Morgunblaðið - 04.11.1986, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986
Nostalgía hvunndagsins
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Þegar Karólína Lárusdóttir
sýndi á Kjarvalsstöðum árið 1982
vakti sýning hennar mjðg mikla
athygli og fékk hinar bestu við-
tökur sem ung listakona getur
yfír höfuð óskað sér.
Nú er hún komin aftur og sýn-
ir á sama stað 86 myndverk,
aðallega í olíu og vatnslit en einn-
ig nokkrar grafík-myndir og
teikningar. Það er mikill dugnað-
ur og einlægni, sem einkennir
vinnubrögð Karólínu, sem málar
endurminningar sínar frá íslandi
en hún hefur verið búsett í Eng-
iandi sl. 22 ár.
Segja má, að hún sæki mynd-
efni sitt aðallega í hvunndaginn
og þá einkum hinar notalegu hlið-
ar hans. í myndum hennar, og
þá aðallega vatnslitamyndunum
er sterkur Ijóðrænn blær og hér
þykir mér list hennar tvímæla-
laust rísa hæst. Karólínu tekst að
bregða upp hrifmiklum svip-
myndum úr einfaldleikanum í
samþjöppuðu formi þar sem fer
lítið fyrir óþarfa smáatriðum. Hér
er öll áhersla lögð á heildaráhrifín.
Ég vil nefna hér myndir máli
mínu til áréttingar svo sem
„Leynifélagið" (5), Fólk og stein-
ar“ (6), Grýlur á Öskjuhlíð" (14)
og „Kolakrani" (15). En svo eru
einnig annars konar vatnslita-
myndir, sem einnig hrífa svo sem
„Bláar öldur“ (19), „Jarðbrot"
(20), „Jarðverur" (21), „Hæðin“
(22), „Landbrot" (37), „Jarðlög"
(38) og „Blá mynd“ (57). En ann-
ars verður mér einna minnisstæð-
ust litla myndin „Kvöldbirta" (30),
þar sem einfaldleikinn er einna
mestur og heillegastur.
Karólína þarf vissulega ekki að
leita á vit smáatriðanna til að ná
fram sterkum og lifandi áhrifum
og það er merkilega mikið líf í
myndum hennar. Jafnframt bera
þær vitni mikilli fágun og ágætri
skólun og eðlilega er hér um að
ræða enska skólann í vatnslita-
tækni en hún er jú útskrifuð frá
Ruskin-listaskólanum í Oxford
auk þess sem hún hefur numið
grafíska tækni við Barking Col-
lege of Art í London.
Að þessu sinni sýnir hún lítið
af grafík-myndum og þær búa
ekki yfír sömu fjölbreytni né blæ-
brigðaríkidómi og ýmislegt í þeirri
tækni á fyrri sýningu hennar en
teikningarnar staðfesta hennar
lipru hönd.
Yfir myndum Karólínar Lárus-
dóttur er léttur blær og yndis-
þokki, sem eðlilega hrífur
almenning. Myndefnið sækir hún
í fólk og dularfullar fígúrur í
landslagi en það er vinsælasta
myndefnið í íslenzkri list í dag svo
sem margur veit og ekki sakar
dálítið af dularfullri, óræðri róm-
antík. í slíkum myndum er
bókstaflega ekkert sem getur
hneykslað viðkvæmar sálir eða
komið róti á sálarlíf manna.
Svo ég víki að fleiri myndum,
sem mér þykir ástæða til að nefna
tel ég eftirfarandi fram: „Kuldi“
(41), „Hvíta teppið" (42), „Kvöld-
stund“ (65) og málverkið „Maður
með fínan hatt“ (49). Annars
þykja mér málverkin ekki nálægt
því eins hnitmiðuð í útfærslu og
vatnslitamyndirnar, sem ég hér
hef nefnt þar sem allt er slétt og
klárt í flestum tilvikum.
Það er vandvirknin og einlægn-
in, sem ég tel aðal listar Karólínu
Lárusdóttur ásamt fijóu hugar-
flugi.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
,<S^
Hverfisgötu 33 - Sími 91 -20560
V'*lc#Ar
tV VI
Á meöan þú lest þessa auglýsingu
veröa til 60 Ijósrit í U-BIX
Ijósritunarvélum á íslandi. Aö
meðaltali eru það 5 Ijósrit á
sekúndu, allan daginn, allan ársins
hring. Það er vegna þess að U-BIX
Ijósritunarvélarnar eru öflugar og
hraðvirkar, hljóðlátarog einfaldar í
notkun og hafa lága bilanatíðni.
U-BIX Ijósritunarvélarfást í 12
mismunandi útfærslum, eru með
sjálfvirka lýsingu og yfirleitt allt það
er prýðir góðar Ijósritunarvélar. Þess
vegna er U-BIX sjálfsagður kostur
þegar Ijósritun er annars vegar.
U-BIX LJÓSRITUNARVÉLAR
VERÐFRÁ........KR. 72.000 stgr.
Helstu söluaðilar: Bókaversl. Jónasar Tómassonar ísafiröi • Bókaversl. Þórarins
Stefánssonar Húsavík • Bókval Akureyri • E.Th. Mathiesen Hafnarfirði • Fjölritun s.f.
Egilsstöðum • Kaupfél. Árnesinga hJf. Selfossi • Kjarni Vestmannaeyjum
Hörð samkeppni
löngu áður en Mikli
garður opnaði
eftír Gunnar
Snorrason
í Morgunblaðinu 24. október
síðastliðinn ritar Þröstur Ólafsson
framkvæmdastjóri Dagsbrúnar
grein undir yfirskriftinni „Jafn-
ræðishugsjón á borði — mismunun
í orði“ þar rekur Þröstur raunir
sínar vegna þess að framkvæmd-
um við byggingu húss í Mjóddinni
(nágrenni KRON) undir áfengis-
útsölu mun vera hætt og þar með
engin áfengisútsala á þeim stað.
Þröstur segir meðal annars að
fjármálaráðherra sýni íbúum
Breiðholts, Kópavogs, Hafnar-
fjarðar og Garðabæjar fyrirlitn-
ingu með slíkri ákvörðun. Ég vil
benda á í því sambandi hvað
viðvíkur íbúum Breiðholts að það
eru til verslunarmiðstöðvar í
Breiðholti sem hæglega geta tekið
að sér slíka útsölu. Þröstur Ólafs-
son segir í umræddri grein að það
vakni upp sú spuming hvort ekki
beri að gefa verslun með áfengi
fijálsari innan þeirra marka sem
talin er skynsamleg.
Ég er sammála greinarhöfundi
hvað þetta snertir. Það verður að
teljast harla óeðlilegt svo ekki sé
fastar að orði kveðið að ríkisvald-
ið geti ákveðið það fyrirfram hvert
straumur fólks beinist í viðskipta-
erindum einungis með því að
ákveða fáar útvaldar áfengisútsöl-
ur. Mér stendur alveg á sama
hvort staðurinn heiti Mjódd eða
Kringla, þessir staðir eiga ekki
að hafa einkarétt á slíkri sölu.
Mín skoðun er sú að ÁTVR eigi
einungis að hafa með höndum
heildsöludreifíngu á áfengi en
síðar með ákveðnum takmörkun-
um þó, eigi smásöluaðilar að selja
vöruna til neytenda eins og tíðkast
í nágrannalöndum okkar og víðar.
Eg tel það einnig fráleitt að
ríkisvaldið skuli fjárfesta tugum
milljóna í kaup á fasteignum fyrir
útsölustaði á áfengi. Aður en ég
skil við áfengisþáttinn í grein
Þrastar vil ég láta þá ósk í ljós
að þessi útsölumál á áfengi eigi
eftir að breytast í framtíðinni.
Það er óvirðing við fólk að
ætlast til að það renni eins og fé
Gunnar Snorrason
„ Við munum veita sam-
keppnisaðila okkar
harða samkeppni í
verði og þjónustu. Ef
okkur tekst það eftir-
leiðis sem hingað til
þurfum við ekki að ótt-
ast framhaldið.“
í rétt á tvo eða þrjá útsölustaði í
höfuðborginni til að kaupa sér
rauðvínsflösku með hamborgar-
hryggnum eða sherry-flösku í
baksturinn. Ég get ekki skilið svo
við umrædda grein að ég vitni
ekki í skrif greinarhöfundar þar
sem hann segir orðrétt: „Með
Miklagarði urðu mikil umskipti í
smásöluverslun á höfuðborgar-
svæðinu og langt út fyrir það,
bæði í verðlagi og þjónustustigi.
Sú harða samkeppni sem oft er
vitnað til á höfuðborgarsvæðinu á
rætur sínar að rekja til opnunar
Miklagarðs og styrkleika sam-
vinnuverslunarinnar hér en ekki
öfugt."
Eg hef áður lesið svipaðar full-
yrðingar oftar en einu sinni og
oftar en tvisvar frá greinarhöf-
undi. Það virðist sem hann reyni
sífellt að tyggja þessa fullyrðingu