Morgunblaðið - 04.11.1986, Síða 26

Morgunblaðið - 04.11.1986, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986 Tek ekki sæti á þessum lista - segir Páll Dagbjartsson „ÉG er auðvitað svekktur með þessa niðurstöðu og tek ekki sæti á þessum lista. Ég ætla mér þó ekki í sérframboð, þar sem ég tel að Sjálfstæðisflokkurinn hér, eins og í öðrum kjördæmum, þurfi heldur á einingu en ósætti að halda. Ég hef orðið var talsverðrar óánægju með meðferðina á mér og ótrúlega margir, sem ég hafði samband við fyrr í haust, töldu það aðeins formsatriði að ég færðist upp. Ég taldi svo hins vegar ekki, en margir af stuðningsmönnum mínum hafa greinilega sofið á verðinum,“ sagði Páll Dagbjartsson í sam- tali við Morgunblaðið. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson. Eyjólfur Konráð Jónsson meðal annarra fundarmanna á aðalfundi Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra. Sjálfstæðisflokkurinn í Norðurlandskjördæmi vestra: Pálmi í fyrsta sæti, Vilhjálmur í annað Páll skipaði þriðja sæti lista Sjálf- stæðisflokksins í Norðurlandskjör- dæmi vestra við síðustu alþingis- kosningar og á kjördæmisþingi flokksins um helgina kom til um- ræðu að hann tæki sama sæti. Páll sagðist hafa látið það berast meðal sjálfstæðismanna, þegar ljóst var að Eyjólfur Konráð Jónsson, sem áður skipaði annað sæti list- ans, hefði ákveðið að bjóða sig fram í Reykjavík, að hann gæfi kost á sér í annað sætið. „Miðað við undir- tektir bjóst ég við því að ég næði því sæti; allavega varð ég ekki var neinnar andstöðu við mig,“ sagði Páll. „Þegar ljóst var að leitað hafði verið til Vilhjálms Egilssonar um að hann gæfí kost á sér í annað sæti, gerði ég mér grein fyrir nok- kurri undiröldu gegn mér og ósamstöðu innan flokksins. Það kom líka í ljós á kjördæmisþinginu að menn voru ekki á einu máli um skipan listans. Hins vegar tók ég þá stefnu að verða ekki valdur að missætti og tel ekki spennandi hlut- skipti að knýja fram framboð með látum og fá svo kannski slæma útreið að vori. Nýjar reglur um skiptingu þingsæta milli kjördæma veikja kannski möguleika Sjálf- stæðisflokksins hér í kjördæminu á því að halda öðru sætinu. Ég get ekki neitað því, þegar upp kemur staða, þar sem margir sækjast eftir sama sætinu, að það væri lýðræðis- legra að viðhafa prófkjör eða skoðanakönnun meðal hins al- menna flokksmanns um val á milli manna, en tillaga þess efnis var felld á fundinum," sagði Páll Dag- bjartsson. Blönduósi AÐALFUNDUR kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðurlands- kjördæmi vestra var haldinn á Húnavöllum um helgina. Meginmál fundarins var skipan manna á framboðslista Sjálfstæðisflokksins i komandi kosningum. Kjörnefnd gerði tillögu um skipan þriggja efstu manna á listans, en það er að Pálmi Jónsson, alþingismaður, skipi fyrsta sætið, Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur VSÍ, verði í öðru sæti og Karl Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri á Hvammstanga, í þvi þríðja. Aðalfundurinn hafnaði tillögu um að efnt yrði til prófkjörs, en Páll Dagbjartsson, skólastjóri í Varma- hlíð og Jón ísberg sýslumaður á Blönduósi, gáfu kost á sér í annað sæti listans. Um endanlegan frá- gang á listanum og skipan í sæti verður tekin ákvörðun síðar í mán- uðinum. Eyjólfí Konráð Jónssyni, sem skipaði annað sæti lista Sjálfstæðis- flokksins í kjördæminu í síðustu kosningum, voru færðar gjafír og þakkir fyrir vel unnin störf í þágu kjördæmisins, en hann er nú á för- um í annað kjördæmi, sem alþjóð veit. Eiginkonu Eyjólfs, Guðbjörgu Benediktsdóttur, voru færð blóm sem þakklætisvottur frá sjálfstæð- isfólki á Norðurlandi vestra. Jón Sig. Er þakklátur fyrir traustið - segir Vilhjálmur Egilsson „ÉG ER kjörnefnd þakklát- ur fyrir það traust og þann hlýhug, sem mér er sýndur Kjaramálaályktun Dagsbrúnar: Samningar um hækkun lægstu launa verði í höndum félaganna ASÍ semji um heildarkaupmáttarþróun VERKAMANNAFÉLAGIÐ Dags- brún mun í komandi kjarasamn- ingum leggja áherslu á að gerðir verði bráðabirgðasamningar til 1. maí á næsta ári og heildar- samningar verði ekki gerðir fyrr en ný ríkisstjórn hefur tekið til starfa að afloknum kosningum og efnahags- og kjarastefna þeirrar stjórnar liggi fyrir. Ályktun þessa efnis var sam- þykkt á almennum félagsfundi í Iðnó á sunnudag. Þar er einnig lögð áhersla á að samningsrétturinn verði í höndum einstakra félaga og þau noti tímann fram til 1. maí til þess að fínna leiðir til þess að draga úr innbyrðis launamisrétti og leggja drög að nýju launakerfí. Lögð er áhersla á að heildarkaupmáttur aukist og umfram allt að hann verði jafnaður á milli starfsstétta og að kaupaukar verði færðir sem mest inn í tímakaup. Áfram verði unnið að lækkun verðbólgu og stöðugleika í efnahags- og atvinnuþróun. Þá er lagt til að nýtt skattakerfi verði tekið upp, þar sem frádráttarliðum og skattþrepum verði fækkað og komið í veg fyrir skattsvik eins og kostur er með markvissum aðgerð- um. Þá verði um leið tekið upp staðgreiðslukerfi skatta. Þröstur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Dagbrúnar, mælti fyrir kjaraályktuninni. Sagði hann að heildamiðurstaða síðustu samninga væri góð, þó gallalaus væri hún ekki. Án samninganna í febrúar værum við ennþá að berjast við óðaverðbólgu og lækkandi kaup- mátt þrátt fyrir miklar kauphækk- anir. „Markleysi gömlu aðferðar- innar var flestum orðið ljóst. Við sömdum ekki lengur um kjarabætur heldur verðbólgustig. Við vildum fremur semja um kjarabætur þótt hægt færi en háar kauphækkanir sem hyrfu. En til þess að svo gæti orðið þurfti að binda ránsklær ríkis- valdsins," sagði Þröstur. Þröstur sagði það staðreynd, að þrátt fyrir góðærið, hefði kaup- máttur lægstu tekna ekki batnað, enda væri almenn kaupmáttaraukn- ing samkvæmt vísitölu lélegur mælikvarði fyrir tekjulágt fólk, sem eyddi miklum meirihluta tekna sinna í nauðþurftir. Sagði hann það tillögu Dagsbrúnar að jöfnun iauna- mismunar og hækkun lægstu launa sé framkvæmd af einstökum félög- um, enda vissu þau best hvar skórinn kreppti. Hins vegar ætti ASÍ að semja um heildarkaup- máttarþróun. með því að bjóða mér annað sætið á lista flokksins. Ég vil ennfremur þakka öðrum þeim, sem að þessu hafa unnið fyrir norðan,“ sagði Vilhjálmur Egilsson í sam- tali við Morgunblaðið. Á fundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norður- landskjördæmi vestra um helgina lagði kjörnefnd til að Vilhjálmur yrði í öðru sæti list- ans við komandi alþingiskosn- ingar. Það sæti skipaði áður Eyjólfur Konráð Jónsson, en hann er nú á lista Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Vilhjálmur sagði ennfremur, að ekki væri endanlega búið að ganga frá listanum, en að því loknu hæfist slagurinn. Hann væri í báráttusæti og það þyrfti að vinna mikið og hart til að ná kjöri og að því stefndi hann. ÁTVR hættír sölu 33 tegunda - ef tillögnr forráðamanna ÁTVR ná fram að ganga TEGUNDUM þeim, sem boðið er upp á í Áfengis- og tóbaks- verslun ríkisins, verður að öllum líkindum fækkað um 33 talsins ef tillögur þær er forr- áðamenn ÁTVR hafa lagt til, ná fram að ganga. Breyting- arnar munu þá taka gildi frá og með 1. febrúar nk. Eins og fram hefur komið í fréttum, er rætt um að fækka þeim tegundum er minnst seljast til þess að koma á sem mestri hagræðingu á birgðir verslunar- innar, að sögn Þórs Oddgeirsson- ar, framleiðslu- og sölustjóra ÁTVR. „Það er mjög slæmt að liggja með birgðir til lengdar sem seljast lítið og eins eru sumar þessarra tegunda svo keimlíkar að full ástæða þykir að fækka tegundum þess vegna. Þó verður gætt ýmissa sérkenna," sagði Þór. Ekki hefur endanleg ákvörðun verið tekin um hvaða tegundir fara af skrá, nema þær sem selj- ast minnst. Ákveðið hefur verið að fækka rommi um eina tegund af sex og samkvæmt skrá um sölu ÁTVR á rommi fyrstu níu mánuði ársins, er Negrita sölum- innsta rommið, 519 lítrar. Sölu- hæsta rommið er Bacardi, 33.219 lítrar. Koníaki mun fækka um fjórar tegundir af átta, sem nú eru seld- ar. Söluhæsta koníakið fyrstu níu mánuði ársins er Camus, 12.253 lítrar, en fjórar sölulægstu koní- akstegundimar eru: Hine, Luze, Bisquit og Martell. Ballantine’s viskí virðist vin- sælast skosku viskítegundanna samkvæmt skrá ÁTVR. Alls seld- ust 30.706 lítrar af því fyrstu níu mánuði ársins og næst kemur Johnnie Walker, 17.638 lítrar. í ráði er að fækka skoskum viskí- tegundum um 15 og munu níu tegundir verða því eftir á mark- aðnum. Þær sem eru sölulægstar nú, eru: Hedges & Buttler, High- land Queen, White Label, Ambassador, Glaymore, Long John, Old Smuggler, White Heat- her, Cutty Sark, Mac Kinley’s, Black & White, Argyll, Vat 69, Famous Grouse og J. & B. Rare. Áætlað er að hafa átta tegund- ir af vodka á boðstólum í staðinn fyrir 21 nú og mun því vodkateg- undum fækka um alls 13. Þær vodkategundir sem nú eru söiu- lægstar eru: Cossack, Jelinek, Kelevich, Glenmore, Vladivar Im- perial, Zikova, Kasoff, Greenland Sermeq, Baranof, Samovar, Roy- al, Moskovskaya og Tovarisch.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.