalverð 47,91. Framnes IS seldi
84,8 lestir á sama stað. Heildarverð
4.040.300 krónur, meðalverð 47,67.
Aflinn var að mestu karfi.
HAGSMUNAAÐILAR í fiskverk-
un og útgerð, fjölmenntu á
undirbúningsfund Útvegs-
mannafélags Hafnarfjarðar um
stofnun hlutafélags um rekstur
fiskmarkaðar i Hafnarfirði, sem
haldinn var sl. laugardag.
Síðdegis i gær höfðu 87 einsk-
taklingar og félög víðsvegar af
Faxaflóasvæðinu skráð sig fyrir
hlut, samtals 12,2 millj.
Á fundinum kynnti Gunnlaugur
M. Sigmundsson formaður nefndar
á vegum sjávartútvegsráðuneyti-
sins, niðurstöður skýrslu um rekst-
ur fiskmarkaðar hér á landi. Hann
sagði að með þessu frumkvæði
Útvegsmannafélagsins teldi hann
að störfum nefndarinnar væri lokið
með stofnun fiskmarkaðar í til-
raunaskyni í Hafnarfirði. Hrafnkell
Ásgeirsson varaformaður hafnar-
stjórnar Hafnarfjarðar skýrði hver
hlutur stjórnarinnar og þar með
bæjarstjórnar yrði í væntanlegum
fiskmarkaði og lagði hann áherslu
á að hraða þyrfti framkvæmdum
svo að markaðurinn gæti tekið til
starfa, strax 1. febrúar í upphafi
vertíðar. Hann tók fram að bæjar-
yfirvöld myndu útvega lóð og kosta
byggingu hússins ef til þess kæmi.
Tilboð í byggingu húss fyrir fisk-
markað í Hafnarfirði voru opnuð
fyrir viku. Lægstu tilboð bárust frá
Hagvirki og Istak. Þau námu um
23 milljónum króna í minni hús-
gerðina, að sögn Guðmundar Árna
Stefánssonar bæjarstjóra.
Að framsöguerindum loknum
tóku nokkrir fundarmenn til máls
og ræddu hvað hafa þyrfti í huga
þegar teknar væru ákvarðanir um
rekstur markaðarins. Fulltrúar
verkalýðsfélaga lýstu yfir ánægju
með væntanlegan markað og kváð-
ust vænta mikils af honum. í
fundarlok var samþykkt að skipa
sjö manna nefnd til undibúnings
stofnfundar félagsins. Nefndina
skipa, Ágúst Einarsson forstjóri
Hraðfrystistöðvar Reykjavíkur,
Hjalti Jóhannsson forstjóri Véla-
verkstæðis Jóhanns Ólafs hf, Óskar
Vigfússon forseti Sjómannasam-
bands íslands, Jón Friðjónsson
framkvæmdastjór Hvaleyrar hf.,
Haraldur Jónsson framkvæmda-
REYTINGSVEIÐI var á loðnu-
miðunum um helgina og á
mánudag eftir slaka viku vegna
veðurs. Aflinn þessa daga varð
um 29.000 lestir og heildaraflinn
frá upphafi vertíðar er orðinn
um 324.000 lestir.
Á laugardag tilkynntu eftirtalin
13 skip um afla, samtals 7.550 lest-
ir: Hrafn GK, 660, Þórshamar GK,
600, Ljósfari RE, 500, Júpíter RE
350, Albert GK, 600, Rauðsey AK,
580, Svanur RE 650, Hilmir 11 SU,
540, Víkingur AK, 400, Skarðsvík
SH, 640, Gísli Ámi RE, 620, Þórð-
ur Jónasson EA, 560 og Pétur
Jónsson RE 850 lestir. Á sunnudag
varð aflinn samtals 12.360 lestir
af eftirtöldum 18 skipum: Huginn
VE, 600, Hákon ÞH, 760, Eskfirð-
stjóri Sjólastöðinni hf., Ágúst G.
Sigurðsson skipatæknifræðingur og
Guðmundur Ólafsson fyrrverandi
skipsstjóri, sem á sæti í hafnar-
nefnd. Þess er vænst að undirbún-
ingsnefnd hafi lokið störfum innan
mánaðar.
ingur SU, 550, Súlan EA, 800,
Bergur VE, 530, Húnaröst ÁR,
620, Gullberg VE, 610, Börkur NK,
1.100, Erling KE, 600, Kap 11 VE,
580, Guðrún Þorkelsdóttir SU, 700,
Þórshamar GK, 550, Jón Kjartans-
son SU, 1.040, Sighvatur Bjarnason
VE, 670, Víkurberg GK, 550, Sig-
urður RE, 1.000, Grindvíkingur GK,
1.000 og Keflvíkingur KE 100 lest-
ir. Á mánudag voru eftirtalin 12
skip með samtals 9.235 lestir: Öm
KE, 580, Fífill GK, 630, Eldborg
HF, 1.450, Svanur RE, 715, Harpa
daRE, 630, Guðmundur Ólafur ÓF,
580, Hrafn GK, 650, Albert GK,
600, Bjami Ólafsson AK, 1.000,
Beitir NK, 1.200, Gígja RE, 750
og Ljósfari RE 450 lestir.
Metsölublad á hverjum degi!
Morgunblaðið/Þorkell
Hluti fundarmanna á fundi Útvegsmannafélags Hafnarfjarðar um
stofnun hlutafélags til reksturs fiskmarkaðar i Hafnarfirði.
Reytingsafli loðnuskipa
Það er gaman að
fylgjast með tískunní
Veistu að einkenni húsgagnatízkunnar í haust er djörfung í litavali og fjölbreytni í hönnun.
í verzlun okkar færðu það nýjasta nýja í húsgögnum í öllum regnbogans litum
D;, _ isty-hom
Flottur homsófi sem er bólstraður í kaldmótað gúmmí
og diolenló, klæddur gegnumlituðu
anilínsútuðu nautaleðri.
Stæiðir: B 220 x L 265 cm
E húsgagnahöllin
l!H4 M-'.A’I BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - 91 -681199 og 681410