Morgunblaðið - 04.11.1986, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986
37
AKUREYRI
Stefán Valgeirsson heldur ræðu sína á fundinum á sunnudag og á myndinni til hægri veifar hann til
fundarmanna áður en hann yfirgefur vettvang.
Stefán Valgeirsson í ræðu um „aftöku“ sína:
Vantar mynd af Kolbeins-
ey á bak við mig með fána
okkar í hálfa stöng
ÞEGAR Ijóst var að Guðmundur
Bjarnason hafði hreppt efsta
sætið á lista Framsóknarmanna
í Norðurlandskjördæmi eystra
sté Stefán Valgeirsson í pontu
og Iýsti því yfir að hann tæki
ekki sæti á lista flokksins fyrir
næstu kosningar.
Stefán hafði eftirfarandi ræðu
tilbúna vélritaða og las hana af
blaði:
„Þingforsetar, kæru samherjar,
andstæðingar. Þá hefur aftakan
farið fram. Þar af leiðir að ég tek
ekki þátt í þeirri skoðanakönnun
sem hér á eftir á að fara fram, og
mitt nafn verður ekki á þessum lista
ef einhveijum dettur það í hug að
fara fram á það við mig. Það eina
sem vantar á þá sviðsetningu sem
hér fer fram svo hún sé fullkmoin
er mynd af Kolbeinsey hér á bak
við mig með fána okkar í hálfa
stöng.
Ég er ekki viss um að sigurvíman
vari lengi. Meirihlutinn hér hefur
kveðið upp dóm yfir verkum mínum,
yfír viðhorfum mínum, með aldur
minn að yfírskyni. En þeim dómi
er hægt að áfrýja. Og verði það
gert gæti orðið á brattann að sækja
fyrir einhveija, þá þýðir tæpast að
hanga í pilsföldum eða ráðamönn-
um fyrir sunnan. Ég vona að þeir,
sem veljast til þingstarfa fyrir þetta
kjördæmi, ekki síst þeir sem verða
fyrir Framsóknarflokkinn, hafí
jafnan dirfsku, þrek og skilning á
að vera merkisberar réttlætis og
jafnræðis, að þeir gerist aldrei
strengjabrúður eða sporgöngumenn
þeirra fyrir sunnan. Að þeir líti jafn-
an á þjóðmálin frá sjónarhóli
Norðlendings en digni ekki í barát-
tunni vegna framavona sjálfum sér
til handa. Ég mun ekki taka þátt
í umræðum sem kunna að koma
upp nú. Ég mun ekki heldur hlusta
á þær umræður sem kannski fara
hér fram. Ég á því þann kost einan
að yfírgefa þennan stað. Þar sem
þetta munu vera mín lokaorð vil
ég þakka fyrir samstarfíð á þessum
20 árum sem ég hef setið á al-
þingi. Ég vil þó sérstaklega þakka
þeim sem studdu mig til framboðs
nú og einnig öllum þeim vil ég
þakka sem höfðu samband við mig,
í sambandi við þetta prófkjör, bæði
félagsbunið og ófélagsbundið fólk
Ég vil að endingu þakka Ingvari
Gíslasyni fyrir samstarfíð á þessum
árum. Ég vil láta það koma fram
hér að ég met hann mikils fyrir
margra hluta sakir.
Þegar menn stóðu á aftökustð
fyrr á öldum var það venja og
óskráð lög að slíkir menn máttu
leggja fram eina ósk. Virðulegu
forsetar, þingfulltrúrar. Þar sem ég
stend nú á slíkum stað og það hér
á hótelinu á Húsavík, má ég þá
bera fram eina litla ósk sem er út-
gjaldalaus en sem ég óska eftir að
verði uppfyllt hér og nú. Ósk mín
er sú að forsetar gefí engum orðið,
að minnsta kosti í tvær mínútur,
og að enginn hreyfí sig í sætum
sínum á sama tíma á meðan ég
geng út úr þessum sal og hef mig
af stað frá þessu húsi. Ég hygg að
sumum veiti raunar ekki af þagnar-
stund eins og nú er komið málum.
Sök má spjalla, sanna og
logna,
sérhvem galla sneiða í kring.
Ég skal falla, en aldrei bogna,
eða halla sannfæring.
Ég hef lokið máli.“
Fundarmenn klöppuðu mikið eft-
ir þessa ræðu Stefáns, hann veifaði
til þeirra og gekk síðan rakleitt úr
salnum og út úr húsinu.
Valgerði Sverrisdóttur á Lóma-
<jöm fagnað að atkvæðagreiðslu
lokinni.
Meirihluti Norður-Þingeyinga gengur úr salnum eftir að þeirra
maður tapaði í kosningu um annað sæti listans.
Valgerður Sverrisdóttir:
Bað Stefán að
hætta í sumar
„AUÐVITAÐ finnst manni það
ákaflega leiðinlegt að mennirnir
skildu taka þessa ákvörðun að
ganga af fundi. Við erum búin
að ákveða á kjördæmisþingi að
nota þessa reglu við uppröðun á
lista og því finnst mér óeðlilegt
að menn geti ekki tekið þeim
niðurstöðum sem þarna fást. Ég
trúi ekki öðm en þegar menn
era búnir að jafna sig eftir þenn-
an erfiða dag að þeir sameinist
um þennan lista,“ sagði Valgerð-
ur Sverrisdóttir i samtali við
Morgunblaðið eftir að ljóst var
að hún hlyti 2. sætið.
Valgerður var spurð hvort hún
óttaðist sérframboð. „Ég hef það
mikla trú á félagslegum þroska
Framsóknarmanna í kjördæminu
að ég trúi ekki öðru en þeir átti sig
og sameinist um þennan lista.“
Hvernig túlkaðirðu orð Stef-
áns í ræðunni - sagði hann ykkur
að hann hygði á sérframboð?
„Nei, ég túlkaði orð hans ekki
þannig."
Þú studdir Guðmund i 1. sæt-
ið. Taldir þú rétt að Stefán léti
af þingmennsku nú?
„Ég verð að segja að ég átti tal
við Stefán í sumar og ræddi þetta
við hann. Af því að mér er sérstak-
lega vel við Stefán - ég hef verið
á listanum og starfað með honum
- bað ég hann um að draga sig í
hlé því ég vildi honum ekki það illt
að lenda í þssum slag, sem ég hafði
á tilfínningunni að gæti farið svona.
Ég var búin að heyra svolítið ofan
í fólk og því fannst að tími væri
kominn til að hann drægi sig í hlé.
Ekki síst vegna þess að meðalaldur
þingflokksins er mjög hár og konur
og ungt fólk hafa verið að reyna
að hasla sér völl innan flokksins.
Því hefði mer fundist eðlilegt að
Stefán hætti nú. En ég vil taka
skýrt fram að þegar ég talaði við
Stefán í sumar var ég ekki að ýta
honum út til að komast að sjálf -
það var löngu seinna sem ég ákvað
að gefa kost á mér,“ sagði Valgerð-^
ur.
Enn ekki ljóst hvort Stefán Valgeirs-
son fer í sérframboð:
Ahrífamenn hjá Sam-
bandinu lögðu sig fram
um að vinna gegn mér
Akurevri.
STEFAN Valgeirsson sagði í gær
ekkert hafa gerst enn sem bendi
til þess að hann fari i sérframboð
við næstu alþingiskosningar.
Sagðist vera að hugsa málin.
„Það er misskilningur ef einhver
túlkar orð mín í ræðunni þannig
að ég segðist ætla í sérframboð.
Ég sagði í minni ræðu að það væri
hægt að áfrýja þessum dómi. Þá
var ég ekki að meina manninn Stef-
án Valgeirsson heldur þá túlkun á
málum og viðhorf til málefna, sér-
staklega landsbyggðarinnar, sem
ég hef verið að reyna að túlka en
kannski ekki verið nógu kröftugur
í að fylgja eftir."
Stefán sagði mikið_ hafa verið
rætt um sérframboð. „Ég hef mikið
verið spurður um þetta en það er
ekki ég sem myndi ráða því og
spumingin er hvemig það ætti að
bera að og hver yrði í forsvari fyr-
ir því.“
Menn á Þórshöfn vinna nú að
undirbúningi stuðningsyfirlýs-
ingu við þig um að fara fram.
Kemur það þér á óvart?
„Mér er kunnugt um þetta. Það
sagði einn þeirra við mig eftir kjö-
rið á Húsavík: þú veist hvemig
tilfinning okkar er. Við höfum hér
eftir ekki til neins að leita með
okkar mál.“ Stefán sagðist hafa
vitað það löngu fyrir að ef hann
næði ekki fyrsta sætinu hefðu menn
eystra áhuga á sérframboði. „En
það er erfítt fyrir mig að ná þessu
sæti þegar hér um bil öll kjördæmis-
stjómin var á móti mér. Það var
bara einn af sjö sem studdi mig.
Og þegar áhrifamenn hjá Samband-
inu leggja sig fram um að skipu-
leggja aðgerðir á móti mér.“
Viltu nefna nöfn þessara Sam-4
bandsmanna sem þú átt við?
„Ég læt þetta duga núna, ég á
kannski eftir að nefna nöfn síðar."
Þú nefnir forystumenn í kjör-
dæmisráði og háttsetta menn hjá
Sambandinu. Hvað með flokks-
forystuna sjálfa - lagðist hún
gegn þér?
„Það er hald ýmsra hér að svo
sé og það sé ástæðan fyrir því að
kjördæmisstjórnin snérist á móti
mér.“
Er það Steingrímur Her-
mannsson sjálfur sem vann gegn
þér?
„Ég veit ekkert um þetta en ég
hef mínar grunsemdir." ^
Húsmæður
á Akureyri
Hafið þið áhuga á að fá ykkur morgungöngu
sem borgar sig? Hafið þá samband við af-
greiðslu Morgunblaðsins á Akureyri. Sími
23905.
Morgunblaðið á Akureyri
Hafnarstræti 85,
sími23905.