Morgunblaðið - 04.11.1986, Síða 21

Morgunblaðið - 04.11.1986, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986 21 Kenneth Clark Erlendar bækur Siglaugur Brynleifsson Meryle Secrest: Kenneth Clark. A Biography. Weidenfeld and Nicoi- son 1985. Meryle Secrest kynntist Clark lávarði 1969, þá hafði hún hlotið Pulitzer-verðlaunin fyrir bók sína „Being Bemard Berenson". Clark leyfði henni aðgang að öllum einka- skjölum sínum, hún átti viðtöl við nánustu skyldmenni hans og vini. Clark skrifaði minningar sínar, sem komu út 1974, Another Part of the Wood og The Other Half, sem kom út 1977. Þessi rit eru m.a. heimildir að þessari ævisögu. Höfundur segir frá ættemi Clarks, ættin verður rakin til Skot- lands, en með iðnbyltingunni efnuðust forfeður Kenneths Clarks og ráku baðmullarverksmiðjur með ágætum árangri og því fylgdu ýms- ar breytingar á viðhorfum og mati, drykkjuskaparóregla hijáði ýmis náin skyldmenni Kenneths og faðir hans myndi kallast drykkjusjúkling- ur nú á dögum, en -þótt svo væri, þá dmkku þeir frændur einlægt „með decomm", en ekki eins og dónamir. Secrest lýsir skólagöngu Clarks, en þar gekk á ýmsu. Hún leitast við að lýsa þeim orsökum sem ollu því að hann varð einn meðal merkustu listfræðinga samtímans. Hún lýsir all ítarlega einkalífi hans og persónulegum högum, efnislegum og andlegum. Kenneth Clark varð forstöðu- maður „National Gallery" 1. janúar 1934. Hann hafði allt frá blautu bamsbeini ætlað að verða listamað- ur, en það snerist síðar í þá átt að hann tók að skrifa um listir og lista- menn og gerði það á þann hátt, að hann jók skilning fjölda einstakl- inga fyrir verðmætum, sem þeim var áður lokuð bók. Hann vissi manna best hversu listir og bók- menntir auðga og fylla líf manna og með áhrifavaldi sínu tókst hon- um jafnvel að „beija hina þykk- húðustu tötrapólitíkusa til þess að leggja ekki steina í götu lista og bókmennta með fáránlegum og lubbalegum ráðstöfunum". Fyrsta rit Clarks var „The Goth- ic Revival", sem kom út 1928. Frá 1935 rak hvert ritið annað, „Leon- ardo da Vinci, an account of his development as an artist" kom út hjá Cambridge 1939, „Landscape Into Art" 1949, „Piero della Franc- esca“ 1951, „The Nude" Í959, „Rembrandt and the italian Rena- issance" 1966 og „Civilisation" 1969. Síðastnefnda bókin var byggð á 13 sjónvarpsþáttum höfundar, Clark rekur í þessari bók sögu menningar Evrópu frá hmni róm- verska ríkisins fram á okkar daga. Hann Qallar hér um hugmyndir, bókmenntir, byggingarsögu, mál- aralist og einnig þá einstaklinga, sem með ritum sínum og verkum sköpuðu þessa menningu. Þessi bók Clarks varð kunnust rita hans, kom í ótal útgáfum á helstu þjóðtungum. „Moments of Vision" 1982 varð síðasta bókin, sem kom út að honum lifandi. Síðasta bók hans kom út eftir fráfall hans 1983, „The Art of Humanism", en sá titill tjáir lífsverk Kenneths Clarks. Kenneth Clark fæddist í Sud- boume Hall 13. júlí 1903 og lést 21. maí 1983. Eftirskólann. „Eitthvað braqðqott, helstAldSnf" {Vyr.) .,..1 Kllll IKlé SYKURSNAUÐUR |j .. Ti i f8 ■f -1 Nú fást fimm bragðtegundir af Aldin grautum, með sykri eða Nutra Sweet, í 1 eða Vz lítra umbúðum. Aldin í öli mál! SÓLHF |?jóNusTA Revms^ p Pe«k,nG B FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670 ■Mtjgn&i girmotorar rafmótorar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.