Morgunblaðið - 04.11.1986, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986
27
Hópurinn kampakátur við rútuna, sem fylgdi þeim sem færaanleg bækistöð.
Morgunblaðið/Rax.
Hr /- ■ ' I Ww u
>y1
Veðurfar var ekki hagstætt til hjólböruaksturs
á Hellisheiði, en nemendur Fjölhrautarskólans i
Breiðholti léti það ekki á sig fá. 30 þeirra skipt-
ust á um aksturinn, einn kílómetra í senn og
höfðu ávaxtasafa í börunum til að slökkva þors-
tann.
Heimsmet
í hjólböruakstri
Selfossi.
HEIMSMET í hjólböruakstri var að öllum líkind-
um sett sl laugardag en þá óku verðandi stúdent-
ar við Fjölbrautaskólann í Breiðholti hjólbörum
frá Selfossi tU Reykjavíkur.
Heimsmetstilraun þessi var öðrum þræði til fjár-
öflunar fyrir utanferð stúdentanna til Amsterdam
að loknu prófi á haustönn. Ferðin hófst á Ölfusár-
brú og endaði við skemmtistaðinn Evrópu í
Reykjavík. Ekki verður annað sagt en ökumennirnir
hafi borið sig fagmannlega að við aksturinn og kátín-
an var í fyrirrúmi. Hjólböruaksturinn gekk fljótar
fyrir sig en áætlað hafði verið og því var tekinn
hringur um Breiðholtið áður en komið var að Evr-
ópu. Hjólbörunum var því ekið á milli 60 og 70
kílómetra leið þrátt fyrir rysjótt veðurfar
Sig Jóns.
UNESCO 40 ára
UNESCO, Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, er fjörutíu
ára í dag, þriðjudaginn 4. nóvember, en þennan dag árið 1946 tók
stofnskrá þessara alþjóðasamtaka gildi með því að tuttugasta ríkið
staðfesti hana og gerðist aðili að
ísland gerðist aðili að UNESCO
hinn 8. júní 1964 og tveimur árum
síðar var íslenska UNESCO-nefnd-
in sett á laggimar sem ráðgefandi
starfshópur. Hefúr Menningar-
málastofnunin haft ýmsislega
samvinnu við Islendinga síðan og
stutt tiltekin hugðarefni okkar á
alþjóðavettvangi. Má þar nefna
þýðingar og útgáfu íslenskra bók-
mennta, fornra og nýrra, á heims-
málum.
aðildarríki UNESCO, sem eru nú
158 að tölu, hafa deilt nokkuð um
leiðir að marki á undanfömum
árum. Hefur þetta valdið stofuninni
erfiðleikum, einkum fjárhagslegum,
stofnuninni.
eftir að einstök aðildarríki sögðu
skilið við hana. í fréttatilkynningu
frá Menntamálaráðuneytinu segir
að UNESCO vinni þó áfram virkt
starf á sínum vettvangi og hafi tek-
ist að halda öllum meginverkefnum
gangandi og lífvænlegum. Jafn-
framt leitist aðalráðstefna, stjóm
og skrifstofa UNESCO við að lægja
öldur ágreinings og stuðla að sam-
komulagi sem vonast er til að geti
senn gefið þann árangur, að stofn-
unin verði aftur að almennum
alþjóðasamtökum allra ríkja sem
aðhyllist markmið hennar og stofn-
skrá.
(Fréttatiikynning frá Menntamála-
ráðuneytinu.)
Tilboð opnuð í lyftu Blönduvirkjunar:
Islendingar áttu
lægstu tilboðin
TVÖ ÍSLENSK fyrirtæki, Héðinn hf. og Bræðumir Ormsson hf.
áttu lægstu tilboðin í fólkslyftu í strengja og lyftugöng Blönduvirkj-
unar en þar er um að ræða smíði og uppsetningu á víralyftu þar
sem lyftihæðin er 238 metrar. Lægstu tilboðin tvö em frávikstilboð
við útboðið en auk þeirra bámst
tvö frá erlendum fyrirtækjum.
Kostnaðaráætlun ráðunauta var
upp á 11,6 miljónir króna en tilboð-
in vom þessi: 1. Amimak Enginer-
ing AB, Svíþjóð (frávikstilboð)
kr.38.307.767; 2. Masco NV,
Belgíu, kr. 33.797.505 ; Héðinn
hf., kr. 15.921.605; Héðinn hf. (frá-
vikstilboð), kr. 11.452.948; Björg-
vin Kristjánsson hf., kr. 18.393.
508; Bræðumir Ormsson hf., kr.
20.876.051; Bræðumir Ormsson hf.
(frávikstilboð), kr. 10.850.000; Vél-
x tilboð i smíði lyftunnar, þar af
smiðjan Trausti hf., kr. 27.432.808.
Til viðbótar barst tilboð frá Otis
Elevator eftir að formlegri opnun
tilboða lauk.
Tilboðin gilda í sex mánuði og
verða nú könnuð með tilliti til út-
boðsgagna og borin endanlega
saman. Að því búnu mun stjóm
Landsvirkjunar taka afstöðu til
þeirra og skýra frá niðurstöðum
sínum.
USTASAFN
ÍSLANDS
Nú býðst þér
töfraheimur íslenskrar
myndlistar
á góðu verði
Auk listaverkamyndanna, sem flestar eru
litprentaðar, er í bókinni heildarskrá íslenskra
verka í eigu safnsins, æviatriði höfunda og ágrip af sögu Listasafnsins.
Bókin er ómissandi fyrir alla sem láta sig íslenska myndlist varða;
Listamenn, fræðimenn, námsmenn, listunnendur og aðra, sem vilja
kunna skil á menningararfi okkar.
Frábær greiðslukjör á bókinni
Ef þú hefur samband við okkur getur þú fengið bókina senda heim.
Þá má greiða bókina með afborgunum og dreifa þannig lágu verði á
langan tíma!
Kjörin gjöf til vina og viðskiptamanna innanlands sem utan.
Bókin Listasafn íslands 1884-1984
er sérstaklega falleg listaverkabók sem hefur að
geyma margar af perlum listasögu okkar.
Verð aðeins kr. 3.705-